Morgunblaðið - 25.02.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR1986
Kastið ei
perlum
Tvær harla ólíkar sjónvarps-
myndaraðir runnu sitt skeið á
skerminum síðastliðinn sunnudag.
Önnur þáttaröðin, Blikur á lofti eða
Winds of War, e_r dýrasta sinnar
tegundar en hin, Á fálkaslóðum, er
sennilega með þeim ódýrustu. Samt
hafði ég nú miklu meira gaman af
þeirri síðamefndu og stóð satt að
segja upp kalinn á hjarta er stríðs-
vindamir fjöruðu út á skerminum.
Hvemig í ósköpunum gátu mennimir
klúðrað svo gersamlega hinum
áhrifaríka texta? Ég hélt að ætlunin
hefði verið að lýsa inn í myrkviði síð-
ari heimsstyrjaldarinnar en þess í
stað staðnæmist myndaugað við
ástarfar persónanna svo úr verður
eins konar hrærigrautur væminna
ástarfarslýsinga og sundurlausra
myndbrota úr síðari heimsstyijöld-
inni. í lokasenunni fallast svo allir
ameríkanamir í faðma og Mitchum
ekur á bíl sínum upp á hæð við
Perluhöfn þar sem hann lítur yfír
hafíð og muldrar einhver spekiorð
um kærleika og ást. Vantaði bara
geislabauginn á kallinn.
Sóun
Það er sárara en tárum taki að
hugsa til þeirra ríflega 40 milljóna
dollara er hefir verið eytt í þessa
mynd. Eða hugsið ykkur alla þá
hæfíleikamenn á sviði leikstjómar er
ganga um atvinnulausir I hinum stóra
heimi eða neyðast til að fílma auglýs-
ingar daginn út og daginn inn. Svo
kasta imbamir 1 Hollywood næstum
tveimur milljörðum króna I leikstjó-
rann Dan Curtis sem hefir einkum
fengist við að framleiða hryllings-
myndir fyrir sjónvarp. Svo sannar-
lega heppnaðist mannvesalingnum
að framleiða eina slíka fyrir sum-
muna. Ýmsir em þeirrar skoðunar
að uppaf lággróðrinum vaxi hin
hæstu tré. Ég held að upp af slíkum
menningarlegum lággnSðri sem
Stríðsvindum vaxi akkúrat ekki neitt.
Þar hefír dýrmætt fjármagn farið til
spillis, fjármagn sem hefði getað
margfaldast í andlegum skilningi í
höndum færra kvikmyndagerðar-
manna. Og það sem er enn verra að
fjármagnið skiptir ekki um eigendur
þótt því sé jafh illa varið og raun ber
vitni. Andlausir fjármálaspekúlantar
gína eftir sem áður yfír hinum gildu
sjóðum og listamennimir í hópi kvik-
myndagerðarmanna munu bítast á
auglýsingamarkaðinum. Þó gæti
orðið hér breyting á með aukinni
upplýsingu almennings og vaxandi
frelsis á sjónvarpssviðinu. Bætt al-
menn menntun og aukin yfírsýn hins
almenna sjónvarpsneytanda í kjölfar
alheimssjónvarpsins gæti veitt Qár-
málaspekúlöntum lífsnauðsynlegt
aðhald. Þegar sá tími kemur að menn
taka að kúgast í sjónvarpsstólum
strax í öðrum þætti þá er viðbúið að
listamennimir eigi næsta leik.
Haukurfrœndi
Eins og ég sagði hér áðan, þá
hafði ég meiri ánægju af að horfa á
Hauk frænda í sjónvarpsröðinni Á
fálkaslóðum en sjálfan Mitchum í
Stríðsvindum. Ekki endilega vegna
þess að þátturínn Á fálkaslóðum hafi
verið svo ýkja fmmlegur en þó rak
hver uppákoman aðra þannig að sjón-
varpsáhorfandinn dottaði ekki f stóln-
um. Ekki spillti umhverfíð, hið und-
urfagra Mývatn, perlan sem aldrei
má hverfa f flóshauginn. Ég sendi
leikendunum Jóni Ormari Ormssyni,
Kristni Péturssyni, Amari Steini
Valdimarssyni, Jónasi Jónassyni,
Katrínu Þorkelsdóttur, Helga Bjöms-
syni og öllum hinum mínar bestu
kveðjur með þökk fyrir skemmtileg-
heitin og húmorinn. Handritshöfund-
amir Þorsteinn Marelsson og Valdim-
ar Leifsson eiga líka heiður skilinn
en Valdimar var einnig leikstjóri
þessarar hundódým sjónvarpsmynd-
ar er skyggði á hina umbúðamiklu
en andlausu Stríðsvinda Hollywood-
veldisins.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Óreiðir á Filippseyjum.
Filipps-
eyjar
í brenni-
depli
Kastljós verður
sinni verður fjallað um
Filippseyjar, en einn frétta-
maður sjónvarps, Guðni
Bragason, hefur dvalið þar
undanfama daga og kynnt
sér ástand mála.
Úr söguskjóðunni:
Stúdentahreyfingar og
Framboðsflokkur
HBIM Þáttur Félags
nJO sagnfræðinema
““ verður á dag-
skrá í kvöld kl. 11.10. í
þættinum verður að þessu
sinni fjallað um ’68-
kynslóðina svokölluðu, og
þá með sérstöku tilliti til
stúdentahreyfínga. Reynt
verður að varpa ljósi á
hvers vegna stúdentar risu
upp og mótmæltu á sjö-
unda áratugnum og hveiju
þeir vom að mótmæla.
Einkum verður athygiinni
beint að frönskum stúdent-
um, en einnig verður fjallað
um (slenska stúdenta.
Gunnlaugur Ástgeirsson
mætir í þáttinn, en hann
var stýrimaður Framboðs-
flokksins í Alþingiskosn-
ingunum 1971, og segir
hann frá Framboðsflokkn-
um. Umsjónarmaður verð- I lesari með honum Sigríður
ur Pétur Már Ólafsson, og I Stefánsdóttir.
’68-kynslóðin gagnrýndi margt, m.a. stúdentshúfur.
Ný útvarps-
saga eftir Guðmund
Daníelsson
■■ í kvöld hefst
30 lestur nýrrar
Útvarpssögu á
rás 1. Sagan neftiist „í
fjallskugganum" og er eftir
Guðmund Daníelsson, höf-
undur les. Söguna samdi
Guðmundur er hann var
tæplega fertugur að aldri
og kom hún út 1950. Sagan
gerist á Suðurlandi og
sögutíminn er síðari hluti
nítjándu aldar. Aðalpersón-
an er Þorgils bóndi á Rauð-
stöðum, bæ þar sem ekki
sér til sólar í átján vikur á
hverjum vetri. Að miklu
leyti snýst sagan um ásta-
mál Þorgils, en hann hafn-
ar æskuvinkonu sinni fyrir
auðugt gjaforð. Sagan
verður lesin á sunnudags,
mánudags og þriðjudags-
kvöldum kl. 21.30. Hún er
sextán lestrar.
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
25. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.16 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.16 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.06 Morgunstund barn-
anna: „Undir regnbogan-
um“ eftir Bjarne Reuter. Ól-
afur Haukur Símonarson les
þýöingusína(11).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.46 Þingfréttir
10.00 Fréttir.
10.06 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem örn Ólafsson flytur.
10.10 Veöurfregnir.
10.26 Lesiö úr forystugreinum
dagblaðanna.
10.40 „Ég man þá tíð." Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.10 Úr söguskjóöunni - Um
stúdentahreyfingar og
Framboösflokkinn
Umsjón: Pétur Már Ólafs-
son. Lesari með honum:
Sigrlður Ragnarsdóttir.
11.40 Morguntónleikar.
Þjóðleg tónlist frá ýmsum
löndum.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.46 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar.Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Heilsu-
vernd.
Umsjón: Jónína Benedikts-
dóttir.
14.00 Miödegissagan „Svaöil-
för á Grænlandsjökul 1888“
eftir Friðþjóf Nansen
Kjartan Ragnars þýddi. Ás-
laug Ragnars lýkur lestrin-
um(12).
14.30 Miödegistónleikar.
a. Pianókonsert eftir Igor
Stravinskí.
Michel Béroff og Parísar-
hljómsveitin leika; Seiji
Ozawa stjórnar.
b. „Francesca da Rimini",
fantasía op. 32 eftir Pjotr
Tsjalkovsjd- Cleveland-
sinfóníuhljómsveitin leikur:
Riccardo Chailly stjórnar.
16.16 Barið að dyrum. Inga
Rósa Þórðardóttir sér um
þátt frá Austurlandi.
16.46 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir.
16.20 Hlustaöu meö mér -
Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri.)
17.00 Barnaútvarpiö. Stjórn-
andi: Kristln Helgadóttir.
17.40 Úr atvinnullfinu - lönaö-
arrásin. Umsjón: Sverrir
17.66 Heimsmeistaramótiö I
handknattleik
ísland — Suöur Kórea
Bein útsending frá Genf I
Sviss. Bjarni Felixson lýsir
leiknum.
19.20 Ævintýri Olivers bangsa
Tíundi þáttur
Franskur brúöu- og teikni-
myndaflokkur um viðförlan
bangsa og vini hans. Þýð-
andi Guöni Kolbeinsson,
lesari með honum Bergdís
Björt Guönadóttir.
19.60 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarpiö (Television)
8. Um heimilda- og náttúru-
llfsmyndir
Breskur heimildamynda-
flokkur I þrettán þáttum um
Albertsson og Vilborg Harö-
ardóttir.
18.00 Neytendamál. Umsjón:
Sturla Sigurbjörnsson.
18.16 Tónleikar og tilkynning-
ar.
18.46 Veöúrfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.46 Daglegt mál. Sigurður
G. Tómasson flytur þáttinn.
19.60 Fjölmiðlarabb
Guömundur Heiöar Frí-
mannsson talar. (Frá Akur-
eyri.)
20.00 Vissiröu það? — Þáttur
í léttum dúr fyrir börn á öll-
um aldri.
Fjallaö er um staðreyndir
og leitað svara viö mörgurr,
skrýtnum spurningum.
Stjórnandi: Guðbjörg Þóris-
dóttir. Lesari: Árni Blandon.
(Fyrst útvarpað 1980.)
ÞRIÐJUDAGUR
25. febrúar
sögu sjónvarpsins, áhrif
þess og umsvif um viða
veröld og einstaka efnis-
flokka.
Þýðandi Kristmann Eiösson.
Þulur Guðmundur Ingi
Kristjánsson.
21.40 Taggart
Annar hluti
(T aggart — Dead Ringer)
Skosk sakamálamynd i
þremurhlutum.
Aöalhlutverk: Mark McMan-
us og Neil Duncan.
Efni I. hluta: Líkamsleifar
ungrar konu finnast vand-
lega faldar í húsi einu I
Glasgow. Niöurstaöa rann-
20.23 Reykjavikurskákmótið
Þáttur i umsjá Jóns Þ. Þór.
20.64 „Marblettir í regnbog-
anslitum"
Steinunn Jóhannesdóttir les
Ijóð eftir Normu E. Samúels-
dóttur.
21.06 Ágústa Ágústsdóttir
syngur lög eftir Björgvin
Guömundsson
Jónas Ingimundarson leikur
á píanó.
21.30 Útvarpssagan: „í fjalla-
skugganum" eftir Guömund
Daníelsson. Höfundur byrj-
arlesturinn.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.16 Veöurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma (26)
22.30 Höfum við lifaö áður?
ÆvarR. Kvaranflyturerindi.
23.00 Kvöldstund í dúr og moll
meö Knúti R. Magnússyni.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
sóknar verður sú að þar sé
fundin Margaret Balfour
sem hvarf fyrir áratug. Eigin-
maöurinn hefur setið í fang-
elsi fyrir morðið af völdum
Taggarts en er nú látinn
laus. Málinu viröist lokið en
þá berst lögreglunni tilkynn-
ingu um barnsrán.
Þýöandi Veturliöi Guöna-
son.
22.30 Kastljós
Þáttur um erlend málefni.
Fyrirhugaö er aö þátturinn
veröi frá Filippseyjum þar
sem Guöni Bragason frétta-
maður hefur dvalist undan-
farna daga og kynnt sér
ástand mála.
23.10 Fréttir í dagskrárlok
ÞRIÐJUDAGUR
25. febrúar
10.00 Kátirkrakkar
Dagskrá fyrir yngstu hlust-
endurna í umsjá Ásu H.
Ragnarsdóttur.
10.30 Morgunþáttur
Stjómandi: Páll Þorsteins-
son.
12.00 Hlé
14.00 Blöndun á staðnum
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00 Söguraf sviðinu
Þorsteinn G. Gunnarsson
kynnir tónlist úr söngleikjum
og kvikmyndum.
17.00 Hringiðan
Þáttur i umsjá Ingibjargar
Ingadóttur.
17.46 Tekiö á rás — heims-
meistaraképpnin i hand-
knattleik. Samúel örn Erl-
ingsson lýsir leik fslendinga
og Suöur-Kóreumanna sem
háðureriGenflSviss.
20.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar ( þrjár
mlnútur kl. 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
SJÓNVARP