Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 63. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hægriflokkarnir ná meirihluta í Frakklandi: „Signrinn er naumur - en hann er staðreynd“ viðurkenndi Mitterrand París, 17. mars. AP. FRÖNSKU hægriflokkarnir komu með nauman meirihluta út úr kosningunum á sunnudag, en þeir höfðu hröð handtök um að gefa Francois Mitterrand, forseta, sem minnst svigrúm til að skipa næsta forsætisráðherra. Mitterrand lýsti yfir því í franska sjónvarpinu í kvöld að hann myndi velja nýjan forsætisráðherra úr röðum hægri manna á morgun, þriðjudag. „Hægri flokkamir hafa náð meirihluta. Sigurinn er naumur, en hann er staðreynd," sagði Mitter- rand. Urslit kosninganna liggja nokk- um veginn fyrir og hlutu Lýðveldis- sambandið (RPR) og Lýðræðis- bandalagið (UDF) ásamt nokkrum þingmönnum samtaka óháðra hægrisinna 291 þingsæti af 577, eða aðeins þriggja sæta meirihluta. Skoðanakannanir fyrir kosningam- ar spáðu því að hægri flokkarnir myndu fá allt að 15 sæta meirihluta. Sigur hægriflokkanna er þó nógu stór til þess að þeir geta myndað ríkisstjóm án stuðnings Þjóðemis- fylkingarinnar (Front National), Nicaragua: Reagan ásakar sem hlaut 9,8 prósent fylgi og 35 þingsæti. RPR hlaut 23 þingsætum fleiri en UDF, sem hefur engan augljósan leiðtoga. Það er því lík- legt að Mitterrand tilnefni Jaques Chirac, leiðtoga RPR, til stjórnar- myndunar. Kommúnistaflokkurinn heldur áfram að tapa fylgi rétt að metja meira fylgi en Þjóðemisfylkingin. Ef litið er á kosningamar í heild er tap vinstri manna stórt. Þegar allt pólitíska litrófið er skoðað frá vinstri öfgamönnum til hægri öfga- manna, þá hlutu vinstrimenn 46 prósent fylgi, en hægrimenn 54 prósent. En Mitterrand kveðst ákveðinn í að sitja út kjörtímabil sitt, sem lýk- ur 1988, og reyna allt hvað hann getur til að koma í veg fyrir að hægri menn rífi niður það sem Sós- íalistar hafa gert á fimm ára valda- ferli. Sósíalistaflokkurinn er stærsti flokkurinn á franska þinginu og hefur 205 sæti. Flokkurinn getur tafið fyrir lagafrumvörpum með því að leggja fram breytingartillög- Jaques Chirac (t.v.), leiðtogi Lýð- veldissambandsins, gat ekki varist brosi þegar hann svaraði spum- ingum blaðamanna eftir að úrslit kosninganna á sunnudag höfðu verið kunngerð og Ijóst var orðið að flokkur hans, ásamt Lýðræðis- bandalaginu og Samtökum óháðra hægri manna, hafði náð þriggja sæta meirihluta á þjóðþingi Frakka. Francois Mitterrand, for- seti, var óræður á svip þegar hann greiddi atkvæði sitt á sunnudag. AP/Símamynd „Maðurinn er hugsan- legur morðingi Palme“ — segir ríkissaksóknari Svía stjórnina Washington, 17. mars. AP. RONALD Reagan, Bandaríkja- forseti, sagði í ræðu á sunnu- dagskvöld að vinstri stjóm Sandinista í Nicaragua væri við- riðin eiturlyfjasmygl og morð á fjórum bandarískum sjóliðum. Reagan vantar stuðning þingsins til að samþykkja að veita skæra- liðum 100 milljóna dollara fjár- veitingu í formi hergagna og annars stuðnings, sem ekki lýtur að vopnum. Greidd verða atkvæði um það á þinginu á föstudag hvort skærulið- ar, sem kallaðir eru „Contrar", fái fjárveitingu. Reagan bar fram ásakanimar I ræðu í beinni sjónvarpsútsendingu á sunnudag þar sem hann bað um stuðning bæði þjóðarinnar og þings- ins. James Sasser, öldungadeildar- þingmaður Demókrata, sagði að Reagan gripi til hemaðarráðstafana áður en fullreynt væri hvort frið- samlegri leiðir væm færar. Tals- maður sendiráðs Nicaragua í Wash- ington sagði að stuðningur Reagans við skæruliðana gæti leitt til blóð- ugs stríðs í Mið-Ameríku. Reagan sagði í ræðu sinni að hjálp við skæruliðana væri nauðsyn- leg til að veija landamæri Banda- ríkjanna til suðurs og leiðtogar Nicaragua væru að gera landið að griðastað og höfuðstöðvum alþjóð- legra hryðjuverkamanna. ur. Laurent Fabius, forsætisráð- herra, lagði fram afsögn sína í dag. Sjá einnig forystugrein á miðopnu: Ný stjórn í Frakk- landi, og frásögn á bls. 28. Stokkhólmi, 17. mars. AP. K.G. SVENSSON, rfkissaksókn- ari, sótti í dag um leyfi hjá dóms- yfirvöldum til að fá að halda 32 ára gömlum Svia áfram i gæslu- varðhaldi. Svensson sagði að þær sannanir, sem fyrir hendi lægju, væru nægar til að segja mætti að maðurinn væri „hugsanlegur morðingi Palme". Hans Holmer, lögreglustjóri, sagði á fundi með blaðamönnum í dag að ýmislegt benti til þess að maðurinn væri bendlaður við morð- ið á Palme og hann hefði hegðað sér grunsamlega skammt frá morð- staðnum skömmu eftir að Palme var myrtur. Að sögn Holmers er nú verið að rannsaka í höfuðstöðvum vestur- þýsku lögreglunnar í Wiesbaden hvort merki ieynist í fötum manns- ins um að skotum hafí verið hleypt af. Sagði Svensson, saksóknari, að maðurinn hefði verið í fötum, sem gætu átt við lýsingar sjónarvotta að morðinu af klæðnaði morðingj- ans. Svensson sagði að tíu mínútum eftir morðið hefði maðurinn verið staddur rétt hjá morðstaðnum og uppvægur reynt að fá far í burtu, að því er ökumaður nokkur hefur borið vitni um. Holmer sagði að maðurinn hefði skotið upp kollinum í kvikmynda- húsi skammt frá morðstaðnum eftir að sýning var löngu hafín. „Allt bendir til þess að maðurinn hafí verið að reyna að flýja," sagði Holmer. Maðurinn neitar enn að eiga aðild að morðinu. Svensson sagði að hinn grunaði hefði að sögn vitnis látið þau orð falla í símtali snemma í febrúar að „Palme væri á morðlistanum" og „blóð mjmdi streyma eftir götum Stokkhólms". Að sögn Holmers hefur maðurinn orðið ber að lygum í yfírheyrslum. Júgóslavía: Hagnast á falli dollars Belgrad, 17. mars. AP. FALL Bandaríkjadals á gjald- eyrismörkuðum undanfarið ár hefur minnkað erlendar skuldir Júgóslavíu um 1,09 milljarða dala, að sögn dag- blaðsins Politika. Um 60% af erlendum skuldum Júgóslava, sem nema um 19 milljörðum dala, eru í Banda- ríkjadölum. Þó Evrópugjald- miðlar hafí styrkst gagnvart dal, eru heildaráhrifin samt þau að Júgóslavar hafa hagnast um fyrmefnda upphæð. Lækkun vaxta í kjölfar lækkunar dalsins gera það einnig að verkum að vaxtakostnaður Júgóslava verð- ur 190 milljónum dala minni en búist hafði verið við. AP/Símamynd Palme fylgl til grafar Lisbet Palme, ekkja hins vegna leiðtoga, ásamt syni sínum Jóak- im, og tengdaóttur, Anne Sofie, eftir útför Olofs Palme á laugar- Sjánánar fráútför Pahneásíðu31.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.