Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ 1986
-■ ~7 ■ J* V .* > " ■■ 1 .
Tom og- Viv
inn gerður að „alvöru" veitingastað
með „cuisine nouvelle" upp á
frönsku. En það verður þá ekki
fyrren í vor, eða jafnvel næsta
vetur!“
Hvað um það. Við sendum um-
beðnar upplýsingar-í bréfi og stíluð-
um það þráðbeint til Þjóðleikhús-
stjóra, hr. Gísla Alfreðssonar.
Reyndum að vera kurteis og ákveð-
in, þó ítarleg í öllum málflutningi.
Eftir þónokkra mæðu barst loks
endanlegt og neikvætt svar: „Þjóð-
ieikhúsið sér sér því miður ekki
fært að leigja Alþýðuleikhúsinu
Þjóðleikhúskjallarann undir leiklist-
arstarfsemi sína.“ Basta. Appupp?
Seisei nei. Að vísu hækkuðu nú
góð ráð allverulega í verði. En við,
sem erum verðbólgunni vön frá
blautu bamsbeini, vorum ekkert í
hönk, þó flestir segðu okkur fjand-
ans til. Við trúðum að leiksýningin
okkar, „Tom og Viv“, væri orðin
skolli góð og ætti erindi á fjalim-
ar ... ja, ef ekki í Flatatungu ...
þá... jú, Kjarvalsstaðir hlupu undir
bagga í hittifyrra með Petm. Því
ekki nú? Þar hefur allt hvað mynd-
list varðar verið á hálfum dampi
útaf loftinu fræga. Því ekki að tala
við þau?
Og við skrifuðum stjórn Kjarvals-
staða og óskuðum eftir að fá inni
með Eliot-hjónin í einum og hálfum
sal eða svo (t.d. Kjarvalssalnum,
austursalnum). Fengum svar, (að
vísu ekki um hæl, því Gerla og
Viddi, sem em í stjórninni og líka
meðlimir AÞ, urðu að útvega sér
varamenn — myndlistarmenn sumir
hafa verið með vífilengjur útaf
þessu í blöðum blessaðir veri þeir
nú)... og það svar var jákvætt:
Verið velkomin. Mér er reyndar
sagt að sá frægi íhaldsgaur, Einar
Hákonarson, hafi tekið þarna af
skarið. En hann er líka listamaður
og ætli þeir tendensar hafi ekki
ráðið? Þetta var og er stórkostlegt.
Gerlu, Ingu, Árna og Albert og
öllum hinum tókst að koma þama
fyrir dásamlegu leikhúsi. .. og það
var byijað að æfa aftur og andi
„meistara Kjarvals" var öragglega
með okkur. Allt gekk einsog í sögu.
Lygasögu.
Fmmsýningin á Tom og Viv var
svo loksins þann 30. janúar 1986
og hún var dásamleg. Kannski
besta sýning í bænum. Mér finnst
það. En ég er auðvitað hlutdrægur.
Þó nú væri.
Svona í lokin verð ég að segja
dapurleg tíðindi. Ég var að frétta,
að akkúrat um það leyti og við
vomm að möndla við Þjóðleikhúsið
um „kjallarann", þá reyndu forráða-
menn þess að svæla flutningsrétt-
inn á Tom og Viv frá okkur. Þeir
skrifuðu umboðsmanni höfundar í
London og reyndu að fá hann til
að selja sér réttinn. Líklega á þeirri
forsendu að þeir réðu heilu „Þjóð-
leikhúsi", en við væmm fátækt
„alþýðupakk". Þetta tókst ekki
einsog sjá má á því að sýningar
AL á Tom og Viv em komnar vel
á þriðja tuginn og ekki ekkert lát
á aðsókn, hvað þá kjarki og áhuga
þátttakenda.
En sannast að segja er ég enn
að vona að þessar fréttir séu einhver
misskilning^ur. Ég vil, þó ég sé
reyndar orðinn næstum öllu vanur,
allsekki trúa, að þessir hestamenn
við Hverfisgötuna séu svona miklir
óþverrar. Og hveiju gætu þeir líka
bjargað fyrir sjálfum sér, þó þeir
dræpu Alþýðuleikhúsið, það, sem á
akkúrat ekkert undir sér? Tsjekkoff
og Sjeikspír-floppin em þau sömu.
„Vífið þeirra í lúkunum“ jafn
hörmulegt, og nú hafa þeir gefist
upp á að sýna Grímudansleikinn í
vor. Hann var þó pínulítil fjöður á
kollhúfumar þeirra. Ekki stór að
vísu, en að minnstakosti sýnileg
með sæmilegum gleraugum.
En við skulum ekki gefa upp alla
von. Við skulum biðja af einlægni
fyrir þessu fólki, sem hefur komist
í álnir og valdastöður fyrir einhvem
hræðilegan misskilning ... já ...
við skulum vona og biðja að þrátt
fyrir allt sé eitthvað gott í „Deigl-
unni“ í Þjóðleikhúsinu.
í Guðs friði.
Höfundur er tónskáid.
ITALSKA RIVIERAN
ITALSKA RIVIERAN
Glæsileika Rivierunnar hafa aörir
staöir reynt aö næla sér I meó þvl aö
fá nafniö aö láni aö sjálfsögðu til
þess aö villa fólki sýn. En sam-
kvæmt Encyclopedia Brittanica er
hin eina sanna Riviera ströndin milli
La Spezia á ítaliu og Cannes I Frakk-
landi. Þar höfum viö það.
Verð frá kr. 23.000 i 3 vikur.
ÆVINTÝRA SIGLING
Gott tækifæri fyrir hresst fólk á öll
um aldri og áhugafólk um siglingar.
19 dagar um borö I nýjum 32-36 feta
seglbátum (sem eru búnir öllum
þægindum) og slöan svifiö seglum
þöndum til Korsiku — Sardiniu —
Elbu og aftur til Finale Ligure.
RIMINI
Ströndin á Rimini er ein af þeim
allra bestu. Og skemmtanalífiö er§
viö allra hæfi. Dansstaöir meö lif-
andi tónlist eru vlöa og urmull af
diskótekum. Þeir sem ekki dansa
fara I tívolí, sirkus eöa á hljómleika.
Skoóunarferöir til Rómar, Flórens
og frírlkisins San Marinó, þar sem
allt er tollfrjálst.
Verð frá kr. 24.000 3 vikur.
SÍMI 2 97 40
OG 6217 40
FRÁ KR. 23.000.- í 3 VIKUR
BERIÐ SAMAN OKKAR VERÐ OG ANNARRA
GARDAVATN
Hið undurfagra Gardavatn er staðurj
sem sló i gegn I fyrra. Kjörinn staöurl
fyrir þá sem vilja geta treyst þvl aðj
fá gott veöur þegar þeir dvelja meði
fjölskyldunni I sumarhúsi. Fyrirj
yngri kynslóöina, Gardaland einn
stærsti skemmtigaröur ítallu ogj
Caneva vatnsleikvöllurinn.
Verö frá kr. 28.200.
MH. ..ppSEV.'r
16. JUN)____________________________________.
LUXUSLÍF Á SJÓ
Með hinu glæsilega grlska skemmti-j
feróaskipi La Palma. Siglt frá Fen-
eyjum suöur Adriahaf. Viökomu-
staóir eru Aþena, Rhodos, Krit,[
Korfu og Dubrovnik. Um borö erj
m.a. næturklúbbur, diskótek, spila-j
víti, sundlaug o.m.m.fl.
Verö frá kr. 48.500.
SIKILEY
Sigling og dvöl I sérflokki. Gist á|
Hótel Silvanetta Palace I Milazzo.
Öll herbergi meö loftkælingu. Frá-
bær aóstaóa, einkaströnd, sund-
laug, tennisvellir, diskótek, sjóskiði,
árabátar, hraðbátar, o.fl. o.fl. ís-l
lenskur fararstjóri. Fullt fæði.
Verö frá kr. 47.800 i 3 vikur.
GENOVA
TIL PIETRA ER CA. 45 MIN. AKSTUR.
ÞAÐ ER VISSARA AÐ LATA BOKA SIG SEM FYRST
ÞVÍ ÞESSAR FERÐIR FARA FLJÓTT Á ÞESSU VERÐI.
STAÐFESTINGARGJALD MÁ AÐ SJALFSÖGÐU GREIÐA MEÐ VISA EÐA EURO.
SACHS
Högg
deyfar
V-þýsk
gæöavara
SUÐURLANDSBRAUT 8
.j^SÍMI 84670