Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 41
MOftGÚlsfBLAÐÍÐ, í>RátfOt)ÁGUR 18: MARZ 1986
HANS PETERSEN HF
Reykjavíkurbréf:
Leiðrétting
í Reykjavíkurbréfi síðastliðinn
sunnudag- var prentvilla í tilvitn-
un i grein eftir dr. Svan Krist-
jánsson, dósent, í tímaritinu
Þjóðlífi. Orðrétti átti setningin
að vera svo:
„Bjami Benediktsson var fyrsti
forystumaður (innskot: ekki for-
maður eins og stóð í Reykjavíkur-
bréfí) Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík sem hafði virkan áhuga á verka-
lýðsmálum. Hann var til dæmis
mjög fylgjandi stofnun sérstaks fé-
lags sjálfstæðisverkamanna
snemma árs 1938. Félagið hét Óð-
inn og starfar enn í dag...“ og svo
framvegis.
Þetta leiðréttist hér með.
YASHICA
Egilsstaðir:
Tannáta fylgifiskur
aukinnar sælgætisneyslu
— segir Sigfús Þór Elíasson, prófessor
EgilsstöÓum, 12. mars.
„Tiðni tannátu er nú á svipuðu
stigi hérlendis og var meðal ná-
grannaþjóðanna fyrir einum
10—15 árum,“ sagði Sigfús Þór
Elíasson, prófessor við Tann-
læknadeild Háskóla íslands er
tiðindamaður Mbl. tók hann tali
hér á Egilsstöðum nú i vikunni.
Tannlæknadeild Háskóla íslands
gengst um þessar mundir fyrir víð-
tækri könnun á tannheilsu bama
og ungmenna hérlendis með tilstyrk
heilbrigðisyfírvalda — og er þetta
fyrsta könnun sinnar tegundar á
landsvísu. Könnunin er framkvæmd
skv. ákveðnum úrtaksreglum og
með aðferðum Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunarinnar og mun ná til
2.400 bama og ungmenna á aldrin-
um 6 ára, 12 ára og 15 ára víðs
vegar um land. Könnunin mun því
hafa alþjóðlegt samanburðargildi. A
Austurlandi nær könnunin til fímm
staða, Egilsstaða, EskiQarðar,
Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og
Stöðvarfjarðar.
„Tilgangur rannsóknarinnar er
að kanna tíðni tannskemmda og
bera saman milli landshluta, þétt-
býliskjama og strjálbýlis, og kanna
þörfína á tannviðgerðum og tann-
læknisþjónustu. Lítið er vitað um
tannheilsu íslendinga og þann
árangur sem hugsanlega vinnst
með þátttöku hins opinbera í tann-
læknisþjónustu. Þær upplýsingar
sem fyrir liggja benda til þess að
við séum eftirbátar grannþjóðanna
í þessum efnum og tannskemmdir
hér mun tíðari," sagði Sigfús Þór
Elíasson, prófessor, ennfremur.
„Jú, það má greina ákveðna
fylgni milli tannskemmda og auk-
innar sælgætisneyslu. Sveitaböm
eru yfírleitt með heilbrigðari tennur
en böm í þéttbýli þar sem auðveld-
ara er að nálgast sælgæti en til
sveita. En þótt tannáta sé hér al-
gengari en meðal nágrannaþjóða
okkar eru batamerki vissulega f
augsýn með batnandi matarvenjum
fólks, aukinni og reglubundnari flú-
orburstun tanna og bættri tann-
læknisþjónustu. Þessari könnun er
ætlað að vísa veginn í þessum
efnum, leiða í ljós þörfína á tann-
viðgerðum og tannlæknaþjónustu í
framtíðinni í hinum ýmsu lands-
hlutum."
Og hvemig fer svo þessi rann-
sókn fram?
„Rannsóknin er fólgin í almennri
tannskoðun og auk þess er þátttak-
endum eða aðstandendum þeirra
ætlað að svara ákveðnum spum-
ingalista varðandi tannhirðuvenjur
og matarvenjur. Niðurstöðu rann-
sóknanna liggja væntanlega fyrir
að hausti og þá getum við vonandi
svarað spumingunni um það af
hveiju tannskemmdir hafa ekki
minnkað í hlutfalli við bætta tann-
læknisþjónustu, hvar pottur er
brotinn og hvemig við eigum að
haga vamaraðgerðum svo að sem
bestur árangur náist í baráttunni
við tannátuna. Þessi rannsókn verð-
ur sfðan að líkindum endurtekin að
5 árum liðnum til að treysta vitn-
eskju okkar ennfrekar," sagði Sig-
fús Þór Elíasson að lokum.
— Ólafur.
Heimilis
Ljósm. Morgunblaðsins/ólafur
Sigfús Þór Elíasson, prófessor, við rannsóknir sínar í Egilsstaðaskóla.
tölvan
Kr. 9.900.-
Tölvunni fylgir:
• leiðbeiningabók
á íslensku
• forrit með íslenskum
stöfum
• ritvinnsluforrit
Eigum einnig fjölbreytt úrval
af leikjum og forritum
fyrir MSX tölvur.
64 K
Nú geturðu nýtt þér
tölvuna þína
til fulls.
GLÆSIBÆ StMI 82590