Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18.MARZ1986 aaaaaatsjú!!!? Hvernig vœri aö reyna O eöa o o yMagna C Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91-28777. Starfsleyfi Miklagarðs framlengt um tvö ár? — borgarstjóri leggur fram tillögu þess efnis í borgarráði Borgarstjóri, Davíð Oddsson, hefur lagt til í borgarráði, að leyfi til rekstrar stórmarkaðsins Miklagarðs við Holtaveg verði framlengt um tvö ár frá næstu áramótum að telja. Leyfi til þessa verzlunarrekstrar var upphaf- lega veitt til bráðabirgða og til 5 ára hið mesta af síðustu borg- arstjórn. Afgreiðslu málsins var frestað. Á fundi borgarráðs í liðinni viku var lagt fram erindi stjómar Mikla- garðs um heimild til umrædds rekstrar. Á fundinum voru lagðar fram umsagnir frá hafnarstjóm, umferðamefnd og skipulagsnefnd. Tillaga borgarstjóra um framvindu mála er svo hljóðandi: „Forsaga þessa máls er kunn. Hún bar öll með sér að pólitísku valdi var beitt til að taka óeðlilega ákvörðun í þágu tiltekins aðila. Öll rök og álit sér- fræðinga borgarinnar mæltu gegn þeirri ákvörðun. Og í einstaka nefndum, þar sem pólitískur meiri- hluti þess tíma lét hafa sig í að samþykkja leyfí til stórmarkaðs- reksturs inni á hafnarsvæðinu, var þó tekið fram, að bessi ákvörðun væri til bráðabirgða og til 5 ára hið mesta. Þrátt fyrir að sá rekstr- araðili, sem hér á hlut að máli, gat þannig alls ekki gert ráð fyrir að þessi rekstur gæti verið til frambúð- ar á hafnarsvæðinu, er lagt til að leyfið verði framlengt um 2 ár frá 1. janúar 1987 að telja, meðan fram fer endurskipulagning á athafna- svæði hafnarinnar í Sundahöfn." Innbrot í Mýrar- húsaskóla: Glóöaö brauö Eggjakaka með osti Ostborgari Ostakex Ostbaka (Pie) Fiskibakstur (gratín) Ostafrauö (souffl Spaghetti Bolognese Ostbakaöar pönnukökur Lauksúpa Lasagne Ostafondue Ostabrauö Kræklingabakstur (gratín) Kartöflubakstur (gratín) Hvernig væri kosturinn eff enginn væri osturinn? Getum við t.d. hugsað okkur Spaghetti Bolognese, ffiski- bakstur eða ostatertu án osts? Það er næstum óhugsandi. Ostur er óviðjafnanlegt krydd. Það þarf ekki endilega að bak’ann eða bræð’ann. Eff við notum RIVO ostariffjárnið góða getum við riffið ostinn beint út í súpuna, sósuna eða grænmet- issalatið. RIVO - alltaf þar sem ostur er Betri nýting. RIVO er kjörið áhald ffyrir allar gerðir ffastra osta, t.d. Gouda-, Maribo, óðals- og gráðaosta. Með RIVO nýtirðu ostinn til ffulls RIVO - rífur án þess aö mylja ostínn Hljóp þjóf- ana uppi LÖGREGLAN á Scltjarnamesi hafði hendur í hári innbrots- þjófa, sem voru við iðju sína i Mýrarhúsaskóla aðfaranótt föstudagsins síðastliðinn. Áður hafði verið brotist inn i skólann um síðustu helgi og þá stolið meðal annars um 100 þúsund krónum i peningum. Það var fyrir snarræði Sæmund- ar Pálssonar, lögreglumanns, að þjófamir náðust aðfaranótt föstu- dagsins, en hann gerði sér lítið fyrir og hljóp uppi tvo af fjórum, sem þar voru að verki. Reyndust þeir vera 15 ára gamlir, fyrrum nemend- ur skólans. Piltamir vom meðal annars með reiknivélar í fómm sín- um er þeir náðust auk þess sem saknað var tékkheftis og peninga úr skólanum. Þeir höfðu þá unnið mikil spjöll inni í skólanum og meðal annars eyðilagt málverk sem þar em. Gmnur leikur á að þeir séu einnig viðriðnir innbrotið í skólann um síðustu helgi og vinnur Rann- sóknarlögregla ríkisins að rannsókn málsins. Lífeyrissjóður starfs- manna ríkisins: Ekki veitt lán til kaupa á húsi Vöru- markaðarins LÍFEYRISSJÓÐUR starfsmanna ríkisins hefur ekki veitt lán til ríkissjóðs vegna kaupa á húsi Vörumarkaðarins, að því er segir í fréttatilkynningu frá stjórn sjóðsins. Fréttatilkynningin er svohljóð- andi: „Vegna fréttar í sjónvarpnu um 70 millj. kr: lán úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins til ríkissjóðs til kaupa á húsi Vömmarkaðarins vill stjóm LSR taka fram að frétt þessi er á misskilningi byggð, þar sem slíkt lán hefur ekki verið veitt úr lífeyrissjóðnum. Rétt er hinsveg- ar að taka fram að á undanfömum vikum hefur sijóm Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins rætt um ávöxtun á lausafé sjóðsins. Einn möguleikinn sem þar hefur verið til umræðu er að lausaféð verði ávaxtað á sérstökum reikningi í Seðlabankanum í stað ávöxtunar hjá Tiyggingastofnun ríkisins. Umræður um þetta fyrirkomulag hafa átt sér stað við fjármálaráðu- neytið. Ákvörðun um þetta hefur enn ekki verið tekin."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.