Morgunblaðið - 18.03.1986, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18.MARZ1986
aaaaaatsjú!!!?
Hvernig vœri aö reyna
O eöa o o
yMagna C
Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91-28777.
Starfsleyfi Miklagarðs
framlengt um tvö ár?
— borgarstjóri leggur fram tillögu þess efnis í borgarráði
Borgarstjóri, Davíð Oddsson,
hefur lagt til í borgarráði, að
leyfi til rekstrar stórmarkaðsins
Miklagarðs við Holtaveg verði
framlengt um tvö ár frá næstu
áramótum að telja. Leyfi til þessa
verzlunarrekstrar var upphaf-
lega veitt til bráðabirgða og til
5 ára hið mesta af síðustu borg-
arstjórn. Afgreiðslu málsins var
frestað.
Á fundi borgarráðs í liðinni viku
var lagt fram erindi stjómar Mikla-
garðs um heimild til umrædds
rekstrar. Á fundinum voru lagðar
fram umsagnir frá hafnarstjóm,
umferðamefnd og skipulagsnefnd.
Tillaga borgarstjóra um framvindu
mála er svo hljóðandi: „Forsaga
þessa máls er kunn. Hún bar öll
með sér að pólitísku valdi var beitt
til að taka óeðlilega ákvörðun í þágu
tiltekins aðila. Öll rök og álit sér-
fræðinga borgarinnar mæltu gegn
þeirri ákvörðun. Og í einstaka
nefndum, þar sem pólitískur meiri-
hluti þess tíma lét hafa sig í að
samþykkja leyfí til stórmarkaðs-
reksturs inni á hafnarsvæðinu, var
þó tekið fram, að bessi ákvörðun
væri til bráðabirgða og til 5 ára
hið mesta. Þrátt fyrir að sá rekstr-
araðili, sem hér á hlut að máli, gat
þannig alls ekki gert ráð fyrir að
þessi rekstur gæti verið til frambúð-
ar á hafnarsvæðinu, er lagt til að
leyfið verði framlengt um 2 ár frá
1. janúar 1987 að telja, meðan fram
fer endurskipulagning á athafna-
svæði hafnarinnar í Sundahöfn."
Innbrot í Mýrar-
húsaskóla:
Glóöaö brauö
Eggjakaka með osti
Ostborgari
Ostakex
Ostbaka (Pie)
Fiskibakstur (gratín)
Ostafrauö (souffl
Spaghetti Bolognese
Ostbakaöar pönnukökur
Lauksúpa
Lasagne
Ostafondue
Ostabrauö
Kræklingabakstur (gratín)
Kartöflubakstur (gratín)
Hvernig væri kosturinn eff enginn
væri osturinn?
Getum við t.d. hugsað okkur
Spaghetti Bolognese, ffiski-
bakstur eða ostatertu án osts?
Það er næstum óhugsandi.
Ostur er óviðjafnanlegt krydd.
Það þarf ekki endilega að
bak’ann eða bræð’ann. Eff við
notum RIVO ostariffjárnið góða
getum við riffið ostinn beint út í
súpuna, sósuna eða grænmet-
issalatið.
RIVO - alltaf þar sem ostur er
Betri nýting.
RIVO er kjörið áhald ffyrir allar
gerðir ffastra osta, t.d. Gouda-,
Maribo, óðals- og gráðaosta.
Með RIVO nýtirðu ostinn til ffulls
RIVO - rífur án þess aö mylja ostínn
Hljóp þjóf-
ana uppi
LÖGREGLAN á Scltjarnamesi
hafði hendur í hári innbrots-
þjófa, sem voru við iðju sína i
Mýrarhúsaskóla aðfaranótt
föstudagsins síðastliðinn. Áður
hafði verið brotist inn i skólann
um síðustu helgi og þá stolið
meðal annars um 100 þúsund
krónum i peningum.
Það var fyrir snarræði Sæmund-
ar Pálssonar, lögreglumanns, að
þjófamir náðust aðfaranótt föstu-
dagsins, en hann gerði sér lítið fyrir
og hljóp uppi tvo af fjórum, sem
þar voru að verki. Reyndust þeir
vera 15 ára gamlir, fyrrum nemend-
ur skólans. Piltamir vom meðal
annars með reiknivélar í fómm sín-
um er þeir náðust auk þess sem
saknað var tékkheftis og peninga
úr skólanum. Þeir höfðu þá unnið
mikil spjöll inni í skólanum og meðal
annars eyðilagt málverk sem þar
em. Gmnur leikur á að þeir séu
einnig viðriðnir innbrotið í skólann
um síðustu helgi og vinnur Rann-
sóknarlögregla ríkisins að rannsókn
málsins.
Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins:
Ekki veitt lán
til kaupa á
húsi Vöru-
markaðarins
LÍFEYRISSJÓÐUR starfsmanna
ríkisins hefur ekki veitt lán til
ríkissjóðs vegna kaupa á húsi
Vörumarkaðarins, að því er segir
í fréttatilkynningu frá stjórn
sjóðsins.
Fréttatilkynningin er svohljóð-
andi:
„Vegna fréttar í sjónvarpnu um
70 millj. kr: lán úr Lífeyrissjóði
starfsmanna ríkisins til ríkissjóðs
til kaupa á húsi Vömmarkaðarins
vill stjóm LSR taka fram að frétt
þessi er á misskilningi byggð, þar
sem slíkt lán hefur ekki verið veitt
úr lífeyrissjóðnum. Rétt er hinsveg-
ar að taka fram að á undanfömum
vikum hefur sijóm Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins rætt um
ávöxtun á lausafé sjóðsins. Einn
möguleikinn sem þar hefur verið
til umræðu er að lausaféð verði
ávaxtað á sérstökum reikningi í
Seðlabankanum í stað ávöxtunar
hjá Tiyggingastofnun ríkisins.
Umræður um þetta fyrirkomulag
hafa átt sér stað við fjármálaráðu-
neytið.
Ákvörðun um þetta hefur enn
ekki verið tekin."