Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ 1986
17
Landssamband gegn áfengisböli:
Akveðnar aðhaldsaðgerðir
gegn vímuefnum nauðsynlegar
LANDSSAMBANDIÐ gegn
áfengisbölinu hélt almennan
fund um vímuefnamál þriðjudag-
inn 18. febrúar sl. Dr. Tómas
Helgason prófessor flutti erindi
sem hann nefndi: Hvert stefnir
í vímuefnamálum? Hann sagði
m.a.: Ef marka má fjölmiðla
mætti ætla að stefni í verulegar
ógöngur. Nærri daglega, eða í
hverri viku a.m.k. má lesa fréttir
af alls kyns slysum sem rekja
má tíl notkunar vímuefna, stór-
felldu smygli á áfengi, kannabis,
amfetamín og öðrum enn hættu-
legri vimuefnum. Á hinn bóginn
eru fréttir af opnun nýrra veit-
ingastaða, væntanlegum at-
kvæðagreiðslum um fleiri útsölu-
staði, áróðri fyrir bruggun og
sölu bjórs og „bættri áfengis-
menningu."
Ýmsar tölur renna stoðum undir
þessa mynd. Á skrá fíknieftialög-
reglunnar eru t.d. 2.500 manns og
1.542 einstaklingar hafa verið við-
riðnir innflutning, sölu og dreifíngu
á fíkniefnum (Omar Kristmunds-
son, 1985). Þá hafa rúmlega 5.000
manns verið í meðferð vegna mis-
notkunar áfengis eða annarra fíkni-
efnaásíðustu 10 'arum.
Þetta eru í sjálfu sér ógnvekjandi
tölur en ef betur er að gáð er þetta
Breskir rithöfundar flytja
fyrirlestra um bókmenntir
BRESKU rithöfundaþjónin
Margaret Drabbls og Michael
Holroyd koma í heimsókn til ís-
lands dagana 17.—23. mars nk. i
boði breska sendiherrans og með
styrk frá British CouncU. Þau
flyfja bæði fyrirlestra í boði
heimspekideildar Háskóla ís-
lands sem hér segir: Michael
Holroyd. „What justifies bio-
graphy?" og Margaret Drabbls:
„Post-war British fiction", mið-
vikudaginn 19. mars 1986 kl.
20.30 í stofu 101 í Odda og Mic-
hael Holroyd: „The misadventur-
es of a biographer“ og Margaret
Drabbls: „A novelist at work“,
laugardaginn 22. mars 1986 kl.
14.00 í stofu 101 í Lögbergi. Allir
fyrirlestramir verða fluttir á
ensku.
Margaret Drabbls er talin meðal
fremstu skáldsagnahöfunda Bret-
lands og hefur samið níu skáldsögur
til þessa. Meðal þekktustu bóka
hennar eru „A summer Birdcage",
„The Millstone", en kvikmynd gerð
eftir þeirri sögu heitir „A Touch of
Love", og „The Ice Age“. Hún hefur
einnig skrifað bækur um ljóðskáldið
William Wordsworth og rithöfund-
inn Arnold Bennett og ritstýrði
nýrri og endurskoðaðri útgáfu
Oxford Companion to English Liter-
ature sem út kom á síðasta ári og
þótti vel takast.
Michael Holroyd varð frægur
fyrir ævisögumar um Lytton Strac-
hey og Augustus John, sem hvor
um sig er talin til öndvegisrita á
sviði þeirrar bókmenntagreinar. Um
þessar mundir vinnur hann að ritun
ævisögu George Bemard Shaws.
Fyrirlestramir eru öllum opnir.
(Fréttatilkynning.)
kannski líka teikn um viðbrögð
okkar til að mæta vágestunum sem
á okkur heija. Þ.e.a.s. þetta sýnir
stefnu okkar í vímuefnamálum sem
er og hefur verið mjög ákveðin. Sú
stefna hefur miðað að því að koma
í veg fyrir notkunina eins og frekast
er unnt, annars vegar með lögum
og reglum og hins vegar með
fræðslu. Sé ekki hægt að koma í
veg fyrir notkunina algjörlega, eins
og noktun áfengis, er reynt að
draga úr henni eins og frekast er
unnt með ríkiseinkasölu, fáum út-
sölustöðum, háu verði og takmörk-
uðu framboði á tegundum. Þessi
stefna er mjög svo f samræmi við
stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar sem leggur áherslu á að ekki
verði hægt að ráða bót á afleiðing-
um áfengis- og annarrar fíkniefna-
notkunar nema með ákveðnum
aðhaldsaðgerðum sem miða að því
að draga úr framboði og eftirspum.
Á sl. ári vannst nokkur vamarsigur,
er bjórfrumvarpið náði ekki fram
að ganga. Og enn hafa alþingis-
,menn verið svo lánsamir að bera
það ekki fram að nýju.
Síðan benti hann á eftirfarandi
leiðirtil úrbóta:
1. í samræmi við stefnu Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar, um að
flölga ekki tegundum á markaði
og reyna að draga úr sölu áfeng-
is og annarra fíkniefna, ber að
móta stefnu í vímuefnamálum
þannig að dregið verði úr fram-
boði s.s. nokkur kostur er.
2. Draga þarf úr eftirspum með
fræðslu og einnig þarf að fræða
fólk til þess að það skilji nauðsyn
á því að hafa strangar reglur
sem miða að því að draga úr
sölu og dreifíngu efnanna.
3. Sinna þarf almennri geðvemd,
sérstaklega meðal bama og
unglinga.
4. Sérstaklega þarf að sinna
áhættuhópum meða.1 bama og
unglinga, en þeir koma m.a. frá
uppleystum heimilum, úr fjöl-
skyldum misnotenda, úr hópi
bama sem oft skrópa úr skóla
og eða ná lélegum árangri í
skóla.
5. Nauðsynlegt er að áður en fólk
er sent á meðferðastofnanir fari
fram greining á misnotkuninni
og öðrum vanda sem misnotand-
inn á í til þess að gera sér grein
fyrir hvers konar meðferðar er
þörf. í þessu skyni er m.a. brýn
nauðsyn að vinda bráðan bug
að því að koma unglingadeild í
rekstur.
6. Meðferð. Eins og við greining-
una þarf að koma til fagleg
þekking geðlækna, geðhjúk-
runarfólks, sálfræðinga, félagsr-
áðgjafa og annarra.
7. Félgsleg aðstoð við húsnæðisút-
vegun, fjölskylduáætlanir, frí-
stundaiðkanir o.s.frv.
8. Ýmsar aðrar gerðir sem geta
miðað að vímuefnalausu lífi.
9. Enginn má hafa fjárhagslegan
ávinning af framleiðslu, inn-
flutningi eða sölu á áfengi eða_
öðrum fíkniefnum.
Fréttatilkynning;.
Eiður að baugi á dög-
um norrænnar trúar
MIÐVIKUDAGINN 19. mars
1986 verður haldinn fræðslu-
fundur á vegum Félags áhuga-
manna um réttarsögu. Fundur-
inn verður haldinn { stofu 103 í
Lögbergi, húsi lagadeildar Há-
skóla íslands og hefst kl. 8.30. Á
fundinum flytur dr. Jón Hnefill
Aðalsteinsson erindi er hann
nefnir Eiður að baugi.
í erindinu verður hugað að aldri
og arfsagnargildi ýmissa heimilda
um baugeiðinn. Á þeim grundvelli
er reynt að leiða í ljós hvað vitað
verði um þessa athöfn á dögum
norrænnar trúar. (Fréttatiikynning.)
*r
Gabriel
HÖGGDEYFAR
I MIKLU
ÚRVALI
Va svínaskrokkar 6.750 kr.
Svínalæri
247 kr. kg.
Svínabógur
245 kr. kg.
Svínahryggir
470 kr. kg.
Svínahnakki með
beini
325 kr. kg.
PANTIÐ TÍMANLEGA. S. 622511.
Svínakótilettur
400 kr. kg.
Svínasnitchel
525 kr. kg.
Svínagullasch
475 kr. kg.
Svínalundir
666 kr. kg.
Svínaspekk
110 kr. kg.
Svínaskankar
96 kr. kg.
Svínalifur
125 kr. kg.
Svínahnakkafillet
420 kr. kg.
Svínahamborgar-
hryggir
508 kr. kg.
Grípið tækifærið
Okkar Ijúffenga hangikjöt
LÆRIAÐEINS 325 kr.kg.
FRAMPARTAR 265 kr.kg.
ÚRB. HANGILÆRI435 kr.kg.
IRB. HANGIFRAMPARTAR375 kr.kg.
LONDON LAMB, LÆRI ÚRBEINAÐ
AÐEINS435 kr.kg.
KJOTMIÐSTÖÐIN Laugalaek 1. s. 686511