Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ 1986
Leit í Botnssúlum
Klukkan 00.25 aðfaranótt mánu-
dagsins 10. mars sl. kom beiðni
frá lögreglunni á Selfossi um að
svipast yrði eftir tveimur Qall-
göngumönnum sem farið höfðu á
Botnssúlur morguninn áður og ekki
komið til baka á áætluðum tíma.
Var samferðafólk þeirra farið að
óttast um þá, svo og ættingjar.
Landsstjóm björgunaraðgerða tók
um það ákvörðun, að senda tiltölu-
lega fámennan en vel búinn flokk
sérþjálfaðra björgunarmanna til
leitar og vom eftirfarandi ástæður
að baki þeirrar ákvörðunar:
1. Afspymu vont veður var á
svseðinu.
2. Vitaðvarumsnjóflóðahættu.
3. Tvímenningamir vom við klifur,
sem er áhættuíþrótt.
4. Vitað var að þeir vom ekki búnir
til næturdvalar.
5. Þeir höfðu ekki skilað sér að
bifreið sinni og langt var liðið
umfram þann tíma sem þeir
áætluðu að vera komnir þangað.
6. Vitað var að mennimir em báðir
nokkuð vanir ijallaferðum og
því enn frekar ástæða til að ótt-
ast um þá þegar þeir ekki komu
fram á tilskildum tíma.
Alls vom kallaðir út um 70 björg-
unarmenn. Þar af fór aðeins hluti
á sjálft fjallið. Hinn hluti liðsins var
varalið sem haft var til taks ef svo
færi, að leita þyrfti í snjóflóði eða
leysa önnur verkefni viðkomandi
aðgerðunum. Með þeim hópi vom
5 sérþjálfaðir leitarhundar, þar af
einn sporhundur, sem oft hefur
komið að góðu gagni í leitum. Þá
vom einnig í hópnum, sem ekki fór
á íjallið, stjómendur leitarinnar,
bifreiðastjórar o.fl. Þeir sem á fjallið
fóm notuðu til þess 5 snjóbfla svo
og vélsleða. Strax var megináhersla
lögð á að komast í skála sem ís-
lenski alpaklúbburinn á í Botnsúl-
um, því leitarmenn vonuðust eftir
að tvímenningamir hefðu komist í
þann skála. Skálinn stendur í um
750—800 m hæð og þangað er
mjög ógreiðfært og bratt á að
sækja. Því miður er þar ekki talstöð
og því ekki hægt að hafa ijarskipta-
samband við skálann. Leitarmönn-
um var skipt á þijú svæði og skyldu
þeir allir hafa endastöð í skálanum.
Eins og fyrr segir, var afspymu
vont veður á leitarsvæðinu, hávaða-
rok, ausandi slagveður og mikið
dimmviðri. Skyggni var nánast
ekkert sumstaðar. Færð var afar
slæm, mikið krap, aur og ieðja og
snjór orðinn að krapaelg. Var þessi
ferð því mikil þolraun bæði fyrir
menn og tæki. Eftir stanslaust
erfíði, þar sem leitarmenn urðu að
gæta ítrustu varkámi vegna snjó-
flóðahættu, komst loks leitarhópur
að skálanum. Voru þá liðnar um
það bil 7 klukkustundir frá því lagt
var af stað á fyallið. Tvímenningam-
ir voru í skálanum og vom þeir
fluttir niður af fjallinu með leitar-
mönnum. Tók sú ferð einnig langan
tíma og reyndi bæði á mannskap
ogtæki.
Um morguninn var kallað út
nokkurt lið til viðbótar, m.a. til að
leysa af þá sem höfðu verið á ferð
alla nóttina. Auk þess kom þyrla
Landhelgisgæslunnar á staðinn.
Þessar aðgerðir em ekkert eins-
dæmi, þótt þama hafí verið um
ákaflega erfítt og vandasamt verk
að ræða. Það er alltof mikið um
að ferðamenn séu kæralausir á
ferðum sínum. Ættingjar eða sam-
ferðamenn þeirra óttast um afdrif
þeirra, leitað er til lögreglu eða
björgunarsveita. Aðstæður ráða
því svo hvað gert er til aðstoðar. í
þessu tilfelli vom aðstæður þannig,
að dómi þeirra sem björgunarað-
gerðum stjóma, að full ástæða var
til að bregðast skjótt við. Vom
gerðar þær ráðstafanir, sem að
dómi þessara manna vom nauðsyn-
legar og nægjanlegar til að leysa
verkefnið ömgglega af hendi.
Þannig er ávallt bmgðist við í slík-
um tilfellum.
Af þeim sem óttast var um, er
það að segja, að þeir em, að eigin
sögn, vanir ijallamenn, þeir vom
allvel útbúnir, þó ekki til næturdval-
ar, þeir höfðu nægjanlegt nesti
meðferðis og em vel á sig komnir
líkamlega. Þeir vom fram á kvöld
við klifur, og hættu ekki fyrr en á
skall óveður og var komið langt
framyfír þann tíma sem nauðsyn-
legt var að snúa við niður af íjallinu,
ef halda átti áætlun um umtalaðan
heimkomutíma. Þeim var þó að
eigin sögn fullkunnugt um mjög
slæma veðurspá. Að þeirra sögn var
mjög tæpt á því að þeir næðu til
skálans vegna óveðursins. Spum-
ingin er, hvort ekki hafí verið hægur
vandi fyrir þá að komast niður af
fjallinu í tíma hefðu þeir sýnt
nægjanlega fyrirhyggju.
Þessir menn era björgunarsveit-
um landsins ekki ókunnugir. Björg-
unarsveitarmenn lögðu sig í nokkra
hættu til að þjarga lífí annars þeirra
í Tindfjöllum fyrir fáum árum í
aftakaveðri eftir að hann hafði orðið
viðskila við félaga sína þar, hans
hefur áður verið saknað eftir ferð
á Botnsúlur og er þetta í þriðja
skiptið sem óttast hefur verið um
hann alvarlega. Hinn á þó metið,
enda eldri. Svo við vitum hefur fjór-
um sinnum verið óttast um hann.
„Ferðamenn verða að
átta sig á þvi að þótt
þeir sjálfir séu karlar í
krapinu og nokkurn
veginn sama um eigið
öryggi, þá eru ættingj-
ar heima sem e.t.v. hafa
til þeirra það miklar
tilfinningar að þeir ótt-
ist um þá.“
Ferðamenn verða að átta sig á
því að þótt þeir sjálfír séu karlar í
krapinu og nokkum veginn sama
um eigið öiyggi, þá era ættingjar
heima sem e.t.v. hafa til þeirra það
miklar tilfínningar að þeir óttist um
þá. Ferðamenn mega einnig vita
það, að björgunar- og hjáilparsveitir
á íslandi leggja á sig mikið erfiði
til að bjarga hundmðum manna úr
bráðri hættu. Þeir tveir sem leitað
var að sl. mánudag hefðu hæglega
getað lent í þeim hópi (annar þeirra
er reyndar þar fyrir). En þeir hefðu
líka getað lent í þeim allt of stóra
hópi, sem farið hefur sjálfum sér
að voða með óvarkámi.
Höfundar eru, f.h. Landsstjómar
björgunaraðgerða: Einar Gunn-
arsson, LFBS, Jóhannes Briem,
SVFÍ og Tryggvi PáU Friðriksson,
LHS.
BOÐ
á IBM PC kynmngu
IBM býður til námsstefnu 18.—20. mars nk. Kynnt verður notkun IBM PC einmennings-
tölvunnar. Daglega verða haldnir 3 fyrirlestrar sem hefjast allir kl. 14:30. Að loknu kaffi-
hléi er sýning eða kynning á verkefnum en dagskránni lýkur kl. 17. Væntanlegir þátttak-
endur eru beðnir að skrá sig í síma 68 73 73. Þátttaka er ókeypis.
PC I LITLUM FYRIRTÆKJUM
Kristján Óli Hjaltason,
frkv.stj., Iðnbúð 2, Garðabæ.
PC í STÓRUM FYRIRTÆKJUM
Kjartan Ólafsson, forstöðumaður
skipulagssviðs hjá Skeljungi.
PC I FRAMLEIÐSLU-
FYRIRTÆKJUM
Gunnar Ingimundarson,
viðskiptafræðingur, FÍI.
18. MARS
PC FYRIR RITSMIÐI
Björn Vignir Sigurpálsson,
blaðamaður á Morgunblaðinu.
19. MARS
PC í SKÓLUM
Anna Kristjánsdóttir,
lektor við KHÍ.
20. MARS
PC í BÖNKUM
Magnús Pálsson, forstöðumaður
markaðssviðs hjá Iðnaðarbankanum.
PC VIÐ RANNSÓKNIR OG
GAGNAVINNSLU
Dr. Þorsteinn Hannesson og
Björgvin S. Jónsson, efnafræðingur,
íslenska járnblendifélaginu.
PC FYRIR VERKFRÆÐINGA
OG TÆKNIFRÆÐINGA
Ólafur Bjarnason,
verkfræðingur, VST.
PC HJÁ BÆJARFÉLÖGUM
Bjarni Þór Einarsson, bæjar-
tæknifræðingur á Húsavík.
fSLENSK ÞEKKING ALÞJÓÐLEG TÆKNI
Skaftahlíð 24 • 105 Reykjavík • Sími 27700
ARGUS/SlA