Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ 1986
63
Arnór Guðjohnsen
með gegn Bayern?
— eftir góða frammistöðu ífyrsta leik sínum í heilt ár
Eftir tveggja ára erfiðleikatíma-
bil er nú farið að rofa til hjá
Arnóri Guðjohnsen. Hann lók á
laugardaginn sinn fyrsta leik f
heilt ár með aðalliði Anderlecht
og notaði tækifærið til hins ítr-
asta: Átti framúrskarandi góðan
leik, skoraði mark og er nú von-
góður um að fá annað tækifæri í
Evrópuleik Anderlecht á miðviku-
daginn gegn Bayern Munchen.
Arnór kom inná í fyrri hálfleik í
leiknum gegn Waregem á laugar-
daginn. Hann skoraði síðasta mark
liðsins síns í 3:1 -sigri. Strax í
gærmorgun fóru síðan liðsmenn
Anderlecht á hótel í Belgíu þar sem
þeir dvelja við fundahöld og æfing-
ar fram að leiknum á miðvikudag-
inn. Ekki er búist við því að Arnór
verði í byrjunarliðinu, en talið lík-
legt, eftir frammistöðuna á laugar-
daginn, að hann komi inná.
Samningur Arnórs við félagið
rennur út í sumar, eins og níu
annarra leikmanna. Flestir þessara
leikmanna munu fara til Mexíkó í
vor, annaðhvort með belgíska
landsliðinu eða því danska, og
verða samningamálin lítið sem
ekkert rædd fyrr en eftir HM. Það
er því mikið í húfi fyrir Arnór að
standa sig vel í þeim leikjum sem
eftir eru af keppnistímabilinu.
Anderlecht er sem fyrr efst í
belgísku deildinni, hefur tveimur
stigum meira en Club Brugge. Lið
Ragnars Margeirssonar, Water-
schei, náði stigi á útivelli með
markalausu jafntefli gegn Searing.
Ragnar meiddist lítillega í leiknum
og þurfti að fara af leikvelii.
Fjölskylduskemmtun íHöHinni:
Troðslukeppni
í fyrsta sinn
— leikur Marcelo Houseman
með KR-ingum?
Körfuknattleikssamband ís-
lands og Samtök íþróttafrátta-
manna gangast fyrir fjölskyldu-
skemmtun f Laugardalshöll f
kvöld og hefst skemmtunin klukk-
an 20. Margt verður til skemmt-
unar og allt á sviði íþrótta.
Stórir og stæðilegir körfuknatt-
leiksmenn munu sýna fæmi sína
við að „troða" knettinum í körfuna
og er þetta fyrsta keppni sinnar
tegundar hér á landi en víða er-
lendis hefur slík keppni verið iðkuð
lengi við miklar vinsældir. Pressu-
leikur verður jafnframt í körfuknatt-
leik eins og við skýrðum frá á
laugardaginn.
Dagskráin hefst meö því aö ný-
bakaðir (slandsmeistarar í innan-
hússknattspyrnu, KR, leika við
Reykjavíkurúrvaliö og ekki er ólík-
legt að í þessum leik leiki Marcelo
Houseman með KR-ingum.
Vígamenn mæta í Höllina og
sýna listir sínar og vígamenn þess-
ir eru karatemenn sem brjota múr-
steina eins og eldspýtur og fleira
í þeim dúr.
Rétt um klukkan 21 hefst síðan
pressuleikurinn í körfuknattleik og
í leikhléi verður troðslukeppnin.
Eftir leikinn munu síðan hand-
knattleiksmenn frá ýmsum tímum
reyna að skora hjá landsliðsmark-
verðinum Kristjáni Sigmundssyni
og að lokum leikur Stjörnulið Óm-
ars Ragnarssonar við íþróttafrétta-
ritara.
Skemmtun þessi er fyrir alla
fjölskylduna og kostar miðinn 200
krónur fyrir fullorðna en 100 krónur
fyrir börn.
Rush tryggði
Liverpool sigur
— leika við Southampton
í undanúrslitum
Frá Bob Hennessy, fréttarHare MorgunblaSins á Englandl.
LIVERPOOL sigraði Watford meö
tveimur mörkum gegn einu f
framlengdum leik í 6. umferð
ensku bikarkeppninnar á Vic-
arage Road í Waford i gærkvöldi.
Watford náði forystunni í upp-
hafi seinni hálfleiks er John Barnes
skoraði beint úr aukaspyrnu. En
Liverpool hafði ekki sagt sitt síð-
asta og er fjórar mínútur voru eftir
af venjulegum leiktíma fengu þeir
vítaspyrnu. Tony Coton, markvörð-
ur Watford, braut þá illa á lan
Rush og umsvifalaust dæmd víta-
spyrna. Jan Molby fékk það erfiða
hiutverk að taka vítaspyrnuna og
honum brást ekki bogalistin.
í seinni háfleik framlengingar-
innar skoraði lan Rush sitt 23.
mark í vetur og það reyndist sigur-
markið og tryggði Liverpool í und-
anúrslit keppninnar. Liverpool
mætir Southampton í undanúrslit-
um.
Kenny Dalglish lék með Liver-
pool í gærkvöldi í stað Sammy
Lee, sem sat á varamannabekkn-
um. 25.000 áhorfendur voru á
leiknum.
• Troðslukeppnir f körfuknatt-
leik eru mjög vinsælar f Banda-
rfkjunum. Við fáum að sjá eina
slfka f Laugardalshöll f kvöld.
• Sigurður í leik með Sheffield Wednesday.
„Ætla mér í
liðið hjá
Sheffield"
— segir Sigurður Jónsson
„TAKMARKIÐ er auðvitað að
verða fastamaður í liðinu hjá
Sheffield Wednesday, en ég er
þó engan veginn óánægður núna.
Það er gaman að þessu," sagði
Sigurður Jónsson í samtali við
Morgunblaöið.
„Eg verð hér hjá Barnsley til 28.
þessa mánaðar að minnsta kosti.
Hvað þá tekur við veit ég ekki,“
sagði hann.
Sigurður sagði söiuna á Andy
Blair, einum þeirra leikmanna sem
haldið hafa Sigurði á bekknum hjá
Sheffield, vera svo nýtilkomna að
ekkert væri vitað um breytingar
eftir brottför hans. Barnsley er í
Yorkshire, örskammt frá Sheffield,
og þaö tekur Sigurð aðeins 15
mínútur að aka frá heimili sínu á
vöil liðsins, þar sem æft er á
hverjum degi undir stjórn Alan
Clarke. „Ég kann vel við mig hjá
þessu liði, en auðvitað ætla ég
mér að komast aftur að hjá Shef-
field Wednesday. Ég á enn eftir tvö
keppnistímabil af samningi mínum
við þá, og það er langt frá því að
ég sé á leiðinni eitthvað annað. Ég
ætla mér fast sæti þar,“ sagði
Sigurður.
Hann átti ágætan leik um helg-
ina í jafnteflisleik Barnsley og
Bradford.
Atli ekki meira
með í vetur
Frá Jóhanni Inga Gunnarsayni, frótturKara
Morgunblaðaina f Þýskalandi.
ATLI Hilmarsson landsliðsmaður
f handknattlelk, sem leikur með
Gunsburg í vestur-þýsku Bun-
desligunni, varð fyrir þvf óláni að
slfta hásin á vinstri fæti f bikarleik
um helgina. Það er Ijóst að hann
Landsleikur
við Kuwait
ÍSLENSKA knattspyrnulandsliðið
sem lék tvo leiki við Bahrain f
sfðustu viku átti að koma heim f
dag, en á sfðustu stundu var
ákveðið að halda til Kuwait og
leika þar einn leik áður en haldið
skyldi heim á leið.
Leikurinn við Kuwait verður á
morgun og síðan heldur liðið heim
á leið og kemur til landsins á
fimmtudaginn.
í upphafi stóð til að liðið léki tvo
leiki við Bahrain og tvo við írak en
síðan var hætt við leikin við írak
og ákveðið að leika aðeins tvo leiki
við Bahrain. Eftir seinni leikinn við
þá kom boð frá Kuwait um einn
landsleik og var þaö þegiö.
Kuwait hefur verið í banni hjá
FIFA (alþjóðaknattspyrnusam-
bandinu) nú um nokkurt skeið, en
banninu var aflétt skömmu fyrir
helgi og því barst boðið svona
skyndilega. Ástæða þess að landið
var í banni var sú að stjórnvöld á
staðnum höfðu rekið knattspyrnu-
sambandið frá völdum og tekið
stjórnina í knattspyrnumálum í sín-
ar hendur. FIFA greip þá til þess
ráðs aö setja landið í bann sem
síðan var aflétt nú skömmu fyrir
helgina.
leikur ekki meira með Gunsburg
á þessu keppnistfmabili.
Atli var skorinn upp við þessum
meiðslum á sunnudagskvöld.
Hann liggur nú á sjúkrahúsinu í
Gunsburg þar sem aðgerðin var
framkvæmd. Saumarnir verða síð-
an teknir eftir 12 daga og fer hann
þá í gipsi ef allt verður í lagi. Hann
verður síðan í gipsinu í sex vikur.
Atli varð fyrir þessu óhappi í lok
bikarleiksins gegn Grishein á
sunnudagskvöld. Þetta er stökk-
fótur Atla. Þetta er mjög bagalegt
fyrir þennan skemmtilega hand-
knattleiksmann þar sem hann
hugöist kannski breyta um félag
eftir þetta keppnistímabil.
Bikar-
keppnin
í KVÖLD verður einn leikur f bik-
arkeppni karla f handknattleik.
Afturelding og Stjarnan mætast
að Varmá kl. 20.00.