Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ 1986
15
norgunDiaoio/ Arnör
Sveit Magnúsar Torfasonar hlaut flest stig allra sveita í undankeppninni. Talið frá vinstri: Magn-
ús Torfason, Sigtryggur Sigurðsson, Guðni Kolbeinsson, Steingrímur Steingrímsson, Baldur Árna-
son og Sveinn Sigurgeirsson.
íslandsmótið í sveitakeppni:
Sveit Magnúsar Torfa-
sonar í úrslitakeppnina
Brids
Arnór Ragnarsson
Lítið var um óvænt úrslit
í undankeppni íslands-
mótsins sveitakeppni sem
spiluð var um helgina á
Hótel Loftleiðum og á
Egilsstöðum. Það sem kom
einna mest á óvart var
mjög góð frammistaða
sveitar Magnúsar Torfa-
sonar sem vann C-riðilinn
og var eina sveitin sem
náði 100 stigum í mótinu.
í sveit Magnúsar spila
ásamt honum: Sveinn Sig-
urgeirsson, Guðni Kol-
beinsson, Baldur Arnason,
Sigtryggur Sigurðsson og
Steingrímur Steingríms-
son.
Sveitimar' sem spila til úrslita
um páska og bænadaga em eftir-
taldan Magnús Torfason, Sam-
vinnuferðir/Landsýn, Stefán Páls-
son, Jón Hjaltason, Pólaris, Ás-
gfimur Sigurbjömsson, Delta og
Sigurjón Tryggvason.
Það heyrir vart lengur til tíð-
inda að siglfírzka bræðrasveitin
komist í úrslitakeppnina. Þeir
töpuðu engum leik í mótinu, unnu
fjóra leiki og gerðu eitt jafntefli.
Annars var aðeins ein sveit sem
vann alla sína leiki í undankeppn-
inni. Það var sveit Stefáns Páls-
sonar en sveitin vann A-riðilinn
eð 96 stigum. Þórarinn Sigþórs-
son og félagar hans fengu enn
einu sinni það hlutskipti að spila
úti á landi í undankeppninni og
eins og svo oft áður urðu þeir að
taka á til að komast í úrslitin.
Sveit Jóns Aðals kom þar mjög á
óvart og átti góða möguleika á
úrslitasæti fyrir síðustu umferð-
ina. Þá hafði sveitin unnið alla
leiki sína og átti að spila gegn
neðstu sveitinni í riðlinum.
En það sem helst hann varast
vann, varð að koma yfír hann.
Sveitin tapaði leiknum með
minnsta mun en þar með fór úr-
slitasætið.
Staðan í C-riðli fyrir lokaumferð-
inæ
Sigurjón Tryggvason 72
JónAðall 71
Delta 69
Gunnlaugur Guðmundsson 69
Aðalsteinn Jónsson 40
Erla Siguijónsdóttir 28
Siguijón og Delta unnu sína
leiki í síðustu umferðinni og Jón
Aðall og félagar hans sitja heima
þrátt fyrir að hafa unnið báðar
efstu sveitimar.
Minni keppni var f öðmm riðl-.
um. Það var helst í C-riðli en þar
fékk Magnús Torfason flugstarf
og vann 3 fyrstu leiki sína mjög
stórt. Samvinnuferðir-Landsýn
kepptu um annað sætið við Pál
Valdimarsson. Sveit Páls vann 4
fyrstu leikina en spilaði við Magn-
ús Torfason í síðustu umferðinni
og varð að lúta í lægra haldi og
varð þar með af úrslitasæti.
Lokastöðurnar
A-riðill:
Stefán Pálsson 96
Jón Hjaltason 87
Vilhjálmur Þ. Pálsson 7 5
Ólafur Týr Guðjónsson 7 0
Sigmundur Stefánsson 69
Ingi S. Gunnlaugsson 50
B-riðill:
Ásgrímur Sigurbjömsson 96
Pólaris 92
Hermann Lámsson 81
Sigurður B. Þorsteinsson 71
Ragnar Jónsson 63
Grímur Thorarensen 43
C-riðill:
Magnús Torfason 105
Samvinnuferðir/Landsýn 96
Páll Valdimarsson 85
Kristján Blöndal 71
Esther Jakobsdóttir 65
Kristján Jónsson 23
D-riðiU:
Delta 94
Siguijón Tiyggvason 91
JónAðall 85
Gunnlaugur Guðmundsson 69
Aðalsteinn Jónsson 51
Erla Siguijónsdóttir 44
Eins og áður sagði var einn
riðillinn spilaður á Egilsstöðum
en undanfarin ár hefir sá háttur
verið hafður á að einn riðill hefir
verið spilaður utan Reykjavíkur.
Nokkurrar óánægju er auðheyr-
anlega farið að gæta með þetta
fyrirkomulag og kannski ekki að
undra hjá einhveijum. T.d. heflr
sveit Þórarins lent í því í áraraðir
að fara út á land. Þá kæmi mér
ekki á óvart án þess að hafa það
staðfest að félagamir Aðalsteinn
og Sölvi telji það ffekar bragð-
dauft að fara „aðeins" upp á
Egilsstaði til að taka þátt í undan-
keppninni.
Þá fínnst undirrituðum þarft
að minnast aðeins á gögn sem
liggja fyrir á mótsstað sem blaða-
menn hafa aðgang að. Þar getur
vart verið naumar skorið. Til
dæmis var hvergi að fínna hveijir
skipuðu þær sveitir sem spiluðu á
mótinu. Annars ganga þessi mót
snurðulaust og vel fyrir sig og
framkvæmd til fyrirmyndar.
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensson.
Sveit Grims Thorarensen spilar gegn bræðrasveitinni frá Siglufirði. Talið frá
vinstri: Þórður Sigurðsson, Jón Sigurbjömsson, Grímur Thorarensen og Ásgrímur
Sigurbjörasson.
Sveit Samvinnuferða/Landsýnar spilar gegn sveit Páls Valdimarssonar. Talið
frá vinstri: Jón Baldursson, Magnús Ólafsson, Sigurður Sverrisson og Jónas P.
Erlingsson.
Akranes:
Rafmagnið lækkar
um allt að
Akranesi, 13. mars.
STJÓRN Rafveitu Akraness hef-
ur ákveðið að verða við tilmælum
iðnaðarráðuneytisins og lækka
verð á almennum sölutöxtum um
10% og á rafhitatöxtum um 7%
frá og með 1. mars síðastliðnum.
Verðjöfnunargjald hefur einnig
verið afnumið og nemur lækkun-
in því alls 20,21% tíl almennra
nota.
Heimilistaxti lækkar til dæmis
um20,21%, en verðjöfnunargjald
var hins vegar ekki lagt á rafhitun-
artaxtana og nemur lækkunin til
þeirra sem hita upp með rafmagni
7%, sem er sama lækkun og ráðu-
neytið fór fram á við hitaveitur.
Þessi nýja gjaldskrá þýðir það að
verð á kflóvattstund lækkar úr 4,14
kr. í 3,30 kr. og algengir rafhitunar-
taxtarlækka úr 1,23 kr. í 1,15.
Verð á rafmagni á Akranesi
hefur um langt árabil verið eitt hið
lægsta á landinu og verður svo
áfram.
— J.G.
VANDAÐAR FULNINGAINNIHURÐIR
Stórglæsilegar fulninga innihurðir úr massífri 1. flokks furu.
Breiddir: 60, 70, 80 og 90 cm. Afgreiddar af lager.
verð á hurð m/karmi, skrá og lömum kr. 10.700.- stgr.
Gamaldags karmlistar fáanlegir í 2 gerðum.
vönduð ísiensk framleiðsla.
Áratuga reynsia í hurða- og gluggasmíði.
Góðir greiðsluskilmálar. Sendum í póstkröfu.
TRÉSMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR
U|f \ I V/ REYKJANESBRAUT
jKLÆ I HAFNARFIRÐI
SI'MAR: 54444, 54495