Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1986
49
Vélhermir
eftirAndrés
Guðjónsson
Síðastliðin 10 ár hafa verið að
þróast hermar (símúlatorar) fyrir
kennslu í vélstjóraskólum.
Allmörg ár eru síðan að hermar
komu fram á sjónarsviðið til þjálf-
unar flugmanna og skipstjómar-
manna í siglingafraeði, m.a. hinir
svokölluðu radar-samlíkjar.
Vélskóli íslands hefur fylgst með
þróun þessara mála. Á Norðurlönd-
um var sá fyrsti tekinn í notkun í
Þrándheimi í Noregi fyrir nokkrum
árum.
Það er fyrst nú að notkun þeirra
er farin að aukast, en þeir hafa
verið í stöðugri þróun eins og allur
annar tölvubúnaður.
Nýjasta gerð þeirra eru hinir svo
kölluðu litgrafísku hermar. Þeir
falla vel inn í eldri vélbúnað í véla-
sölum vélstjóraskólanna. Með þess-
um vélhermum má kalla fram, á
litskjá, öll kerfí vélarúms og fá fram
öll mæligildi sem máli skipta. Ef
viðvörun kemur fram vegna þess
að eitthvað hefur farið úrskeiðis
kemur viðkomandi gildi fram í
öðrum lit og blikkar. Fjarstýringar
eru framkvæmdar þannig að við-
komandi kerfí er kallað fram á
skjáinn og færanleg ör látin benda
á þann þátt er stilla þarf. Megintil-
gangur vélhermis er að þjálfa vél-
stjóra í að bregðast við bilunum í
vélum og tækjum og við neyðar-
ástandi sem gæti orðið á skipi úti
í rúmsjó. Vélhermir er gerður af
breytilegum fjölda eininga sem
raðað er saman í samræmi við
væntanlega notkun.
Þeir henta sérstaklega vel við
kennslu byijenda og jafnframt eru
þeir hagkvæmir við menntun þeirra
sem eru að ljúka vélfræðinámi, svo
og við endurmenntun, rannsóknir
og bilanaleit.
Vegna frétta í fjölmiðlum frá
bæjarstjóm Akureyrar vil ég taka
fram eftirfarandi:
í mörg ár var Véiskóli íslands
með sjálfstæða deild á Akureyri,
sem seinna varð deild í Iðnskólan-
um. Þegar Verkmenntaskólinn var
stofnaður varð þessi deild að vél-
stjómarbraut í honum.
Ég óska Verkmenntaskólanum á
Akureyri til hamingju með hina
veglegu byggingu og góðu og stóm
sali til verklegrar kennslu og vona
að þeir komi sér upp góðum vélasal
„ Allmörg ár eru síðan
að hermar komu fram
á sjónarsviðið til þjálf-
unar flugmanna og
skipstjórnarmanna í
siglingafræði, m.a. hin-
ir svokölluðu radar-
samlíkjar“.
fyrir vélstjómarkennslu og þar
verði m.a. vélarúmshermir.
Það hefur komið fram í fréttum
frá Akureyri að einn vélhermir
mundi duga fyrir allt landið, en eins
og fram kemur í greininni hér á
undan er slíkt tæki liður í hinni
daglegu kennslu og verður því að
vera til í viðkomandi skóla.
Til Akureyrar hefur verið pantað-
ur vélarúmshermir, en til Vélskóla
íslands litgrafískur Vélhermir, sem
að okkar mati fellur vel inn í þann
vélbúnað sem við höfum fyrir í véla-
sölum skólans.
Vakin skal athygli á því að þegar
eru litgrafískir slq'áir komnir f
stjómklefa vélarúms skipa, orku-
vera og verksmiðja til notkunar
fyrir vakthafandi vélstjóra til að
fylgjast með ástandi véla og tækja.
Höfundur er skólameistnri Vél-
skóla íslands
m
ng
l
| í Mothercare hugsum við
um velferð barnanna.
Við leggjum okkar afmörkum
5 til þess að þeim líði sem
best, - líka á leiðinni í
heiminn.
Mothercare er tækifæris-
Ifataverslun, og þessa dag-
ana erum við að fá mikið og
mmm—mmmmmmmm g0tt úrval af fallegum og
þægilegum fötum fyrirbörn sem eru á leiðinni í heiminn!
Notaðu tækifærið og láttu ykkur líða vel næstu
mánuðina í Mothercarefötum.
Mothercare - Laugavegi 11 - sími 26560
mothercare
BH
m’
HHflH
BflHflfl
BHBHHHK
mm