Morgunblaðið - 18.03.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ1986
3
Gróðursetur tré í
Afríku og á Islandi
RKÍ fær allan ágóða af frumsýningu
myndarinnar um Karen Blixen
KVIKMYNDIN „Jörð í Afríku“,
gerð af leikstjóranum Sidney
Pollack með Robert Redford og
Meryl Streep í aðalhlutverkum,
verður frumsýnd i Laugarásbíói á
laugardaginn kl. 17. Ágóði frum-
sýningarinnar rennur til Rauða
krossins á íslandi, vegna nýs verk-
efnis i Afríku, en Rauði krossinn
hyggst standa að gróðursetning-
arherferð þar í landi.
„Við höfum ákveðið að bjóða til
kaups sérstakar páskagreinar nú um
páskana til að afla flár í þetta verk-
efni," sagði Jón Ásgeirsson fram-
kvæmdastjóri á fundi með blaða-
mönnum. Hann sagðist vona að
páskagrein tilheyrði páskum í fram-
tíðinni, líkt ogjólatré jólunum.
„Takmark okkar er að gróðursetja
250 þúsund tré hér og í Afríku, fyrir
hvert tré sem gróðursett verður hér
á landi mun annað gróðursett í Afr-
íku.“ Gróðureyðing jarðar á stóran
þátt í því hve fólk á erfitt með að
sjá sér farborða í Afiríku, einkum þar
sem eyðimörkin hefur náð yfirhönd-
inni. Gróðursetning sem þessi hefur
farið fram á vegum hinna Norður-
landanna, Norðmenn byijuðu að
gróðursetja fyrir tveimur árum og
munu íslendingar taka þátt í sam-
starfi við hinar Norðurlandaþjóðim-
ar. Jón Ásgeirsson sagði unga fólkið
í Rauða krossinum tilbúið til að fara
til Afríku og gróðursetja þar tré í
samvinnu við ungt fólk i Rauða
krossfélögum Afríku.
Kvikmyndin „Jörð í Afríku" er
gerð eftir sögu Karenar Blixen, en
hún dvaldi í rúman áratug í Afrfku
og skrifaði bók um dvöl sína þar
eftir að hún kom aftur til heimalands-
ins. Kvikmyndin hefur vakið mikla
athygli og er m.a. tilnefnd til 11
óskarsverðlauna.
Unga fólkið, sem ætlar að fara til Afríku og gróðursetja þar tré, ásamt framkvæmdastjóra Rauða
krossins. Frá vinstrí: Einar Karl Friðriksson, Ágústa Siguijónsdóttir, Jón Ásgeirsson framkvæmda-
stjóri, Guðmunda Lijja Grétarsdóttir og Jósep Gfslason.
Meryl Streep f hlutverki Karenar
Blixen i kvikmyndinni Jörð f
Afríku.
Vestmannaeyjar:
Herjólfur í gagn-
ið fyrir helgi
Vestmamiaeyjum, 17. mara.
Vonir standa til þess að við-
gerð á aðalvél Herjólfs, sem bil-
aði fyrir helgina þegar andvægi
við sveifarás aðalvélar brotnaði,
verði lokið á föstudaginn og
skipið taki þá aftur upp áætlun-
arferðir sinar milli Eyja og
Þorlákshafnar.
Varahlutir eru komnir til landsins,
en ekki tókst að koma þeim út f
Eyjar í dag, þar sem ekki gaf veður
til flugs. Skipið verður tekið upp f
Skipalyftuna á morgun ef veður
leyfir, en þá verða varahlutimir
komnirtil Eyja.
Frátafír Heijólfs munu ekki hafa
í för með sér nein teljanleg vand-
kvæði að því best verður séð. Detti-
foss kom hingað í morgun með mjólk
og vörur, og Laxfoss fer annað kvöld
frá Reykjavík, sömuleiðis með mjólk
og vörur, þannig að ekki er fyrirsjá-
anlegur neinn vöruskortur í Eyjum.
Flugleiðir flugu samkvæmt áætlun,
föstudag, laugardag og sunnudag,
en ófært var til flugs í dag. Eyjabúar
verða að treysta á að veðurguðimir
verði þeim hagstæðir næstu dagana,
því ekki verður um annan ferðamáta
að ræða en flugið, þar til Heijólfur
kemst aftur í áætlun. Hkj.
Stórhertoga-
hjónin af Lúxem-
borg í heimsókn
JEAN, stórhertogi af Lúxemborg
og kona hans, Josephine Charlotte
stórhertogafrú, em væntanleg í
opinbera heimsókn til íslands dag-
ana 9. til 12. júní næstkomandi.
(Fréttatílkynning frá skrifstofu
foraeta íslands.)
Ert þú að lelta að sparneytnum,
liprum og rúmgóðum fjölskyldubíl?
Taktu þá ekki ákvörðun
um kaup, fyrr en þú hefur
reynsluekið nýjum
Verð frá kr. 279.500.-
(3d. GL) (gengi 11.3. '86 eftirverðlækkun)
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifunni 17. Sími 685100
PAV
Eyðsla frá 3,8 Itr. pr. 100 km
(sparakstur BÍKR).
SUZUKI
Rauði kross íslands: