Morgunblaðið - 18.03.1986, Side 6

Morgunblaðið - 18.03.1986, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ1986 6 UTVARP / SJONVARP Nýr dagnr Jarðarför Olof Palme setti mik- inn svip á dagskrá ríkisfjölmiðl- anna þessa helgi eins og vera ber, þvi ég held að flestir geti verið sammála um að Olof Palme hafi verið ókrýndur talsmaður hinna hófsamari afla í heimi hér. Þannig hefir Olof Palme tekist að sigla Svíþjóð einhversstaðar mitt á milli freigáta risaveldanna og það með fullri reisn. Hann hefir beitt sér fyrir samfélagi sem er þróttmikið á efnahagssviðinu án þess þó að auðnum sé jafn átakanlega misskipt og sums staðar í hinum vestræna heimi ogþessarijöfnun lífskjaranna hefir hann komið á án þess að læsa samfélagið í greipar hinnar aust- rænu miðstýringar. Frásögn sænska sjónvarpsins af hinstu kveðjustundinni var í senn áhrifarik og virðuleg. Rauðu rósim- ar er fólkið kastaði í braut líkfylgd- arinnar bera vott um ást þess. Orð Willy Brandt er hann frétti af dauða Olof Palme eiga hér vel við: Hversu fátækari er ekki veröld þyrst f frið og réttlæti. Hafi íslenska sjónvarpið þökk fyrir beinu útsendinguna að þessu sinni. Söngvakeppnin Úrslit fslensku söngvakeppninn- ar voru á skjánum síðastliðið laug- ardagskveld. Þar var vel að verki staðið, sviðsmyndin að visu gamal- kunnug og búningar allir en Bobby- socks-stúlkumar léðu húllumhæinu lit. Reyndar varð mér ljóst er ég sá búninga stúlknanna að sennilega væru svona sjóræningjabúningar einsog hann Eiríkur Hauksson var keyrður í í tísku þessa stundina, vantaði bara sverðið og svarta lepp- inn. Ég ætla ekki að leggja hér persónulegt mat á sigurlag keppn- innar, en tek undir áskomn kynnis- ins Jónasar R. Jónssonar. Og nú verðum við öll að sameinast um sigurlagið. En þá er bara að finna söngfugla til að kyija lagið vestur í Björgvin. Ófögnuður Sá er hér stýrir penna er mjög óhress með fréttaflutning útvarps- ins af „unglingasýningum" skemmtistaðanna en í útvarpinu hafa þessar sýningar nánast hlotið blessun fréttamanna. Fréttamenn útvarpsins virðast ekki skilja alvöru málsins, þá staðreynd að sólböð húsmæðra á sólarströndu eiga ekkert skylt við „náttfatasýningar" og „blautbolskeppni" stelpukrakka. Mannorðið verður trauðla endur- heimt glatist það á annað borð og ég er ansi hraeddur um að mannorð sumra stelpukrakka er gírugir kaupahéðnar hafa ginnt í „nátt- fatasýningar" og „blautbolskeppni" sé í bráðri hættu. Við sem stundum kennslu á framhaldsskólastigi finn- um fyrir þeim þrýstingi sem stelpu- krakkamir eru beittir af kaupa- héðnunum. Þannig er algengt að skólanemar vinni langt fram á nætur á börum borgarinnar. En hvers megna kennarar og foreldrar gegn þessu gíruga valdi? Ef menn vilja spyma við fótum og bjarga mannorði krakkanna þá er jafnvel spýtt lygasögum í blöðin. Hvemig stendur á því að löggjafinn hefst ekkert að til vamar æskulýð þessa lands eða er hægt að horfa öllu lengur uppá kaupahéðnana misnota sakleysi krakkanna? Ríkisfjölmiðl- amir mættu að ósekju taka þessi mál til gagngerðrar endurskoðunar. Minnumst þess að fréttamenn ávinna sér ekki traust þjóðarinnar nema þeir sýni siðferðilegan styrk og sjái í gegnum vélabrögð hrapp- anna. Ólafur M. Jóhannesson Fjársjóðsleitarfólkið glaðbeitta. Börní fjársjóðsleit ■■■■ í dag les Ragn- 9 05 heiður Stein- ““ dórsdóttir ann- an lestur bamasögunnar „Beta, heimsmeistarinn" eftir Vigfús Bjömsson. Þetta er saga af fimm ára telpu, Betu, sem varð að fara á hæli fárveik af berkl- um. Hún þráði að komast heim og greip til sinna ráða með stórkostlegum árangri. Þegar hún yfírgaf berklahælið veitti yfirlækn- irinn henni sæmdarheitið „heimsmeistari í bata“. Þótt berklaveikin hafí verið þjóðarböl á íslandi fram undir miðja þessa öld er ekki víst að ungt að ungt fólk viti almennt mikið um þessa veiki, sem lagðist oft á böm og fólk í blóma lífsins. Berklamir heijuðu um allt land. Heilu Qölskyldumar urðu fóm- arlömb veikinnar og þá helst þeir sem bjuggu við bágust kjörin. Bach-tónleikar Á dagskrá útvarpsins í kvöld verður útvarp frá tónleikum Bach-akadem- íunnar í Stuttgart sl. sum- ar. Fluttir verða þættir úr Lúkasar-passíunni eftir eiginhandamótnahandriti Johanns Sebastians Bach. Flytjendur eru Edith Wiens, Mechtild Georg, Christa Palmer, David Gordon, Andreas Schmidt, Bach-kórinn í Marburg og Bach-collegium-kammer- sveitin í Stuttgart undir stjóm Wolframs Wehnert. Ekkert sjónvarp 1 kvöld Sjónvarp fellur niður í kvöld, þriðjudagskvöld, vegna uppsagna tækni- manna hjá ríkisútvarpinu. Búast má við tmflunum á áður auglýstri dagskrá sjónvarpsins meðan þetta ástand varir. T.d. er reikn- að með að þátturinn „Á líð- andi stundu" falli niður annað kvöld, miðvikudags- kvöld. Að öðru leyti verður reynt að sjónvarpa sam- kvæmt áætlun fram á laug- ardag, en búast má við að útsendingar falli niður á sunnudag að óbreyttu ástandi. Meðan ekki fást tækni- menn til starfa fellur Morg- unvakt rásar 1 niður en morgunþulir munu fylla upp í þær eyður af þjóð- kunnri snilld. Pétur Péturs- son mun sjá um fjörið þessa viku. Barið að dyrum á Reyðará Á dagskrá útvarpsins, rásar 1, í dag, er þátturinn „Barið að dyrum". Einar Georg Einarsson kennari í Mosfellssveit flytur efni frá Austurlandi. Einar var í mörg ár kennari á Hall- ormsstað og einnig um UTVARP skeið á Homafírði og gaf þar út blaðið Eystra-Hom. „Þetta er nokkurs konar vísir að svæðisútvarpi," sagði Einar. „Þættimir em vikulega og ég sé um annan hvera. Að þessu sinni var ég á leið frá Homafírði til Djúpavogs. Ég kom við á Reyðará í Lóni og spjallaði við Þor- stein bónda Geirsson þar um sveitina hans,“ sagði Einar Georg. ÞRIÐJUDAGUR 18. mars 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Morgunvaktin 7.20 Morguntrimm. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veöurfregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barn- anna: „Beta, heimsmeistar- inn" eftir Vigfús Björnsson. Ragnheiður Steindórsdóttir les (2). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Þingfréttir 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áður sem örn Ólafsson flytur. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Lesið úr forystugreinum dagblaöanna. 10.40 „Ég man þá tíð." Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liönum árum. 11.10 Úr söguskjóðunni - Viöhorf til kvenna á 18. og 19. öld. Umsjón: Sigríöur Jóhannsdóttir. Lesarar: Arni Snævarr og Sigrún Valgeirs- dóttir. 11.40 Morguntónleikar Þjóðleg tónlist frá ýmsum löhdum. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Tilkynn- ingar.Tónleikar. 13.30 I dagsins önn - Heilsu- vernd. Umsjón: Jónina Benedikts- dóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Á ferð um Israel vorið 1985". Bryndís Viglundsdóttir segir frá (2). 14.30 Miðdegistónleikar. a. Svíta í a—moll op. 10 fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Christian Sinding. Arve Tell- efsen leikur með Filharmon- íusveitinni í Osló; Okko Kamu stjórnar. b. Píanókonsert i a-moll op. 16 eftir Evard Grieg. Géza Anda leikur með Filharmon- íusveit Berlínar; Rafael Kub- elik stjórnar. 15.15 Bariðaðdyrum Einar Georg Einarsson sér um þátt frá Austurlandi. 15.45 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Hlustaðu með mér - Edvard Fredriksen. (Frá Akureyri.) 17.00 Barnaútvarpið. Stjórn- andi: Kristin Helgadóttir. 17.40 Úr atvinnulífinu - lönað- ur. Umsjón- Sverrir Alberts- son og Vilborg Harðardóttir. 18.00 Neytendamál. Umsjón: Sturla Sigurjónsson. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Daglegt mál. Sigurður G. Tómasson flytur þáttinn. 19.50 Fjölmiðlarabb Guömundur Heiðar Frí- mannsson talar. (Frá Akur- eyri.) 20.00 Vissirðu það? — Þáttur i léttum dúr fyrir börn á öll- um aldri. Stjórnandi: Guð- björg Þórisdóttir. Lesari: Árni Blandon. (Fyrst útvarp- aö 1980.) 20.30 Að tafli. Jón Þ. Þór flytur þáttinn. 20.55 „Gneistartil grips" Knútur R. Magnússon les úr nýrri Ijóðabók eftir Kristin Reyr. 21.05 fslensk tónlist. a. Prelúdía, sálmalag og fúga eftir Jón Þórarinsson. Ragnar Björnsson leikur á orgel. b. „Canto" eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Háskólakórinn syngur; höfundur stjórnar. 21.30 Útvarpssagan: „I fjalla- skugganum" eftir Guömund Danielsson. Höfundur les. (10). 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma (44) 22.30 Frá tónleikum Bach- akademíunnar í Stuttgart sl. sumar. Þættir úr Lúkasar-passiunni eftir eiginhandar nótna- handriti Johanns Sebastians Bach. Flytjendur: Edith Wiens, Mechthild Georg, Christa Palmer, David Gordon, Andreas Schmidt, Bach- kórinn i Marburg og Bach- collegium kammersveitin í Stuttgart; Wolfram Wehnert stjórnar. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. árr 10.00 Kátirkrakkar Dagskrá fyrir yngstu hlust- endurna í umsjá Guðlaugu Maríu Bjarnadóttur. 10.30 Morgunþáttur Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 12.00 Hlé 14.00 Blöndun á staðnum Stjórnandi: Sigurður Þór Salvarsson. 16.00 Söguraf sviðinu Þorsteinn G. Gunnarsson kynnir tónlist úr söngleikjum og kvikmyndum. 17.00 Hringiðan Þáttur í umsjá Ingibjargar Ingadóttur. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar í þrjár minútur kl. 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.