Morgunblaðið - 18.03.1986, Qupperneq 27
9861 SHAM ,8X H!J0AaULGIÍI4 .aiQAJHMUOHOM 8£
MÖRGUNBLABÍÐ, ÞÍUÐJUDAGÚR18. MARZ1986 ~~ -------------------------------- 27
Þriðji hver Islend-
ingnr fær krabbamein
Þjóðarátak gegn krabbameini 12. og 13. apríl nk.
ÞRIÐJI hver íslendingur fær
krabbamein einhvern tíma á
lífsleiðinni. Af þeim getur um
helmingur búist við að fá bata
en hinir deyja fyrir aldur fram.
Það þýðir að fjórði hver íslend-
ingur deyr af völdum krabba-
meins. Þessar upplýsingar
koma m.a. fram í bæklingi sem
Krabbameinsfélag íslands gef-
ur út í tengslum við landssöfn-
un á vegum félagsins undir
kjörorðinu „Þjóðarátak gegn
krabbameini — þín vegna“.
Söfnun þessi fer fram á öllum
Norðurlöndunum dagana 12.
og 13. apríl nk. Norðurlandaráð
átti frumkvæðið að þessu átaki
og fól Norræna krabbameins-
sambandinu að hrinda þvi í
framkvæmd.
„Það er mikið undir því komið,
að þjóðarátakið takist vel,“ sagði
dr. Snorri Ingimarsson formaður
Krabbameinsfélags Islands.
„Krabbameinsfélagið mun ein-
beita sér að þríþættu verkefni að
söfnuninni lokinni. I fyrsta lagi
mun leit að krabbameini verða
aukin sem mest. Við erum vel á
verði og fylgjumst grannt með
öllum nýjungum á þessu sviði. Það
hefur verið sýnt fram á, að með
því að greina t.d. bijóstkrabba —
algengasta krabbamein í konum
— á byijunarstigi, er hægtað
fækka stórlega dauðsföllum af
völdum hans. Það væri jafnvel
hægt að útrýma þessum sjúkdómi
ef allar konur kæmu reglulega í
skoðun. Þá má nefna að nýlega
hófst frumkönnun á krabbameini
í ristli og endaþarmi hjá körlum
og konum. Til þessara rannsókna
þarf fé og Krabbameinsfélagið
hefur enga fasta tekjustofna og
Qárhagur þess er bágur. Starf-
semin hefur stóraukist að undan-
fömu án þess að tekjumar hafi
aukist að sama skapi.
í öðm lagi þarf að stórauka
fræðslu- og rannsóknastarf.
Rannsóknir em að flestu leyti
auðveldari hér en annars staðar
vegna smæðar þjóðarinnar og
þess, að tiltölulega auðvelt er að
fá fólk til samstarfs.
í þriðja lagi viljum við éfla þjón-
ustu við sjúklinga, bæði fyrrver-
Þau hvetja þjóðina til átaks. Frá vinstri: Geirlaug Ottósdóttir
starfsmaður Þjóðarátaks gegn krabbameini, Árni Gunnarsson
framkvæmdastjóri söfnunarinnar, dr. Snorri Ingimarsson for-
stjóri Krabbameinsfélags íslands og Pétur Kristjánsson svæðis-
stjóri Reykjavíkursvæðis JC.
andi og núverandi, og aðstand-
endur þeirra, og yrði sú þjónusta
viðbót við þjónustu sjúkrahú-
sanna.
Við viljum svo reka enn harðari
áróður fyrir því að fólk mæti til
krabbameinsleitar og eftirlits. Það
má t.d. benda á, að leghálskrabba-
mein er tíu sinnum sjaldgæfara í
konum sem mæta reglulega til
eftirlits en hjá hinum sem ekki
korna," sagði dr. Snorri.
„Við leggjum áherslu á það að
kynna fólki hvað það getur gert
sjálft til að koma í_ veg fyrir
krabbamein," sagði Árni Gunn-
arsson ritstjóri, framkvæmda-
stjóri landssöfnunarinnar. „Þess
vegna höfum við farið út í að
prenta þennan bækling í 70.000
eintökum og hyggjumst dreifa
honum í öll hús á landinu. Þá
förum við þess á leit, að einni til
tveimur kennslustundum einhvem
tiltekinn dag verði varið til þess
að fræða skólaböm um krabba-
mein. Það er álitið, að meirihluti
krabbameina stafí af svonefndum
umhverfisþáttum en með því er
t.d. átt við neysluvenjur fólks. Það
hefur lengi verið vitað hvem þátt
reykingar eiga, en á síðari árum
hafa menn beint athyglinni æ
meira að mataræði. Það er álitið
að sumar fæðutegundir eigi þátt
í krabbameinsmyndun en aðrar
hamli gegn henni. T.d. er fíta
talin skaðleg en treflarík fæða
ýmiss konar svo sem ávextir,
grænmeti og gróft kom telst
holl,“ sagði Ámi Gunnarsson.
JC-hreyfingin hefur í samvinnu
við mörg kvenfélög og aðildarfé-
lög Krabbameinsfélagsins úti á
landi tekið að sér að skipuleggja
starfið söfnunardagana tvo, en
þá verður gengið fyrir hvers
manns dyr og leitað eftir framlög-
um.
„Það er ljóst, að við þurfum
gífurlega marga sjálfboðaliða,"
sagði Pétur Kristjánsson svæðis-
stjóri Reykjavíkursvæðis JC. „í
Reykjavík eru til dæmis 610 götur
og margar þeirra afar flölbýlar.
Það gefur því auga leið að söfnun-
in er mikið starf.
Við bindum vonir við mikla og
góða þátttöku og það em vinsam-
leg tilmæli, að þeir sem vildu taka
þátt í söfriunarstarfínu gefi sig
fram við Krabbameinsfélagið í
síma 21122 eða 621414. Og svo
vonum við bara, að fjölmiðlar
leggi okkur lið og veki athygli á
söfnuninni," sagði Pétur Krist-
jánsson.
Sögulegt stetnumót á töhiuöld
< vid tiækna kappa og kvenskörunga
C Unglingar nútímans alast upp viö
i'-
tölvur, fjölbreytta tækni og Qölmiðlun. Lífi
og starfi á tölvuöld fylgja hraði og spenna.
Það hefur aldrei verið mikilvægara en
nú að standa föstum fótum í fortíðinni,
AJ þekkja uppruna sinn og menningararf.
jr\ íslendingasögurnar eru mikilvægustu
menningarverðmæti þjóðarinnar. Þær eru
snilldarlegar frásagnir af lífi og viðhorfi
forfeðra okkar, ástum, hatri, vináttu,
svikum, blóðhefndum, vígum og
brennum. íslendingasögurnar eru lifandi
lýsing á samfélagi sögualdar, sem á erindi
við nútímann.
/V Þeir sem lesa íslendingasögurnar
eiga stefnumót við lifandi fólk, stolt s
ogstórlynt. Þau eruöllógleymanleg:
Egill Skalla-Grímsson, Grettir Ás-
mundarson, GísliSúrsson, hjónin
Njáll og Bergþóra, Skarphéðinn,
Gunnará Hlíðarenda og Hallgerður
langbrók, svo einhver séu nefnd.
(/i Svart á hvítu vill gefa nýrri
kynslóð færi á að kynnast íslendinga-
sögunum, helstu dýrgripum íslenskra
bókmennta. Þess vegna var ráðist í út-
gáfu allra sagnanna í tveimur veglegum
bindum með nútíma stafsetningu.
Tölvutækni nútímans hefur gert útgáfu
þessa mögulega,án þessað slakað hafi
verið á vísindalegum vinnu brögðum.
Við vekjum sérstaka athygli
á gjafakorti fyrir fermingarbörn, sem
er tilvísuná síðara bindi íslendinga-
sagna Svarts á hvítu, en það er
væntanlegt snemma vors.
Spennandifermingatgjöf
-Váianieg vetimæti
j—---------l
^vortdfmtu
******
PAÓ