Morgunblaðið - 18.03.1986, Side 44

Morgunblaðið - 18.03.1986, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. MARZ1986 Verslun og söluturn Af sérstökum ástæðum til sölu verslun á stór-Reykjavík- ursvæðinu. Ágæt velta og bjart framundan. Fyrirspurnum og tilboðum sé skilað í umslagi til augl.- deildar Mbl. fyrir 22. mars merkt: „Verslun —1000“. Afmæliskveðja: Gísli Björnsson, Höfn - Níræður SIEMENS Góð og hagkvæm þvottavél • 18 þvottakerfi. •Sparnaðarhnappur. •Frjálst hitaval. •Vinduhraði 600 og 800 sn./mín. • íslenskur leiðarvísir. •Gömlu góðu Siemens- gæðin. Komið íheimsókn til okkar: Smith og Norland Nóatúni 4, s. 28300. RAFMOTORAR Sú var tíðin til sveita og í sjávar- þorpum á íslandi, allt fram á sjö- unda áratuginn, að hinir bestu menn, að mati almennings, völdust til setu í sveitarstjómum og sýslu- nefndum, menn með reynslu í skóla lífsins og hugsjónir um bætt mann- líf í frjálsu landi. Það var áður en flokkapólitíkin þrengdi sér inn í samfélagsmyndina, eins og raunin hafði orðið á millistríðsárunum í kaupstöðum íslands. Sem sagt til bessara trúnaðarstarfa völdust þá nær alfarið atorku- og hæfileika- menn, menn sem vildu vinna sínum hreppi og sínu sýslufélagi allt það besta er þeir máttu og gerðu aldrei kröfu til verklauna. Já, þetta var fyrir þá tíma er pólitísk samtrygg- ing tengd aðstöðu og fjármagni, setti á stall smámenni og henti- stefnu fúskara. Framanritað flaug mér í hug er ég settist niður í þeim tilgangi að ri^a upp lífshlaup og kynni við Gísla Bjömsson, fyrrum rafveitustjóra m.m., oftast kenndur við Grímsstaði á Höfn í Homafirði, en kempan fyllir níunda áratuginn nú í dag, 18. mars 1986. Gísli er dæmigerður brautryðj- andi og forystumaður jafnt á verk- legu sviði, sem í félags- og menn- ingarmálum síns heimahéraðs, Austur-Skaftafellssýslu. Það talar sínu máli, þegar upp er rifjað, að afmælisbamið er fætt árinu áður en landnemi Hafnar í Homafirði, Ottó Tuliníus kaup- maður, flytur þangað frá Papósi og setur á stofn verslun við Hafnarvík, að vori 1897. Vil ég nú í grófum dráttum víkja að uppmna og helstu æviatriðum Gísla Bjömssonar. Gísli Páll, svo sem hann heitir fullu nafni, fæddist að Austurhóli í Nesjum, Austur- Skaftafellssýslu, 18. mars 1896, sonur hjónanna Bjöms Gíslasonar, bónda þar og síðar á Meðalfelli í sömu sveit, og konu hans, Borg- hildar Pálsdóttur frá Krossbæ í Nesjum. Fram til 1918 sinnti Gísli ýmsum störfum, einkum til sveitar, var við vegavinnu, og hafði einnig sótt sjóinn. Þetta ár flyst hann á Höfn og verður heimilismaður á Grímsstöðum (nú Hafnarbraut 2b). Þar bjuggu þá hjónin Amgrímur Arason og Katrín Sigurðardóttir, er áður vom á Krossbæ, en bmgðu búi 1907 og fluttu til Hafnar og reistu þar snoturt en lítið einnar hæðar íbúðarhús á Grímsstaðahæð. Þegar hér var komið sögu er Gísli heitbundinn dótturinni á Grímsstöð- um, Ambjörgu, f. 13/11 1893 — d. 15/3 1935. Var þetta hús hið fimmta í röð bygginga frá 1897, er Tuliníus kaupmaður reisti íbúðar- hús sitt, svo og verslunarhúsið. En Guðmundur söðlasmiður Sigurðs- son flutti á sama tíma og kaup- maður einnig frá Papóskaupstað í Lóni og byggði íbúðarhús það ár. En næst reis íbúðarhús á Höfn 1906. Grímsstaðir em eitt af þrem fyrstu íbúðarhúsunum sem þar rísa frá aldamótum og fram til 1915, er Garður Þórhalls kaupmanns og stórathafnamanns Daníelssonar reis. Gísli hafði er hér var komið sögu farið í félag um kaup og útgerð á 8 tonna vélbáti. Þeirri útgerðarsögu lauk sjö ámm síðar, þar eð þeim félögum þótti sem illa gengi. Þama er Gísli í hópi brautryðjenda um vélbátaútgerð, þekkir þá sögu frá upphafi og fram á þennan tíma. Væri nú ekki ráð að skrá sögu vél- bátaútgerðar frá Homafírði? Þess mun óvíða kostur með jafnmiklu öryggi, enda mikið til í fómm Gísla þessu viðvíkjandi. Á þessum áram, eða allt frá 1921 til 1951, starfaði Gísli mikið að viðgerðum véla og jámsmíði, enda handlaginn, útsjónarsamur og þrek- ið mikið. Mun oft hafa verið lögð nótt við dag til að koma bilaðri bátsvél í gang svo kappgjamir Austfirðingar kæmust á sjóinn. Um 1927 hefjast afskipti Gfsla af raf- magnsmálum. Hann fæst við vél- gæslu í rafstöð og vinnur að raf- lögnum. Enn ný framfaramál og glímt við lítt þekkta tækni, en með góðum árangri. Á þessum vettvangi er svo drýgstur hluti ævistarfsins, eða um 43 ára skeið, sem Gísli sinnir vélgæslu og rafveitustjóra- starfi, lét af því 1970. Gísli var fróð- leiksfús, jafnt um verkleg efni sem og varðandi ýmiskonar fræðagrúsk og verður að vikið síðar. Hann sótti m.a. námskeið í útvarpsvirkjun 1932. Iðnréttindi í jámsmíði 1937 og meistarabréf í þeirri iðn 1957. Með þessum störfiim sinnti Gísli starfi bifreiðaeftirlitsmanns frá 1934 til 1970. Mun hann hafa verið mjög reglusamur í þeirri embættis- færslu og bflamir skyldu vera í góðu lagi. Ovenjumikil vom þau störf á fé- lagsmálasviðinu, sem Gísli gegndi. Hann situr í hreppsnefnd Nesja frá 1942—1946 (á meðan Höfn tilheyrir þeim hreppi) síðan á Höfn frá 1946—1958. Var í forsvari fyrir nefnd þeirri er fjallaði um skipti Nesjahrepps, við stofnun Hafnar- kauptúns. Hann hafði yfimmsjón með fjölmörgum stórframkvæmd- Flestar stærðir og gerðir fyrirliggjandi. Fljót afgreiðsla. Dregið í happdrætti HSÍ DREGIÐ hefur veríð um bílana 15 í Happdrætti Handknattleiks- sambands íslands. Eftirtalin númer drógust út: 246997 24020 59697 102046 183418 267372 24370 60880 108730 194056 268614 27187 60948 145416 195799 288451 .JTRÖNNING Sundaborg, sími 84000 FORD ESCORT 13646 88545 157099 196934 244908 37777 148576 159113 223876 284095 SUZUKIFOX 9824 111911 135995 162630 258320 10. janúar var dregið um 20 ferðavinninga. Eftirtalin númer drógust út: 22631 44974 80581 165057 7. febrúar var dregið um 20 ferðavinninga og drógust þá út eftirtalin númer: 10960 73530 97719 170068 208209 50774 83576 116797 183077 212464 57747 84674 117304 184350 220284 60333 96803 125788 196084 246563 Handknattleikssamband íslands þakkar stuðninginn. (Fréttatilkynning) um svo sem byggingu rafveitu á Höfn 1949—50 og vatnsveitu kauptúnsins 1952—53 og aftur 1956. Hann var í þeirr sveit manna er stofnaði verkalýðsfélag á Höfn 1928, þar í stjóm og formaður um skeið. Sat í byggingamefnd 1942—58 og hafnamefnd 1942—1970. Að endingu, þó engan veginn sé tæmandi talið, skal nefha setu Gísla Bjömssonar í sýslunefnd 1962—1974, einnig endurskoðandi sýslu- og hreppareikninga frá 1974 og er enn. Sveitungar Gísla hafa sýnt hon- um ýmsan sóma og vottað þakklæti fyrir hin fjölmörgu störf. Árið 1976, þá er Gísli varð áttræður, var hann gerður að fyrsta heiðursborgara á Höfn. Sjómenn veittu honum heið- ursmerki 1977 vegna starfa í þágu fiskiskipafiotans. Auðvitað hefði Gísli átt að fá Fálkaorðuna fyrir löngu en hún lendir nú oftar en hitt hjá uppmygluðum embættis- mönnum og þeim öðmm sem nógu lengi er betlað fyrir. Svo sem lítillega er að vikið áður hefur Gísli grúskað mikið sl. tutt- ugu ár og vel það. Hann er ágæt- lega ritfær og vandur að heimildum. Þegar Byggðasaga A-Skaftafells- sýslu var rituð, samdi Gísli kaflann um Hafnarkauptún frá upphafi byggðar 1897 til 1970. Þetta era 260 síður og var þó miklu sleppt, til stórskaða fyrir verkið, en sam- ræmis við markaðan ramma út- gáfunnar. Gísli hefur ritað fjölda greina í blöð og tímarit m.a. fyrir sýsluritið Skaftfelling árg. II.—IV. og enn vinnur Gísli að fræðum, nú um fé- lagsmenn KASK, þá sem horfnir em. Þar nýtur hann samvinnu við konu sina. Þetta er merk heimilda- söfnun. Gísli er ræktunarmaður, fyrsti og fegursti tijágarðurinn á Höfn er við steinhúsið á Grímsstöðum byggt 1924. Þar mun hans ágæta kona, Regína Stefánsdóttir, hafa vel að unnið. Fallegur er lundurinn við sumarbústaðinn inn með Jök- ulsá í Lóni. Snyrtimennska og myndarbragur á öllu sem nálægt var komið. Gísli Bjömsson er kempa í sjón og raun. Hann var vel íþróttum búinn, kappsfullur og fylginn sér í öllum málum. Skapríkur er Gísli, en hreinskiptinn. Það er ekki fyrir smámenni að etja kappi við Gísla í orðræðum, eins rökfastur og vel máli farinn sem hann er. Fyrst og fremst er Gísli sannur íslendingur, sem þolir engan undirlægjuhátt eða hálfvelgju. Hann mun standa vörð um tungu og þjóðemi, svo lengi sem líf endist. Sá, er þessar iínur párar, kvaddi á heimili Gísla Bjömssonar og Regínu Stefé.nsdóttur að kveldi 10. jan. sl., eða á elleftu stundi, því á brott var haldið úr héraði morgun- inn næstan. Það var við hæfi að kveðja hina öldnu kempu, sýsluend- urskoðandann og þar með sam- verkamann minn í lok úthaldsins hjá Austur-Skaftfellingum. Gísli kom mér ánægjulega á óvart, var bráðhress, en lasleiki hafði hetjað á hann haustmánuðina og nokkuð á árinu 1984. Gísli heldur ávallt reisn sinni og andlegir kraftar miklir, hugsunin og orðræður skír- ar, minnið óbrenglað, það best ég fann. Af fundi þeirra hjóna fór ég ríkari, nú sem fyrr. Húsráðendur era þeirrar gerðar, að öllum er ánægja og ávinningur að samvem við þau. Það em góðir straumar í þeirra húsi, þar sem gestrisni, hlýja og menningarbragur ríkja. Að skilnaði réttu þau mér forkunnar- fagran jaspisstein, er þau höfðu fundið á gönguför í Skógey, Nesj- um. Steinn þessi er slípaður á einni hlið og þar gefur að líta slíka lita- dýrð að með ólíkindum er. Form steinsins góða minnir á skútu undir fullum seglum. „Þetta skal vera ykkar, þín og konu þinnar, ævin- týrafley og færa ykkur gæfu og gengi," mælti Regína að skilnaði. Ég minnist þess er ég sá Gísla í fyrsta sinn „undir fullum seglum", það var á sýslufundi 1974. Þá um vorið var kosið til sýslunefndar á Höfn og í stað Gísla kom ungur maður. Gísli var þá orðinn 78 ára. í upphafi fundar var drepið á dyr og inn snaraðist vörpulegur maður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.