Morgunblaðið - 18.03.1986, Blaðsíða 45
Hann ávarpaði sýslumann, sem þá
var Einar Oddsson, svo og fyrrver-
andi meðnefndarmenn sína. Gísli
þakkaði samveruna, sem mér er
ekki grunlaust um að hann hefði
viljað að yrði lengri. Mælti hann til
fundarmanna, en af óvenjulegum
myndugleik og hvatti til dáða. Ekki
hafði komumaður uppi langar orð-
ræður, en kvaddi og þakkaði fyrir
sig. Ég varð þess var að koma hans
hafði mikil áhrif á fundarmenn, en
ég var á þessum tíma nær með öllu
ókunnugur um menn og málefni
héraðsins. Það kom og á daginn
að Gísli naut trausts allra og á
hann hlóðust áfram trúnaðarstörf
fyrir sýslufélagið, þó hann hyrfi úr
sýslunefnd. Á þessum sýslufundi
1974 var Gísli kjörinn endurskoð-
andi sýslu- og hreppareikninga,
skipaður í fyrstu stjóm elli- og hjúk-
runarheimilis er sýslan var að setja
á stofn, svo og gegndi hann áfram
starfi skjalavarðar og forsvars-
manns hérðasskjalasafnsins, en til
þeirrar stjómar var kosið í sýslu-
nefnd. Ég var ásamt Gísla og
Margréti H. Gísladóttur kosinn í
fyrstu stjóm elliheimilisins. Þar
fann ég gjörla hversu mikill kjark-
og framfaramaður Gísli Bjömsson
er. Aldrei hikaði hann við að ráðast
í stórræði á þessum vettvangi og
lét sé vei líka allt er til vaxtar og
viðgangs var gert, þó greiðslugetan
virtist á stundum undir öllu „raun-
sæisplani". Gísli var það framsýnn
að hann skildi að ekkirt gerðist á
þessum tímum, nema með því að
taka áhættu. Þetta var jú fyrir tíma
verðtryggingar á lánum, og verð-
bólgan vann með þeim sem fram-
kvæmdu.
Skjalasafn Austur-Skaftafells-
sýsiu er eins manns verk, Gísla
Bjömssonar. Hafa tjáð mér fag-
menn, að skráning þess, uppsetning
ÍÉ>
og fyrirkomulag allt hafí verið með
sérstökum ágætum. Því miður varð
safnið að flytja úr góðu húsnæði
1978 og var á miklum hrakhólum
um árabil. Þetta veit ég að Gísla
sámaði og var að vonum. Hann
sleppti þó ekki hendinni af safninu
fyrr en 1984. Nú er unnið að því
að fá þessari stofnun samastað og
ráðinn hefur verið háskólamenntað-
ur safnvörður. Honum og öðmm
sem um safnið hafa fjallað er ljóst
að það mun alla tíð búa að braut-
ryðjendastarfi Gísla, sem honum
verður aldrei fullþakkað. Allt þetta
starf, sem stóð á annan áratug,
vann Gísli af hugsjón og einstakri
alúð. Má heita að verklaun hafi
mestan tímann verð nær engin.
Mest vom samskipti okkar Gísla
varðandi endurskoðun hreppa- og
sýslureikninga. Gísli er glöggur
talnamaður og kastar ekki höndum
til verka. Þó stundum drægist fram
undir sýslufund að einstaka hrepps-
reikningur bærist, var allt endur-
skoðað og tilbúið á fundinum. Mun
vinnudagurinn oft hafa verið langur
hjá endurskoðandanum í júníbyij-
un. Áritaðir reikningar frá Gísla
Björnssyni vom réttir, um það
þurfti ekki að véla. Síðustu tvö árin
naut Gísli aðstoðar varaendurskoð-
enda vegna lasleika og fjarvera.
Gísli er tvíkvæntur. Fyrri konu
sína, Ambjörgu Amgrímsdóttur,
missti hann 1935. Með henni átti
hann tvo syni, Arngrím, vélstjóra,
og Bjöm, rafvirkjameistara, búsett-
ir á Höfn. Báðir traustleikamenn
og fagmenn ágætir, svo sem þeir
eiga kyn til. Síðari kona Gísla er
Regína Stefánsdóttir frá Kálfafelli
í Suðursveit, f. 5/9 1912. Þau
gengu í hjúskap 19/4 1945. Böm
þeirra em Kristín, kennari í Nesj-
um, og Baldur, kennari í Reykjavík.
Mesta ágætis- og myndarfólk í hví-
vetna. Það em sérstök forréttindi
og lærdómsríkt að kynnast manni
eins og Gísla Bjömssyni, fyrir það
þakka ég, um leið og ég óska
afmælisbarninu allra heilla og
góðra ára framundan.
Regínu, þeirri sómakonu, þakka
ég kynnin, allt var það mannbæt-
andi.
Friðjón Guðröðarson
Pennavinir
Franskur piltur með margvísleg
áhugamál, skrifar á ítölsku,
spænsku ogensku auk frönsku:
Antoine Lorenzi,
M.A. 13 rue Notre Darae,
20200 Bastia,
France.
Sjötug dönsk kona vill skrifast á
við konur á svipuðu reki:
Frieda Andresen,
Skeldevej 67,
Skelde,
DK-6310 Broager,
Danmark.
Frá Japan skrifar 38 ára japönsk
kona, sem gift er Norðmanni. Bjó
lengi í Noregi. Hefur áhuga á
handavinnu, ferðalögum, tónlist
o.fl.:
Toyoko Enberg,
803 Tano-Ue,
Kurashiki,
Okayama,
Japan.
Tvítug stúlka skrifar frá Ghana.
Hefúr áhuga á íþróttum, ljósmynd-
un, dansi o.fl., safnar póstkortum:
Harlena Nkoom,
P.O.Box 98,
Agona-Swedru,
Ghana.
Náiarstungueyrnalokkuiinn
• Hjálp í baráttunni við aukakflóin og
reykingarnar.
• Hefur einnig reynst vel við margvísleg-
um verkjum.
• Hannað og prófað af lækni.
NeBra bak, mjaBmir
Mjobak
Ktagi
Lungu
reykingar
Streita
reyk-
NeBra
ngar
mjaömir
Mjobak
Tannverkur
og bolgur
Lfra bak,
herBar,
háls,
migrene,
höfuBverkur
Deyfandi
tannverkur
migrene,
höfuS-
verkur
Astma, ofnæmi
Lifur,
migrenc,
g»gt
• Algerlega hættulaust og auðvelt í notkun. Bara
þrýsta með fingurgómnum.
• Leiðbeiningar á íslensku fylgja.
• Má setja íog taka úrað vild.
Leitið uppiýsinga isíma 622323. Sendum ípóstkröfu.
Heilsumarkaðurinn
Hafnarstræti 11.
Einkaumboð á íslandi: Heilsumarkaðurinn Hafnarstræti 11.
VIÐEIGUM
25 ÁRA AFMÆLI
ÍDAG
og bjóðum viðskiptavinum
okkar til fagnaðar!
Frá kl. 9 til 17 bjóðum við uppá ýmsar
veitingar á skrifstofu okkar að Lágmúla
5 í anda hins nýja lífsstíls heilbrigðis
og hollustu, svo sem ljúffenga ávaxta-
diykki, ferska ávexti og fleira ljúfmeti.
VERIÐ HJARTANLEGA VELKOMIN!
Míele
uppþvottavél G562I
Verð fyrir kjarasamninga
Verð eftir kjarasamninga
kr. 60.590.-
kr. 48.385.-
Mismunur
kr. 12.205
ÞETTA DÆMI SÝNIR AÐ EINMITT NÚNA
ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ EIGNAST HIN
HEIMSÞEKKTU MIELE HEIMILISTÆKI
i
Veldu Míele-
annað er málamiðlun.
ffi JÓHANN ÓLAFSS0N & C0
k—A 43 Sundaborg 104 Reykjavík. S: 688588.