Morgunblaðið - 18.03.1986, Side 54
ðð 380 r SÍIAM .3í HUOACRJU3UM .ÖIOAJaiíUOHOM
J 54 ' MÓRGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR18. MARZ1986
l
*
i
JANE FONDA
Besta afslöppun
sem ég veit
að komast í
trjákofann
Þegar frí gefst frá önnum vita
Jane Fonda og fjölskylda
ekkert indælla en að fara í sumar-
bústaðinn sem er í fjöllunum fyrir
ofan Santa Barbara í Kalifomíu.
Húsið er ekki íburðarmikið held-
ur lítill og notalegur tijákofí með
mikilli landareign.
Bústað þennan k'eypti fjölskyldan
fyrir átta árum og þama njóta þau
þess að vera saman, lesa, borða og
fara í göngutúra.
Speciale: Banebrydende
inden for byggebranchen
n. 1 1,-------*r—IT _r—* n ifmnfi |I« rtnifnliiM
Hmjakole i Honeaa
Urklippan úr danska blaðinu.
HORSENS FOLKEBLAD
Ungur íslendingur
boðar nýjung í
byggingariðnaði
— með
samhæfingu
tölvu- og
myndbandatækni
Það er alltaf ánægjulegt að sjá
landa okkar að góðu getið í
erlendum flölmiðlum og nýlega rák-
umst við á grein í danska blaðinu
„Horsens Folkeblad" þar sem ungs
íslendings, Ásgeirs Ásgeirssonar
(Sverrissonar, hljómsveitarstjóra)
var sérstaklega getið fyrir námsár-
angur á nýju sérsviði í byggingar-
tæknifræði.
í grein blaðsins er sagt frá út-
skrift 26 nýrra byggingartækni-
fræðinga frá „Byggeteknisk Hoj-
skole“ í Horsens og þar segir að
tveir af hinum nýútskrifuðu hafí
verið á nýju sérsviði, sem er svo
mikil nýjung að þeir séu ekki aðeins
brautryðjendur í sínu eigin fagi
heldur í öllum byggingariðnaðinum,
eins og það er orðað í blaðinu.
Námsmönnunum tveimur, hinum
26 ára gamla Frank Möller Ander-
sen frá Skanderborg og hinum 24
ára gamla Ásgeiri Ásgeirssyni frá
íslandi var launað með einkunninni
11 fyrir árangur sinn á þessu nýja
sérsviði, sem ber titilinn „visualiser-
ing af projekter" á fagmálinu. Er
þar um að ræða eins konar sam-
hæfingu tölvu- og myndabanda-
tækni til notkunar í byggingariðn-
aði. í stuttu máli virkar það þannig,
að notandi tækisins getur leitað
upplýsinga á tölvu um tiltekið efni
og fengið svör við spumingum sín-
um. Svörin fær hann að hluta til á
tölvuskermi í formi texta, taflna og
teikninga og að hluta til á mynd-
bandsskermi með stuttum köflum
af hreyfimyndum.
í grein blaðsins er vitnað til
fræði- og skólamanna í byggingar-
tæknifræði, sem fullyrða að hér sé
um athyglisverða nýjung að ræða
og því full ástæða til að óska Ás-
geiri Ásgeirssjmi til hamingju með
árangurinn.