Morgunblaðið - 27.03.1986, Blaðsíða 1
104SÍÐUR B/C
orönulilaítií)
STOFNAÐ 1913
FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Svíþjóð:
Vinnuveitendur
boða víðtækt
verkbann
9. apríl
Stokkhólmi, 26. mars. Frá fréttaritarm
Morgunblaðsins.
SÆNSKT samfélag lamast alger-
lega eftir tvær vikur, verði af
hinu umfangsmikla verkbanni,
sem sænska vinnuveitendasam-
bandið boðaði i dag, en til þess
er boðað vegna fyrirhugaðra
verkfalla sem tilkynnt var um i
morgun.
Verkfallið á að ná til 18.000
starfsmanna, sem valdir hafa verið
með tiliiti til þess, að stór iðnfyrir-
tæki stöðvist þegar í stað. En með
verkbanninu horfir enn alvarlegar
og mun það bitna á a.m.k. 300.000
manns.
Punjab:
Ríkisstjórnin
átti fótum
fjör að launa
Chandigarh, 26. mars. AP.
SURJIT Singh Bamala, forsætis-
ráðherra ríkisstjémar hófsamra
aikha í Punjab, og nokkrir ráð-
herrar í stjóminni, áttu fótum
fjör að launa, er múgur ofstækis-
manna í röðum sikha gerðu að-
súg að þeim á trúarsamkomu í
dag. Sveifluðu ofstækismennira-
ir sveðjum umhverfis sig, auk
þess að beita skotvopnum og
varð lögregla að skerast í leikinn.
Atburðurinn átti sér stað í An-
andpur Sahib, sem er í um 100 kíló-
metra Qarlægð frá Chandigarh. Um
100 þúsund manns höfðu safnast
þar saman til þess að halda upp á
dag gleði og fyrirgefningar, en
bæði sikhar og hindúar halda þenn-
an dag heilagan. Á samkomunni
voru einkum öfgasinnaðir sikhar,
auk um 10 þúsund stuðningsmanna
Akali Dal flokksins, flokks Bamala.
Fyrirhugað var að forsætisráðherr-
ann héldi ræðu á samkomunni, en
áður en til þess kom hófu öfga-
sinnar skothríð á ræðupallinn og
múgurinn ruddist í átt til hans með
fyrrgreindum afleiðingum.
Líbýa:
Skora á sjálfsmorðssveitir
að ráðast á Bandaríkjamenn
London/Moskvu/Wa&hington/Róm, 26. mars. AP.
LÍBÝUMENN hvöttu í dag arabískar sjálfsmorðssveitir
til að láta til skarar skríða og gera árásir á bandarísk
sendiráð og alla þá staði, þar sem Bandaríkjamenn eiga
hagsmuna að gæta, vegna átaka bandaríska flotans og
Líbýuhers í Sidraflóa. Allt hefur verið með kyrrum
kjömm á flóanum í dag. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur verið boðað til skyndifundar í kvöld.
Mikhail Gorbachev, leiðtogi
Sovétríkjanna, sagði í dag að
Bandaríkjamenn hefðu undan-
fama daga sýnt sitt rétta andlit,
þeir stefndu að heimsyfirráðum.
Gorbachev sagði að Bandaríkja-
Suður—Afríka:
24 láta lífið 1 átök-
um við lögreglu
J6hanncsarborg, 26. mars. AP.
LÖGREGLA skaut ellefu blökkumenn til bana í heimalandinu
Bophuthatswana um 100 kílómetra í norður frá höfuðborginni
Pretóríu, er hún hóf skothríð á fjöidafund á fótboltavelli.
Eitt hundrað manns eru taldir hafa særst í skothríðinni og
eitt þúsund manns voru handteknir. Auk þéssa skaut lögregla
þrettán aðra blökkumenn til bana víðs vegar um landið í átök-
um vegna kynþáttastefnu ríkisstjómarinnar.
Að sögn lögreglu í heimalandinu sprengjum að lögreglu, er hún
höfðu tugþúsundir manna safnast
saman ólöglega á fótboltavellinum.
Kastaði múgurinn grjóti og eld-
sprengjum
reyndi að dreifa honum. Ekki er
ljóst af hvetju fólkið safnaðist
saman, en svo virðist sem það sé
tengt ólögiegu aðsetri fólks þar.
Pretóría sækir hluta af vinnuafli
sínu til þessa landsvæðis. Stjómvöld
í heimalandinu hyggjast flytja
margt þessa fólks nauðungarflutn-
ingi frá landinu.
Bophuthatswana er eitt fjögurra
heimalanda blökkumanna í Suður-
Afríku, sem ríkisstjóm hvíta minni-
hlutans hefur sett á stofn til þess
að aðskilja ættbálka landsins.
stjóm hefði skipulagt árásina á
Líbýumenn fyrirfram og efna-
hagsþvinganir Ronalds Reagan,
Bandaríkjaforseta, gegn Líbýu-
mönnum væm „efnahagsleg
hryðjuverk". „Bandaríkjamenn
stefna heimsfriðnum í hættu,"
sagði sovéski leiðtoginn.
I Bandaríkjunum er sérstök
reglugerð um hemaðaraðgerðir.
Samkvæmt henni þarf Banda-
ríkjaforseti að greina frá aðgerð-
um bandarískra hermanna erlend-
is innan tveggja sólarhringa frá
því að þær hefjast. Tveir háttsettir
öldungadeildarþingmenn demó-
krata, Sam Nunn og Dante B.
Fascell, segja að átökin í Sidraflóa
falli undir ákvæði þessarar reglu-
gerðar. Talsmenn stjómarinnar
segja að lögfræðingar athugi nú
hvort fara þurfi eftir henni, en
hún var sett í því augnamiði að
minnka völd forsetans hvað það
snertir að fyrirskipa hemaðarað-
gerðir.
Bettino Craxi, forsætisráðherra
Ítalíu, sagði að því væri ekki að
neita að Líbýustjórn hefðu orðið
á mörg mistök og hún hefði ekki
unnið að því að koma á jafnvægi
og kyrrð á Miðjarðarhafí. „Aftur
á móti hafa [aðgerðir bandaríska
flotans] í för með sér að Líbýu-
stjóm styrkist í sessi fremur en
hitt,“ sagði forsætisráðherrann.
Casrmelo Mifsud Bonnici, for-
AP/Símamynd
Ævareiðir Líbýumenn rífa
bandarlska fánann i tætlur I Trí-
pólí i gær.
sætisráðherra Möltu, fór í dag til
Líbýu til viðræðna við þarlenda
leiðtoga um ástandið á Miðjarðar-
hafi.
Bandaríska dagblaðið The New
York Times greinir frá því í dag
að Reagan hafí ákveðið að senda
sjötta flotann til æfínga á Sidra-
flóa, þrátt fyrir að átök væra
nánast óumflýjanleg, vegna
fregna um að Líbýumenn hefðu
uppi ráðabrugg um að ráðast á
bandaríska sendierindreka erlend-
is. Sjá ennfremur fréttir á bls. 30