Morgunblaðið - 27.03.1986, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986
I
HVAÐ
ERAD
GERAST
UM
Friðardagskrá
í Gerðubergi
Samstarfshópur frift-
arhreyfinga á fríðarári
stendur fyrír dagskrá
sem hefst kl. 15 á páska-
dag • Ger&ubergi.
í samstarfshópnum
eru Friftarhóparfóstra,
Samtök um friftaruppeldi, |
Samtök lækna gegn
kjarnorkuvá, Samtök fs-
lenskra eftlisfræðinga
gegn kjarnorkuvá, Sam-
tök um kjarnorkuvopna-
laust ísland, Fríðarhreyf-
ing íslenskra kvenna,
Friðarhópur listamanna,
íslenska friðamefndin,
Samtök herstöðvaand-
stæðinga og Menningar-
og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna.
Dagskráin verður á
þrem stöðum í húsinu. í
aðalsalnum hefst dag-
skráin með því að sára
Helga Soffía Konráðs-
dóttir aðstoðarprestur í
Fella- og Hólasókn ávarp-1
ar gesti. Þá taka við þau
María Jóhanna Lárus-
dóttir og Árni Hjartarson. |
Einar Bragi les upp, og
Ólafur Ragnar Grímsson
flytur ávarpið „Olof
Palme og friðarfrum-
kvæði sex þjóðarleið-
toga.u Helga Backman
les Ijóð og Eyvindur Er-
lendsson flytur bréf
Seattle indíánaþjóðhöfð-1
ingja til Bandaríkjafor-
seta.
Tónlist verður flutt,
Kristinn Sigmundsson
syngur einsöng og aðrir
sem fram koma verða
Kolbeinn Bjarnason, Páll
Eyjólfsson og Sigurbjörn
Einarsson.
í hliðarsal verður sér-
stök dagskrá fyrir börn,
lesnar sögur, sungið og
ýmislegt fleiratil
skemmtunar. Bömum
gefst kostur á a&teikna
friðarmyndir sem valið
verður úr til að senda á
alþjóðlega sýningu f Bret-1
landi. Háskólakórinn flyt- í
ur hluta úr Sóleyjarkvæði '■
Jóhannesar úr Kötlum í
kaffistofu hússins milli kl.
16 og 17.
Pétur Friðrik sýnir 74 myndir í
Listveri, Austurströnd 6. Opið er
frá 3-10 um páskana, sýningin
stendurtil6.apríl.
Norræna húsið:
Þjóðsagnamyndir
Ásgríms Jóns-
sonar
Sýning á þjóðsagnamyndum Ás-
grímsJónssonar, olíumálverk,
vatnslitamyndir og teikningará
vegum Ásgrimssafns og Norræna
hússins. Sýningin er opin skírdag,
laugardag fyrir páska og annan í
páskum kl. 14-19. Lokað föstudag-
inn langa og páskadag.
Sænsk grafík
I dag kl. 15 verður opnuð sýning
á grafíkverkum eftir 7 listamenn,
sem allir eru búsettir í Sviþjóð.
Esbjörn Rosenblad fyrsti sendiráðs-
ritari opnarsýninguna. Listamenn-
irnireru Lisa Andrén, Urban Eng-
ström, Stefan Sjöberg, Jukka Vantt-
inen, Franco Leidi, Ragnarvon
Holten og Sven Erik Johansson. Á
sýningunni eru 35 verk unnin með
mismunandi tækni. Sýningin er opin
ídag til kl. 19, laugardag kl. 9-19
og annan í páskum kl. 12-19. Lokaö
föstudaginn langa og páskadag.
Gallerí Grjót:
Þorbjörg Hös-
kuldsdóttir
Nú stendur yfir sýning á verkum
Þorbjargar Höskuldsdóttur. Á sýn-
ingunni eru 16 verk, teikningar og
málverk unnin á árunum '85 og '86.
Þetta er 6. einkasýning Þorbjargar.
Sýningin er opin virka daga frá
12-18, ogfrá 14-18 yfir hátíðirnar.
Sýningunni lýkur þriðja apríl.
Gallerí Gangskör:
Pólskir listamenn
Á annan í páskum kl. 14 opna
pólsku listamennirnir hjónin Anna
og Stanislaw Wejman sýningu á
grafíkverkum í gallerí Gangskör í
Bernhöftstorfu. Á sýningunni verða
25 grafíkmyndir sem allar eru til
sölu. Sýningin er opin virka daga
frá 12-18 og um helgarfrá 14-18.
Steinþór Steingrímsson
Sverrir Ólafsson
Skúlptúr og lágmyndir
f Listasafni ASÍ
STEINÞÓR Steingrímsson og Sverrir Ólafsson opna sýningu í Listasafni ASÍ laugardag-
inn 29. mars. Steinþór er sjálfmenntaður myndlistarmaður. Hann hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sverrir stundaði nám i handíða-
deild Kennaraskóla íslands og lauk þaðan prófi 1969. Hann stundaði nám við Myndlist-
ar- og handíðaskóla íslands 1973-1976. Sverrir hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum
og haldið einkasýningar.
Kjarvalsstaðir:
Forsalur
Valtýr Pétursson sýnir 90 olíu-
málverk, flest unnin á sl. ári. Sýning-
in er opin til 6. april.
Vestursalur
Katrín H. Ágústsdóttir sýnir 40
vatnslitamyndir. Sýninguna nefnir
hún „Vor í lofti". Opið til 6. april.
SAMKOMUR
Samtök herstöðvaand-
stæðinga:
Fundur á Hótel
Borg
A páskadag verða liðin 37 ár frá
því íslendingargengu í NATO. í
því tilefni efna samtök herstööva-
andstæðinga til fundará Hótel Borg
laugardaginn 29. mars klukkan 14.
Á dagskrá verða ávarp, söngur og
upplestur. Aðalræðumaður dagsins
er Páll Bergþórsson. Fundinum lýk-
ur með pallborðsumræðum kl.
15.30, en til þeirra hefur verið boöið
Friðarhópi fóstra, Friðarhópi lista-
manna, Samtökum um friðarupp-
eldi, Samtökum íslenskra eðlis-
fræðinga gegn kjarnorkuvá, Sam-
tökum lækna gegn kjarnorkuvá,
Friðarhreyfingu íslenskra kvenna,
Menningar- og friðarsamtökum ís-
lenskra kvenna og Samtökum um
kjarnorkuvopnalaust l’sland.
Samhjálp:
Samkomur um
páskana
Dagskrá Samhjálpar hefst með
almennri samkomu kl. 20.30 í dag
í Þríbúöum, Félagsmiðstöð Sam-
hjálpar, Hverfisgötu 42. Ræðumað-
urer Kristinn Ólason. Laugardaginn
29. mars er svo Opið hús í Þríbúð-
um kl. 14-17. Unglingakór Fíladelfíu
kemur í heimsókn. Á páskadag er
samkoma í Kirkjulækjarkoti, Fljóts-
hlíð.
Skíðaskálinn í
Hveradölum:
Haukur Morthens
og félagar
Haukur Morthens og félagar
syngja og leika fyrir matargesti á
páskadag og annan í páskum. Leik-
in verða jass- og dægurlög.
Turbo-sýning
Mótorhjól og
sportbflar
I tilefni af útkomu tímaritsins
Turbo standa aðstandendur blaðs-
ins fyrir sýningu á mótorhjólum,
sportbílum, jeppum, fornbílum,
kvartmilubilum og vélsleðum, ásamt
Ijósmynda- og video-sýningum um
páskana í kjallara nýbyggingar við
hliðina á Hagkaupum, Skeifunni.
Sýningin opnar í dag, skírdag, kl.
14 og er opin alla páskana.
Páskamót Fram:
Bláfjöll
Skíðadeild Fram heldur þriggja
daga skíðanámskeið fyrir byrjendur,
námskeiðið hefst í dag og endar
með léttu móti á laugardag. Föstu-
daginn heldurskíðadeild Fram
páskamót fyrir 12 ára og yngri kl.
14.30 og sunnudaginn heldur Fram
fjölskyldumót fyrir almenning kl.
14.00. Glæsileg páskaegg frá Nóa-
Siríus í verðlaun.
FERÐALOG
Ferðafélag íslands:
Páskaferðir
Fimm ferðir verða um bænadaga
og páska. í dag er farin gönguferö
frá Stafnesi um Básenda að Ós-
botnum. Á morgun er gönguferð
um Keilisnes sem er milli Flekkuvík-
ur og Kálfatjarnarhverfis og endar
gönguferðin við Staðarborg, sem
er gömul fjárborg i Strandaheiði.
Laugardag er ökuferð í Skálholt og
kirkjan skoðuð. Ekiö um Laugarvatn
og komið við í Hverageröi í bakaleið-
inni. Mánudag er gönguferð á Grim-
arsfell í Mosfellssveit og á sama
tíma er skíðagönguferö á Mosfells-
heiði. Engin ferð er á páskadag.