Morgunblaðið - 27.03.1986, Blaðsíða 21
Mgl SflAM .VS fllJOÁŒTTNÍMlfl giaAJSVÍUÐflOM
MORGUNBLABIÐ, PIMMTUDAGUR 27. MARZ1986
Sara Fergnson
herbert, hjákonu og síðar eiginkonu
Georgs IV, sem lézt 1830.
Ferguson majór var um tíma í
fylgdarliði drottningar og kynntist
því konungsfjölskyldunni. Hann
hafði mikinn áhuga á póló, þ.e.
knapaknattleik, og varð góður vinur
Filippusar prins, sem er líka mikill
póló-áhugamaður.
Ungfrú Ferguson umgekkst
konungsíjölskylduna talsvert þegar
hún var bam og sumir blaðamenn
hafa gert því skóna að snemma
hafi tekizt vinátta með henni og
næstelzta syni drottningarinnar.
Hvað sem því líður mun reynsla
hennar af því að umgangast hirðina
koma henni að góðum notum.
Sara Ferguson er fædd 15. októ-
ber 1959 og er því fjórum mánuðum
eldri en Andrew prins. Hún ólst upp
á 800 ekra landareign föður síns í
smáþorpinu Dummer í Hampshire.
Sarah Ferguson mætir til vinnu
eins og venjulega daginn eftir
trúlofunina.
Foreldrar hennar skildu þegar hún
var 14 ára og hún varð því fyrir
sömu lífsreynslu og Díana prinsessa
á unglingsámm.
Móðir Söm tók saman við annan
pólóleikara, auðugan Argentínu-
mann að nafni Hector Barrantes,
sem mun hafa gengið í argentínska
herinn í Falklandseyjastríðinu. Þess
vegna er almennt talið að stjúpföður
hennar verði ekki boðið í brúðkaup-
ið, nema hjá því verði ekki komizt,
enda er stríði Breta og Argentínu-
manna enn ekki formlega lokið.
Barrantes hefur ekki fengið að leika
í Bretlandi síðan Falklandseyja-
stríðið brauzt út.
Faðir Söm kvæntist aftur og síð-
ari kona hans er Sue Deptford,
dóttir landeiganda í Norfolk. Sara
á eldri systur, Jane, sem er gift
Ástralíumanni. Hann spilar einnig
póló.
Andrew prins dansar við skautakonuna Lynn
Nightingale i Ottawa 1978.
Þegar Andrew prins ferðaðist um Watts-hverfið í
Los Angeles fyrir tveimur árum gerði hann sér
lítið fyrir og sprautaði hvítri málningu á blaðamenn
og ljósmyndara þegar hann fékk nóg af ágangi
þeirra.
ÁST í ASCOT
Ungfrú Ferguson, sem er rauð-
hærð og brosmild, stundaði nám í
tveimur virðulegum heimavistar-
skólum. Það eina sem er vitað um
námsferil hennar er að hún var í
forystu fyrir skólasystur sínar í
kvennaskólanum Hurst Lodge í
Surrey.
Hún virtist ekki hafa haft áhuga
á háskólanámi, fremur en aðrar
yfirstéttarstúlkur tengdar konungs-
fjölskyldunni. í þess stað fluttist
hún til London, þar sem hún stund-
aði samkvæmislífið og vann ýmis
störf. Nú síðast hefur hún starfað
hjá alþjóðlegu auglýsingafyrirtæki,
„BCK Graphics", í West End. Hún
hefur látið í ljós von um að fá að
halda því starfi áfram eftir brúð-
kaupið, þótt kunnugir telji ólíklegt
að svo geti orðið. Hún er sögð ágæt
hestakona og er góð á skíðum.
Sara hefur verið talin dæmigerð-
ur fulltrúi ungra kvenna í virðuleg-
um hverfum umhverfis Sloane
Square, sem hafa verið kallaðar
„Sloane-flækingarnir" („Sloane
Rangers"), og hestar og konungleg-
ar athafnir virtust vera henni efst
í huga. Raunar býr hún í íbúð með
Caroline Beckwith-Smith í Clap-
ham, sem er ekki eins virðulegt
hverfi, í Suður-London.
Hún kom fyrst fram ásamt
Andrew prins í konungsstúkunni í
Ascot síðast þegar hinar frægu
veðreiðar þar fóru fram í júní í
fyrra. Flestum á óvart var henni
skipað til borðs við hliðina á Andrew
prins þegar snæddur var morgun-
verður. I útvarps- og sjónvarpsvið-
talinu á dögunum sögðu þau að þótt
þau hefðu þekkzt í mörg ár hefðu
þau ekki hrifizt hvort af öðru fyrir
alvöru fyrr en á Ascot-veðreiðunum.
Elísabet drottning hafði sjálf
boðið Söru á veðreiðarnar. Getum
hefur verið að því leitt að drottning-
in hafi talið að tími væri kominn
til að „Randy Andy“ festi ráð sitt
og eignaðist unnustu, sem væri
meiri hefðarkona en margar korn-
ungar stúlkur, sem prinsinn hefur
dýrkað til þessa.
HUNDELT
Síðan hafa blöðin fylgzt með
hvetju fótmáli prinsins og Söru. í
febrúar fengu sögumar um sam-
band þeirra byr undir báða vængi
þegar Sara heimsótti herskipið
HMS „Brazen", þar sem Andrew
prins er sjóliðsforingi. Skömmu síð-
ar fór hún með Karli prins og Díönu
prinsessu í skíðaferð til Sviss. Eftir
það var talið nær öruggt að Sara
mundi trúlofast Andrew prins.
Fyrir nokkrum vikum bað
Andrew prins Söru þegar þau voru
saman í Skotlandi. Hún tók strax
bónorðinu og það kom dálítið flatt
upp á hann, að því er hann sagði
sjálfur, þar eð hann bjóst við að
hún vildi taka sér umhugsunarfrest.
Um næstsíðustu helgi veittu síðan
Elízabet drottning og Ferguson
majór formlegt samþykki sitt. Opin-
ber tilkynning um trúlofunina var
gefin út á miðvikudaginn í síðustu
viku og þá var undirbúningur brúð-
kaupsins þegar hafinn.
Síðustu vikur hefur íbúð Söru í
Clapham verið í stöðugu umsáturs-
ástandi, en þótt ágangur blaðanna
hafi keyrt um þverbak hefur hún
tekið því með jafnaðargeði og alltaf
verið glöð í bragði. Hún hefur þó
aðeins fengið forsmekkinn af því
sem koma skal.
Ef farið verður að gömlum sið
mun drottningin bráðlega sæma
Andrew prins nafnbótinni hertogi
af York - Jórvík. Ungfrú Ferguson
verður því ekki aðeins prinsessa
heldur einnig hertogafrú. Þegar
Andrew prins kvænist henni munu
árslaun hans hækka úr 20.000
pundum í 50.000 pund. Hann á auk
þess í vændum að verða hækkaður
í tign í flotanum og þá hækka laun
hans þar um 3.000 pund í 15.500-
18.500 pund á ári.
... % i
Seltjarnarnes:
Framboðs-
listi fram-
sóknarmanna
Framboðslisti framsóknar-
manna á Seltjarnarnesi við bæj-
arstjórnarkosningarnar 31. maí
nk. hefur verið ákveðinn og er
hann þannig skipaður:
1. Guðmundur Einarsson ‘ for-
stjóri, 2. Ásdís Sigurðardóttir versl-
unarmaður, 3. Karl Óskar Hjaltason
markaðsfulltrúi, 4. Ásta Svein-
bjamardóttir húsmóðir, 5. Ema
Kristinsdóttir Kolbeins verkstjóri,
6. Kjartan Blöndal framkvæmda-
stjóri, 7. Arnþór Helgason deildar-
stjóri, 8. Þorbjörn Karlsson prófess-
or, 9. Jóhannes Bjömsson bakara-
meistari, 10. Ómar Bragi Stefáns-
son útlitshönnuður, 11. Skúli Skúla-
son bifvélavirki, 12. Vigdís Sverris-
dóttir verslunarmaður, 13. Hilmar
Thorarensen bankamaður, 14. Sig-
urður K. Ámason húsasmíðameist-
ari.
Alþýðuflokkurinn
í Borgarnesi.
Eyjólfur
Torfi
Geirs-
son efstur
í profkjon
Borgarnesi:
Prófkjör Alþýðuflokksins í Borg-
arnesi fór fram síðastliðinn laug-
ardag. Alls greiddu 76 manns
atkvæði. Niðurstöður urðu þess-
ar:
í fyrsta sæti Eyjólfur Torfi Geirs-
son, í öðru sæti Eva Eðvarðsdóttir,
þriðja sæti Ólafur Helgason, Ijórða
sæti Bjami Steinarsson, fimmta
sæti Sæunn Jónsdóttir, sjötta sæti
Guðrún Kristjánsdóttir, sjöunda
sæti Valgeir Ingólfsson og í áttunda
Arnþrúður Jóhannsdóttir.
— TKÞ.
Alþýðuflokkurinn
á Patreksfirði:
Hjörleifur
efstur í
prófkjörinu
Patreksfirði:
PRÓFKJÖR meðal stuðnings- og
félagsmanna Alþýðuflokksins á
Patreksfirði fór fram sunnudag-
inn 23. mars. í fyrsta sæti varð
Hjörleifur Guðmundsson oddviti
og formaður verkalýðsfélagsins,
í öðru sæti Björn Gislason tré-
smiður, í þriðja sæti Guðfinnur
Pálsson __ trésmiður og i fjórða
sæti Ásthildur Ágústsdóttir
skrifstofumaður. Úrslitin eru
bindandi fyrir þessi fjögur sæti.
Forráðamenn flokksins hér telja
þátttöku hafa verið mjög góða. 91
greiddi atkvæði. Alþýðuflokkurinn
hefur nú tvo af sjö hreppsnefndar-
mönnum og myndar meirihluta með
sjálfstæðismönnum, sem hafa þijá
fulltrúa.
-SÖL.
VZterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!