Morgunblaðið - 27.03.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986
Flugfélagið Emir fær
sérleyfi milli Suðureyr-
ar og Reykjavíkur
fsafirði.
SAMGÖNGURÁÐHERRA Matthísa Bjarnason hefur nú veitt flug-
félaginu Ernir á ísafirði áætlunarfiugleyfi á leiðinni Suðureyri/
Reykjavik. Flugfélagið Arnarflug hefur haft þetta flugleyfi undan-
farin ár, en ekki flogið þangað sl. mánuði.
Emis, tjáðí fréttaritara Morgun-
blaðsins á ísafirði í dag, að hann
væri mjög ánægður með þessa
ákvörðun samgönguráðherra og
væri hann nú þegar byijaður að
undirbúa flugið sem hæfíst innan
fárra daga. Verið er að semja við
umboðsmann á Suðureyri en Flug-
leiðir í Reykjavík munu sjá um þjón-
ustu og bókanir þar. Flugleiðin verð-
ur þá Ísafjörður/Suðureyri/Reykja-
vík/Suðureyri/ísafjörður og verður
í fyrstu notast Piper Aztec-flugvél
félagsins, en hún tekur fimm far-
þega. Þá hefur þegar verið hafist
handa við að fá stærri flugvél til
nota á flugleiðinni, en tíu sæta flug-
vél af Islander-gerð varð félagið að
selja fyrir fáum árum vegna verk-
efnaskorts. Hörður sagðist alltaf
hafa átt gott samstarf við Súgfirð-
inga og liti björtum augum til fram-
tíðarinnar og þessarar auknu þjón-
ustu við það ágæta fólk. Úlfar
Sveitarstjóm Suðureyrarhrepps
mælti eindregið með að Emir fengju
flugleyfið í stað Amarflugs. Flug-
félagið Emir hefur haldið uppi áætl-
unarflugi milli ísaflarðar og Suður-
eyrar, Flateyrar, Þingeyrar, Bfldu-
dals og PatreksQarðar undanfarin ár
með góðum árangri og mun þetta
flug styrkja mjög stöðu félagsins og
bæta þjónustunet þess.
Hörður Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri og yfírflugmaður
Leit haldið
áfram á Sel-
ijarnarnesi
LEITARMENN úr Björgunar-
sveitinni Albert á Seltjamames
hafa gengið daglega á fjörur í
leit að skipveija af vélbátnum
Sigurði Þórðarsyni GK 91, sem
fórst út af Skerjafirði á fimmtu-
dagskvöldið. Leitin hafði ekki
borið árangur er Morgunblaðið
leitaði upplýsinga þar að lútandi
siðdegis í gær.
Eins og greint var frá í frétt
Morgunblaðsins á þriðjudag sl.
fannst lík í Qörunni við Seltjöm á
Seltjamamesi á mánudag. Talið var
líklegt að það væri af öðmm hvomm
manninum af Sigurði Þórðarsjmi, en
ekki fékkst staðfesting á að svo
væri síðdegis í gær.
John P. Sigvalda-
son látinn
LÁTINN er í Kanada John P.
Sigvaldason, fyrrverandi sendi-
herra Kanada á íslandi og Noregi.
Hann lézt hinn 22. febrúar síðast-
liðinn.
John P. Sigvaldason var sendi-
herra á íslandi á árunum 1964 til
1968 og hafði aðsetur í Osló.
Hann var af íslenzku bergi brot-
inn.
Nýtt ráðstefnuhótel
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Samþykkt hefur verið í skipulagsnefnd og í I brautar. Veitingaaðstaða hótelsins miðast ein-
borgarráði heimild til Guðbjöras Guðmundsson- I göngu við þarfir hótelsins og ráðstefnur sem
ar forstjóra um að hann reisi 100 herbergja þar verður hægt að halda, tvær til þijár í einu.
ráðstefnuhótel á horni Sigtúns og Kringlumýrar- I
Tilkynningarþjónusta fyr-
ir ferðafólk um páskana
- góður útbúnaður skiptir höfuð-
máli fyrir ferðalanga innanlands
„FIMM menn í hrakningum á
Mosfellsheiði", „Fjögurra leitað á
Austfjörðum“. Þannig hljóðuðu
tvær fyrirsagnir i Morgunblaðinu
í vikunni. Þar sem mikil ferða-
helgi er framundan og veðurútlit
sæmilegt hafði blaðið samband
við fulltrúa tveggja ferðaskrif-
stofa sem skipuleggja hópferðir
innanlands, Ferðafélag íslands og
Ferðafélagið Útivist, Landsam-
band hjálparsveitar skáta og
Slysavaraafélagið og bað um góð
ráð fyrir ferðafólk.
Hannes Hafstein framkvæmda-
stjóri Slysavamafélagsins sagði
nauðsynlegt að brýna fyrir fólki að
kynna sér veðurútlit, og gera ráð
fyrir breytingum þó lagt sé upp í
góðu veðri, þar sem veður skipast
oft fijótt í lofti á þessum árstíma.
Auðvelt væri að fá upplýsingar um
veður á veðurstofunni. Þá benti hann
á nauðsyn góðs klæðnaðar, fólk
ætti að vera í hlýjum fatnaði yst sem
innst, og litríkum hlífðarfatnaði.
Nauðsynlegt væri að gera ferðaáætl-
un fyrir aðstandendur heima við og
standa við hana. Ef farartæki bila,
vera þá í nágrenni við þau þar sem
leit hefst fyrst að þeim. Þá benti
hann á að Bakkus væri óheill og
óhollur ferðafélagi, gott væri að taka
með sér neyðarbúnað svo sem álpoka
og sjúkrakassa, því óhöpp geta alltaf
átt sér stað.
Þórunn Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags íslands,
sagði, að fólk ætti tæpast erindi upp
í óbyggðir í litlum hóp, nema það
MINNISBLAÐ LESENDA
Morgunblaðið veitir lesendum
sínum að venju upplýsingar um
ýmsa þjónustu yfir bænadaga
og páska.
Slysadeild
Slysadeild og sjúkravakt Borg-
arspítalans er opin allan sólar-
hringinn og er síminn þar 681200.
Læknaþjónusta
Helgarvakt lækna hófst kl. 17
í gær og stendur til kl. 8 á þriðju-
dagsmorgun. Síminn er 21230.
Heimilislæknaþjónusta er í
gangi á göngudeild Landspítalans
í dag og 2. páskadag kl. 14-15.
Síminn er 29000.
Sjálfvirkur símsvari Læknafé-
lags Reykjavíkur er 18888.
Tannlæknavarsla
Neyðarvakt tannlækna er alla
daga frá kl. 10 til 11 í Heilsu-
vemdarstöðinni við Barónsstíg.
Síminn er 22417.
Slökkvilið
Slökkviliðið í Reykjavik hefur
símann 11100, slökkviliðið í Hafn-
arfirði 51100 og slökkviliðið á
Akureyri 22222.
Lögreg’la
Lögreglan í Reykjavík hefur
símann 10200. Neyðarsími er
11166 og upplýsingasími er
11110. Lögreglan á Akureyri er
í síma 23222, í Kópavogi 41200
og í Hafnarfírði 51166.
Sjúkrabílar
Sjúkrabflar í Reykjavík hafa sím-
ann 11100, í Hafnarfírði 51100
og á Akureyri 22222.
Lyfjavarsla
Borgarapótek er opið í dag og
nótt til 10 í fyrramálið, þá verður
opnað í Holtsápóteki og er varsla
þar allan sólarhringinn til 1. aprfl.
Á laugardag er auk þess opið I
Laugavegsapóteki til 22 um
kvöidið.
Guðsþjónustur
Tilkynningar um guðsþjónustur
eru á bls. B22 og B23 í blaðinu
í dag og fermingar á bls. 52 til
54.
Útvarp-sjónvarp
Dagskrá útvarps og sjónvarps
ásamt efnisútdráttum nokkurra
dagskrárliða er að finna á bls. 6
og 58 og 59.
Hvað er að gerast um
helgina?
Upplýsingar um menningarvið-
burði helgarinnar birtist á bls. 42
og 43.
Bilanir
Hitaveitu og vatnsveitubilanir
tilkynnast til Vélamiðstöðvar
Reylqavíkur í síma 27311. Síma-
bilanir er hægt að tilkynna í síma
05 frá kl. 8-24 alla dagana. Við-
gerðir fara þó ekki fram fyrr en
eftir helgi, nema í neyðartilfellum.
Söluturnar og
verslanir
Verslunum er heimilt að hafa
opið kl. 9-16 á laugardag. Sölu-
tumar verða opnir frá kl. 9-23.30
í dag, laugardag og annan í pásk-
um, en lokaðir á föstudaginn
langa og páskadag.
Bensínafgreiðslur
Bensínafgreiðslur verða opnar
frá kf. 9.30-11.30 og 13-16 I dag
og annan páskadag. Föstudaginn
langa og páskadag eru allar bens-
ínafgreiðsiur lokaðar en á laugar-
dag opna þær kl. 7.30 og em
opnartil kl. 21.15.
Bensínafgreiðsla á Umferðar-
miðstöðinni er opin sem hér segir:
í kvöld er opið kl. 20-24. Föstu-
daginn _ langa og páskadag er
lokað. Á laugardagskvöld opnar
afgreiðslan kl. 21 og er opin til
miðnættis, en á annan paákadag
opnar hún kl. 20 og er opin til
kl. 01.
Strætisvagnar Reykja-
víkur, Hafnarfjarðar
og- Kópavogs
í dag aka strætisvagnar sam-
kvæmt sunnudagsáætlun. Föstu-
daginn langa hefst akstur kl. 13
og er ekið samkvæmt sunnu-
dagsáætlun. Laugardaginn er
akstur strætisvagna eins og aðra
laugardaga, en á páskadag hefst
akstur kl. 13 og er ekið sam-
kvæmt sunnudagsáætlun. Annan
páskadag er ekið samkvæmt
sunnudagsáætlun.
Mosfellsleið
í dag er ekið samkvæmt sunnu-
dagsáætlun. Föstudaginn langa
og páskadag er ekki ekið, á laug-
ardag er ekið eins og á öðmm
laugardögum og á annan í páska-
dag er ekið skv. sunnudagsáætl-
un.
Sérleyf isbif reiðir
Um þessa páska er gert ráð
fyrir því að 4-5000 manns ferðist
með sérleyfisbifreiðum.
Frá Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavík em daglega 40-60
komu- og brottfarir frá klukkan
8 að morgni til klukkan 23 að
kvöldi.
Á skirdag verður ekið á öllum
leiðum samkvæmt áætlun en á
föstudaginn langa og páskadag
em engar ferðir á lengri leiðum.
Þó er ekið á styttri leiðum sam-
kvæmt stórhátíðaáætlun. Á ann-
an í páskum er ekið samkvæmt
sunnudagsáætlun á flestum leið-
um. Allar nánari upplýsingar em
veittarí síma 91-22300.
Vegaeftirlit
Vegaeftiriitið hefur upplýs-
ingaþjónustu í síma 21000 og
21001.
væri þaulvant ferðalögum, mjög vel
búið, með kort og áttavita og heist
talstöð til að láta vita af sér. „Það
em ótrúlega margir sem gera sér
ekki grein fyrir því hvað hafa þarf
með i slik ferðalög, og ef aðstæður
em þannig er nauðsynlegt að snúa
við í tima,“ sagði Þómnn. Ferðafé-
lagið hyggst m.a. fara í 60-70
manna ferð í Landmannalaugar og
sagði Þómnn að mikill viðbúnaður
væri meðferðis með tilliti til örygg>s
fyrir ferðalangana.
Kristján Baldursson hjá Ferðafé-
laginu Útivist sagði nauðsynlegt
öllum ferðalöngum sem fara eitt-
hvert á eigin vegum upp í óbyggðir
að gera ferðaáætlun sem skilin er
eftir heima, ef eitthvað kemur fynr
verður leit mun nákvæmari. í öðn1
lagi þyrfti að huga vel að öllum út-
búnaði, menn þurfa að vera vel
klæddir, fylgjast vel með veðurútliti,
hafa samband við byggð ef eitthvað
kemur' fyrir, Kristján sagði að helst
þyrfti að koma upp talstöðvum í
ferðaskálum. „Menn geta auðvitað
verið óheppnir og þá er að bregðast
rétt við, menn þurfa að vera vel
klæddir og grafa sig í fönn ef ekki
vill betur."
Hjá Landssambandi hjálparsveita
skáta fengust þær upplýsingar að
um páskana verður starfrækt til-
kynningaþjónusta fyrir ferðafólk
innanlands. Þeir sem vilja notfæra
sér þessa þjónustu skulu segja ffá
ferðatilhögun, fiölda ferðalanga og
áætlaða heimkomu, hvemig farar-
tæki hópurinn ætlar að ferðast á,
hvemig það er á litinn, við hvern á
að hafa samband heima við ef hópur-
inn skilar sér ekki á réttum tíma,
þó er tekið tillit til tafa sem oft eru
óhjákvæmilegar og ekki rokið í leit
ef hópurinn skilar sér ekki nákvæm-
lega á umsömdum tíma. Hjálpar-
sveitimar benda á nauðsyn góðs
útbúnaðar, þannig að ólíku veðri og
mismunandi aðstæðum verði mætt
eins vel og hægt er. Þeir benda á
nauðsyn hlýrra klæða og litríks
skjólfatnaðar, en auk þess skuli
ferðalangur hafa með sér landabréf
og áttavita, pennabyssu, og rauð
neyðarskot, plastflautu, álpoka eða
álteppi, súkkulaði, hnetur eða rúsín-
ur. Ef farartæki bilar uppi á heiði,
skulu ferðalangar bíða átekta við
farkostinn en ekki halda af stað fót-
gangandi til byggða. Neyðarsími
tilkynningaþjónustunnar er 91-
686068 og sólarhringsvakt í höndum
Securitas.