Morgunblaðið - 27.03.1986, Side 16

Morgunblaðið - 27.03.1986, Side 16
16 MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986 UM PÁSKANA Við höfum opið alla páskahelgina frá kl. 11 til 23.30 daglega og bjóðum aldeilis frábæra kjúklingabita frá ísfugl. Chk/c^tÚnq Kjúklingastaðurinn Stigahlíð 45, Sími 38890 Gunnar Kristinsson Tónrænt táknmál Myndlist Bragi Ásgeirsson í Ásmundarsal hanga þessa dagana uppi myndir eftir unga lista- spíru með óvenjulegan og marg- breytilegan námsferil að baki. Gunnar Kristinsson hélt utan til Vínarborgin eftir stúdentspróf og lagði stund á tónlsekningar (músik- terapíu) auk þess sem hann nam seinna orgelleik um tveggja ára skeið í Basel. Síðan tók við mynd- listamám í sömu borg í fjögur og hálft ár ásamt vinnu við tónlækn- ingar á geðsjúkrahúsi þar. Þá tók við áhugi á slagverkstónlist og hefur hann m.a. haldið tónleika í Norræna húsinu og víðar. Og nú heldur þessi ungi maður, sem er liðlega þrftugur að aldri, sýningu á málverkum og skúlptúmm er hann hefur gert frá því á síðastliðnu hausti. Nöfnin á myndverkunum eru mjög tónræn — vísa á eitt og annað úr heimi tónlistarinnar og vafalítið munu þau vera máluð undir áhrifum frá hinni margvíslegustu tónlist. Ég gæti hér ímyndað mér slaghljóðfæri öðru fremur því gerandinn viðhefur nokkuð hörð vinnubrögð í útfærslu mynda sinna. Myndimar eru flestar í fáum tónum, hvítu, svörtu, gráu og einum eða tveimur litum öðrum, en áherslan er ekki lögð á blæ- brigðaríkidóm innan þessara marka og þannig er líkast sem að háir og myrkir tónar höfði helst til geran- dans. Tvær myndir skera sig úr um skynrænt og heillegt myndmál og eru það myndimar „ísland" (9) og „Stefnumót“ (10). Báðar eru þær stemmningaríkar og þokkafullar í útfærslu. Annars er myndmálið sem Gunnar notar frekar einhæft og fáskrúðugt og ber ekki vott um mikil átök né tilfinningahita. Hér er þó myndin „Svif“ (18) nokkur undantekning því hún er flestum öðrum rammari og kröftugri í lit og formi auk þess sem formin vinna vel saman. Stór frístandandi ryðgaður skúlptúr á miðju gólfi er máski líf- rænasta verkið á sýningunni, því hann býr yfir formrænni fegurð og markvissri hrynjandi. Öll sýningin ber vott um bein og óbein áhrif frá þýsku nýbylgjumál- urunum, sem má vera eðlilegt sé tekið mið af námi Gunnars og að hann á að hluta til heimili í Freiburg í Þýskalandi. Svo virðist sem Gunn- ar hafi ekki ennþá fundið samsemd sína við fslenzkan veruleika og fs- lenzkt svið og máli frekar út frá fjarrænum áhrifum. ISðli nýbylgju- málverksins er einmitt að lýsa hughrifum nánasta umhverfisins á hráan og umbúðalausan hátt, vera virkur í tíma og rúmi. iiiiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiiuiinr 1111 ■ ■ ■ ■■ ■ ■ ■ 1 ■ ■ ■ ■ ■ ■ SMYRIL-LINE í HORRÖHA < Sielina meö Norrænu er ævintýri útaf fyrir sig FÆREYJAR,HJALTLAND, NOREGUR OG DANMÖRK FRI Ferðaskrifetofa Ríkisins Skógarblíð 6.101 Reykjavik. sími 91-25855 Frímerkja- safnarar með skiptimarkað FÉLAG frímerkjasafnara gengst fyrir skiptimarkaði laugardag- inn 29. marz nk. í Síðumúla 17. Hefst hann klukkan 13 og stend- ur til klukkan 16.30. í fréttatilkjmningu frá félaginu segir, að félagar úr Félagi frí- merkjasafnara, Samtökum korta- safnara og Félagi myntsafnara muni koma á markaðinn og hafa meðferðis fHmerki, mynt, peninga- seðla, barmmerki alls konar, póst- kort, landakort, vindlamerki og margt fleira. Almenningi er boðið að koma á markaðinn og er aðgang- ur ókeypis, en þátttakendur geta fengið leigð borð fyrir vaming sinn. Stjóm Félags frímerkjasafnara skipa nú: Formaður Páll. H. Ás- geirsson, varaformaður Sverrir Einarsson, gjaldkeri Guðni Gunn- arsson, ritari Jón Egilsson, með- stjómendur Hjalti Jóhannesson og Hlöðver B. Jónsson og varamenn Aðalsteinn Michaelsen og Guð- mundur Kr. Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.