Morgunblaðið - 27.03.1986, Blaðsíða 24
24__________MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. MARZ1986_
Japanir i i
gefa framtíðartóiiinn
____________Bílar_______________
Þórhallur Jósepsson
Nú skora Japanir hvert mark-
ið af öðru í leiknum um
athygli heimsins á bíla-
markaðnum. Og það eru ekki lengur
nein jöfnunarmörk, heldur hrein og
klár forystumörk.
Á helstu bílasýningum síðustu
missera hafa t.d. Nissan, Subaru og
Mitsubishi sýnt bíla sem slá flesta
ef ekki alla aðra út í tæknilegu tilliti.
Það er að vísu ekki nýtt að slíkir
bílar séu sýndir á meiriháttar bílasýn-
ingum, þar hafa menn lengi leikið
sér að hugmyndum að framtíðar-
bílnum. Það sem er nýtt núna er
það, að þessir bílar eru nánast orðnir
að söluvöru, ekki einungis sýningar-
hlutir. Einkum á þetta við um Nissan,
sem setur sinn „framtíðarbíl", MID
4, á markað með haustinu. Subaru
sýnir tvo slíka bíla og er nokkuð
lengra í að þeir komi á markað. Þá
eru Mitsubishi-verksmiðjurnar með
ótrúlegan bíl á leiðinni og áætla að
hann verði til í slaginn um 1990,
hann er reyndar nú þegar kominn á
reynsluakstursstigið.
„Ekkert er nýtt undir sólinni“
Þessa fomu speki má að nokkru
leyti hafa fyrir sanna þegar bílar eiga
í hlut. Flest það mekaníska dót sem
þessir nýju bílar eru gerðir með hefur
sést áður, ýmist í sérsmíðuðum bílum
eða keppnisbílum, sumt aðeins á
teikningum. Nú eru útfærslur aðrar
og það sem mikilsverðast er, það er
komið í bíla sem verða fjöldafram-
leiddir.
Það byltingarkenndasta í þessum
bílum er þó á sviði örtölvu- og raf-
eindatækni. Þar er um að ræða
annars vegar allskyns stýribúnað
sem stjórnar hinum ýmsu hlutum
bílsins, t.d. kveikjukerfi og hemlum.
Hins vegar er (í Mitsubishi og Sub-
aru) fullkomið fjarskipta- og stað-
setningarkerfi sem hagnýtir gervi-
hnattarsambönd til fjarskipta og
staðarákvörðunar og getur vísað
bestu leiðina til ákvörðunarstaðar.
Til að byrja með verður öll þessi
nýja tækni einungis í sportbílum, en
ætla má að þróunin verði nú sem
fyrr sú, að smám saman muni al-
menningsbílar njóta góðs af, þ.e.
þegar kleift verður að framleiða þá
með þessum útbúnaði á viðráðanlegu
verði.
Eins og fyrr segir er Nissan MID
4 lengst kominn af þessum bílum,
kemur á markað í haust. Nú munu
vera til 20—30 eintök af honum og
einn þeirra er einmitt hér á landi nú
um páskana. Ekki er vitað um verðið
á þessum bíl, en giskað er á að það
verði undir tveimur milljónum króna
sem þykir lítið. Evrópskir keppinaut-
ar eru á margföldu því verði. Enn á
ný hafa Japanir sýnt að hægt er að
framleiða fullkomna bíla á góðu
verði. Tæknin er uppi í skýjunum —
verðið heldur sig við jörðina.
NISSAN MID4-
yfirlætislaus heimsmeistari
Heimsmeistari? í hveiju? Jú — í
tæknihönnun! Framleiðendur full-
yrða að hér sé kominn fullkomnasti
sportbíll í heimi og ég fæ ekki betur
séð en þeir hafi nokkuð til síns
máls, í bili a.m.k.
í útliti er hann nánast klassískur
sportbíll, minnir nokkuð á Ferrari.
Það sem helst má að þessum bíl
fínna er einmitt að hann hefur ekki
nógu afgerandi séreinkenni í útlit-
inu eins og „forfeður" hans frá
Nissan, Z- og ZX- bílarnir, höfðu
vissulega. En það er e.t.v. með þeim
ásetningi gert að vinna markaðinn
af hinum hefðbundnu evrópsku
sportbílum með því að blanda sér
einfaldlega í hópinn.
Það er þegar skoðuð er hin innri
„líffærastarfsemi" bílsins sem í ljós
kemur hvað hann hefur fram yfír
keppinautana.
4x4x4x4
Fjórhjóladrif. Að sjálfsögðu, hvað
annað! Það tryggir betra veggrip
og öruggari akstur. 33% aflsins
fara á framhjólin og 67% á aftur-
hjólin. Mismunadrif er á milli fram-
og afturdrifs og er að sjálfsögðu
ekki læst heldur er það svokölluð
seigjukúpling eins og þekkt er frá
Volkswagen undir nafninu Syncro.
Þessi kúpling byggist á eiginleikum
silikonvökva sem í henni er og hefur
þá náttúru að gefa vel eftir þegar
lítið reynir á mismunadrifíð, en
veitir aukið viðnám eftir því sem
meiri mismunur er á hraða drif-
anna. Þannig virkar mismunadrifíð
ólæst í öllum venjulegum akstri, en
læst þegar á reynir, t.d. ef annað
hvort drifíð missir grip.
Fjórhjólastýri. Já — loksins. Ekki
aðeins að bíllinn stýri með öllum
fjórum hjólum, það fer eftir hraðan-
um í hvora áttina afturhjólin beygja!
A litlum hraða vísa þau í gagnstæða
átt við framhjólin og næst með
því meiri lipurð þar sem þröngt er.
En á miklum hraða vísa afturhjólin
lítillega til sömu áttar og framhjólin
og halda bílnum þannig á réttri
braut.
Fjórir ventlar á hverjum strokki.
— Tvívirk soggrein, þar sem sog-
loftið fer sitt hvora leiðina eftir
því hvort vélin snýst hratt eða eða
hægt.
— Háspennukefli er við hvert kerti
þannig að lágspenna er á rafkerfínu
þar til að í kertið er komið.
— Inngjöf er stýrt með rafmagns-
þræði, en ekki með teinum eða
barka eins og venja er, sparar pláss
og er öruggt.
Síðan er kannski ein mesta nýj-
ungin i þessum bíl, miðað við að
um sportbíl er að ræða, sú að hann
er jafn ljúfur og auðveldur í akstri
og venjulegur fólksbíll. Það byggist
á því að stjómtæki eins og t.d.
kúpling og skiptir láta mjög vel að
stjóm og eru ekki stirð og stíf eins
og algengt er um slíka bíla. Þá er
fjöðrunin slaglöng og tiltölulega
„þýð“.
Að innan er MID 4 leðurklæddur
og einkar smekklegur, laus við allt
pijál og óþarfa glingur.
Vel heppnaður
draumabíll
Niðurstaða mín er sú að hér sé
kominn vel heppnaður og fullkom-
inn sportbíll sem ætti að uppfylla
allar kröfur um eiginleika slíks bíls.
Það besta við hann er þó að hann
verður á verði sem fleiri en auðkýf-
ingar einir geta ráðið við.
MID 4 að innan. Allt í leðri
og í senn töff og smekk-
legt. Ekki er plássið eins
og í amerískum stórvögn-
um, það er eins og að
klæða sig í gallabuxur að
setjast inn í hann enda
jafngott að vera ekki laus
við þegar mest gengur á.
Nissan MID 4 á fslandi. Renni-
legur og fullkominn alvöru-
sportbfll frá Japan.
Engin nýjung að vísu, en ekki verra
fyrir það.
Fjórir kambásar, tveir á hvom
heddi. Þetta er svosem ekki neinir
venjulegir kambásar, þessir eru
þeirra náttúm að þeir að flýta
opnun sogventlanna á lágsnúningi
þannig að betri togkraftur fæst út
úr vélinni og um leið betri eldsneyt-
isnýting.
Nýjungapakki
Þessi bíll er einn nýjungapakki
og í viðbót við það sem að framan
er talið er m.a. eftirfarandi að fínna
í honum:
Nissan MID4
Nokkrar staðreyndir
Helstu mál
Þyngd kg .............. 1.230
Hjólhafmm ............. 2.435
Lengdmm ............... 4.150
Breidd mm ............. 1.770
Hæðmm ................. 1.200
Tankurl .................. 65
Vél og kram
Vól ......... v6, dohc, 24 ventla
Slagrúmmólcm .......... 2.960
Þjöppunarhlutf.......... 10:1
Afl SAE/kW/sn.mín... 195/145/
6000
Girkassi ........... 5girabeinsk.
Undirvagn og boddý
Hönnun ...... þverstæð vél í miðju,
fjórhj.dr.
Boddýoggrind ...... trefjaplastog
stálgrind
Hemlar ...... kældirdiskaraftanog
framan, ABS
Dekk ... Pirelli P600, 205/60VR-15
Stýri ... hjálparafl, aftan og framan
Fjöðrun . MacPherson sjálfstæö á
öllum hjólum