Morgunblaðið - 27.03.1986, Side 43
M0H(;i'NBLAi)lB,Ji,pMT<(tfllAqyR2ff- MftRZ 1986.
43 '
eikfélag Akureyrar:
Útivist:
Páskaferðir
Farið verður í eftirfarandi ferðir
um páskana:
1. Fimm daga ferð um Snæfellsnes
og á Snæfellsjökul. Qist á Lýsuhóli
og farið i gönguferðir. Brottförá
skírdag kl. 9.
2. Þriggja daga ferð á Snæfellsnes
og Snæfellsjökul, brottför laugardag
kl. 8.
3. Gönguskíðaferö í Esjufjöll í Vatna-
jökli. Gist i skála Jöklarannsóknarfé-
lagsins.
4. Þórsmörk, þriggja og fimm daga
ferðir. Gist í skálum Utivistar í Bás-
um og farið í gönguferðir um Mörk-
ina.
5. Öræfi-Skaftafell. Gist í félags-
heimilinu Hofi. Möguleiki á snjóbíla-
ferð um Vatnajökul. Nánari upplýs-
ingará skrifstofunni í Lækjargötu
6a.
Hana nú
Helgarganga
Vikuleg ganga Frístundaklúbbs-
ins verðurá laugardaginn 29. mars.
Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl.
10. Allir Kópavogsbúar velkomnir.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið:
Kardemommu-
bærinn
Kardemommubærinn eftirThor-
björnEgnerverðursýndurkl. 14 í
dag. Fáarsýningareru eftir.
Blóðbræður
Söngleikurinn Blóðbræðureftir
Willy Russell verður sýndur í kvöld
kl. 17 og annan i páskum kl. 20.30.
Egg-leikhúsið:
Ella
Sýningar verða í kjallara Hlað-
varpans á Vesturgötu 3 kl. 16. í dag
og annan í páskum. Með hlutverk
fara Viöar Eggertsson og Kristín
Anna Þórarinsdóttir, en auk þeirra
koma fram 6 hænur.
Alþýðuleikhúsiö:
Tom og Viv
Sýning verður annan í páskum
kl. 20.30. Fáarsýningareftir.
TÓNLIST
Dómkirkjan:
Orgeltónleikar
Orthulf Prunner orgelleikari flytur
orgeltónlist eftir J.S. Bach á tónleik-
um i Dómkirkjunni mánudaginn 31.
mars - annan páskadag - kl. 20.30.
Á efnisskrá er 3. hluti „Clavier-
ubung", safn tónsmiða sem byggð-
ar eru á ýmsum sálmalögum sem
raðað er i sömu efnisröð og megin-
köflum fræða Lúthers. Aðgangur
erókeypis.
Aðalsteinn Vestmann og Gunnar Dúi sýna á Akureyri.
Myndlistarsýning
á Akureyri
LISTMÁLARINN Aðalsteinn Vestmann og Gunnar Dúi opna málverkasýningu ígolfskálanum
að Jaðri á Akureyri, laugardaginn 29. mars nk.
Á sýningunni sýna þeir fjölda verka, olfu- og vatnslitamyndir.
Aðalsteinn Vestmann lauk námi við Myndlista- og handíðaskólann i Reykjavík árið 1952
og er nú starfandi myndmenntakennari við Barnaskóla Akureyrar. Hann hefur haldið nokkr-
ar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum.
Gunnar Dúi stundaði nám við myndlistadeild Myndlista- og handíðaskólasn og einnig
erlendis, m.a. á Spáni, í Frakklandi og Hollandi. Hann hefur haldið 13 einkasýningar og
tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis.
Sýningin að Jaðri verður opin laugardaga og sunnudaga frá kl. 14—22 og virka daga frá
kl. 17—20 (lokað 2. dag páska).
Aðgangur er ókeypis. Sýningunni lýkur 6. april.
Ríkarður þriðji
í kvöld kl. 20 og annan i páskum
á sama tíma eru sýningar á Ríkaröi
þriðja. Helgi Skúlason fer með titil-
hlutverkið, en leikstjóri er John
Burgess.
Passíu-
sálmar í
flutningi
Megasar
FYRIR15 árum samdi
Megas tónlist við Passfu- |
sálma Hallgrfms Póturs-
sonar. Fyrst voru nokkrir
sálmanna fluttlr í Gallerf
Súm fyrir rúmum áratug.
Á sl. ári, laugardaginn
| fyrir páska, voru 16 sálm-
ar fluttir. Nú verða tón-
leikar haldnir f Austur-
bæjarbíói laugardaginn
29. mars og hefjast þeir
kl. 21.30. Hljómsveitin
sem fram kemur með
Megasi á tónleikunum er |
skipuð þeim Björgvini
Gíslasyni, Haraldi Þor-
steinssyni, Ásgeiri
Óskarssyni og Guðmundi |
Benediktssyni.
TÖLVUNÁMSKEIÐ í apríl býðurTölvufræðslan m.a. upp á eftirfarandi námskeið:
IBM PC 12., 13. apríl kl. 10-17. Leiðbeinandi: Ingvi Pétursson, menntaskólakennari MACINTOSH 14., 15., 16. og 17. apríl kl. 17-20. Leiðbeinandi: Dr. Kristján Ingvarsson, verkfræðingur. AMSTRAD 8., 10., 15. og 17. apríl kl. 20-23. Leiðbeinandi: Valtýr Valtýsson. TÖLVUNÁM- SKEIÐ FYRIR FULLORÐNA 7., 9., 14. og 16. aprfl kl. 20-23. Leiðbeinandi: Ingvi Pétursson, menntaskólakennari.
DBASE III GAGNA- SAFNSKERFIÐ 7., 8., 9., 10. og 11. apríl kl. 17.20. Leiðbeinandi: Dr. Kristján Ingvarsson, verkfræðingur. SYMPHONY 14., 15., 16., 17. og 18. apríl kl. 9—13. Leiðbeinandi: Guðmundur Ólafsson, verkfræðingur. TÖLVUBÓKHALD 14., 16., 21. og 22. apríl kl. 20-23. Leiðbeinandi: Ellert Steindórsson, stjórnsýslufræðingur. Commodore 64 7., 8., 14. og 16. apríl kl. 20-23. Leiðbeinandi: Vaitýr Valtýsson
Halldór Kristjánsson,
verkfræðingur.
Guðmundur Ólafss.
verkfræðingur.
Ellert Steindórsson,
stjórnsýslufræöingur.
Valtýr Valtýsson.
Dr. Kristján Ingvarss. Yngvi Pótursson,
verkfræðingur. menntaskólakennari.
Gleðilega páska og velkomin á tölvunámskeið.
Starfsmenntunarsjóður starfs-
manna Reykjavíkurborgarog
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
styrkja félaga sína til þátttöku í
þessum námskeiðum. Tölvu-
fræðslan gefur ofantöldum aðilum
10% afslátt af námskeiðsverði.
Innritun í símum 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Ármúla 36, Reykjavík