Morgunblaðið - 08.04.1986, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
Byrðingur úr Sigurði
Þórðarsyni fundinn
FRAMHLUTI byrðings úr vél-
bátnum Sigurði Þórðarsyni GK
91, sem fórst út af Skeijafirði
að kvöldi 20. mars síðastliðins,
fannst á reki út af gijótgarðinum
í norðurenda Orfiriseyjar, síð-
degis á mánudag.
Vélbáturinn Birta frá Reykjavík
rakst á rekald, er báturinn var að
koma inn úr róðri, og staðfesti fyrri
eigandi Sigurðar Þórðarsonar að
þar væri kominn framhluti byrðings
úr bátnum. Brak úr.Sigurði Þórðar-
syni rak fyrst á land við Seltjöm á
Seltjarnamesi og þar rak einnig á
land lík annars af tveimur skip-
veijum, sem fórust með Sigurði
Þórðarsyni. Lík hins hefur ekki
fundist enn sem komið er, en leitar-
menn úr björgunarsveitinni Albert
á Seltjamamesi hafa haldið uppi
reglubundinni leit síðan slysið varð.
Verður Pétur áfram
hjá Krossanesi?
Akureyri.
PÉTUR Antonsson, forstjóri
Krossanesverksmiðjunnar á
Akureyri, starfar enn hjá fyrir-
tækinu og nú eru líkur á því,
skv. heimildum Morgunblaðsins,
að hann hætti ekki eftir allt
saman.
Til stóð að Pétur léti af störtum
um mánaðamótin. Samkomulag
náðist um það milli hans og stjómar
fyrirtækisins að Pétur segði upp
Skemmtistaðurinn
„Upp og niður“:
Adamsklæði á
kvennakvöldi
Á svokölluðu „Kvenna-
kvöldi'* á skemmtistaðnum
„Upp og niður“ sl. föstudags-
kvöld, tók sig til ein af gestum
hússins og svipti nærbuxum
af karlmanni úr Pan-sýning-
arhópnum, þar sem hann stóð
á sviði og sýndi buxuraar.
Að sögn Vilhjálms Svans Jó-
hannssonar eiganda „Upp og
niður" tíðkast kvennakvöld sem
þetta víða um lönd og er þá
gjaman sýndur „tískunærfatn-
aður“ karla. Er þetta annað
konukvöld skemmtistaðarins og
fleiri í bígerð auk sérstakra
kariakvölda.
„Því er ekki að neita, að
nærfatnaður karla er orðinn
ansi djarfur," sagði Vilhjálmur,
„og því skyldum við ekki fylgja
því eftir eins og öðm? Þvi skyldu
konur ekki fá nektarsýningar
eins og karlmenn? Það gerðist
núna, og það fyrir atbeina
kvenna — þær klipptu á streng-
inn. Ég held, að tími sé til
kominn, að menn sameinist um
að hressa svolítið upp á skemmt-
analífið héma,“ sagði Vilhjálm-
ur Svan.
störfum. Ástæðan var sú að hann
var eignaraðili að fóðurmjölsverk-
smiðju í Grindavík, svipaðri þeirri
sem sett verður upp í Krossanesi í
haust, og vom stjómarmenn ekki
ánægðir með það, og heldur ekki
norskir meðeigendur að verksmiðj-
unni, eftir því sem forsvarsmenn
verksmiðjunnar segja.
Á bæjarstjómarfundi fyrir hálf-
um mánuði lagði Sigurður J. Sig-
urðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks, fram bókun þar sem hann
fór fram á það við Helga Bergs,
bæjarstjóra, að stjóm Krossanes-
verksmiðjunnar gæfi bæjarstjóm
skýringar á væntanlegri skyndilegri
brottför Péturs Antonssonar frá
fyrirtækinu. Sagði Helgi að hann
myndi reyna að upplýsa bæjarfull-
trúa um málið hið allra fyrsta. Enn
hafa bæjarstjóm og stjóm Krossa-
nesverksmiðjunnar þó ekki fundað.
Skv. heimildum Morgunblaðsins
hefur uppsögn Péturs óformlega
verið ógilt og innan tíðar mun
stjómin ákveða að hann starfi
áfram sem forstjóri verksmiðjunn-
ar.
hafnarreglugerðum, sem ekki
■ helguðust af fyrmefndum örygg-
issjónarmiðum, væm komin út
fyrir það valdsvið sem hafnar-
stjómum væri ætlað. Því virtist,
sem hafnamefnd Skeggjastaða-
hrepps tæki sér þama vald sem
hún ekki hefði.
„Bann við dragnótaveiðum á
öllu því svæði, sem þama er um
að ræða, virðist mér í fljótu bragði
trauðla geta verið grundvallarat-
riði fyrir umferð um höfnina eða
að henni og frá,“ sagði Ámi.
Sjávarútvegsráðuneytinu hefur
borist bréfleg tilkynning frá
hreppsnefnd og hafnamefnd
Skeggjastaðahrepps þar sem þær
tjá ráðuneytinu samþykktina um
lokun hafnarsvæðisins, sem nær
yfir allan innanverðan Bakkaflóa
út að línu sem hugsuð er frá
Svartnesi að sunnan norður í
Fossá í Fossárdal, fyrir dragnóta-
veiði. Ámi sagði, að ráðuneytið
myndi fyrr en seinna senda svar
við tilkynningunni og láta vita um
afstöðu sína. Honum var ekki
kunnugt um, að Þórshafnarbúar
Hin umdeilda höfn markast af Svartanesi að sunnan þvert yfir
Bakkaflóa að Fossá.
Bakkaflóadeilan:
Vald hafnamefnda bundið
umferð og öryggi í höfnum
— segir Árni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu
„AFSTAÐA sjávarútvegsráðu-
neytisins er sú, að stjóra fisk-
veiða heyri fyrst og fremst
undir ráðuneytið, og að þær
heimildir, sem hafnarstjórnir
og hreppsnefndir hafi til að
setja reglur um umferð og
starfsemi á hafnarsvæðum,
hljóti að vera bundnar við, að
reglurnar miði að þvi að
tryggja öryggi og hindrunar-
Iausa umferð í höfninni, að
henni og frá, og geti ekki varð-
að önnur sjónarmið," sagði
Arni Kolbeinsson ráðuneytis-
stjóri í sjávarútvegsráðuneyti í
samtali við Morgunblaðið
vegna deilunnar sem upp er
komin milli Bakkfirðinga og
Þórshaf narbúa vegna drag-
nótaveiða hinna síðaraefndu á
haf narsvæði Bakkf irðinga.
Ami sagði þessa afstöðu ráðu-
neytisins byggjast á hafnarlögum
frá árinu 1984. Hann bætti því
við, að fiskstjómunarákvæði í
hefðu haft samband við ráðuneyt-
ið vegna málsins.
Nokkur ruglingur var í frétt
Morgunblaðsins af deilunni sl.
laugardag, þar sem Bakkafjörður
var bæði í fyrirsögn og frétt
nefndur Bakkagerði. Hið rétta er,
að Bakkagerði heitir þéttbýlis-
kjami sá, er stendur við Borgar-
fjörð eystra, en þéttbýliskjaminn
við Bakkaflóa, sem hér um ræðir,
er nefndur Bakkaíjörður og er f
Skeggjastaðahreppi.
10% samdráttur hjá Coldwater
— Salan á unninni vöru í marz mikil vonbrigði, segir Magnús Gústafsson
SALA Coldwater, dótturfyrir-
tækis SH í Bandaríkjunum, er
nú 10% minni í verðmætum talið
en á sama tíma í fyrra og var
13% minni í marzmánuði en í
sama mánuði siðasta árs. Mestur
er samdrátturinn í unnum afurð-
um og segir Magnús Gústafsson,
forstjóri, söluna í marz hafa
valdið miklum vonbrigðum.
í marzmánuði var selt 21% minna
af afurðum unnum í verksmiðju
fyrirtækisns en í sama mánuði í
fyrra. Samdráttur miðað við fyrsta
ársfjórðung er 9%. Flakasalan dróst
saman um 8% í marz og um það
sama frá áramótum. Heildarsam-
dráttur í marz er 13% og 10% frá
áramótum.
Magnús Gústafsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að fastan
hefði komið fyrr en í fyrra, sem
hefði áhrif á söluna. Ennfremur
teldi hann að sölutregðu væri farið
að gæta vegna verðhækkana, sem
stöfuðu af hæsta verði, sem verið
hefði á þorskblokk og kæmi fram
í verksmiðjuvörunni. Flakasala
hefði verið nokkuð góð og hægt að
selja meira af flökum, en ástæða
samdráttar væri skortur á vissum
tegundum flaka, mest karfaflökum.
— Kemur til greina að lækka
blokkarverð vegna þessa?
„Það tel ég ekki, við verðum að
halda uppi verðinu til að fá fiskinn.
Það er nægur markaður fyrir físk-
inn í Evrópu og lægra verð þýddi
aðeins að við fengjum minna af
fiski. Við verðum að vera sam-
kepnnisfærir við aðra markaði, en
auðvitað verður í þessu tilefni að
taka tillit til langtímasjónarmiða.
Við kaupum nú 68% fisksins frá
íslandi, 22% frá Færeyjum og 10%
frá öðrum. Undanfarin ár höfum
við legið undir þrýstingi til að taka
allt, sem hægt hefur verið að fram-
leiða fyrir okkur heima. Fyrir tveim-
ur árum vorum við til dæmis gagn-
rýndir fyrir að kaupa þorskblokk
frá öðrum löndum, þegar hægt var
að framleiða hana heima. Þetta
hefur verið sjónarmiðið og verður
það væntanlega áfram, það er, að
taka við því, sem menn heima sjá
sér hag í að framleiða fyrir okkur,"
sagði Magnús Gústafsson.
Vona að þetta geti orðið fordæmi
— segir Krislján Thorlacius formaður BSRB um samningana í Bolungarvík
BÆJARSTJÓRN Bolungarvík-
ur hefur gert samning við
Verkalýðs- og sjómannafélag
Bolungarvíkur um að lág-
markslaun starfsmanna bæjar-
ins sem eru í félaginu verði
ekki undir 30 þúsund krónum
fyrir dagvinnu á mánuði eftir
fyrsta september nk. Morgun-
blaðið leitaði álits þeirra Þórar-
ins V. Þórarinssonar fram-
kvæmdastjóra Vinnuveitenda-
sambans íslands, Kristjáns
Thorlacius formanns Banda-
lags starfsmanna ríkis og bæjar
og Ásmundar Stefánssonar
forseta Alþýðusambands ís-
lands á þessum samningi.
„Mér fínnst afskaplega athygl-
isvert hvað skattpeningar endast
Bolvíkingum vel,“ sagði Þórarinn
V. Þórarinsson framkvæmdastjóri
VSÍ. „Ég veit að vísu að opinber
gjöld eru í ýmsum tilvikum hærri
þar en gerist annarstaðar, sér-
staklega á atvinnureksturinn.
Fiskvinnslan borgar tvöfalt hærra
aðstöðugjald en hún gerir í
Reykjavík, og hafnargjald er mun
hærra með 50% álag á vörugjald.
Ég get því ekki betur séð en að
þessi samningur markist af því
að ávísa á skattpeninga, en ekki
afrakstur af atvinnustarfsemi.
Það er alveg ljóst að þeir Ig'ara-
samningar sem við stóðum að í
febrúar stefna fyrst og fremst að
því, að ná upp kaupmætti, þannig
að fyrirtæki taki á sig aukinn
kostnað í stað þess að launahækk-
anir renni beint út í verðlagið.
Forsendur nýgerðra samninga
voru þær að dregið yrði úr verð-
lagshækkunum á öllum sviðum
m.a. með lækkun opinberra gjalda
ekki síst útsvars, og ég get ekki
séð hvemig bæjarstjóm Bolung-
arvíkur ætlar að standa að því.“
Þórarinn sagði að samkomuiag
í litlu bæjarfélagi hefði ekki áhrif
á heildarstefnu í þjóðfélaginu. „Ég
veit ekki hvað stórum hluta þess-
arar hækkunar er ætlað að endur-
greiðast af þriðja aðila, en það
er Ijóst að ríkissjóður tekur þátt
í rekstri ýmissa stofnana eins og
sjúkrastofnana sem þama er í
sjálfu sér verið að vísa til.
Þetta er samningur af gamla
taginu, samningur sem byggir á
miklum kostnaðarhækkunum sem
velt er yfir á aðra. Við höfum
lagt það til grundvallar að semja
um vaxandi kaupmátt og hjaðn-
andi verðbólgu og erum staðráðnir
í að fylgja þeim samningum eftir,"
sagði Þórarinn.
„Ég fagna því að það skuli
hafa orðið samkomulag þama um
30 þúsund króna lágmarkslaun,"
sagði Kristján Thorlacius formað-
ur BSRB. „Ég vona að þetta geti
orðið fordæmi að varanlegri lausn
á lágmarkslaunum en vil þó benda
á vissa vankanta á samningnum.
Þama er verið að vekja upp
gamalt launakerfi, sem við vorum
að afnema og kallað var tvöfalt
launakerfí, því yfírvinna og
vaktaálag miðast við þá launa-
flokka sem greitt er eftir sam-
kvæmt munlægri töxturn."
Kristján sagði það mikið fram-
faraspor að tryggja mönnum 30
þúsund krónur fyrir dagvinnu á
sama tíma og lægstu laun innan
BSRB væru í reynd 21 þúsund
krónur fyrir dagvinnu. „Bolvfk-
ingar eiga heiður skilið fyrir að
taka svona á málunum. Því miður
getum við ekki farið í kjölfar
þeirra fyrr en síðar því allir okkar
samningar eru bundnir til ára-
móta, en það hlýtur að verða
framhaldið að bæta vemlega kjör
manna, ekki síst þeirra sem em
verst settir, með lægstu launin.
Það hefur verið og er viðhorf
okkar í stjóm BSRB að bæta kjör
þeirra. Hinsvegar er ekki hægt
að neita því að þessi stefna hefur
ekki fengið hljómgmnn hjá öllum
okkar félagsmönnum og mér er
ekki gmnlaust um að baráttan
fyrir launahækkun til hinna lægst
launuðu umfram þá sem betur em
settir hafi átt sinn þátt í að tiltekn-
ir hópar fóm úr BSRB.
Samningurinn á Bolungarvík
nær einnig til BSRB-félaga sem
vinna hjá bænum og er það
samkvæmt ákvörðun bæjarstjóm-
ar að samkomulagið nær til allra
starfsmanna bæjarins í hvaða
verkalýðsfélagi sem þeir em,“
sagði Kristján.
„Ánægjulegt að það skuli vera
með þessum hætti sem næst fram
kjarabót til þeirra lægst launuðu
á Bolungarvík," sagði Asmundur
Stefánsson forseti ASÍ. „Það er
ákaflega erfitt að meta það að
hvað miklu leyti samningur sem
gerður er við einstaka bæjarfélag
mun hafa áhrif á það sem almennt
gerist."