Morgunblaðið - 08.04.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
Sjóðir sjávarútvegsins:
Þingflokkarnir
ræða frumvarp um
einf öldun kerfis
ÞINGFLOKKAR sljórnmála-
flokkkanna hafa nú til umsagnar
handrit að frumvarpi sjávarút-
vegsráðherra um skiptaverð-
mæti og greiðlumiðlun innan
sjávarútvegsins. í því felst veru-
leg einföldun sjóðakerfis sjávar-
útvegsins, þannig að raunveru-
legt fiskverð á hveijum tíma er
ljóst. Áður komu ofan á lág-
marksverð fjölmargir liðir sam-
kvæmt flóknu millifærslukerfi,
sem nú verður fellt niður. Verð-
bætur og ýmsir kostnaðarliðir
reiknast nú beint inn í fiskverð.
Er hér um að ræða um 58%
viðbætur á verðið og hækkar
INNLENT
Prjónastofan Katla:
Ósamið um leigu
BYGGÐASTOFNUN hefur átt í
viðræðum við nokkra aðila um
leigu á tækjakosti og húsnæði
Pijónastofunnar Kötlu i Vík í
Mýrdal, sem varð gjaldþrota í
febrúar sl. með þeim afleiðing-
um, að um 30 manns misstu
atvinnuna.
Að sögn Stefáns Melsted hjá
Byggðastofnun hefur enn ekki
tekist að semja um leigu á prjóna-
stofunni; enginn ákveðinn aðili
hefur enn tekið af skarið um að
taka hana á leigu. Réðu óvissar
markaðshorfur mestu þar um.
lágmarksverð sem því nemur, en
tekjur útgerðar og sjómanna
standa í stað.
Nýtt fiskverð á að taka gildi 1.
júní næstkomandi, en samkvæmt
frumvarpshandritinu breytist lág-
marksverðið 15. maí næstkomandi
við áætlaða gildistöku laganna og
gildir til 1. júní. Framvegis verður
skiptaverð 70% af gildandi lág-
marksverði við löndun heima en
breytilegt við löndun erlendis, þó
aldrei hærra en 70%. Fiskkaupend-
ur greiða síðan 15% af heildarverði
afla skipa stærri en 10 lestir og
10% af afla litlu bátanna, sem renna
í stofnfjársjóð fiskiskipa, til vá-
try8gingagja'da, greiðslumiðlunar-
reiknings og af honum í lífeyrissjóði
til samtaka útgerðarmanna og sjó-
manna. Sú breyting verður á við
endurgreiðslu uppsafnaðs sölu-
skatts, alls um 600 milljónir króna
samkvæmt áætlun fyrir þetta ár,
að þær renna ekki í aflatrygginga-
sjóð eins og til þessa, heldur til
fiskvinnslu og Fiskveiðasjóðs. Afla-
tryggingasjóður verður lagður nið-
ur en í hann munu 225 milljónir
renna til gildistöku laganna. Af
því, sem eftir verður, renna 305
milljónir til fiskvinnslu og 70 til
Fiskveiðasjóðs í samræmi við áætl-
aðan hlut fiskvinnslu og útgerðar í
greiddum söluskatti. Talið er að í
meginatriðum raski einföldun þessi
ekki tekjuskiptingu í sjávarútvegi,
en með henni verður hætt milli-
færslu milli einstakra útgerða eða
skipa.
Auk þessa taka útgerðarmenn á
sig greiðslu hluta fæðispeninga,
sem áður kom úr áhafnadeild Afla-
trygginga.sjóðs, og skiptahlutfall á
bátum undir 240 lestum hækkar
um einn hundraðshluta til samræm-
ingar kjörum annarra sjómanna.
„Vil ekkert segja“
— segir fréttastjóri hljóðvarps um gagnrýni í útvarps-
ráði á fréttaflutning af hemámsandstæðingum
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér til
Margrétar Indriðadóttur frétta-
stjóra á fréttastofu, Ríkisút-
varpsins, hljóðvarps, og spurði
hana hveiju hún vildi svara
gagnrýni þeirri á fréttastofuna,
sem fram kemur í bókun Magn-
úsar Erlendssonar á útvarps-
ráðsfundi sl. föstudag vegna
kynningar og fréttaflutnings
fréttastofunnar af fundi Sam-
taka hemámsandstæðinga laug-
ardaginn 29. mars sl.
„Ég vil ekkert segja um þetta,“
sagði Margrét. „Magnús getur
hlaupið með þetta í blöðin, en ég
ætla ekki að gera það, að minnsta
kosti ekki núna. Þessu verður svar-
að á næsta útvarpsráðsfundi, “ sagði
Margrét Indriðadóttir.
Rangfærslum Þjóðviljans enn svarað:
1 I 1
1 'jjp L 1
B 4
1 'ff) ÆM
■ -» f ■
Það var lesið, prjónað, dottað og rabbað saman er beðið var eftir
því að farmiðasalan hjá ferðanefnd BSRB opnaði sl. laugardag.
BSRB farmiðar til Kaupmannahafnar:
Alltuppí 15
tíma bið eftir miða
á 7.900 krónur
„ÞEIR fyrstu fóru að biða milli
kl. 1 og 2 um nóttina þrátt fyrir
að sala farmiðanna hæfist ekki
fyrr en kl. 16.00 svo biðin var
svo sannarlega löng fyrir
suma,“ sagði Sigrún Aspelund,
formaður ferðanefndar BSRB,
í samtali við blaðamann, en sl.
laugardag bauð ferðanefndin
aðildarfélögum sínum farmiða
til Kaupmannahafnar og heim
aftur fyrir 7.900 krónur. Fyrir
börn kostaði miðinn 4.000 krón-
ur. Ódýrasta PEX-fargjald til
Kaupmannahafnar fæst að
öðru Ieyti á um 15.400 krónur.
„Þegar ég mætti til vinnu rúm-
lega 7 um morguninn biðu milli
60 og 70 manns úti við - þó flest-
ir í bflum sínum. Þá hleyptum við
fólkinu inn í hús og úthlutuðum
númerum. Þá höfðu fjölskyldu-
meðlimir skipst á vöktum alla
nóttina og komið jafnvel með
bömin sín með sér.
Á undanfömum íjórum árum
hefur ferðaskrifstofan Samvinnu-
ferðir/Landsýn gengist fyrir
samningum við Flugleiðir fyrir
hönd stéttarfélaganna, en þau eru
m.a. eignaraðilar að ferðaskrif-
stofunni. Sigrún sagði að BSRB
væri nú 15.000 manna félagasam-
tök og hefði einum þriðja hluta
farmiðanna verið haldið eftir
handa félagsmönnum af lands-
byggðinni.
706 ný dagvistarrými
á vegnm borgarstj órnar
— útgjöld til dagvistunarmála 35,8% hærri nú en í tíð meirihluta vinstri manna
ÁSTÆÐA er til að fagna því, ef
málefnastaða okkar er svo góð,
sagði Davíð Oddson, borgar-
stjóri, að andstæðingamir þurfi
að grípa til jafndæmalausra
ósanninda og Þjóðviljinn hefur
nú gert um dagvistarmál borgar-
innar, fjárhag Þróttar, afkomu
Landsvirkjunar og leigugjöld
þeirra, sem leigja húsnæði af
borginni. Það er ekki fótur fyrir
skrifum blaðsins um fjölgun
dagvistarrýma í Reykjavík, sagði
borgarstjóri.
í Þjóðviljanum á laugardag er því
haldið fram á forsíðu, að dagvistar-
rýmum í Reykjavík hafi fjölgað um
296 síðan 1982. Borgarstjóri sagði,
að síðan 1982 hefðu 10 ný dagvist-
arheimili verið tekin í notkun. Eitt
þeirra hefði verið reist af Sumar-
gjöf, en hin af Reykjavíkurborg,
sem annast rekstur allra heimil-
anna. Hann sagði, að fyrir næsta
haust yrðu þrjú ný heimili að auki
tekin í notkun. Þá yrði hafíst handa
við gerð tveggja heimila til viðbótar
í Seljahverfi og á Ártúnsholti.
Borgarstjóri sagði, að alls væri
því um 13 fullbúin dagvistarheimili
að ræða, ef litið sé á framkvæmdir
á kjörtímabilinu frá 1982.1 þessum
heimilum væru alls 706 ný dagvist-
arrými. Þar af væru 68, sem rekja
mætti til áranna 1978 til 1982,
þegar vinstri menn höfðu meirihluta
í borgarstjóm, en alls skiluðu þeir
604 nýjum rýmum, þar af megi
rekja 128 til kjörtímabilsins 1974-
1978.
Þegar ijárveitingar borgarsjóðs
til smíði dagvistarheimila á kjör-
tímabilinu núna og 1978-1982 eru
bomar saman og framreiknaðar til
núvirðis kemur í ljós, að á árunum
1983 til 1986 er varið 35,8% meira
fjármagni til þessara mála en
1979—1982. Er hér miðað við þijú
heil ár, þar sem fjárhagsáætlanir
eru alfarið mótaðar af starfandi
borgarstjómarmeirihluta á hverjum
tíma.
Sjá forystugrein: Þróttur og
Þjóðviljinn á miðopnu.
Gengisbreyting-
ar í Evrópu
hafa lítil
áhrif á krónuna
„BREYTINGAR á gengi gjald-
miðla í Evrópu hafa tiltölulega
lítil áhrif á gengi íslensku krón-
unnar,“ sagði Jóhannes Nordal
Seðlabankastjóri, þegar hann var
spurður um áhrif gengisbreyt-
inganna í nokkrum Evrópulönd-
um að undanförnu á íslensku
krónuna.
„Gengislækkunin er aðallega á
franska frankanum en hann er ekki
mynt sem vegur mjög þungt í okkar
viðskiptum og því ekki búist við að
lækkunin hafí áhrif á okkar hag.
Við sjáum hinsvegar merki þess að
dollarinn hefur styrkt stöðu sína
um hálft annað % við þessar gengis-
breytingar, en það er okkur hag-
stætt vegna útflutningstekna þjóð-
arinnar sem miðast að mestu við
dollara.
Gengi gjaldmiðla Norðurlanda
hefur lækkað og nokkurra Evrópu-
þjóða auk japanska yensins, en
hver áhrifin verða er erfitt að spá
um þegar til lengri tíma er litið,“
sagði Jóhannes.
Gestur á
Hótel Varð-
borg gekk
berserksgang
- braut tvær hurð-
ir o g þrjár rúður
Akureyri.
EINN gesta á Hótel Varðborg á
Akureyri gekk þar berserksgang
aðfaranótt sunnudags. Braut
maðurinn tvær hurðir og þrjár
rúður í hótelinu. Hann var ölvað-
ur.
Maðurinn byrjaði á því að bijóta
rúðu og spegil í herbergi sínu og
stórskemmdi síðan hurð á herbergi
sínu á leiðinni út.
Maðurinn hefur játað á sig allar
skemmdir sem unnar voru á hótel-
inu þessa nótt og talið er að kostn-
aður við viðgerðir verði ekki undir
60.000 krónum.
Stór rúða í Búnaðarbankanum,
sem er ekki íjarri Hótel Varðborg,
var brotin þessa nótt, skömmu eftir
að skemmdimar voru unnar á hótel-
inu. Gangstéttarhellu var hent
gegnum rúðuna. Hótelgesturinn
hefur við yfirheyrslur ekki viljað
viðurkenna að hafa brotið rúðuna.
Tveir í gæslu
vegna inn-
flutnings á
amfetamíni
TVEIR menn hafa verið úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald vegna inn-
flutnings á 330 grömmum af
amfetamíni. Annar mannanna
var úrskurðaður í 30 daga gæslu-
varðhald, hinn i 15 daga.
Lögreglan handtók annan mann-
anna á fímmtudag síðastliðinn við
komuna til Keflavíkur frá Lúxem-
borg. í fórum hans fannst amfetam-
ín, sem hann hafði komið fyrir í
vindlingapakkningum. Félagi hans,
sem grunur lék á að hefði verið
erlendis í sömu erindagjörðum, var
handtekinn er hann kom til landsins
á föstudag. Unnið er að áfram-
haldandi rannsókn málsins hjá
fflmiefnadeild lögreglunnar.