Morgunblaðið - 08.04.1986, Síða 6
6
r
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
---O'i U’ . l;1-'1..'. I í:• 1 'j-rJ 1' iT(i;iii( ,111"^,»1
Hugfræði
Þeir morgunvaktarmenn eiga
það til að vekja undirritaðan
all óþyrmilega, fá ég ekki við þá
hneisu er Sigríður Amadóttir lék
af segulbandi ræðubút er Ólafur
heitinn Thors flutti og blessuð
stúlkan spurði síðan hlustendur
hver talaði og auðvitað gátu margir
upp á Ólafi, en stúlkan sat fast við
sinn keip að hér hljómaði ekki rödd
Ólafs Thors. Svo var allt í einu
stungið miða inní þularstofu þar
sem stóð skrifað að hér talaði Ólaf-
ur Thors fyrrum forsætisráðherra.
Stúlkan bað afsökunar á mistökun-
um og bar fyrir sig þá skýringu að
annað nafn hefði staðið á hylkinu
utan af segulbandsspólunni. Það er
ekki mitt að dæma í máli þessu en
þegar ég ræddi um að þeir morgun-
vakatarmenn vektu mig stundum
all óþyrmilega við morgunverðar-
borðið, þá á ég við að vaktmennimir
hafa lag á að kaila til sín fólk er
hefir frá einhveiju að segja. í gær
vöktu einkum tveir viðmælendur
þeirra morgunvaktarmanna mig af
helgarsvefninum.
Sá fyrsti
Fyrsti viðmælandinn á morgun-
vakt gærdagsins var Svava Bem-
höft en sú kona hefir gegnt starfi
innkaupastjóra hjá Áfengis- og tó-
baksverslun ríkisins í hvorki meira
né minna en 16 ár, og kann því
vafalaust frá mörgu að segja.
Tvennt vakti einkum athygli mína
í spjalii Svövu. í fyrsta lagi upplýsti
hún að hinn almenni neytandi hefði
í raun og veru lítil bein áhrif á
hvaða víntegundir væru á boðstól-
um þótt hann gæti að sjálfsögðu
viðrað sínar hugmyndir. í öðru lagi
skýrði innkaupastjórinn frá því að
hlutverk „umboðsmannanna" væri
í raun og vem ekki annað en að
„kynna vöruna“.
Heldur vafðist nú innkaupastjór-
anum tunga um tönn er morgun-
þáttarmenn spurðu í sakleysi sínu
fyrir hveijum umboðsmennimir
ættu að kynna vöruna, þar sem það
væri nú einu sjnni bannað að aug-
lýsa áfengi á íslandi. Skildist mér
helst á Svövu að eina hlutverk hinna
svokölluðu umboðsmanna áfengis á
íslandi væri að „kynna“ áfengisteg-
undimar fyrir ákveðnum starfs-
mönnum ÁTVR. Það gæti verið
fróðlegt fyrir skattborgarann er
greiðir þeim sérstæða hópi ríkis-
starfsmanna er í daglegu tali nefn-
ast „umboðsmenn" laun að fylgjast
með því hvemig fyrrgreind „kynn-
ing“ áfengistegunda meðal ákveð-
inna starfsmanna ÁTVR fer fram.
Númer tvö
Viðmælandi númer tvö á morg-
unvakt gærdagsins er vakti mig af
helgardoðanum var Ólafur W. Stef-
ánsson skrifstofustjóri í Dómsmála-
ráðuneytinu. Var rætt við Ólaf um
þau happdrætti er lýsa því nú yfir
í blöðum að stærsti vinningurinn
hafi komið á óseldan miða. Var í
því sambandi vitnað til baksíðu
fréttar hér í Morgunblaðinu frá síð-
astliðnum sunnudegi þar sem ræki-
leg grein var gerð fyrir þessu máli
öllu saman. Sé ég ekki ástæðu til
að rekja frekar tölu skrifstofustjór-
ans en vísa til hinnar ágætu bak-
síðufréttar hér í sunnudagsblaðinu.
En ástæðan fyrir því að ég
minnist hér í fjölmiðladálki á þessi
viðtöl morgunvökumanna við Svövu
Bemhöft og ólaf W. Stefánsson er
sú að ég vil árétta'hversu mikilvægt
það er að útvarpsmenn ræði við fólk
sem hefir frá einhverju að segja.
Nóg er víst blaðrað í §ölmiðlunum.
Þá vildi ég einnig vekja athygli á
því hvemig hugmyndimar flæða á
milli fjölmiðlanna.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / SJÓNVARP
Fjársjóðsleitin
Nýr fiokkur
■I Fyrsti þáttur í
20 nýjum flokk af
— Fjársjóðsleitinni
(The story of the Treasure
Seekers) verður á dagskrá
sjónvarps í kvöld kl. 19.20.
Myndaflokkurinn er gerður
eftir sígildri bama- og
unglingabók eftir Edith
Nesbit. Sagan á að gerast
fyrir síðustu aldamót. Faðir
sex bama er í miklum
peningavandræðum og
taka krakkamir uppá ýmsu
til að aflafy'ár til að hjálpa
föður sínum í vandræðum
hans.
Fimm evangelískar
póstlúdíur
WM í þættinum ís-
05 lensk tónlist
““ sem er á dag-
skrá rásar eitt í kvöld verð-
ur fiutt tónlist eftir Gunnar
Reyni Sveinsson, Fimm
evangelískar postlúdíur.
Halldór Vilhelmsson syng-
ur og Gústaf Jóhannesson
leikur á orgel.
Halldór Vilhelmsson
Gunnar Reynir Sveinsson
Viðkvæmur farangur
— þáttur um myndlist
■i í kvöld hefst á
40 rás eitt þáttaröð
um myndlist
sem nefnist Viðkvæmur
farangur í umsjá Níelsar
Hafstein myndlistarmanns.
Verða þættir þessir alls
fjórir og verða á dagskrá
hálfsmánaðarlega á þriðju-
dagskvöldum.
I fyrsta þættinum verður
frumflutt myndverkið
„Ófullkomið forrit" eftir
Níels, sem hann flytur
ásamt Kolbrúnu Péturs-
dóttur leikara. Þetta verk
varpar ljósi á aðferðir í
myndlist síðustu ára með
tilvísunum í innlenda og
erlenda listamenn, en
bendir einnig í átt til fram-
tíðarmöguleika sem mað-
urinn hefur ekki á valdi
sínu við sköpun listaverka.
Niels Hafstein.
ÚTVARP
ÞRiÐJUDAGUR
8. apríl
7.00 Veöurtregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morgunteygjur.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Katrín og Skvetta"
eftir Katarinu Taikon. Einar
Bragi les þýðingu sina (8).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Þingfréttir
10.00 Frétfir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem Örn Ólafsson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesiö úr forystugreinum
dagblaöanna.
10.40 „Ég man þá tíö.“ Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.10 Úr söguskjóöunni —
Árið 1000
Umsjón: Árni Snævarr.
Lesari: Sigrún Valgeirsdótt-
ir.
11.40 Morguntónleikar.
Þjóðleg tónlist frá ýmsum
löndum.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 i dagsins önn - Heilsu-
vernd.
Umsjón: Jónina Benedikts-
dóttir.
14.00 Miödegissagan:
„Skáldalíf í Reykjavik" eftir
Jón Óskar. Höfundur les
fyrstu bók: „Fundnir snilling-
ar" (6).
14.30 Miödegistónleikar.
15.15 Bariö að dyrum. Inga
Rósa Þóröardóttir sér um
þátt frá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mér -
Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri.)
17.00 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Kristín Helgadóttir.
17.40 Úr atvinnulifinu - Iðnað-
ur. Umsjón: Sverrir Alberts-
son og Vilborg Harðardóttir.
18.00 Neytendamál. Umsjón:
Sturla Sigurjónsson.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.00 Aftanstund.
Endursýndur þáttur frá 17.
febrúar.
19.20 Fjársjóösleitin.
Nýr flokkur — Fyrsti þáttur.
(The Story of the Treasure
Seekers). Breskur mynda-
flokkur í sex þáttum, gerður
eftir sigildri barna- og ungl-
ingabók eftir Edith Nesbit.
Sagan gerist fyrir aldamótin
siðustu. Sex systkini reyna
með ýmsu móti að afla
peninga til að hjálpa föður
sinum sem er í fjárkröggum.
19.45 Daglegt mál. Sigurður
G. Tómasson flytur þáttinn.
19.50 Fjölmiölarabb
Guðmundur Heiðar Frí-
mannsson talar. (Frá Akur-
eyri.)
20.00 Áframandi slóðum.
Oddný Thorsteinsdóttir
segir frá Kína og kynnir
þarlenda tónlist. Fyrri hluti.
(Áður útvarpað 1982.)
20.30 Að tafli. Jón Þ. Þór flytur
þáttinn.
20.55 „Kvunndagsljóð og
kyndugarvísur"
Þorgeir Þorgeirsson les úr
nýrri Ijóðabók sinni.
21.05 (slensktónlist.
„Fimm evangelískar
postlúdíur" eftir Gunnar
Reyni Sveinsson. Halldór
Vilhelmsson syngur. Gústaf
Jóhannsson leikur á orgel.
8. apríl
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Sjónvarpiö.
(Television). 11. Hláturinn
lengir lífið. Breskur heim-
ildamyndaflokkur ( þrettán
þáttum um sögu sjónvarps-
ins, áhrif þess og umsvif um
víða veröld og einstaka
efnisflokka. f þættinum er
rakin saga gamanþátta og
gamanmyndaflokka í sjón-
21.30 Útvarpssagan: „Ævi-
saga Mikjáls K." eftir J.M.
Coetzee.
Sigurlina Daviðsdóttir les
þýðingu sína (2).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Kórsöngur.
Kammerkórinn syngur lög
eftir íslensk tónskáld: Rut
Magnússon stjórnar.
22.40 Viðkvæmurfarangur.
Fyrsti þáttur af fjórum um
myndlist i umsjá Nielsar
Hafstein myndlistarmanns.
Flutt verður myndverkið
„Ófullkomið forrit" eftir Ni-
els. Flytjandi ásamt honum:
Kolbrún Pétursdóttir leikari.
23.00 Kvöldstund í dúr og
moll
með Knúti R. Magnússyni.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
varpi, allt frá Lucy Ball til
Löðurs. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.30 I vargaklóm.
(Bird of Prey II). Þriðji þáttur.
Breskur sakamálamynda-
flokkur í fjórum þáttum.
Aöalhlutverk Richard Griff-
iths. Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
22.25 Kastljós.
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaöur Guðni
Bragason.
23.00 Fréttir i dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
8. apríl
10.00 Kátirkrakkar
Dagskrá fyrir yngstu hlust-
endurna í umsjá Guðríðar
Haraldsdóttur.
10.30 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
12.00 Hlé
14.00 Blöndun á staðnum
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00 Söguraf sviðinu
Þorsteinn G. Gunnarsson
kynnir tónlist úr söngleikjum
og kvikmyndum.
17.00 Hringiðan
Þáttur í umsjá Ingibjargar
Ingadóttur.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár
minútur kl. 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYK.JAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,6 MHz.
SJONVARP
ÞRIÐJUDAGUR