Morgunblaðið - 08.04.1986, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
I' tilefni af 60 ára
afmæli sínu efnir
Karlakór Reykjavík-
ur til tónleika í Lang-
holtskirkju dagana 8.,
9., 10. og 12. april.
Nokkru síðar verður
tekin skóflustunga að
nýju félagsheimili,
sem mun rísa að
Skógarhlíð 20. Þann
10. maí mun Karlakór
Reykjavíkur síðan
halda mikla hátíð í
Háskólabíói með að-
stoð Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands.
Karlakór Reykjavíkur var
stofnaður 3. janúar 1926. Aðal-
hvatamaður að stofnun hans var
Karlakór Rey kjavíkur á 60 ára af mœlisári.
Karlakór Reykjavíkur:
Afmælistónleikar og
og nýtt félagsheimili
Sigurður Þórðarson, sem var
fyrsti söngstjóri kórsins og jafn-
framt lífíð og sálin í öllu starfí
hans þar til hann lét af sögnstjóm
árið 1962. Á ámnum 1955—57
tók Sigurður sér hvfld vegna
veikinda og hljóp þá dr. Páll
ísólfsson í skarðið. Við starfí
Sigurðar tók Jón S. Jónsson og
1964 kom Páll P. Pálsson til
starfa og hefur frá því ári verið
aðalstjómandi Karlakórs Reykja-
víkur.
Kórinn hefur gert víðreist um
heiminn, sungið í Qölmörgum
löndum við ágætan orðstír. Utan-
ferðir kórsins em orðnar þrettán
og verður sú fjórtánda farin í
sumar. Rödd Karlakórs Reykja-
víkur hefur hljómað í Ameríku
og Evrópu, Rússlandi, Kína og
Afríku. I sumar er ferðinni heitið
til Frakklands í boði franskra
stjómvalda. Ætlunin er að syngja
á fjórum stöðum á og við
Bretagne-skaga í Frakklandi í
byijun júní. Meðal annars verður
flutt verkið „Pourqoui Pas“ eftir
Skúla Halldórsson við ljóð Vil-
hjálms frá Skálholti.
Karlakór Reylqavíkur frum-
flutti þetta verk 1968 og mun
hann flytja það á tónleikunum í
Háskólabíói þann 10. maí. Tilefni
þessa flutnings nú er að liðin em
50 ár frá því að hið franska vís-
indaskip, sem bar þetta nafn,
fórst hér við land og með því
hinn heimsþekkti vísindamaður
Charcot.
Frönsk stjómvöld fréttu af
þessu tónverki Skúla Halldórs-
sonar og höfðu samband við
menntamálaráðuneytið, sem til-
kynnti Skúla um áhuga Frakka.
Karlakór Reykjavíkur á La Gardia-flugvelli í New York 1946 i einni
af fjölmörgum utanferðum sinum.
Á heimleið með Gullfossi eftir velheppnaða ferð um Miðjarðarhafslönd
Líkan af félags-
heimili Karla-
kórsins sem
kemur til með
að risa að Skóg-
arhlíð 20.
Skúli óskaði eindregið eftir því
að Karlakórinn flytti þetta verk
í Frakklandi og varð það úr.
Virkir félagar í Karlakór
Reykjavíkur em nú tæplega 50.
Að auki em starfandi fjöldi eldri
félaga, sem hittast mánaðarlega
yfír vetrartíma, halda við vinar-
tengslum og taka lagið. Á hljóm-
leikunum í Langholtskirkju munu
fíölmargir eldri félagar sjmgja
með.
Árlega em haldnir sérstakir
styrktarfélagatónleikar, en þeir
em einkum ætlaðir styrktarfélög-
um kórsins, sem em um 1.500.
Hver þeirra fær afhenta tvo
aðgöngumiða að tónleikunum og
þess vegna em tónleikamir Qórir.
Karlakór Reykjavíkur hefur
sungið inn á fjölmargar hljóm-
plötur. Á fyrstu ámnum söng
kórinn inn á fjölmargar tveggja
laga plötur, sem Fálkinn gaf út.
Þær plötur em nú mjög fágætar.
Síðar söng kórinn inn á þijár
plötur á vegum útgáfufyrirtækis-
ins Monitor í New York. Á vegum
hljómplötuútgáfu Svavars Gests
komu út 6 plötur með um 80
lögum.
Fáir af stofnendum Karlakórs
Reykjavíkur em eftirlifandi. Hall-
grímur Sigtryggsson syngur þó
enn með eldri félögum, en hann
er 92 ára.
Stjóm Karlakórs Reykjavíkur
er nú þannig skipuð: Formaður
er Böðvar Valtýsson, varafor-
maður er Bjami Reynarsson.
Aðrir stjómarmenn em Gylfí K.
Sigurðsson, Tómas Sigurbjöms-
son og Gunnar Stefensen.
Skátar leituðu vinn-
ingshafa í happdrættinu
BJÖRN Hermannsson, fram- unblaðsins um vinningshlutfall út.
kvæmdastjóri Landssambands í happdrættum og þá staðreynd Bjöm Hermannsson sagði að í
hjálparsveita skáta, hafði sam- að enginn 15 vinningsbíla í fyrra, þegar Landssambands
band við Morgunblaðið vegna happdrætti Handknattleiks- hjálparsveita skáta var með happ-
fréttar í sunnudagsblaði Morg- sambands íslands hefði gengið drætti hafí skátar lagt á sig mikla
vinnu við það að taka niður nafn
og símanúmer allra þeirra, sem
keyptu miða í happdrættinu, og
síðan hringdu þeir í alla vinnings-
hafana og tilkynntu þeim að þeir
ættu vinning. Bjöm kvað þetta
hafa mælzt mjög vel fyrir meðal
viðskiptavina happdrættisins.
í þessu sambandi sagði Bjöm,
að nokkrir vinningshafar í happ-
drætti Landssambands hjálpar-
sveita skáta hefðu látið í ljós
miklar efasemdir um að þeir hefðu
nokkum tíma uppgötvað að þeir
ættu vinning í happdrættinu og
kvað hann skátana hafa komizt
að því, að í mörgum tilfellum
kaupi fólk miða, en aðgæti ekki,
hvort númer þeirra komi upp.
Hann sagði jafnframt að sér væri
kunnugt um að t.d. happdrætti
HSÍ hefði ekki frumkvæði að því.
að leita vinningshafa, heldur biði
eftir að vinningshafar gæfu sig
fram.