Morgunblaðið - 08.04.1986, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8.APRÍL1986
Innri öryggis-
mál á Islandi
eftir Þórð Ægi
Oskarsson
Erfitt er að skilgreina hvað felst
í hugtakinu innra öryggi. Satt best
að segja tel ég að enga fullnægjandi
skilgreiningu sé að fínna á þessu
hugtaki. Ein leið er þó að segja,
að innra öryggi felist í þeim aðgerð-
um, sem miða að því að tryggja
tilvist þess lýðræðislega þjóðskipu-
lags, sem við höfum kosið að búa
við með því að berjast af fremsta
megni gegn hvers kyns ógnum sem
að því steðja.
Þá komum við að öðru, ekki síðra
vandamáli þ.e. að skilgreina þær
ógnir sem að ríkinu steðja og síðan
hvemig við þeim er bmgðist. Tök-
um nú nokkur mismunandi dæmi
um þær gagnvart innra öryggi
ríkja.
Bretar hafa búið við langvarandi
vandamál í sínum innri öryggismál-
um vegna sífelldra átaka og hryðju-
verka á Norður-írlandi. Frumrót
þessara átaka liggur í trúarlegri
skiptingu íbúa Norður-írlands, þó
aðrir þættir, einkum efnahagslegs
eðlis, hafí þar einnig mikil áhrif.
Tilvist franska ríkisins hefur
oftar en einu sinni verið beint og
óbeint ógnað vegna innri veikleika
þess. Dæmi um þetta eru stúdenta-
óeirðimar 1968 og niðurrifsstarf-
semi OAS-sveitanna snemma á
sjöunda áratugnum. Enda hafa
Frakkar komið sér upp vel vopnuðu
öryggisgæsluliði, Gendermarie, sem
hefur víðtækt hlutverk í gæslu
innra öryggis Frakklands á friðar-
tímum.
ítalir og þó sérstaklega Tyrkir
hafa og em að ganga í gegnum
innri öryggisvandamál sem fyrst
og fremst stafa af pólitísku ójafn-
vægi og efnahagslegum erfíðleik-
um.
Sögu ríkjanna fyrir botni Mið-
jarðarhafs þarf ekki að tíunda í
þessum efnum, hana þekkja allir.
Loks má nefna Sovétríkin sem
dæmi. Þar er um að ræða alræðis-
ríki sem í reynd byggir tilvist sína
í núverandi mynd að miklu leyti á
þrælskipulögðu kerfí innri öryggis-
gæslu, sem hefur fyrst og fremst
það hlutverk að tryggja með öllum
tiltækum ráðum hlýðni þegnanna
við ráðandi fámennisstjóm. Yfír-
gnæfandi meirihluti þegnanna er
því mesta ógnunin við innra öryggi
sovéska alræðiskerfisins.
Það fínnast líka önnur dæmi um
ógnun við innra öryggi ríkja, sem
snerta okkur oft mun frekar en þær
sem fyrr eru nefndar.
í þessu sambandi er rétt að nefna
fáein nöfn: John Kennedy, Robert
Kenney, Martin Luther King,
Anwar Sadat, Mountbatten lávarð-
ur, Indira Gandhi, Aldo Moro og
nú síðast Olof Palme.
Ótal hryðju- og ofbeldisverk á
forystumönnum einstakra ríkja og
í enn meiri mæli á saklausu fólki
em innri öryggisvandamál sem ís-
lendingar þekkja ekki af eigin raun
nema í gegnum fjölmiðla. Þó getur
enginn sagt hvenær við reynum
slíkt í okkar friðsæla landi.
Markmið hryðjuverka
Á aðeins 14 árum, 1968—1982,
voru skráð dæmi um hryðjuverk í
117 ríkjum og flest þeirra voru
reyndar framin í Vestur-Evrópu.
Þetta gefur okkar sterka vísbend-
ingu um hættuna.
Dæmin hér að ofan sýna að
orsakir hættunnar gegn innra ör-
yggi eru sjaldnast einhlítar. Þær
geta verið félagslegar, efnahagsleg-
ar, landfræðilegar, trúarlegar,
menningarlegar, hugmyndafræði-
legar og ekki síst sálfræðilegar.
Það er misskilningur, sem svo
oft heyrist, að athygli fjölmiðla í
sjálfu sér sé að öllu jöfnu markmið
hryðjuverkamanna.
Fjölmiðlun er fyrst og fremst
besta leiðin fyrir þá til að koma
ofbeldisboðskap sínum á framfæri
og vekja jafnframt þann ótta og
það öryggisleysi meðal almennings
sem smám saman verður til þess
að grafa undan trausti hans á því
stjómskipulagi sem hann býr við.
Sú ógn sem ríkjum samtímans
stendur af ofbeldisverkum hryðju-
verkamanna endurspeglast skil-
merkilega 1 eftirfarandi ummælum
manns sem þekkir eitt afbrigði
hryðjuverka af eigin raun, Andrei
Shakarovs. Honum mælist svo:
„Það skiptir ekki máli hversu
háleit markmið hryðjuverkamenn
þykjast hafa, athafnir þeirra em
alltaf glæpsamlegar og tortímandi.
Þær leiða mannkynið aftur á vit
lögleysu og ringulreiðar og skapa
vandamál innan landamæra ríkja
sem utan, sem eru í hróplegri
andstöðu við þann frið og þær fram-
farir sem við stefnum að“.
Njósnir og undirróður
En það eru til fágaðri leiðir til
að grafa undan innra öryggi ríkja.
Þessar leiðir felast í hvers kyns
njósnum og undirróðurstarfsemi.
Slíkar athafnir geta tekið á sig
ótal myndir. Svo sem þekkingaröfl-
un um veikleika viðkomandi ríkis á
öllum sviðum; ráðning innlendra
aðila til njósnastarfsemi, beinn og
óbeinn áróður; fjármögnun á starf-
semi hliðhollra einstaklinga, stjóm-
málaflokka eða annarra samtaka;
bein þjálfun og ráðgjöf við undirróð-
ursmenn og efnahagslegar þving-
anir, svo fátt eitt sé nefnt.
Loks getur innra öryggi ríkis að
sjálfsögðu stafað ógn af ýmiss
konar andfélagslegum öflum, sem
ekki hafa endilega tengsl við önnur
ríki eða hópa. Andsvar ríkis við
slíku hefur yfírleitt verið tvíþætt;
annars vegar söfnur. upplýsinga og
mat á hættunni og síðan aðgerðir,
hrein öryggisgæsla ellegar uppræt-
ing ógnunarinnar.
Gildir þetta bæði um starfsemi
hryðjuverkaafla og hina fágaðri
njósna- og undirróðursstarfsemi,
sem í eðli sínu hafa sama markmið-
ið, það er að grafa undan viðkom-
andi ríki eða nýta sér veikleika þess
til skammtíma árangurs.
Vidbrögd íslenska ríkisins
Ég hef hér að framan stiklað á
stóru varðandi helstu atriði sem
koma til álita þegar rætt eru um
hvað felst í innra öryggi og ógnun
við það. En hvemig sinnir þá ís-
lenska ríkið „innri" öryggsmálum
íslands. Það felst í eðli slíkrar ör-
yggisgæslu að opinber gögn um
hana liggja ekki á lausu. Hér er
því vart um annað að ræða en að
draga ályktanir af opinberri vitn-
eskju. Innra öryggi eða öryggis-
gæsla eru ekki til sem hugtök í
lögum eða reglugerðum.
í þessu sambandi er rökrétt að
vísa til stefnumarkandi ræðu Matt-
híasar Á. Mathiesen, utanríkisráð-
herra, á Varðbergsfundi 20. febr.
sl. þar sem hann sagði að aukið
fmmkvæði í öryggis- og vamarmál-
um hlyti að taka til innra öryggis
landsmanna og átti þá við eftirfar-
andi þætti:
1. Almannavamir
. Vamirgegn hryéjuverkamönnum
3. Viðbúnað gegn hvers kyns starf-
semi sem miðar að því að grafa
undan öryggi eða sjálfstæði lands-
ins.
Fyrsti þátturinn, almannavamir,
liggur ljósastur fyrir enda hlutverk
almannavama skýrt skilgreint í
lögum. Felast þær í að skipuleggja
og framkvæma ráðstafanir sem
miða að því að koma í veg fyrir,
eftir því sem unnt er, að almenning-
ur verði fyrir líkams- eða eignatjóni ■
af völdum hemaðaraðgerða, nátt-
úruhamfara eða annarri vá, og veita
líkn og aðstoð vegna tjóns sem orðið
hefur, enda falli þau störf ekki
undir aðra samkvæmt lögum.
Almannavarnir heyra undir
dómsmálaráðherra og skipar hann
almannavamaráð sem stýrir starf-
semi almannavama og er til ráðu-
neytis um framkvæmd laga um
almannavamir. Á síðasta ári tók
gildi 10 ára áætlun um uppbygg-
ingu almannavama hér á landi.
Ég tel ástæðulaust að fjölyrða
hér um almannavamir, bæði vegna
þess að þær miðast við mjög afger-
andi aðstæður, og em þar fyrir
utan óumdeilanleg skylduþjónusta
hvers ríkis við þegna sína. Eina
óskin er sú að við þessa 10 ára
áætlun verði staðið af myndarskap.
Varnir gegn
hryðjuverkum
Þegar athugað er annað atriðið
í ræðu ráðherra, varnir gegn
hryðjuverkamönnum, er erfiðara að
gera grein fyrir ástandi mála. Fyrst
ber að hafa í huga að hryðjuverka-
menn geta bæði komið erlendis frá
og ekki síður innan frá, úr hópi
þegna viðkomandi ríkis, eins og
mörg dæmi sanna.
Við höfum enga formlega örygg-
islögreglu eða öryggislögregludeild,
samanber FBI í Bandaríkjunum og
MI6 í Bretlandi, sem hefur skýrt
og skorinort það hlutverk að gæta
innra öryggis ríkisins. Það liggur
því í skilgreiningu á hlutverki ís-
lensku löggæslunnar að hún er eini
aðilinn sem nú hefur það hlutverk
að gæta innra öryggis íslenska rík-
isins að svo miklu leyti sem slíkt
öryggi er skilgreint.
Það em ákveðin atriði sem stað-
festa ofansagt. í fyrsta lagi em,
ef svo má segja, okkar íslensku
landamæraverðir, útlendingaeftir-
litið, deild innan lögreglustjóraemb-
ættisins í Reykjavík, sem vinnur sín
störf í samvinnu við tollgæsluna
ellegar lögregluyfirvöld á viðkom-
andi stað.
Má segja að öll lögreglan sé í
eðli sínu útlendingaeftirlit. Virk og
öflug starfsemi útlendinga- og
vegabréfaeftirlits er talin ein, ef
ekki mikilvægasta forvömin I bar-
áttu við hryðjuverkaöfl.
Samgöngur hafa gert fjarlægð
og einangmn íslands frá atburðarás
alþjóðastjómmálanna að engu.
Festa í starfí útlendingaeftirlitsins
hlýtur því að vera_ forsenda árang-
ursríks starfs. En íslendingar verða
að hafa í huga að strendur landsins
em langar og óvarðar og því ekki
erfítt að komast hér á land ef svo
ber undir. Til dæmis koma hér
mörg farþegaskip árlega sem em
eftirlitslaus, en þá er það vandamál-
ið hversu langt skal gengið í eftir-
liti án þess að slíkt hafí öfug áhrif.
Áætlanir um vamir vegna flug-
rána em fyrir hendi á Keflavíkur-
flugvelli. Þær em í verkahring
löggæslu flugvallarins, sem lýtur
stjóm vamarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins.
Þess má og geta í þessu sam-
bandi að til er nefnd um vamir
gegn flugránum. Nefndin heyrir
undir samgönguráðuneytið og er
ætlað það hlutverk að annast skipu-
lag og samræmingu aðgerða. Er
það í samræmi við samþykktir um
alþjóðaflugmál. Hins vegar er engin
öryggisgæsla á þeim flugvöllum
sem þjóna innanlandsflugi. Reykja-
víkurflugvöllur, sem þjónar inn-
lendu og erlendu flugi, býr við afar
lélega öryggisgæslu.
Föst samskipti em síðan við
alþjóðalögreglustofnunina, Inter-
pol. En Interpol sendir hingað ýms-
Þórður Ægir Óskarsson flytur erindi sitt á ráðstefnu Varðbergs og SVS. Við háborð sitja frá vinstri:
Sigurður M. Magnússon, kjarneðlisfræðingur, Hreinn Loftsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, og
Gunnar Jóhann Birgisson, formaður Varðbergs.
ar upplýsingar er varðað geta innra
öryggi landsins.
Síðast en ekki síst er rétt að
ræða hér sérsveit lögregluembætt-
isins í Reykjavík. Það er mikilvægt
að hafa það í huga að sérsveit
þessari var ekki beinlínis komið á
fót í því augnamiði að gæta innra
öryggis, nema þá í þeim skilningi
sem lesa má í skilgreiningu á hlut-
verki löggæslunnar almennt.
Stofnun sveitarinnar má rekja til
innra mats lögreglustjórans í
Reykjavík á þörf þess að koma upp
sérþjálfaðri sveit lögreglumanna til
að fást við sérstaklega erfíða lög-
gæslu, s.s. vopnaða menn og erfið
björgunarstörf.
í reynd segir þetta 'okkur að
kæmi til hryðjuverka á íslandi þá
yrði það augljóslega hlutverk sér-
sveitarinnar að glíma við þann
vanda. Að öllu jöfnu starfa félagar
í sveitinni við almenn löggæslustörf.
Fleiri atriði má tína til varðandi
virkar aðgerðir sem miða að eflingu
innra öryggis. Á allra vitorði er að
komið hefur verið upp öryggiskerfi
til vamar forsetabústaðnum á
Bessastöðum, og raunar veit alþjóð
hvemig það virkar, ef blaðafregnir
af útköllum lögreglu í Hafnarfirði
vegna bilunar í kerfínu em réttar.
Ennfremur liggur fyrir að til hafa
verið lengi einhveijar áætlanir um
öryggisgæslu ráðamanna og lög-
reglustjóra hefur verið falið af for-
sætisráðherra að gera frekari tillög-
ur um öryggisgæslu opinberra
starfsmanna.
Umsvif sendiráða
Varðandi þriðja þáttinn sem
utanríkisráðherra lagði áherslu á,
þ.e. viðbúnaður gegn hvers kyns
starfsemi sem miðar að því að grafa
undan öryggi eða sjálfstæði lands-
ins, þá er fátt sem benda má á sem
staðfestingu á núverandi ástandi.
Enga höfum við leyniþjónustuna
né gagnnjósnadeildina.
Umsvif erlendra sendiráða hafa
um langan tíma verið ótakmörkuð.
Á sl. ári, nánar tiltekið 13. júní
1985, samþykkti Alþingi þings-
ályktunartillögu sem kveður á um
að áhersla verði lögð á að umsvif
erlendra sendiráða séu jafnan innan
hæfílegra marka og þá í anda Vín-
arsamningsins frá 1961 þar að lút-
andi.
En sá samningur fjallar um
stjómmálasambönd ríkja. Enn-
fremur hafði 1980 verið breytt eldri
lögum um eignar- og afnotarétt
fasteigna og sett sú regla um fast-
eignakaup sendiráða að þau væru
háð samþykki dómsmálaráðherra.
Ofangreint em fyrstu tilburðimir
til að koma á einhveiju eftirliti með
starfsemi erlendra sendiráða. Efast
enginn um nauðsyn þess, eins og
samhljóða vilji alþingismanna sýnir.
Útþensla sendiráða hérlendis, eins
og þess sovéska, án þess að nokkur
eðlileg skýring finnist þar á, og svo
hins vegar takmarkanir á t.d. ferða-
frelsi íslenskra sendiráðsmanna í
Moskvu gefa okkur sterka vís-
bendingu um þörfína á virku eftir-
liti. Og til þess þarf óneitanlega
þjálfaðan mannskap. Mjög lítið
eftirlit hefur verið með skipaferðum
hér við land, svo og starfsemi er-
lendra rannsóknarleiðangra á landi
og við landið. Vaxandi aðhald hefur
þó verið í þessum málum á síðustu
ámm.
Það gildir sama um eftirlit með
þessum þáttum og með umsvifum
sendiráða og starfsmanna þeirra,
að eftirlitið kallar á sérhæft starfs-
lið og tæknibúnað. \
Stofnanir og tölvur
Menn hafa einnig bent á nauðsyn
skipulegrar gæslu á mikilvægum
stofnunum og orkuvemm. Um slíka
gæslu hefur ekkert verið hirt og
því nauðsynlegt að bæta þar úr.
Loks má leiða hugann að öðmm
atriðum sem snerta innri öryggis-
gæslu og varða tölvuvæðinguna hér
á landi. Hvers kyns gagnavinnsla í
tölvum hefur skapað enn eina vídd-
ina í innri öryggsmálum. Óhemju
magn af gögnum hins opinbera er
þegar komið í véltækt form og mun
það ömgglega margfaldast á kom-