Morgunblaðið - 08.04.1986, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
Afganistan:
Stórsókn
gegn
skærulið-
um hafin
Islamabad. AP.
UM PIMM þúsund sovéskir her-
menn og afganskir stjómar-
hermenn réðust í gær á bæki-
stöðvar skæruliða víða í suðaust-
urhluta Afganistan og höfðu til
stuðnings orrustuþotur og þyrl-
ur, að því er haft var eftir skæru-
liðaforingjum í Pakistan.
Að sögn voru a.m.k. 100 skæru-
liðar vegnir og tugir særðir. Stór
bækistöð skæruliða í héraðinu
Kunar varð fyrir árás sprengjuþota
og stórskotaliðs og var lífið murkað
úr 50 skæruliðum. í héraðinu Pakt-
ia létust 52 og var búist við fregnum
af frekara mannfalli skæruliða
annars staðar.
Foringjar skæruliða sögðu að
þeir hefðu fellt fjölda sovéskra og
afganskra hermanna.
Ríkisstjómin í Pakistan sakaði
Afgana um að gera árásir yfír
landamæri sín og krafðist þess að
slíkum árásum yrði hætt.
Einn skæruliðaforingi heldur því
fram að Afganar hefji sókn svo
snemma árs til þess að loka birgða-
leiðum til skæruliða á þeim tíma,
sem skæruliðar snúa aftur til Afg-
anistan eftir að hafa haft vetursetu
í Pakistan.
ERLENT
Mannránum mótmælt
AP/Símamynd
Starfsmenn Rauða krossins í Líbanon fóru í gær i sólarhringsverkfall tíl að mótmæla ráni á þremur
starfsmönnum Rauða krossins, sem allir voru kristnir. Mynd þessi var tekin fyrir utan stöðvar
Rauða krossins í Beirút í gær og sýnir hluta þeirra, sem tóku þátt í verkfallinu. En þetta voru
ekki einu mannránin í Líbanon um helgina. Tveir brezkir kennarar við bandaríska háskólann i
Beirút hurfu og er talið, að einnig þeim hafi verið rænt.
Verkföll og -bönn
vofa yfir í Svíþjóð
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
MIKIÐ verkfall er nú yfirvofandi
í Sviþjóð og í gærkvöldi höfnuðu
starfsmenn einkafyrirtækja
sáttatillögu, sem lögð var fram
fyrr um daginn. 18.000 starfs-
menn einkafyrirtækja fara i
verkfall á hádegi í dag takist
samningar ekki.
Á n.iðvikudag hefst verkbann,
sem sænska vinnuveitendasam-
„Sama þótt ég verði
kölluð einræðisherra“
segir Corazon Aquino og hótar hörðu
Manila. AP.
CORAZON Aquino, forseti
Filippseyja, sagði í viðtali, sem
birt var í gær, að hún myndi sýna
hverjum þeim ráðherra, er reyndi
að misnota vald sitt, sömu hörku
og karlmaður myndi gera.
Hún kvaðst einnig ætla að upp-
ræta allar leifar einræðis forvera
síns, Marcosan „Þeir geta kallað
mig hvað sem er og mér stendur á
sama þótt ég verði kölluð einræðis-
herra, en ég er ákveðin í að endur-
reisa lýðræðið í landi okkar og ég
er staðráðin í að láta það ekki mis-
takast," sagði Aquino.
Caspar Weinberger, vamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, ræddi við
Aquino á mánudag og sagði eftir
fundinn að Bandaríkjamenn mjmdu
leggja meiri áherslu á efnahags- en
hemaðaraðstoð við Filippseyjar.
Hinn nýi viðskiptaráðherra Filipps-
eyja, Jaime Ongpin, sagði í dag að
Filippseyingar þyrftu 100 milljónir
dollara til viðbótar í fjárhagsaðstoð
og 580 milljónir dollara að láni til
að forðast kreppuástand.
Salvador Laurel, varaforseti
Filippseyja, sagði í gær að Ferdinand
E. Marcos, fyrmrn forseta, yrði leyft
að snúa aftur til Filippseyja þegar
jafnvægi kæmist á stjómmála-
ástandið í landinu. Marcos sagði á
sunnudag að sín æðsta ósk væri að
snúa heim.
bandið setti á, og verða 300.000
starfsmenn frá vinnu vegna þess.
Stéttarfélag starfsmanna einkafyr-
irtækja ætlar að svara verkbanninu
með verkfalli 50.000 félaga sinna.
Sænska alþýðusambandið og
sænska vinnuveitendasambandið
munu að öllum líkindum bíða með
að skrifa undir samning til tveggja
ára þar til áðumefndum vinnudeil-
um hefur verið skotið á frest eða
þær leystar.
Vinnuveitendasambandið heldur
því fram að gangur efnahagsmála
muni auka kaupmátt og það muni
vega upp á móti litlum launahækk-
unum. Alþýðusambandið hefur sýnt
þessu skilning, en stéttarféiag
starfsmanna einkafyrirtækja segir
yfirlýsingar vinnuveitendsapia-
bandsins út í hött. Stéttarfélag
starfsmanna einkafyrirtækja hefur
fordæmt áskorun vinnuveitenda-
sambandsins til ófélagsbundinna
starfsmanna sinna um að vinna
þrátt fyrir verkfall og hefur krafist
þess að sambandið biðjist afsökunar
opinberiega til að samningaviðræð-
ur geti hafist á ný.
Líbýskur valdamaður vill
átök við Bandaríkjamenn
Aþena/Beirút/Trfpólí/Berlín/Washington. AP.
NÆSTÆÐSTI embættismaður Líbýu, Abdul-Salam Jalloud, majór,
skoraði á Libýumenn að halda áfram átökum við Bandaríkjamenn og
sagði í ræðu yfir rúmlega 70 þúsund ungmennum: „Það er ekki nóg
að segjast ætla að beijast við Bandaríkjamenn, við verðum að láta
verkin tala. Við erum reiðubúnir til að deyja.“ Líbönsk öfgasamtök
lýstu því yfir í gær að hefjast myndi sprengingafaraldur í ítölskum
borgum, ef tveir Líbanir, sem eru i haldi á ítaliu fyrir hryðjuverk,
yrðu ekki látnir lausir.
Ronald Reagan, Bandaríkjafor-
seti, íhugar nú hvort hann eigi að láta
til skarar skríða gegn Líbýumönnum
eftir sprengingarnar í diskóteki í
Vestur-Berlín um helgina og í far-
þegaflugvél bandaríska flugfélagsins
Trans World Airlines. Sendiherra
Bandaríkjamanna í Vestur-Þýska-
landi, Richard Burt, sagði í gær að
ýmislegt benti til aðildar Líbýumanna
að sprengingunni í Vestur-Berlín, en
helsti sérfræðingur bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins sagði að grun-
semdir lægju fyrir en engar sannanir.
Lögreglan í Berlín segir að sér
hafi ekkert orðið ágengt í rannsókn-
inni á hryðjuverkinu. Hún hefur nú
yfirheyrt 145 manns og fengið vís-
bendingar frá um 100 manns. Tveir
létust í sprengingunni i diskótekinu
og 193 særðust. Lögreglan útilokar
ekki að hryðjuverkamenn frá araba-
löndunum standi að baki sprengjutil-
ræðinu þar sem bandarískir hermenn
eru tíðir gestir á diskótekinu.
Grísk yfírvöld vilja yfirheyra May
Elias Manssour, libanska konu, sem
grunuð er um að hafa komið fyrir
sprengju um borð í TWA-farþegaþot-
unni. Manssour sagði í viðtali í Trí-
pólí í Líbanon að hún hefði hreinan
skjöld, en haft er eftir grískum heim-
ildarmönnum að grunur beinist fyrst
og fremst að henni.
William Casey, yfirmaður banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA, sagði
í ræðu á sunnudag að bandaríska
leyniþjónustan væri nú að efla sam-
starf við leyniþjónustur ísraela og
hófsamra arabískra rlkja. Casey
sakaði Sovétmenn einnig um að hafa
átt þátt í að steypa Ali Nasser
Mohammed, fyrrum forseta Suður-
Jemen, af stóli á síðasta ári. Casey
sagði einnig að hryðjuverk, sem
Líbýumenn og Sýrlendingar styddu,
tengdust víðtækri herferð Sovét-
manna til að grafa undan banda-
mönnum Bandaríkjamanna um heim
allan.
Olíufatið
átæpa 14
dollara
London. AP.
VERÐ á oliufati af breska
Brent-svæðinu í Norðursjó
hækkaði S gær vegna þess að öll
starfsemi á norskum olíuborpöll-
um lá niðrí vegna verkfalls.
Fatið af Brent-hráolíu kostaði seint
í dag 13,85 dollara og hafði hækkað
um 1,60 dollara síðan á föstudag.
Verkfallið í Noregi hefur í för með
sér að daglegt framboð hráolíu á
mörkuðum minnkar um miljón föt.
Sprenging í Stokkhólmi
Stokkhólmi. AP.
SPRENGJA sprakk fyrir utan skrif-
stofu bandaríska flugfélagsins
Northwest Orient Airlines í miðborg
Stokkhólms klukkan 19:30 í gær-
kvöldi. Engan sakaði og voru
skemmdir litlar. Sprengjunni var
komið fyrir í bakpoka að sögn lög-
reglu og hefur enginn lýst yfir
ábyrgð á verknaðinum.
Slitnar upp ór Conta-
dora-viðræðum
Panamaborg. AP.
FRIÐARFUNDUR utanríkisráð-
herra þrettán ríkja rómönsku
Ameríku í Panama fór út um þúfur
í gærkvöldi. Ráðherrar E1 Salvador,
Costa Rica, Honduras og Guate-
mala kenndu Nicaragua um að
slitnaði upp úr viðræðunum og
sögðu að fulltrúi Nicaragua hefði
neitað að sætta sig við að skrifa
undir friðarsamninginn 6. júní í síð-
asta lagi. Viðræður þessar er
kenndar við Contadora-ríkin.
Lögreglumenn
slasast
London. AP.
TÍU lögreglumenn slösuðust, tveir
alvarlega, í átökum við prentara,
sem misstu vinnu er hafin var fram-
leiðsla blaða Ruperts Murdoch í
nýju blaðahúsi. Til átaka kom við
blaðahúsið í gærmorgun og eru þau
hinu verstu frá því starfsemi hófst
þar. Þúsundir manna tóku þátt í
mótmælum prentara. Tuttugu
menn voru handteknir og verða 17
þeirra ákærðir.
Ráðist á n-írska
lögreglumcnn
Belfast. AP.
NORÐUR-írska lögreglan varð í
gær fyrir árásum öfgamanna úr
röðum kaþólskra íbúa og mót-
mælatrúar. Er það sjöundi dagurinn
í röð, sem öfgamenn á N-Irlandi
leggja til atlögu gegn lögreglu-
mönnum. Liðsmenn IRA særðu
lögreglumann lífshættulega er þeir
gerðu árás á leigubíl, sem lögreglu-
þjónar voru í. Engan sakaði er
menn úr röðum mótmælenda réðust
á heimili sex lögreglumanna í dag,
en mikið tjón var unnið á húsakynn-
um.
Bonner biður Kohl
um aðstoð
Bonn. AP.
YELENA Bonner, eiginkona
sovézka andófsmannsins Andreis
Sakharov, hefur skrifað Helmut
Kohl, kanzlara V-Þýzkalands, og
beðið hann um aðstoð í máli Sakh-
arovs. Bonner segir Sakharov þjak-
aðan í útlegðinni í Gorkí, en þangað
var hann sendur eftir að hafa
gagnrýnt innrás Sovétmanna f
Afganistan 1980. Hún segirástand-
ið ekki muni batna er hún snýr
aftur til Sovétríkjanna eftir læknis-
meðferð í Bandaríkjunum nema til
komi aðstoð útlendra ríkja.