Morgunblaðið - 08.04.1986, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
Olíuverkfallið í Noregi:
Tapið 1,5 millj-
arðar daglega
Osló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
TALIÐ ER að tap Norðmanna vegna verkfalls starfsfólks mötuneyta
á borpöllum í Norðursjó nemi 250 milljónum króna á degi hveijum,
eða jafnvirði 1500 milljóna ísl. króna. Tap ríkissjóðs vegna tapaðra
skatttekna nemur 130 milljónum norskra króna á dag.
Olíuvinnsla Norðmanna liggur
nú niðri þar sem 670 starfsmenn
mötuneyta hófu verkfall á sunnu-
dag. Olíufyrirtækin settu verkbann
á aðra starfsmenn, sem eru 3.500
talsins. Verkfallsmenn krefjast 28%
launahækkana. Árslaun þeirra
nema að meðaltali 165 þúsund
krónum, eða milljón ísl. kr., en peir
vilja fá sömu laun og bormenn,
rafvirkjar og röramenn, sem hafa
um 230 þúsund í árstekjur, eða um
1350 þúsund ísl.kr.
Ríkisstjómin vill ekki skerast í
leikinn eins og gert hefur verið
jafnan áður þegar komið hefur til
vinnudeilna á borpöllunum. Stéttar-
félag verkfallsmanna, CAF, á ekki
gilda verkfallssjóði en félagið hefur
komizt að samkomulagi við Bergen
Bank, sem fallizt hefur á að veita
hverjum verkfallsmanni allt að 10
þúsund norskra króna yfirdráttar-
heimild, eða 58 þúsund ísl. kr.
meðan á deilunni stendur.
Átökin yfir Sidra-flóa:
Tóku sovéskir hern-
aðarráðgjafar þátt í
eldflaugaskotunum?
Tripólí, Líbýu. AP.
SOVÉSKIR hemaðarráðgjafar
kunna að hafa aðstoðað líbýska
herinn við að skjóta SA-5 flug-
skeytum að bandarískum orr-
ustuþotum, þegar til átaka kom
yfir Sidra-flóa í síðasta mánuði,
að því er vestrænn sendifulltrúi
sagði á sunnudag.
Sendifulltrúinn, sem vildi ekki
láta nafns síns getið, tjáði AP-
fréttastofunni einnig í viðtali, að
Blaðamannaf undur
í geimnum
Moskvu. AP.
SOVÉZKIR geimfarar um borð í
MIR-geimvísindastööinni héldu
blaðamannafund í geimnum og í
tilkynningu sem þeir sendu frá sér
við það tækifæri hvöttu þeir Banda-
ríkjamenn til þess að hætta þegar
í stað kjamorkutilraunum. Þeir ítr-
ekuðu einnig fyrri yfirlýsingar yfir-
valda í Kreml um að rannsóknir í
geimstöðinni hefðu engan hemað-
arlegan tilgang.
Stórglæpamaður
gómaður
Bombay. AP.
CHARLES Sobhraj, einvher ill-
ræmdasti glæpamaður Asíu, var
handtekinn í gær þar sem hann sat
að bjórdrykkkju á 42. afmælisdegi
sínum í kaffíhúsi í baðstrandar-
bænum Goa. Honum tókst að flýja
úr Tihar-fangelsinu í Delhí, sem er
mjög rammgert, fyrir þremur vik-
um. Hann verður framseldur til
Thailands þar sem hann er eftirlýst-
ur fyrir mörg mannsmorð og eitur-
lyfjasmygl.
það væri „alveg hugsanlegt", að
sovéskir ráðgjafar hefðu verið
meðal þeirra, sem féllu, er Banda-
ríkjamenn gerðu árásir á eldflauga-
skotpallinn við Sirte-borg 24. og
25. mars.
Utvarpsstöð kristinna manna í
Líbanon sagði í fréttaútsendingu,
að 12 Sovétmenn hefðu látið lífíð í
árásunum. Líbýumenn hafa ekkert
látið frá sér fara um mannfailið þar.
Sendifulitrúinn sagði, að Sovét-
mehn kynnu að hafa tekið þátt í
að skjóta eldflaugunum að banda-
rísku flugvélunum, og það væri
alkunna, að sovéskir ráðgjafar
hefðu þjálfað LJbýumenn í notkun
þessara vopna.
Lík sex lögreglumanna, sem ofbeldismenn síkha skutu til bana í Punjab á laugardag. Ofbeldismennirnir
réðust á dómshús og tókst að frelsa þijá félaga sina, sem hafðir voru þar í haldi vegna morðs á rit-
stjóra. I árásinni á dómshúsið féllu sex lögreglumenn. AP/Símamynd
Lögreglan óttast
blóðbað í Punjab
Jalandhnr. InrllnnHí AP
Jalandhar, Indlandi. AP.
J.F. REBIERO, hinn nýi lög-
reglustjóri í Punjab-ríki, hótaði
í gær að grípa til harðra gagnað-
gerða gegn hryðjuverkastarf-
semi í ríkinu, en hann sagði
lögregluna eiga i útistöðum við
„snarvitlausa bijálæðinga“.
Rebiero kvaðst óttast ný átök og
spáði því að ofbeldismennimir létu
til skarar skríða í næstu viku. Hann
kvaðst óttast að þá kæmi til mikils
blóðbaðs. Hann sagði lögregluna
eiga við að etja andstöðu við að-
gerðir innan sinna eigin raða þar
sem öfgamennimir ættu samúð
hóps lögreglumanna.
Það sem af er april hafa á annan
tug manna beðið bana í ofbeldisað-
gerðum í Punjab. í marz biðu á
annað hundrað manns bana í átök-
Erfið sljórnarkreppa í ísrael:
Peres krefst afsagnar
fjármálaráðherra síns
Jerúsalem. AP.
SHIMON PERES, forsætisráð-
herra, krafðizt þess í gær, mánu-
dag, að fjármálaráðherra stjórn-
arinnar segði af sér, en talið er
að þessi ákvörðun Peresar kunni
jafnvel að valda stjórnarslitum.
Yitzhak Shamir, utanríkisráð-
herra, leiðtogi Likud-bandalagsins,
ræddi við Peres í hálftíma af þessu
tilefni. Shamir neitaði að verða við
kröfu Peresar um að Yitzhak Modai,
sem er úr Likud, yrði látinn víkja
úr stjóm.
Helzti aðstoðarmaður Shamirs
sagði í gærkvöldi að ef Modai yrði
vikið úr stjóm yrðu dagar hennar
þar með taldir. Hann sagði stjómar-
kreppuna nú þá alvarlegustu frá
myndun samsteypustjómarinnar í
september 1985.
Dirfska í jrfírlýsingum Modai í
íjölmiðlum nýverið er sögð hafa
orsakað stjómarkreppuna. Modai
sagði m.a. að Peres væri „ferða-
glaður forsætisráðherra sem skildi
ekki efnahagsmál".
Uzi Baram, framkvæmdastjóri
Verkamannaflokksins, flokks Per-
esar, sakaði Modai í gær um rógs-
herferð gegn Peres vegna áforma
Peresar um að koma skuldum vöfn-
um stórfyrirtækjum til aðstoðar.
Hrun blasir við fyrirtækjunum ef
ekkert verður að gert. Baram sagði
Modai hafa farið hamförum eftir
að Peres tók þá ákvörðun að að-
stoða fyrirtækin.
um hindúa og síkha og í bardögum
öfgamanna og lögreglu. Rúmlega
30 þúsund fallhlífarhermenn hafa
verið sendir til Punjab þar sem þeir
eru í viðbragðsstöðu. Þær hersveit-
ir, sem eru fyrir í ríkinu, em einnig
í viðbragðsstöðu. Þá era um 60.000
lögreglumenn ríkisins viðbúnir
átökum.
Rebiero sagði ofbeldisaðgerðim-
ar skipulagðar og þeim stjómað
frá Gullna hofínu í Amritsar. Hofíð
væri „virki öfgamanna", sem hefð-
ust þar við í tugatali með velþóknun
yfírmanna hofsins. Hann sagði það
myndu auðvelda að kveða ofbeldis-
aðgerðimar niður að ráðast inn í
hofíð og hrekja þaðan út nokkur
hundrað menn. Hins vegar væri
enginn vilji hjá Iögreglunni til að-
gerða af því tagi. Á meðan hefðu
ofbeldismennimir ákveðið forskot á
lögregluna.
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, sagði í dag að ofbeldis-
verkin í Punjab og átök hindúa og
sikha þar stefndu indverska ríkinu
í voða. Að baki verkunum stæðu
aðilar, sem stefndu að því að ijúfa
samheldni indversku þjóðarinnar.
Punjab væri peð f tafli þeirra.
Hvatti hann þjóðina til að segja
öfgamönnum friðsælt stríð á hend-
ur.
VIÐ FLYTJOM OKKCIR OM SET
OG FÁCIM NÝTT SÍMANÚMER: 68-85-80
^ >9'e
Skipholt 50c
Tónabíó
Við höfum opnað á nýjum stað að Skipholti 50c,
gegnt Tónabíói. Við munum áfram keppast við að
veita sem besta þjónustu og bjóðum eldri viðskipta-
vini sérstaklega velkomna á nýja staðinn. Snyrtifr-
æðingurinn María Kristmanns hefur nú gengið til
liðs við okkur og mun því stofan hér eftir heita
Hárgreiðslu- og snyrtistofan Safír.
Verið velkomin
FÍSF
Laugavegur
Hárgreiðslu- og
snyrtistofan
>Safí
ir