Morgunblaðið - 08.04.1986, Qupperneq 31
_____________________________________MORGU NBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
Samráðsfundur landshlutasamtaka í ferðamálum: |“
31
Varað er við niður-
skurði til ferðamála
Selfossi.
LANDSHLUTASAMTÖK í ferðamálum héldu árleg-an samráðsfund
sinn 15. mars í Inghóli á Selfossi. Fundinn sóttu fulltrúar lands-
hlutasamtaka og fluttu þar erindi um starfsemi samtakanna á hverj-
um stað. Gestir fundarins voru Kjartan Lárusson og Birgir Þorgils-
son frá Ferðamálaráði.
I máli fulltrúa landshlutasam-
taka kom fram að þau hafa unnið
brautryðjendastarf hvert í sínum
landshluta, við að kynna ferðamál
með útgáfu kynningarrita og á
annan hátt.
Á fundinum voru samþykktar
eftirfarandi ályktanir:
Ferðamálaráð hlutist til um að
ávallt séu til sameiginlegir bækling-
ar, í fyrsta lagi fyrir erlenda ferða-
menn til að laða þá að landinu og
í öðru lagi fyrir innlenda ferðamenn
sem erlenda til leiðbeininga og
upplýsinga á ferð þeirra um landið.
Skorað er á Ferðamálaráð að
athuga með hvaða hætti hægt er
að gæðamerkja þau rit um ferða-
mál sem gefin eru út af einkaaðil-
um. Gæðamerkingu þessari skal
einungis dreift til aðila ferðamála-
ráðs.
Fundurinn telur brýnt að upplýs-
ingamiðstöð fyrir ferðamenn verði
komið upp í Reykjavík sem fyrst
undir yfirstjóm ferðamálasamtaka
Reykjavíkurborgar og Ferðamála-
ráðs íslands. Fundurinn gerir þá
kröfu til ríkisvaldsins að Ferða-
málaráð fái lögbundnar fjárveiting-
ar þannig að ráðinu verði m.a. gert
kleift að taka þátt í þessu samstarfí.
Skorað er á Alþingi að sam-
þykkja tillögu til þingsályktunar á
þingskjali 531 um úrbætur í ferða-
þjónustu.
Samráðsfundurinn skorar á Al-
þingi og ríkissjóð að tryggja Ferða-
málaráði íslands þær tekjur til
uppbyggingar ferðamála sem lög
gera ráð fyrir. Niðurskurður er til
þess eins fallinn að draga úr þeirri
þróun í ferðamálum sem nú er hafín
á landsbyggðinni.
Sig.Jóns.
NYTT ERLENT
NÁMSKEIÐ
fenrnýja
Leiöbeinandi er David Rance sálfræóingur, ráðgjafi í
stjórnun hjá mörgum stórfyrirtækjum, m. a. Esso og
Carreras Rothmans, þekktum breskum ráögjafa- og lög-
fræóifyrirtækjum. Hann hefur einnig kennt viö Cornell
háskóla í Bandaríkjunum.
Þeir sem valdir eru í stjórnunarstörf vegna
hæfni á sínu sérsviói og leiðtogahæfileika
finna iöulega til þess aö góó sérþekking og
hæfileikar nægja aöeins að vissu marki. Stjórn-
un er sérstakt fag sem nauðsynlegt er að kynna
sér bæði bóklega og meö hjálp sérfræðings
með reynslu (faginu.__________________
Námskeiðið [Stjórnun fyrir nýja stjórnendur|er
ætlað þeim, sem hafa hug á eöa hafa nýverið
tekið við stjórnunarstörfum.
Markmiö námskeiðsins er að auðvelda þátt-
takendum að ná sem fyrst afköstum í samræmi
vió hæfni. Áhersla er lögö á hlutverk stjórn-
andans innan fyrirtækisins, starfsmannastjórn-
un, hópstarf og hvatningu.
□
Efni namskeiðsins:
□ Stjórnun almennt
□ Að velja sér stjórnunarstll
□ Stjórnun eftir markmiðum (MBO)
□ Að hvetja undirmenn til dáöa/mannlegi
þátturinn
□ Árangursrlk tengsl innan fyrirtækisins
□ Uppbygging árangursríkra samstarfs-
hópa
Tími og staöur: 15.-16. aprll kl. 9.00-17.00,
Hótel Loftleiðir.
□ Starfsdelling: Lykillinn aö árangurs-
ríkri stjórnun
Fyrirtækið og starfsemi innan þess
□ Að mæla og stýra frammistöðu
O Lausn vandamála og árangursrfk
ákvarðanataka
□ Stjórnun elgin tlma
Stjórnunarfélag islands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
Alþjóðlegur fjármagns-
markaður og Islands
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
heldur hádegisverðarfund um þróun á al-
þjóðlegum fjármagnsmarkaði og þýðing
hennar fyrir íslenskan fjármagnsmarkað og
fyrirtæki.
Fyrirlesari verður Harald J.H. Collet, banka-
stjóri hjá Hambros Bank Limited. Mr. Collet
mun Qalla um stöðu og þróun á alþjóðaíjár-
magnsmarkaði með sérstöku tiliti til ís-
lands.
Meðal efnis má nefna:
— Staða íslands á alþjóðlegum fjármagns-
markaði.
— Þróun á alþjóðlegum fjármagnsmarkaði s.s.
viðhorf gagnvart áhættu og nýjar fjármögn-
unarleiðir.
— Þýðing hinnar alþjóðlegu þróunar fyrir ís-
lenskan fjármagnsmarkað og fyrirtæki.
Fundurinn verðtu- haldinn í Þingholti á Hótel
Holti, þriðjudaginn 8. apríl kl. 12.00.
Félag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga.
Frá rekstri til
einkarekstrar
— 22 aðferðir sem duga —
Dr. Eamonn Butler, framkvæmdastjóri Adam
Smith Institute í London, heldur fyrirlestur um
ofangreint efni á morgunverðarfundi
Landsnefndar Alþjóða verzlunarráðsins í
ÁTTHAGASALHÓTELSÖGU
FIMMTUDAGINN 10. APRÍL KL. 8.30.
Dagskrá:
8:30 — 8:45 Mæting og morgunverður.
8:45 — 9:15 Erindi Dr. Eamonn Butler
„Frá ríkisrekstri til einkarekstrar“.
* Ný hugmyndafræði til að draga úr
ríkisrekstri, sem felur í sér meira
en sölu ríkisfyrirtækja.
* Hverjar eru þessar 22 aðferðir?
* Hver hefur árangurinn orðið í
Evrópu þar sem nýjum aðferðum
er beitt til að draga úr ríkisrekstri
og um leið ríkisútgjöldum.
9:15 — 10:00 Umræðurogfyrirspurnir.
Allir velkomnir
Morgunverður kostar kr. 450.-
Vinsamlega tilkynnið þátttöku
í síma 83088.
LANDSNEFND
ALÞJÖÐA VERZLUNARRÁÐSINS
Icelomd National Committeo oi the ICC