Morgunblaðið - 08.04.1986, Side 32

Morgunblaðið - 08.04.1986, Side 32
32 MORGUNBLADIÐ, ÞRIDJUDAGUR 8. APRÍL1986 Frumvarp fjármálaráðherra: Einkaaðilar fái aðframleiða áfenga drykki I GÆR lagði fjármálaráðherra fram á Alþingi stjórnarfrum- varp, sem gerir ráð fyrir því að einkaaðilum hér á landi verði heimilt að framleiða áfenga drykki, enda sé slík framleiðsla ætluð tíl útflutnings eða til sölu í útsölum Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins. Áfengisversl- uninni verður heimilt, að gerast eignaraðili að fyrirtækjum, sem leyfi fá til að framleiða áfengi. í greinargerð með frumvarpinu kemur fram, að samkvæmt núgild- andi lögum um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf er Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins einni heimilt að framleiða áfenga drykki hér á landi. Þetta einkaleyfí hafi í för með sér, að einstaklingar eða fyrir- tæki geti ekki framleitt áfenga drykki með útflutning í huga og semi dæmi um afieiðingu af þessu banni megi nefna að íslenskt fyrir- tæki láti framleiða vodka fyrir sig í Stóra-Bretlandi. Orðrétt segir síðan í greinargerð- inni: „Þetta vodka er framleitt skv. íslenskri uppskrift og er öll vöru- hönnun og þróun íslensk. Vodkað er síðan flutt til landsins og selt í útsölum Áfengis- og tóbaksverslun- ar ríkisins. Umrætt fyrirtæki hefur m.a. áhuga á að koma vöru sinni á Bandaríkjamarkað, eri þar sem hún er ekki framleidd á íslandi er ekki hægt að selja hana í Bandaríkjunum sem íslenska vöru. í Bandaríkjunum er talin vera mikill markaður fyrir vodka frá Norðurlöndunum. Benda má á að vodka frá Svíþjóð og Finn- landi hefur náð verulegri hlutdeild af markaðnum fyrir þá vöru f Bandaríkjunum. Á árinu 1984 nam innflutningur á vodka til Bandaríkj- anna 12.609.000 lítrum. Af þessum innflutningi var markaðshlutdeild Absolut vodka, sem er sænskt, um 30% eða um 3.782.700 lítrar. Ef fslenskt vodka næði sömu markaðs- hlutdeild, þ.e. um 30%, má ætla að útflutningstekjur af því næmu um 300 milljónum króna á ári.“ Laun sveitarstjórnarmanna: Borgarráðsmenn í Reykjavík fá 45% af þingfararkaupi BORGARRÁÐSMENN í Reykja- vík fá mánaðarlega greidd 45% af þingfararkaupi alþingis- manna fyrir störif sín. Þessi upphæð var í janúar sl. 29.764 kr. á mánuði. Aðrir borgarfull- trúar í Reykjavík fá greidd 30% af þingfararkaupi mánaðarlega og var sú upphæð í janúar 19.843 kr. Þessar upplýsingar koma fram í skriflegu svari félagsmálaráðherra við fyrirspum Kjartans Jóhanns- sonar (A.-Rn.) um laun sveita- stjómarmanna. í svari ráðherra er greint frá greiðslum til kjörinna fulltrúa í bæjarstjómum og bæjar- ráðum í 22 bæjarfélögum auk Reykjavíkur. Á tólf stöðum er um fastar mánaðargreiðslur að ræða, sem f Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði eru mismunandi hlutfall af þingfararkaupi, en á 10 stöðum er greitt fyrir hvem fund og á einum er um fastar mánaðargreiðslur að ræða auk greiðslna fyrir hvem fund. Hæstar greiðslur fyrir fundar- sókn fá bæjarstjómarmenn í Bol- ungarvík, 3.565 kr. fyrir hvem fund. Lægsta greiðsla til bæjarráðs- manna er á Seýðisfirði, 650 kr. fyrir hvem fund og lægsta greiðsla til bæjarstjómarmanna er á Eski- firði, 671 kr. fyrir hvem fund. í Kópavogi og Hafnarfirði fá bæjarráðsmenn 15.874 kr. á mán- uði og bæjarstjómarmenn 11.086. Forsetar bæjarstjóma fá 21.827 kr. og formenn bæjarráða 23.811. Endurnýjun fiskiskipastólsins: 15% hærri lán til skipasmíði innanlands en utan Öllum er ljóst að héðan af getur það ekki dregist lengi að hafist verði handa um end- umýjun fiskiskipastólsins, seg- ir í greinargerð með framvarpi til breytinga á lögum um Fisk- veiðasjóð Islands. Efni þess er að lán úr Fiskveiðasjóði til innlendra skipasmíða skuli vera 15% hærri en lán til skipa- smíða erlendis. Flutningsmenn, Halldór Blöndal (S.-Ne.), Jón Baldvin Hannibalsson (A.-Rvk.), Svavar Gestsson (Abl.-Rvk.) og Pétur Sigurðsson (S.-Rvk.), segja frumvarpið „þátt í því að skapa skipasmíða- iðnaðinum viðunandi starfs- grundvöll“. Erlendis njóta skipasmíðar op- inberra styrlga, beinna og óbeinna, segir í greinargerð. Á hinn bógin er fjármálakerfí okkar íslendinga hvergi nærri fullburða svo grípa hefur þurft til sérstakra opinberra aðgerða á sviði pen- ingamála til að tryggja rekstrarfé til samkeppnisiðnaðar. Gleggsta dæmið um það er útflutningslána- sjóður og sérstök ráðstöfun fjár- magns í lánsfjárlögum végna skipasmíðaiðnaðarins. Við innlendan skipasmíðaiðnað starfa 2500 manns víðs vegar um landið. Eitt nýjasta dæmið um tækniþróun og samkeppnishæfni íslenzks skipasmíðaiðnaðar er lenging og kassavæðing kanad- ískra skuttogara hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri. I leiðinni hafa þessir kanadísku togarar flutt héðan til heimahaga fiskikassa frá Plasteinangrun hf. og bobb- inga frá Odda hf. Sú sérhæfða verk- og tækniþekking í skipa- smíðaiðnaði, sem býr að baki framangreindra viðskipta, væri óhugsandi, ef skuttogarar hefðu ekki verið smíðaðir hér áður. Jöfnunargjald á innflutta búvöru: Vemdartollur eða neytendaskattur? Þingmenn deila um frumvarp landbúnaðarráðherra Þungur skriður var á þing- málum efri deildar í gær. Eitt stjóraarfrumvarp, fjáröflun til vegagerðar, var afgreitt til neðri deildar. Stjórnarfrumvarp um ríkisendurskoðun á vegum Al- þingis gekk til þriðju umræðu. Mælt var fyrir tveimur stjórnar- frumvörpum: 1) um útflutnings- gjald af sjávarafurðum og 2) innheimtustofnun sveitarfélaga. Eitt mál olli deilum í deildinni, frumvarp landbúnaðarráðherra um „sérstakt jöfnunargjald á innfluttar búvörur", sem getur orðið „allt að 200% gjald á toll- verð hinnar innfluttu vöru“. Jón Helgason, landbúnaðar- ráðherra, sagði m.a. að vegna náttúrufars og legu landsins væri ekki unnt að tryggja nægilegt vöru- framboð garðávaxta, grænmetis og kartaflna allt árið. Þessvegna yrði að flytja inn vöru sem þessa. í ýmsum tilfellum væri um vöru að ræða sem væri stórlega niðurgreidd í framleiðslulöndum. Innflutningur slíkrar niðurgreiddrar vöru skekkti samkeppnisstöðu innlendrar fram- leiðslu, þegar bæði innflutt og inn- lend vara væri á markaði. Vemdar- tollur við þessar aðstæður væri eðlilegur til að tryggja hinni inn- lendu framleiðslu starfsmöguleika. Stefán Benediktsson (Bj.-Rvk) sagði frumvarp þetta ganga gegn hagsmunum neytenda. Hér væri stefnt að því að koma í veg fyrir að þeir gætu notið hagræðis af innfluttri búvöru sem markaðinn vantaði og hægt væri að fá við lág? verði. Eiður Guðnason (A.-Vl.) taldi vanta nægjanlegar röksemdir fyrir þessarí nýju skattheimtu á neytend- ur. Hve háan skatt ætlar ráðherra að leggja á neytendur samkvæmt þessu frumvarpi, spurði þingmaður- inn. Jón Helgson taldi vemdartoll- inn, sem lagður væri á innflutta vöru, koma neytendum til góða í lægra verði hinnar innlendu fram- leiðslu. Ragnar Arnalds (Abl.-Nv) sagði búvöm hafa sérstöðu og lúta öðmm lögmálum í verðmyndun víð- ast í veröldinni en þegar önnur framleiðsla ætti í hlut. Ekki væri hægt að una því að niðurgreidd erlend búvara legði hliðstæða inn- lenda framleiðslu í rúst, vegna þess að offramleiðsla erlendis væri stór- lega niðurgreidd í framleiðsluríki. Þessvegna bæri að skoða þetta FRAM ER komið í efri deild Alþingis stjóraarfrumvarp um breytingu á almannatrygginga- lögunum, er miðar að því að styrkja heimahjúkrun. í greinargerð með fmmvarpinu kemur fram, að ekki hefur verið lagaheimild til þess að sjúkratrygg- ingar taki þátt í kostnaði við hjúkr- un utan stofnana. Bent er á, að veruleg þörf sé fyrir heimahjúkmn og engan veginn unnt að sinna henni frá þeim stofnunum, sem til þess em ætlaðar. Því er lagt til, að í 39. gr. stafl. c í lögum nr. 67/1971 um almannatryggingar, með síðari breytingum, verði bætt orðinu „hjúkmn", þannig að hlut- frumvarp með jákvæðu hugarfari. Öðm máli gegndi þegar önnur framleiðsla ætti í hlut, sem ekki væri boðin á „gerfiverði". Jón Magnússon (S.-Rvk.) sagði erlend ríki einkum greiða niður mjólk, kjöt og fóðurvöm; yfirleitt ekki garðávexti og grænmeti og í mun minna mæli, ef gert væri. Spumingin væri hvort hér væri verið að leggja til hærra neytenda- verð til að halda uppi óarðbærri framleiðslu? Hann kvaðst andvígur fmmvarpinu. Fmmvarpið gekk að lokinni umræðu til landbúnaðamefndar efri deiidar. verk sjúkratryggingadeildar Trygg- ingastofnunar ríkisins verði m.a. að veita styrki til æfíngameðferðar, þjálfunar eða hjúkmnar vegna af- leiðinga alvarlegra, langvinnra sjúkdóma eða slysa. Orðrétt segin „Nái fmmvarpið fram að ganga telur ráðuneytið að auknir möguleikar gefist til að sinna heimahjúkrun og að síður sé hætta á að einstakiingar þurfi á vistun á stofnunum að halda, en þar er öll hjúkmn greidd samkvæmt almannatryggingalögum. Yrði þá hægt að semja við hjúkmnarfræð- inga á sama hátt og þegar í hlut eiga læknar utan stofnana, þannig að þátttaka sjúklinga yrði bundin sömu reglum.“ Stjórnarfrumvarp: Sjúkratryggingar taki þátt í kostnaði við heimahjúkrun Þjóðfundur um nýja sljórnarskrá: Frumvarp dregið til baka Stefán Benediktsson (Bj.-Rvk.) dró frumvarp sitt og Kolbrúnar Jónsdóttur (Bj.-Ne.) til laga um þjóðfund um nýja stjóraarskrá til baka í efri deild Alþingis i gær, mánudag. Stefán sagði að ýmissa hluta vegna hafi dregizt að mæla fyrir þessu frumvarpi, sem lagt var fram eftir áramót. Stutt væri nú til þingloka og út- séð um að frumvarpið fái þá umfjöllun sem þyrfti til endan- legrar afgreiðslu. Þvi væri málið „kallað aftur“. Fmmvarp þetta var flutt á síð- asta þingi en hlaut ekki afgreiðslu. Það var síðan endurflutt sem fyrr segir. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að þjóðfundur skipaður 60 fulltrú- um, kosnum með jöfnum atkvæðis- rétti, hlutfallskosningu í núverandi kjördæmum, skuli álykta um nýja stjómarskrá fyrir lýðveldið ísland. Samkvæmt fmmvarpinu áttu kosningar til þjóðþings að fara fram síðasta laugardag í ágúst 1987. Þjóðfundur átti að koma saman 17. júní 1988 og standa i þrjá mánuði hvert sumar og Ijúka störfum innan fimm ára.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.