Morgunblaðið - 08.04.1986, Qupperneq 46
’ MO RÓUNBL A ÐID, ----------------------------------------
----:-------------— -----1— .... 1— ---——————■— - — .......t-—
Hættulegnr leikur
Staðgenglar leikara í hættuleg-
um atriðum lenda oft í erfíðleikum.
Nýlega héldu kanadískir staðgengl-
ar með sér keppni um það hver
væri djarfastur. Einn þeirra, J.R.
Beauregard, var hætt kominn þegar
hann komst ekki út úr logandi bif-
reið er hann ók. Áhorfendur héldu
í fyrstu að neyðaróp hans væru
aðeins leikur, en umsjónarmenn
keppninnar gerðu sér sem betur fer
grein fyrir að svo var ekki og hlupu
til og tókst að ná honum út lifandi
en töluvert brenndum.
Fastur inni f logandi bílnum.
Heill á húfi og ekki á því að
breyta um starf.
ERFÐAFRÆÐISÝNING Á
NÁTTÚRUFRÆÐIDEGI:
*
„EG VISSI
EKKERT“
Um erfðafræði þegar ég kom
hingað en nú er þetta orðið
svo forvitnilegt, að ég mun reyna
að fylgjast með því sem er að gerast
í þessum fræðum eins og kostur
er,“ sagði einn sýningargesta á
kynningu á erfðafræðinni sem
áhugahópur um byggingu náttúru-
fræðisafns stóð fyrir með tilstyrk
Líffræðifélags íslands.
Kynning þessi fór fram í salar-
kynnum Líffræðistofnunar Háskóla
íslands á Grensásvegi 12, hinn 23,
mars sl. Sýningin vakti athygli og
fuðuðu margir sig á því hve langt
maðurinn er kominn í þekkingu
sinni á erfðaefninu. Þá þótti fólki
afar fróðlegt og skemmtilegt að fá
sjálft að spreyta sig á ýmsu sem
tengdist erfðafræðinni og njóta við
það tilsagnar „safnvarða" sýningar-
innar, sem að þessu sinni voru
margir okkar fremstu vísindamenn
á þessu sviði.
Þetta var ellefti náttúrufræði-
dagurinn en áhugahópurinn um
byggingu náttúrufræðisafns hefur
haldið náttúrufræðidag mánaðar-
Fólki var gefinn kostur á að greina sjálft ABO-blóðflokka sína.
Margir höfðu ekki vitað blóðflokk sinn. Þær Ingibjörg Pétursdóttir
og Ragnheiður Fanndal líffræðingur, fjórða frá vinstri, aðstoða
yngri kynslóðina við greininguna.
Morgunblaðið/RAX
Framhaldsnemendur 9—12 ára dansar katalónískan (spænskan) dans með ballet ívafi. F.v. Áslaug
Gunnlaugsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Tryggvi Pétursson, Ragnhildur Scheving, Jóhanna
Ingvarsdóttir og Vilborg Kristjánsdóttir.
Danssýning í Austurbæjarbíói
Nemendadagur Ball-
etskóla Sigríðar Ár-
mann var laugardaginn
22. mars sl. Þá sýndu
nemendur skólans dans
í Austurbæjarbíói við
góðar undirtektir. Á
dagskrá voru 13 dans-
atriði og voru það allt
misrnunandi dansar.
Nemendadagurinn, er
haldinn til að sýna ár-
angurinn af starfi vetr-
arins, jafnframt því sem
það er gott fyrir nem-
enduma að venjast við
að koma fram á sviði.
Þetta er í 5. skipti sem
nemendadagurinn er
haldinn hjá Ballettskóla
Sigríðar Armann._____
F'ramhaldsnemendur 8—10 ára dansa fuglabúrsdans við músík eftir
Strauss. F.v. Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir, Steinunn Vala Helgadóttir,
Guðrún Sesilia Sigurðardóttir, Margrét Pétursdóttir og Sigríður Anna
Ámadóttir._______________________
„Hef snúið baki við
hinu ljúfa lífi,“
B
segir Brigitte Bardot, eftirlætisgoð Frakka á árum áður
RIGITTE BARDOT man sinn
fífíl fegri. Hún sem áður var ætíð
umkringd fólki, býr nú ásamt dýr-
unum sínum mestan hluta ársins í
St.-Tropez, bænum í Suður Frakk-
landi sem hún átti stóran þátt í að
gera að eftirsóttum ferðamannabæ.
Liðin eru 12 ár síðan hún lék í
kvikmynd og bömin í bænum
þekkja hana ekki sem kvikmynda-
stjömu, heldur sem konuna sem á
öll dýrin.
Bardot er einmana og viðurkenn-
ir að þrjú hjónabönd og fjölmörg
ástarsambönd hafí ekki fært henni
þá hamingju sem hún hefði óskað
sér. Nú eiga dýrin hug hennar og
hún berst fyrir því sem hún kallar
„hagsmuni og vellíðan“ þeirra.
Manneskjumar vekja ekki samúð
hennar á sama hátt og henni finnst
ástandið í heirninum í dag ógn-
vekjandi. Hún segist þó vera trúuð
og vilja vera heiðarleg og sjálfri sér
samkvæm. Hér áður fyrr hafí hún
verið uppreisnarseggur og átt erfitt
með að sætta sig við alla þá athygli
sem einkalíf hennar vakti. Þegar
hún var 22 ára gömul sýndu skoð-
anakannanir að 47% samtala í
Brígitte Bardot eftir alla at-
hyglina — alein.