Morgunblaðið - 08.04.1986, Blaðsíða 52
52
Flugslysið í Ljósufjöllum
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986
TF-ORM ferst á Snæfellsnesi með 5 mönnum, 2 björguðust:
Sátu fastir í flakinu
í 1OV2 klukkustund
Geysierfið björgunar-
störf hundraða manna
TVEIR komust lífs af en fimm létust er flugvélin TF-ORM fórst
norðan til í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi á laugardag. Þeir sem
komust lífs af eru mikið slasaðir, en ekki taldir í lífshættu. Um-
fangsmikil leit var hafin fljótlega eftir slysið, en leitarskilyrði voru
afleit. Björgunarmenn komust að flakinu rétt fyrir miðnættið á
laugardag, tíu og hálfri Idukkustund eftir að flugvélin brotlenti og
voru þrír farþegar þá með lífsmarki, en fastir í flakinu. Einn lést
fljótlega en hinir tveir voru fluttir í sjúkrahús í Reykjavík með
snjóbU, þyrlu og sjúkraflugvél. Ekki er vitað um ástæður slyssins
en rannsóknarnefnd flugslysa vinnur að rannsókn þess.
Morgunblaðiö/RAX
Hægri vængur TF-ORM hefur brotnað af vélinni og vinstri vængurinn hefur einnig brotnað og snúist
við. Þá hefur nef flugvélarinnar brotnað af, gluggar og fleira. Einn farþeginn kastaðist út úr vélinni
og er sæti hans við nef hennar.
Síðast heyrðist í
vélinni við Stykkishólm
Flugvélin TF-ORM er af gerðinni
Piper Aztec, tveggja hreyfla og sex
sæta, í eigu Flugfélagsins Ernir hf.
á ísafirði. Hún hóf sig á loft frá
Isafirði klukkan 12.30 á laugardag.
Um borð í vélinni voru flugmaður,
Smári Ferdinandsson, og sex far-
þegan Sigurður Auðunsson, Krist-
ján Sigurðsson, Pálmar S. Gunnars-
son, Auður Erla Albertsdóttir, Erla
Björk Pálmarsdóttir og Kristján
Guðmundsson. Erla Björk var tæp-
lega árs gömul dóttir Pálmars og
Auðar. Pálmar og Kristján Guð-
mundsson komust lífs af.
Vélinni var flogið blindflugi og
gerði flugáætlun flugmannsins ráð
fyrir lendingu í Reykjavík um
klukkan 14. Flugmaðurinn tilkynnti
stöðu vélarinnar við Stykkishólm,
eins og reglur segja til um. Þá var
klukkan 13.19 og komutími til
Reykjavíkur þá áætlaður klukkan
13.55. Um þetta leyti var bytjað
að fylgjast með flugvélinni á ratsjá
aðflugsstjómar en skömmu eftir að
flugmaðurinn tilkynnti sig við
Stykkishólm hvarf vélin af rat-
sjánni. Þegar flugmaðurinn svaraði
ekki ítrekuðum köllum aðflugs-
stjómar var farið að óttast um
hana. Byijað var á því að grennslast
fyrir um vélina og síðan kallaðir út
leitarflokkar, flugvél og þyrlur.
Flugvél Flugmálastjómar hóf sig
á loft 20 mínútum eftir boðun og
heyrði áhöfn hennar í sjálfvirkum
neyðarsendi TF-ORM og staðsetti
norðan til í Ljósufjöllum á Snæfells-
nesi klukkan 14.29. Staðsetningin
var mjög nákvæm, flakið reyndist
vera innan við kílómetra frá þeim
stað sem áhöfn Flugmálastjómar-
vélarinnar gaf upp í upphafi. Þyrla
Landhelgisgæslunnar TF-SIF og
björgunarþyrla frá vamarliðinu
með björgunarmenn og lækni frá
Reykjavík héldu áleiðis til slysstað-
aðarins en urðu frá að hverfa vegna
aðstæðna og lentu við veitingaskál-
ann á Vegamótum á sunnarverðu
Snæfellsnesi. Lágskýjað var (innan
við 200 metrar) en flakið var í 640
metra hæð.
Leitarstöð var komið upp á
Vegamótum og hafði sameiginleg
leitarstjóm Flugbjörgunarsveit-
anna, Slysavamafélags íslands og
Hjálparsveita skáta aðsetur í stjóm-
bíl Flugbjörgunarsveitarinnar. Yfir-
stjóm leitarinnar var hjá lands-
stjómum þessara samtaka í Reykja-
vík. Flugvél Flugmálastjómar flaug
yfir svæðinu mest allan daginn með
radíóendurvarpa og auðveldaði það
mjögöll fjarskipti.
Berserkir urðu frá að
snúa vegna veðurs
Næstu björgunarsveitir, á Snæ-
fellsnesi og í Borgarfirði, vom fyrst
kallaðar út og hélt 30 manna sveit
frá björgunarsveitinni Berserkjum
í Stykkishólmi af stað úr Álftafirði,
norðan til á nesinu, af stað upp í
Ljósufjöll um klukkan 16.30. Veðrið
var svo slæmt að þeir urðu að snúa
við. Síðar kom í ljós að sumir þeirra
höfðu komist nálægt slysstaðnum
og einn hópurinn gekk hringinn í
kring um flakið, án þess að sjá það
enda sáu menn lítið frá sér og
veðrið slæmt.
Gunnar Atlason úr Stykkishólmi
sagði að færðin upp hlíðina hefði
verið mjög þung. Krapi, leðja og
aur upp fyrir ökkla. Þeir hefðu
þurft að fara á móti vindi allan tím-
ann og orðið að leggjast niður í
verstu vindhviðunum, enda 10-12
vindstig þegar verst var. „Aðdrátt-
arafl jarðar dugði skammt við þess-
ar aðstæður," sagði Gunnar. Hann
sagði að þegar menn hefðu verið
komnir upp undir Gullkistu hefði
sama og ekkert sést fyrir dimmviðri
þó bjart væri af degi. Þá hefði verið
ákveðið að snúa við til að stofna
mönnunum ekki í hættu.
Friðrik Jónsson heilsugæslu-
læknir í Stykkishólmi var við annan
mann á snjósleða, þeim eina sem
komst upp í snjó í Ljósufjöllum.
Hann sagði að erfitt hefði verið að
komst yfír drulluna og upp í snjóinn
en það hefði tekist og eftir það
hefði sleðinn fengið betri spymu.
Þeir hefðu hins vegar ekki komist
áleiðis upp í fjöllin vegna veðurs.
Þarna hefði verið þoka, úrhelli og
geysilegir sviptivindar. Friðrik
sagði að þeir hefðu varla getað
haldið sér á vélasleðanum vegna
roks og stundum hefði sleðinn
runnið til undan vindinum. Ekkert
hefði verið hægt að gera og þeir
því snúið við.
Mörgum snjóbílum
stefnt á slysstað
Síðdegis á laugardag og um
kvöldið dreif að björgunarsveitar-
menn af öllu suðvesturlandi, með
ýmsan útbúnað, svo sem snóbíla,
fjallabíla og snjósleða. Ekki tókst
að koma snjósleðunum upp í snjó
en snjóbílunum var öllum stefnt í
átt til slysstaðar eftir þeim leiðum
sem taldar voru koma til greina,
bæði sunnan fjalls og norðan.
Tveir snjóbílar frá Hjálparsveit-
um skáta í Reykjavík (Reykur) og
Kópavogi (Kópur) fóm upp að
sunnanverðu frá _ Svarfhólskoti.
Aðrir fóm upp úr Álftafírði norðan
fjalls. Snjóbíll Hjálparsveitar skáta
í Hafnarfírði (Spori) fór upp frá
Hrísum, snjóbíll björgunarsveitar-
innar Heiðars í Borgarfirði fór upp
frá Kársstöðum og snjóbíll Flug-
björgunarsveitarinnar í Reykjavk
(FBS) frá Örlygsstöðum. Einnig var
snjóbíll frá björgunarsveitinni Ing-
ólfí á fjallinu og gangandi og skíð-
andi leitarmenn frá ýmsum sveit-
um. FBS-bíllinn, Kópur og Reykur
vom með Lóran C Ieiðsögutæki,
sem þeir óku eftir.
Kópur og Reykur stöðvuðust um
4 kílómetra frá slysstaðnum en
sendu vana fjallamenn fótgangandi
með stefnu á staðinn. Flugbjörgun-
arsveitarbílnum gekk best, I honum
vom 6 vanir fjallamenn og Friðrik
Jónsson læknir í Stvkkishólmi sem
Morgunblaðið/Júlíus
SnjóbíII Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík komst fyrstur á slysstaðinn. Hann er búinn Lóran C-leið-
sögutæki og miðunartæki fyrir neyðarsenda. Félagar úr Flugbjörgunarsveitinni standa við bílinn, en
þeir eru frá vinstri: Páll Gíslason ökumaður snjóbílsins, Guðmundur Oddgeirsson siglingafræðingur
bílsins og ArngrLmm H»rmannsson í leitarstjórn.