Morgunblaðið - 11.04.1986, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.04.1986, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986 7 Iðnaðarbankinn: Varar við gömlum tékkum úr IÐNAÐARBANKINN hefur var- að við að reynt kunni að verða að setja f umferð gamla tékka, sem í ógáti lentu f sorpgámi f vesturbæ Reykjavíkur. Tékkarn- ir eru bankastimplaðir og því verðlausir með öllu. Frétt Iðnað- arbankans er svoliljóðandi: Allt fram til loka árs 1979 var sá háttur hafður á í nokkrum tilvik- um, að tékkar útgefnir af fyrirtækj- um voru endursendir þessum fyrir- tækjum, þegar þeir höfðu verið innleystir í banka. Var þetta gert að sérstakri ósk fyrirtækjanna. í síðustu viku bar svo til að eitt sorpgámi af þessum viðskiptafyrirtækjum Iðnaðarbankans, Rafvirkjadeildin hf., lét frá sér fara tékka útgefna á árinu 1979 og fyrr. Tékkamir voru í ógáti fluttir í sorpgám í vesturbæ í Reyjavík, þar sem þeir fundust. Þessir tékkar eru banka- stimplaðir og því verðlausir með öllu. Engu að síður vill Iðnaðarbank- inn hvetja fólk til að vera á varð- bergi fyrir tékkum af þessu tagi ef reynt verður að setja þá í umferð og beinir því til fólks að koma þeim til Iðnaðarbankans ef það verður þeirra vart. Fyrsti ráðherrafundur EFTA á íslandi frá 1971 Á ráðherrafundi EFTA, frí- verslunarbandalags Evrópu, sem haldinn verður á Islandi daganna 4. og 5. júní nk., verður rætt um starfsemi bandalagsins og þá sérstaklega samstarfið við Efna- hagsbandalag Evrópu og er Willy de Clercq einn af ráðherrum Efnahagsbandalagsins væntan- legur hingað til lands, að sögn Þórhalls Asgeirssonar ráðuneyt- isstjóra í viðskiparráðuneytinu. Dagana 3. og 4. júní heldur ráð- gjafamefnd EFTA fund hér á landi en í ráðgjafamefndinni, sem er ráð- herrum og ríkisstjómum aðildar- þjóða bandalagins til ráðuneytis í málefnum bandalagsins, eiga sæti fulltrúar úr atvinnulífí landanna. Fundi ráðgjafamefndarinnar lýkur með sameiginlegum fundi hennar og ráðherra landanna að morgni 4. júní en síðan taka við viðræður ráðherranna og viðræður þeirra og Willy de Clercq, 5. júní. Ráðherrafundur EFTA hefur einu sinni áður verið haldinn hér á landi, árið 1971, ári eftir að ísland gerðist aðili að bandalaginu en þá gegndi ísland ekki formennsku. Síðan hefur ísland þrisvar gegnt formennsku. Sex lönd eiga aðild að EFTA eftir að Portúgal gekk úr bandalaginu um síðustu áramót. Þau em auk íslands, Noregur, Sví- þjóð, Finnland, Sviss og Austurríki. Rólegt á skjálftasvæðum Raunvísindastofnun Háskóla íslands i samvinnu við jarðeðlis- fræðideild Veðurstofu íslands hefur nýlega sent frá sér yfirlit yfir helstu jarðskjálfta hér á landi á timabilinu ágúst 1985 til janúar 1986. Að sögn Páls Ein- arssonar, jarðskjálftafræðings, hefur tímabil þetta verið með kyrrum kjörum víðast hvar á landinu og engar vísbendingar væru um stærri skjálfta i upp- siglingu. Á Suðurlandi bar helst á skjálft- um undir Mýrdalsjökli og vom þeir flestir í ágúst og október. Þessi árvissa virkni var að þessu sinni að mestu leyti undir suðvesturhluta jökulsins. Nokkrir minniháttar kippir áttu upptök á Reykjanes- skaga og Suðurlandsundirlendi og athyglisverður skjálfti varð við EyjaQallajökul í janúar, segir í fréttabréfi Raunvísindastofnunar. Talsverður skjálfti varð á Reykja- neshrygg í janúar og sömuleiðis var skjálftavirkni óvenju mikil á Kol- beinseyjarhrygg. Þar urðu nokkrar skjálftahrinur, einkum í ágúst og desember. Á Norðurlandi var skjálftavirkni lítil í fyrstu en fór vaxandi þegar á leið. Flestir kipp- imir áttu upptök sín á skjálftabelt- inu sem kennt er við Grímsey, en einnig kvað nokkuð að skjálftum fyrir mynni Eyjafjarðar. Lítil virkni var í Mývatnssveit sem og undir Vatnajökli. Húsavík: Katrín Eymundsdótt- ir í efsta sæti ÁKVEÐINN hefur verið listi Sjálfstæðisflokksins við bæjar- stjómarkosningamar á Húsavík í vor. Prófkjör fór fram í febrúar og náðu 8 efstu menn listans bindandi kjöri. Hörður Þórhalls- son, forseti bæjarstjórnar Húsa- víkur, gaf ekki kost á sér til endurkjörs í efstu sætum listans, sem er svohljóðandi: Katrín Eymundsdóttir, bæjarfull- trúi, Þorvaldur Vestmann Magnússon, tæknifræðingur, Leifur Grímsson, skrifstofustjóri, Jón Gestsson, bifreiðaeftirlitsmað- ur, Reynir Jónasson, kaupmaður, Guðrún Sbæbjömsdóttir, skrif- stofumaður, Hanna Stefánsdóttir, húsmóðir, Úlrik Ólason, skólastjóri, Sigríður Vigfúsdóttir, sjúkraliði, Einar Gústafsson, sjómaður, Bryndís Þ. Jónsdóttir, húsmóðir, Haukur Ákason, rafvirkjameistari, Guðlaug Ringsted, kaupmaður, Einar Sighvatsson, framkvæmda- stjóri, Hörður Þórhallsson, hafnarstjóri, Ingvar Þórarinsson, bóksali, Aðalsteinn Halldórsson, fulltrúi, Þuríður Hermannsdóttir, húsmóðir. Bíldudalur Prófkjör á laugardaginn Bíidudal Sjálfstæðisfélag Amarfjarðar Rétt til framboðs hafa allir félag- hefur ákveðið að efna til próf- ar í Sjálfstæðisfélagi Amarfjarðar. kjörs vegna framboðs til sveitar- Frestur til að skila inn tilkynningum stjóraarkosninganna á Bíldudal um framboð rennur út í dag föstu- laugardaginn 19. þessa mánaðar. daginn 11. apríl. Hannes Morgunbl&ðið/Bjarai ívar Gissurarson forstöðumaður Ljósmyndasafnsins og Sveinbjöra Hilmarsson starfsmaður safnsins sjást hér leggja lokahönd á uppsetningu ljósmyndasýningarinnar. Kjarvalsstaðir: Sýning’ á verð- launamyndum Á Kjarvalsstöðum verður opnuð í dag ljósmyndasýning á verðlaunamyndum samtaka fréttaljósmyndara Hvita húss- in8 fyrir árið 1983. Sýndar verða 55 ljósmyndir úr 11 efnis- flokkum eftir 38 Ijósmyndara, sem vora verðlaunaðar, en dómnefndinni bárust alls 595 myndir, sem valið var úr. Samtök fréttaljósmyndara Hvíta hússins, sem stofnuð voru 1921, hafa árlega verðlaunað bestu ljósmyndir félaga sinna frá því Franklin D. Roosevelt var forseti Bandaríkjanna, en hann var í hópi dómenda. Árið, sem verðlaunin eru veitt, eru myndim- ar sýndar í bókasafni Bandaríkja- þings. Annað árið er sýningin farandsýning innan Bandaríkj- anna en þriðja árið eru myndimar sýndar erlendis og héðan kemur sýningin frá Júgóslavíu. Stofn- félagar samtakanna vom 24 ljós- mjmdarar, en era nú orðnir yfír 300, sem sinna starfi sínu í öllum heimshomum. „Ljósmynduram þykir mikill heiður að fá inngöngu í samtökin, en það fá einungis þeir, sem fylgja eða hafa fylgt forseta Bandaríkjanna eftir á ferðum hans fyrir sitt blað,“ sagði ívar Gissurarsonar, forstöðumað- ur ljósmyndasaftisins. Sýningin á Kjarvalsstöðum stendur til 27. apríl nk. Auói er bíll hinna vandlátu AUDI er þ»Ýskur toíll AUDI er íormíctQULr fc>íll AXJDI er Ýmist meö frctmdrií eöa ctldrif (Q.nctttro) AUDI er með zinlc ryóvörn AUDI er meö lceQstct vindstu.öu.1 íjöldctírctmleiddrct dílct - cd 0.30 AUDI er meö véUDÚnctö í serflokki Verö írd kr. 790.000 }.*•. i ■> .p 47. *■• $£&*** *• '"'>** - •‘■■' r--s HEKLAHF | Laugawegi 170-172 Sfmi 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.