Morgunblaðið - 11.04.1986, Side 55

Morgunblaðið - 11.04.1986, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL1986 55 Reykjavíkurmétið: _ Valurvann ÍR í gærkvöldi VALUR bar sigurorð af ÍR með einu marki gegn engu á Reykja- víkurmótinu í knattspyrnu í gær- kvöldi. Sigurjón Kristjánsson, fyrrum leikmaður Keflvíkinga og Breiða- bliks, skoraði eina mark leiksins á 35. mínútu. Valur Valsson lék þá inn að endamörkum og gaf fyrir markið. Jón Grétar Jónsson hálf náði til knattarins, sem barst áfram til Sigurjóns þar sem hann stóð við fjarstöng, og hann náði að teygja sig og pota honum með tánni í mark IR. Þetta var nánast það eina markverða sem gerðist í leiknum. Lið Vals var mun meira með knöttinn í leiknum en sóknarleikur þeirra var fremur hugmynda- snauður, og með því að hafa vörn- ina fjölmenna gátu ÍR-ingar varist öllum áhlaupum þeirra. Nema einu. Barcelona og Zaragoza í úrslitum Fré Tryggva HUbner fróttamanni Morgun- blaösins á Spáni. ÞAÐ verða lið Barcelona og Real Zaragoza sem lelka til úrslita í spönsku bikarkeppninni. í fyrra- kvöld áttust við annars vegar Real Madrid og Zaragoza og hinsvegar Barcelona og Atletico de Bilbao f undanúrslitunum. Barcelona vann sinn leik á heima- velli 2:1 og komst áfram, en Real Madrid vann sinn heimaleik 3:2. Það dugði hinsvegar ekki fyrir liðið, þvf Zaragoza hafði unnið fyrri leikinn 2:0. • Lárus Guðmundsson hefur átt góða leiki með Uerdingen að undanförnu. Hann skorar hér glæsilegt mark f leik gegn Hamborg á útivelli fyrir 2 vikum sem Uerdingen vann 4:1. íslendingarnir í sviðsljósinu Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fróttamanni ÍSLENDINGALIÐIN í vestur- þýsku knattspyrnunni leika í deildarkeppninni f kvöld. Stutt- gart leikur við Kaiserslautern á úrtivelli en Bayer Uerdingen tekur á móti toppliðinu Werder Brem- en. Leikur Bremen og Uerdingen er geysilega mikilvægur fyrir bæði liðin. Uerdingen, sem er í miklu stuði þessa dagana, þarf helst að vinna til að eiga möguleika á Unglingameistaramótið hefst á ísafirði í dag Unglingameistaramót fslands á skfðum hefst á ísafirði f dag, föstudag og lýkur á sunnudag. Þátttakendur eru um 160 talsins frá átta héruðum. Mikill viðbúnaður er á ísafirði til að taka á móti þessum mikla fjölda keppenda. Mötuneyti verður starf- rækt í Húsmæöraskólanum Ósk þar sem allir keppendur verða í mat. Mótinu lýkur meö boði bæjar- stjórnar Isafjarðar í Félagsheimil- inu í Hnífsdal á sunnudag, þar sem fjölbreyttar veitingar verða á boð- stólum. Þetta er eitt fjölmennasta skíða- mót sem haldið hefur verið í ungl- ingaflokkum skíðaíþrótta, þaö er aðeins Andrésar Andar-leikarnir sem slá þessu móti við hvaö fjölda snertir. nrrarmni Morgunblaðsins í Þýskalandi. UEFA-sæti, og Bremen gæti farið langt með að tryggja sér meistara- titilinn með sigri í kvöld. Bremen hefur ekki tapað einum einasta leik í síðari umferö deildarkeppn- innar, og 10 ár eru síðan Uerding- en vann Bremen á heimavelli, þannig að hefðin stendur með Bremen í leiknum. Að sögn Kicker verður Lárus í byrjunarliðinu í kvöld, en Atli verð- urvaramaður. Bikarkeppnin f handknattleik: FH-Víkingur í undanúrslitum DREGIÐ var f undanúrslftum bik- arkeppninnar f handknattleik f gær. Ámnann og Stjarnan leika saman og FH og Vfkingur f hinum leiknum. Liö Víkings er óneitanlega sigur- stranglegast í keppninni, og lið FH án Þorgils Óttars verður varla mikil hindrun fyrir þá í undanúrslitunum. Þó er aldrei aö vita. Þá er fyrstu- deildarlið Stjörnunnar mun sigur- stranglegra en Ármann í hinum undanúrslitaleiknum. Það stefnir því í úrsiitaleik milli Víkings og Stjörnunnar, ef allt fer eftir áætlun. Óvænt úrslit eru hinsvegar algeng í bikarkeppnum, og allt getur enn gerst. Báðir undanúrslitaleikirnir fara fram mánudaginn 14. apríl. I undanúrslitum í öðrum flokki karla leika Valur-ÍBK/ÍR HK/FH-Stjarnan/Afturelding. og Fjarstæðukennt - Þór hefur ekki sóst eftir leikmönnum segir Árni Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar Þórs Akureyri. „ÞETTA ER fjarstæðukennt hvað okkur varðar þvf það var Andri sjálfur sem óskaði eftir þvf að koma hingað og kíkja á aðstæður hjá okkur - langaði til að breyta til,“ sagði Árni Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs á Akureyri f samtali við Morg- unblaðið f gær, er blaðamaður bar undir hann ummæli Ólafs Friðrikssonar, formanns knattspyrnudeiidar VÍkings í blaðinu f gær. „Við Þórsarar höfum ekki sóst gleyma - Olafur er greinilega eftir leikmönnum til félagsins en búinn aö gleyma því sem Guðgeir Leifsson, fyrrverandi formaöur knattspyrnudeildar félagsins, hafði við Bjarna Sveinbjörnsson að segja í fyrra," sagði Árni. Hann hólt áfram: “ef Andri Marteinsson ber okkur þá sög- þegar ungir og efnilegir leikmenn sýna áhuga á að koma neitum við þeim að sjálfsögðu ekki um það. Það væri eitthvaö skrýtið ef við geröum það. Mér þykir Víkingar hins vegar fljótir áð una að við höfum boðið honum gull og græna skóga segir hann ekki sannleikann en ég verö að segja það að ég trúi því ekki upp á Andra. Mín stefna er sú að það sem ég get ekki gert fyrir mína eigin leikmenn geri ég ekki fyrir utanaðkomandi. Sum félög stunda það eflaust að fá til sín leikmenn en Þór er ekki á meðal þeirra. Annars vil ég nota þetta tækifæri til að óska Víkingum alls góðs í framtíðinni," sagði Árni Gunnarsson að lokum. Einar varði ótrúlega Frá Tryggva HUbner, fréttamanni Morgun- blaösins á Spáni. EINAR Þorvarðarson átti enn einn stórleikinn með liði sfnu á Kanaríeyjum f fyrrakvöld. Uð Coronas gerði þá jafntefli við Alicante 24:24 og var Einar talinn langbesti leikmaður vallarins af spænskum fjölmiðlum. íþróttablaðið AS gefur Einari hæstu mögulega einkunn fyrir leik- inn, og kallar hann enn „girðing- una", en það viðurnefni virðist ætla að festast við hann. Einar lokaði markinu á löngum köflum, og varði meðal annars fjögur vita- köst á nokkurra mínútna kafla í síðari hálfleik. Sigurður Gunnars- son lék einnig afar vel í fyrrakvöld, skoraði átta mörk, og stóð fyrir sínu í vörninni. Mikið um að vera hjá fimleikafólki Unglingameistaramót í frjálsum æfingum f fimleikum fer fram í Laugardalshöllinni í kvöld og hefst mótið klukkan 19.30. Á laugardaginn verður síðan í Digranesi í Kópavogi mikil fimleika- hátíð og hefst hún klukkan 14. Þar munu um 370 ungir keppendur taka þátt í móti sem kallast fimleik- arfyriralla. Venables áfram á Spáni? Frá Bob Hennessy, fréttamanni Morgunblaösins á Englandi. BLIKUR eru nú á lofti í áformum Terry Vernables um að snúa aftur til Englands frá Spáni þar sem hann hefur verið að þjálfa Barcelona með ágætum árangri. Aðalástæðan er sú að hann og eiginkona hans, sem aldrei hefur flutt til Spánar heldur búið í Englandi, eru að skilja. Talið var að fjölskylda Venables væri helsta ástæðan fyrir því að hann vildi fara frá Spáni, en svo viröist ekki vera. Önnur uppkomin dóttir hans er flutt til hans og býr hjá Venables í Barcelona. Slök frammistaða Barcelona í Gautaborg á dögunum er meðal annars skýrð með því að Venables hafi alls ekki getað einbeitt sór að undirbúningnum fyrir leikinn á sama tíma og hann var að ganga frá hjóna- skilnaði eftir 20 ára hjónaband. Jennings á Wembley? Svo gæti farið að hinn gam- alreyndi Pat Jennings leiki í markinu hjá Everton í úrslita- leiknum í ensku bikarkeppninni i maí. Þannig er að Neville Southall er meiddur, og Fred Barber, sem Howard Kendall keypti frá Darlington til aö koma í hans stað, lék með fyrra liði sínu í bikarkeppninni og er því ólöglegur með Everton í henni. Bobby Mimms, þriðji markvörður liösins, er því lík- legur í úrslitaleikinn, en ef eitt- hvað kæmi fyrir hann, eða ef Kendall treystir honum ekki i slíkan stórleik sem úrslitaleik- urinn er, þá er Pat Jennings inni í myndinni. Kendall hefur nefnilega gert samning við hann um hann taki að sér að leika með Everton í bikarnum ef illa færi hjá öðrum markvörð- um liðsins. Olsen óánægöur Jesper Olsen, hinn danski leikmaður Manchester United, hefur ekki verið ánægöur hjá félaginu uppá síðkastið. Hann hefur átt í erfiðleikum með að vinna sér fast sæti í liðinu, en eftir langar samræður við Ron Atkinson, var ákveðið að hann fengi ekki að fara fró félaginu fyrr en samningur hans rennur út, en það er eftir næsta keppn- istímabil. í millitíðinni er vonast til að Olsen nói sér aftur á strik. MickeyThomas enn á ferð Velski landsliðsmaðurinn Mickey Thomas var á dögunum seldur frá WBA til Derby Co unty. Derby er áttunda liðið sem þessi óstaðfasti leikmaður spilar með. Hann hefur átt í stöðugum útistöðum við alla sína þjálfara, einkum vegna þess að hann hefur aldrei viljað flytja til þeirra liða sem hann leikur með. Hann hefur alla sína tíð búið í smábæ í fjallahéruð- um Wales og vill hvergi annars staðar vera. Bond hjá Birmingham Stjórn Birmingham hefur boðið John Bond samning til eins árs, en hann hefur verið lausráðinn framkvæmdastjóri liðsins í nokkrar vikur. Þetta tilboð er óháð því hvort Birm ingham tekst að hanga í fyrstu deildinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.