Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL1986 Gæslan verður að hreinsa sig — segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra „VITANLEGA verður þetta að skoðast niður í kjölinn, Land- helgisgæslan getur ekki búið við svona,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra þeg- ar ummæli Jóns Sveinssonar sjó- liðsforinga um Landhelgisgæsl- una, voru borin undir hann. „Það má náttúrlega segja að Gæsl- an hafi verið dálítið í lausu lofti eftir landhelgisátökin og ég er þeirrar skoðunar að það þurfí að „Virðuleg og mjög tímabær gjöf “ „ÉG ER honum mjög svo ósam- mála í þessu efni, þetta er virðuleg og mjög tímabær gjöf,“ sagði Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherrra er hann var spurð- ur hvað hann vildi segja um álit Þórs Magnússonar þjóðminjavarð- ar um Viðey, sem birtist í Morgun- blaðinu sl. sunnudag. „Það er þýðingarlaust fyrir menn að reyna að sverta þessa gjöf eða draga úr gildi hennar. Alþingi hefur samþykkt að gefa Viðey af góðum hug á heiðursdegi, og allar slaufur sem menn reyna að hnýta á það að sínum geðþótta skipta mig engu máli.“ endurskoða verkefni hennar og hlutverk," sagði Steingrímur. „Vit- anlega verður Gæslan að hreinsa sig af þessu eða þá að það verði lagfært sem þama fer úrskeiðis. Ég get auðvitað eins og margir aðrir borið um að það er mikið af ágætis mönnum innan gæslunnar og þeir hafa unnið sitt starf með prýði þegar á hefur rejmt svo ég vil alls ekki trúa því að þar sé allt svo slæmt." Steingrímur sagði að til greina kæmi að sameina Landhelgisgæsl- una og fiskveiðieftirlitið eins og lengi hefði verið rætt um án þess að samstaða hefði náðst um það mál. Þá væri ástæða fyrir nefnd þá er skipuð var til að móta framtíð- artillögur um skipan gæslunnar og framtíðarverkefni að hraða störfum sínum. Norræna vikan á Akureyri Morgunblaðið/Skapti Nú stendur yflr á Akureyri norræn vika sem hófst á sunnudag. Er hún á vegum Norræna félags- ins á Akureyri og Norræna hússins. Á sunnudag léku tveir fiðluleikarar í Amtsbókasafninu, þeir Páll H. Jónsson og Garðar Jakobsson, og er myndin tekin við það tækifæri. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Sjúkraliðar ganga út 1. maí Sjallinn á Akureyri: Viðræður í gangi um kaup- leigusamning — enn ekkert ákveðið í málinu Akureyri. HLUTHAFAR í Akri hf., fyrirtæk- inu sem rekur skemmtistaðinn Sjallann, á Akureyri, funduðu með stjóm þess i gær þar sem rætt var um hugsanlega sölu á fyrirtækinu. Undanfarið hafa staðið yfír við- ræður milli stjómar Akurs hf. og Helga Helgasonar og Jóns Högnason- ar, eigenda kjúklingastaðarins “Crown Chicken" á Akureyri, um kaup-leigusamning, en tvímenning- amir ásamt þriðja aðila, sem ekki hefur verið gefíð upp hver er, hafa áhuga á að taka við skemmtistaðnum. Á fundinun i gær var hluthöfum kynntur kaupleigusamningurinn og leitað heimildar þeirra til að ræða enn frekar við þá Helga og Jón. Tóku þeir því vel. Ljóst ætti að verða á næstu dögum hvort af sölu verður. Vestmannaeyjum. Vandræðaástand er fram- undan í Sjúkrahúsi Vestmanna- eyja því nú um mánaðamótin koma til framkvæmda upp- sagnir allra sjúkraliða, sem eru við störf i sjúkrahúsinu. Sjúkra- liðarnir sögðu upp störfum sín- um með þriggja mánaða fyrir- vara fyrir sex mánuðum en bæjaryfirvöld nýttu sér laga- heimild til að framlengja upp- sagnarfrestinum um þijá man- uði. Uppsagnimar eru til komnar vegna óánægju sjúkraliðanna með laun sín og kjör og einnig vegur þungt mikið vinnuálag að því er Sigurleif Guðfínnsdóttir sjúkraliði tjáði fréttaritara Morgunblaðsins. Sigurleif sagði að starfandi sjúkraliðar skiluðu 14,6 stöðugild- um af þeim 18, sem munu vera við sjúkrahús Vestmannaeyja. Byijunarlaun sjúkraliða losa 24 þús. krónur á mánuði en komast hæst í 32.793.00 krónur eftir 18 ára starf. „Við höfum meðal annars farið fram á að fá greiddar launauppbætur líkt og hjúkrunar- fræðingar fá greiddar en bæjar- yfírvöld hafa boðið okkur einn launaflokk í hækkun umfram það sem við fengum samkvæmt nýja starfsmatinu. Við erum mjög óánægðar með það, að það hefur svo til ekkert verið við okkur rætt allan þennan langa tíma sem við höfum staðið í þessu stappi. Við höfum aðeins verið kallaðar á Ijóra fundi á öllu þessu tímabili," sagði Sigurleif Guðfínnsdóttir. Ólafur Elísson bæjarstjóri sagði að sjúkraliðum hefði verið boðið fímm launaflokkum hærra kaup en sjúkraliðar í Reykjavík fá greitt en þessu hefðu sjúkraliðar hafnað. Hvorki Eyjólfur Pálsson fram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Vest- mannaeyja né heldur Jóhann Frið- fínnsson formaður stjómar sjúkrahússins vildu Ijá sig um hvað framundan væri og hvaða afleiðingar það hefði á rekstur sjúkrahússins gengju sjúkralið- amir úr störfum sínum. „Það er búið að gera samning við starfs- mannafélag bæjarins og leitt til þess að vita þegar einn hópur starfsmanna slítur sig út úr hópn- um eins og hér gerist. Stjóm sjúkrahússins er ekki samnings- aðili um kaup og kjör starfsfólks- ins, heldur fer samninganefnd bæjarins með þau mál,“ sagði Jóhann Friðfinnsson. Samkvæmt heimildum frétta- ritara eru sjúkraliðamir harð- ákveðnir í því að láta uppsagnir sínar koma til framkvæmda á fimmtudaginn verði ekki gengið að kröfum þeirra. — hkj. Afpantanir hafa ekki komið hart niður á Flugleiðum MIKLAR afpantanir Bandarikja- manna á flugi til Evrópu af ótta við hryðjuverk hafa ekki komið hart niður á Flugleiðum, að sögn Sigurðar Helgasonar forstjóra Flugleiða. Sigurður sagði að fyrstu dagana eftir árás Banda- rikjamanna á Líbýu hefðu afpant- anir verið tölvert miklar, nánast jafnmargar og nýjar bókanir, en ástandið væri nú aftur að komast i eðlilegt horf. Samkvæmt upplýs- ingum Knuts Berg, svæðisstjóra Flugleiða í Bandaríkjunum, voru afpantanir komnar niður í 9% af nýjum bókunum fyrir viku, sem er heldur meira en gerist og geng- ur á þessum árstima, en ekkert til að hafa áhyggjur af, að sögn Knuts. Knut Berg sagði að afpantanimar hefðu fyrst og fremst komið hart niður á bandarískum flugfélögum. „Við njótum góðs af þvf að vera smátt flugfélag frá litlu Evrópuríki og fljúga til Lúxemborgar. Fólk er kvatt til að skipta frekar við evrópsk flugfélög sem fljúga til smærrí staða í Evrópu. Ég er því bjartsýnn á að við höldum okkar hlut sæmilega á Miklar skemmdir á Sigluvík SI-2: Lán að trollið var ekki úti er skipið varð stjómlaust — sagði Signijón Jóhannsson skipstjóri MIKLAR skemmdir urðu á skuttogaranum Sigluvík SI-2 eftir brotsjó sem reið yfir skipið sl. föstudagsmorgun. Sjór fyllti brú skipsins og flæddi niður í það. Þá hefur komið í ljós að skemmdir hafa orðið á síðu skipsins. fór af skipinu en samband náðist fljótlega við önnur skip í gegn um litla talstöð og fylgdi Stálvík SI-1 skipinu til heimahafnar á Siglu- fírði. Þangað komu skipin eftir 25 stunda siglingu. „Ég var rétt kominn inn í klef- ann þegar brotið reið yfír og gekk Magnús Asmundsson stýrimað- ur var einn í brúnni þegar óhappið varð og hentist á hurð stjóm- borðsmegin sem lét þó ekki und- an. Sjórinn fyllti brúna undir loft, braut þrjár hurðir, skolaði burt tækjum og komst niður í vistar- verur áhafnarinnar. Rafmagnið illa að komast upp f brúna til að vita hvað hefði orðið um mann- inn,“ sagði Sigurjón Jóhannsson skipstjóri. „Það var auðvitað lán að vera ekki með trollið úti þegar skipið varð stjómlaust en það gerði snögglega vitlaust veður svo við tókum trollið inn og vom menn að ganga frá aflanum á neðra dekki þegar ólagið kom.“ Siguijón sagði að veðrið hefði verið fremur slæmt á leiðinni til Sigluljarðar, norð-austan 8 til 9 vindstig, en skánaði þegar komið var fyrir Hom. „Við gátum stjóm- að skipinu. Stýrið var í lagi og aldrei nein hætta á ferðum önnur en að okkur vantaði tæki til að sigla eftir," sagði Siguijón. Verið er að kanna tjón skipsins en hætt er við að skemmdir sem urðu niðri í skipinu komi ekki í ljós fyrr en búið er að rífa frá einangrun. Sextán manna áhöfn er á skip- inu og sakaði engan. Sigluvík var búin að vera að veiðum í sex og hálfan sólarhring og hafði aflað um 100 tonn af físki. þessari flugleið ef ekki verður stór- slys,“ sagði Knut. Að sögn Knuts er alvanalegt að afpantanir séu nokkrar á þessum árstíma; ferðaskrifstofum hætti til að bóka meira en þær réðu við og halda sætum fram á síðustu stundu. Þegar voraði yrðu þær hins vegar að gera upp hug sinn. Því væri eðlilegt að einhveijar afpantanir væm nú, einkum á hópferðum. Sigurður Helgason sagðist einnig vera bjartsýnn á að óttinn við hryðju- verk myndi ekki koma illa niður á Flugleiðum: „Það greip um sig mikil skelfíng eftir árásina á Lábýu, en svo virðist sem ástandið sé að jafna sig aftur. Ég hef trú á að við höldum okkar hlut á þessum markaði nokkuð vel í sumar, ekki síst í ferðum til íslands og Skandinavíu," sagði hann. Sigurður sagði að óttinn við hryðju- verk hefði sett svip á söluna í Banda- rílqunum allt frá því f haust. Við því hefðu Flugleiðir bmgðist með því að fella niður í tíma 10-15% ferða fyrstu mánuði þessa árs. Með því móti hefði tekist að ná góðri sætanýt- ingu. Á hinum enda sölukerfisins horfir málið öðmvísi við. Davíð Vilhelmsson svaíðisstjóri Flugleiða í Mið-Evrópu, sagði að Flugleiðir hefðu bókað muii fleiri sæti til Bandarílqanna nú en á sama tíma í fyrra. Davíð sagði að lækkun dollarans hefði þar mest að segja, en líklega ætti hræðsla Evr- ópubúa við ferðalög til Miðjarðar- hafslandanna einnig nokkum hlut að máli. „Almennt er reiknað með að ferðamannastraumur til Bandaríkj- anna verði að minnsta kosti 10% meiri nú í sumar en var á síðasta sumri, og ég geri ráð fyrir að Flug- Ieiðir muni njóta þess eins og önnur evrópsk flugfélög," sagði Davíð Vil- helmsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.