Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986 23 Hver vegnr að sjó- mannastéttinni? Svar til Guðmundar Hallvarðssonar formanns Sj ómannaf élag-s Reykjavíkur mötuðust, ræddu saman og má vera að bóndinn hafi verið fremur fáorð- ari en hin, ef talið beindist að samdrættinum í landbúnaðinum eyddi hann því. Eftir matinn sótti heildsalinn vodkaflösku í skottið á BMW-inum og þeir fundu á sér og heildsalinn sagði að bregðast þyrfti við hverjum vanda á réttan hátt. Ef eitthvað gæfí ekki góða raun yrði að reyna annað. Það er nú ekki eins auðvelt með landbúnað- inn, sagði bóndinn, þetta er nú í fastari skorðum þar. Við höfum verið hvattir til að halda áfram að auka við okkur og nú er allt komið úr böndunum. Þetta var fyrirtaks nautakjöt sem við borðuðum í kvöld, sagði heildsalinn og hagræddi sér í sófanum. Þú ættir að framleiða meira af því. Það er alltaf hægt að selja það. Hefurðu nokkurn tíma reynt að setja niður kartöflur. Nei, sagði bóndinn, er ekki til meira en nóg af þeim. Það eru alltaf til leið- ir, ef rétt er staðið að hlutunum, sagði heildsalinn. Innflutningur er fijáls á kartöflum og þá er sama hvort ég kaupi þær frá Hollandi eða úr Húnavatnssýslu ef þær eru góð- ar, jafnvel frá Grímsey. Þeir fengu sér aftur í glösin og töluðu meira en þeir höfðu lengi gert. A eftir þegar björt nóttin var skollin á og fólkið gengið til náða iá bóndinn á bakinu og horfði upp í hvítmálað loftið. Hann hafði ekki getað sofnað. Konan leit upp og sá að hann var vakandi. Er ekki allt í lagi, spurði hún og settist upp. Ég er bara að hugsa, sagði bóndinn og konan lyfti náttserknum upp yfír höfuðið, lagði hann frá sér á náttborðið og laut yfir mann sinn. Á eftir þegar konan var sofnuð náttserkslaus klæddi bóndinn sig í gallabuxur og peysu og gekk út. Hann gekk niður á túnið og settist á lítið barð. Hann horfði yfir landar- eignina og ána fyrir neðan sem var mórauð og vatnsmiki) í júníhitan- um. Ég gæti haft meira en 40 kálfa á þessu landi. Siðan leit hann upp í brekkurnar fyrir norðan túnið og sá að þar mætti rækta eitthvað af kartöflum og taka þær upp með ekki miklum tilkostnaði. Og fyrir neðan væri ágætt svæði fyrir sum- arhús. Það þyrfti aðeins að leggja veg frá aðalveginum og koma upp girðingu. Hann gæti ábyggilega selt nokkrar lóðir og fjárfest í skuldabréfum. Hann þekkti menn fyrir sunnan og e.t.v hefðu hann og heildsalinn um meira að tala og saman að sælda en hingað til hefði virst. En hann yrði að verða á undan öðrum að hefjast handa og ná markaði. Hvernig færi ef allir mjólkurframleiðendur væru að hugsa um það sama núna ... Höfundur starfar við útgáfumálí Reykja vík og tekur þátt í búskap fjölskyldu sinnar í Eyjafirði. eftir Sigurjón Valdimarsson Fyrir nokkrum áratugum voru geðveilir menn, fjölfatlaðir, jafnvel áfengissjúklingar og sjálfsagt fólk haldið ýmsum öðrum sjúkdómum, kallaðir einu nafni aumingjar. Um þá og þeirra fötlun mátti ekki tala eða skrifa, vegna þess að það var smán og niðurlæging fýrir aðstand- endur. Síðar lærðist mönnum að umfjöllun var aðeins til góðs, vegna þess að umfjöllunin leiddi í ljós að margt mátti gera til hjálpar „aum- ingjunum", og sú hjálp kom að- standendum þeirra ekki síður til góða. Þar með skyldi maður ætla að öll hugsun um pukur með „smán“ heyrði fortíðinni til. En eftirlegukindur geta leynst víða og ein þeirra, Guðmundur Hallvarðs- son formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, skrifaði grein, sem birt var í Morgunblaðinu 22. apríl sl. Grein sína kallar hann „Vegið að sjómannastéttinni", og henni er beint að Sjómannablaðinu Víkingi og þrem viðtölum sem birt eru þar, í 3. tbl. 1986, og er um fíkniefna- smygl og neyslu þjóðarinnar á slík- um efnum og sérstaklega þætti sjó- manna í þeirri ósvinnu. Heggur sá sem hlífa skyldi Guðmundur hefur nánast allt, sem fram kemur í viðtölunum, á hornum sér, en einkum virðist tvennt fara fyrir brjóstið á honum; að sjómannablað skuli fjalla um þann smánarblett sem smyglarar og neytendur eiturlyfja eru á sjó- mannastéttinni og þó sérstaklega þann hluta viðtalanna þar sem vikið er að þeim möguleika að mikið vinnuálag og fíkniefnaneysla geti haft áhrif til aukningar á vinnuslys- um til sjós. Þar heggur sá er hlífa skyldi. Formaður Sjómannafélags Reykja- víkur ætti að fagna allri umræðu, sem varpað getur einhvetju lósi á alltof háa og síaukna slysatíðni um borð í íslenskum skipum. En það virðist hann ekki skilja, hvernig sem á því kann að standa. Ég skal víkja nánar að þessu atriði. Meidsl og örkuml lítið verð Á árunum 1972—’81 urðu að jafnaði 296,7 bótaskyld slys á sjó, flest urðu þau 322 árið 1972 en fæst 266 árið 1974. Árið 1982 urðu bótaskyld slys um borð í skipum 287, 363 árið 1983, 437 árið 1984 og 459 árið 1985. Tala síðasta árs gæti átt eftir að hækka enn, því ekki er víst að öll kurl séu komin til grafar. Þetta er uggvænleg þró- un og það þrátt fyrir stöðugar og stórstígar framfarir í öryggisbúnaði skipa, mikla og góða umfjöllun og fræðslu um öryggismál sjómanna og þá staðreynd að skipum hefur frekar fækkað hin síðari ár, eða úr 903 árið 1979 í 828 um síðustu áramót. Þar er átt við þilfarsskip, önnur en hvalveiðiskip. Skil ég Guðmund rétt, að honum þyki meiðsl og örkuml 459 íslenskra sjó- manna á einu ári lítið verð fyrir þögn um „smánina"? Sé svo, er hann á rangri hillu sem verkalýðs- leiðtogi. Fúkyrði að blað- inu og mér Aldrei gerði ég ráð fyrir öðru en að einhveijir menn mundu rísa upp í nafni sjómannastéttarinnar og hrópa fúkyrði að blaðinu og mér fyrir að hefja umræðu um þá viður- styggð sem eiturlyijasmygl og sala er í hugum allra góðra manna. Ég bjóst við að þar yrðu fiemstir í flokki þeir sem hafa fjárhagslegra hagsmuna að gæta og handbendi þeirra. En aldrei hvarflaði að mér að maður úr forystusveit sjómanna mundi snúast gegn blaðinu fyrir að það vill leggja þeim stóra hluta sjó- mannastéttarinnar lið, sem vill losna við allt eiturlyfjapakkið úr stéttinni. Kaupa lúxus fyrir líf æskunnar { allri þeirri umræðu sem orðið hefur síðan 3. tb. Víkingsins kom út með þessum umræddu viðtölum, hefur margt komið mér á óvart. Það hefur t.d. komið mér mjög á óvart hversu margir hafa haft samband við mig, fólk sem skildi hvert er stefnt með þessari umfjöll- un, og hvatti mig til að fylgja fast eftir þeirri umræðu sem fór í gang. Þetta fólk veit að hundruð ung- menna eru svo illa farin af neyslu eiturlyfja að þeirra bíður ekkert nema eymd og dauði á ungum aldri. Þetta fólk hefur viðbjóð á þeim lítilmennum sem kaupa sér lúxus og óhóf fyrir líf æskunnar í landinu. Þetta fólk veit að engin starfsstétt getur þvegið hendur sín- ar af slíkum ómennum, ekki heldur sjómenn. Þetta fólk metur mikils að blað sjómanna skuli hrinda af stað umræðu, sem gæti orðið lög- gæslunni mikil hjálp og uppörvun, ef vel er á haldið, í baráttunni við ófögnuðinn, og þar með sjómönnum eins og öllum öðrum landsmönnum til góðs í framtíðinni. * Eg þakka þér Guð... Mér komu þó á óvart viðbrögð svokallaðra „forystumanna". Full- trúi í fíkniefnadeild lögreglunnar, nokkrir skipstjórar og nú formaður Sjómannafélags Reykjavíkur hafa fyllst steigurlæti og benda á að ekkert mark sé takandi á mönnum sem einu sinni hafa ánetjast fég- ræðginni og fíkninni. Mér finnst aldeilis með eindæmum ótrúlegt hvað þessir ábyrgu „frammámenn" geta lagst lágt þegar þeir slá á framrétta hjálparhönd manna sem gjörþekkja vandann sem við er að fást, með þeim orðum að það sé ekkert að marka þessa menn, þeir séu bara að gera sig breiða. Mér þykir ekki ótrúlegt að orsök slíkrar lítilmennsku sé sú að þeim svíði hvernig þessir brotamenn hafa leik- ið á þá árum saman og þeir reyna að breiða yfír þá smán með þótta. Sé það rétt og þeir ráði ekki við tilfinningar sínar, er ef til vill tíma- bært fyrir þá að velta fyrir sér hvort þeir séu í réttu starfí. Stundum fínnst mér hálfpartinn ég heyri þá segja: Ég þakka þér Guð að ég er ekki eins og aðrir menn. En það er auðvitað skynvilla. Þú gerðir þig sekan um ódreng’skap Að lokum vil ég beina orðum mínum beint til Guðmundar Hall- varðssonar, formanns Sjómannafé- lags Reykjavíkur og varaformanns Sjómannasambands íslands. Sigurjón Valdimarsson „ ... aldrei hvarflaði að mér að maður úr for- ystusveit sjómanna mundi snúast gegn blaðinu fyrir að það vili leggja þeim stóra hluta sjómannastéttarinnar lið, sem vill losna við allt eiturlyfjapakkið úr stéttinni.“ í grein þinni, „Vegið að sjó- mannastéttinni“, gerir þú þig sekan um svo mikinn ódrengskap, þar sem þú notar viðtöl í Sjómannablaðinu Víkingi um fíkniefnamál til að reyna að egna til ófriðar milli háseta og skipstjórnarmanna, að þér mun veitast erfítt að bæta þar fyrir. Þú veist jafn vel og ég að vinnuálag er mikið á stundum um borð í físki- skipum. Við vitum líka báðir að sjó- menn eru kappsamir í miklu fiskiríi og það er fullt samkomulag um það milli áhafnarinnar að leggja hart að sér við þær aðstæður, enda er arðsvonin mikil fyrir alla. Slíkt samkomulag breytir þó engu um það að langar vökur við erfið störf hljóta að draga úr varkárni manna og auka slysahættu, að ekki sé nú talað um ef einhvetjir freistast til að halda sér vakandi með amfetam- íni eða öðru slíku. Eftir þetta afrek þitt á ritvellin- um er ég ekki viss um að þú munir græða mikið fé á umræðu um hver hafí vegið harðast að sjómanna- stéttinni í seinni tíð. Höfundur er ritstjóri Sjómanna- blaðsins Víkings. Hm l,andl>man (,011011.1 M* °9 hraeriy. KENWOOD TRAUST MERRI MEÐ ÁRATUGA REYNSLU Á ÍSLANDI Fullkomin varahluta- og viðgerðaþjónusta BESTA ELDHÚSHJÁLPm RatmaS"5Pa"ji> THORN HEIMILIS OG RAFTÆKJADEILD VISA HF LAUGAVEGI 170-172 SIMAR 11687 - 21240
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.