Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986
33
Stykkishólmur:
Siglingamálasljóri á
fundi með sjómönnum
Stykkishólmi.
Siglingamálasfjóri Magnús Jó-
hannesson, og Páll Guðmundsson
frá Siglingamálastofnun ríkisins
héldu á föstudag fund hér í
Lionhúsinu með sjómönnum og
öðrum áhugamönnum. Var þessi
fundur vel sóttur. Finnur Jóns-
son stjórnaði fundinum.
Öryggismál sjómanna og skoðun
skipa var aðalumræðuefnið og
skýrði siglingamálastjóri í yfir-
gripsmiklu erindi stöðu þessara
mála í dag og kom í ljós að margar
umbætur bæði í rekstri og útbúnaði
öllum eru á döfinni. Skýrði frá nýj-
um lögum sem varða þessi mál,
ræddi um viðurkenndan útbúnað í
skipum og reynslu undanfarinna
ára. Það sýndi sig strax að menn
höfðu mikinn áhuga á þessum mál-
um og margar fyrirspurnir fundar-
manna komu fram og var þeim
svarað. Ræddar voru athugasemdir
Siglingamálastofnunar sem komið
höfðu fram vegna undangenginna
skoðana og hvernig úr þyrfti að
bæta. Eins og áður er vitað hafa
skipaskoðunarmenn verið á hveij-
um útgerðarstað, þegið lítil laun
fyrir og kom fram að nú væri komið
í lög að skipaskoðunarskrifstofa
ætti að vera í hveiju kjördæmi og
myndi ráðherra velja henni stað í
samráði við Siglingamálastofnun
og þar myndi stjóma skipaskoðun-
armaður sem sæi þá um skoðun
allra báta í umdæminu.
Ýmislegt annað kom fram og
virtist siglingamálastjóri mjög
áhugasamur um að koma útbúnaði
skipa í sem best horf og að vinna
sem best í samráði við viðkomandi
aðila að öryggismálum sjómanna.
Var því fundur þessi bæði fróðlegur
oggagnlegur.
Málfundafélag
félagshyggjufólks:
Opinn fundur
um verkalýðs-
hreyfinguna
STJÓRN Málfundafélags félags-
hyggjufólks boðar í kvöld al-
mennan fund þar sem fjallað
verður um málefni verkalýðs-
hreyfingarinnar og ber fundur-
inn yfirskriftina „sterkari verka-
lýðshreyfing, hvernig?“
Málshefjendur verða Guðrún
Arnadóttir framkvæmdastjóri
BSRB, Jón Karlsson formaður
verkalýðsfélagsins á Sauðárkróki,
Tryggvi Þór Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri MFA og Ögmundur
Jónasson fréttamaður.
Hvorki er ætlunin að fordæma
né lofsyngja verkalýðshreyfinguna
á fundinum, segir í fréttatilkynn-
ingu fundarboðanda, heldur er
ætlunin að ræða málefni verkalýðs-
hreyfingarinnar á jákvæðan hátt
með eflingu hennar að markmiði.
Fundurinn verður haldinn á Hótel
Borg kl. 20.30 í kvöld og er opinn
öllu félagshyggjufólki.
Minningarsjóður
Þorgerðar:
Styrkir veittir
við skólaslit
Tónlistar-
skólans á
Akureyri
STYRKIR úr Minningarsjóði
Þorgerðar S. Eiríksdóttur verða
veittir við skólaslit Tónlistarskól-
ans á Akureyri, en sl. 8 ár hafa
18 tónlistarnemendur hlotið
styrki úr sjóðnum, sem er í vörslu
Tónlistarskólans.
Rétt til að sækja um þennan
styrk hafa þeir nemendur sem
stundað hafa nám við Tónlistarskól-
ann á Akureyri og hafa hug á eða
eru byijaðir í háskólanámi í tónlist.
Umsóknarfrestur er til 1. maí og
þurfa umsækjendur að greina frá
námsferli og námsáformum. Sjóð-
urinn aflar tekna með móttöku
minningarframlaga og árlega er
efnt til tónleika til styrktar sjóðn-
Úr fréttatilkynning^i
Selma Guðmundsdóttir, Laufey Sigurðardóttir og Sigríður EUa
Magnúsdóttir.
Tónlist tékkneskra tónskálda
TÉKKNESK-íslenska félagið gengst fyrir tónleikum í Selfosskirkju
þriðjudaginn 29. apríl kl. 20.30, Grindavíkurkirkju, fímmtudaginn
1. maí kl. 17.00 og Norræna húsinu í Reykjavík, sunnudaginn 4.
maí kl. 16.00. A efnisskránni eru verk eftir nokkur þekktustu tón-
skáld Tékka: Bedrich Smetana, Antonín Dvorák, Leos Janácek og
Josef Suk. Flytjendur eru Selma Guðmundsdóttir, Laufey Sigurðar-
dóttir og Sigríður Ella Magnúsdóttir.
0
Verslunarráð Islands:
Erindi um einkafram-
tak og almenningsálit
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Verzlunarráði íslands:
„í fyrramálið, miðvikudaginn 30.
apríl, kl. 8.15 mun Antony Fisher
formaður Atlas Economic Research
Foundation í San Francisco halda
erndi í Átthagasal Hótels Sögu.
Nefnist erindið „Einkaframtak og
almenningsálit."
Fisher er Breti og var orrustu-
flugmaður í flugher hennar hátign-
ar þar til 1948. Samkvæmt ráðlegg-
ingum Friedrich Hayek, hins kunna
austurríska hagfræðings, ákvað
hann að helga sig útgáfu rita um
hagfræðileg málefni. Til þess þurfti
fjármagn, svo Fisher stundaði við-
skipti um árabil. Árið 1955 stofnaði
hann „Institute of Economic Affa-
irs“.
Núverandi formaður þeirrar
stofnunar er Lord Harris, sem var
gestur á viðskiptaþingi Verzlunar-
ráðs íslands árið 1985. Fisher hætti
í viðskiptum 1975 og hefur síðan
þá stundað formennsku í stofnunum
sem starfa á sama grundvelli og
IEA, í Kanada og Bandaríkjunum.
Antony Fisher
Bækur þær sem þessar stofnanir
hafa gefíð út, skipta nú orðið hundr-
uðum og eru lesnar í yfír 40 löndum.
Sagt er að þær sé jafnt að fínna á
borðum nemenda sem og helstu
ráðamanna í þjóðfélaginu.
Fundurinn á Hótel Sögu er öllum
opinn. Þátttaka tilkynnist sem fyrst
í síma 83088. Morgunverður kostar
kr. 450.-“
Islensk-sænska félagið
heldur Valborgarblót
Á Valborgarmessu, sem er á
morgun, 30. april, heldur íslensk-
sænska félagið Valborgarblót eins
og undanfarin ár. Samkoman
verður í skíðaskálanum i Hvera-
dölum.
Ámi Bjömsson læknir flytur
ávarp, Marianne Eklöf óperusöng-
kona og Stefán Bojsten píanóleikari
flytja nokkur lög og að loknu borð-
haldi leikur Reynir Jónasson á harm-
onikku. Þá er ætlunin að tendra
nokkurn bálköst til að fagna sumri
og annast Rúnar Bjamason slökkvi-
liðsstjóri bálvörsluna.
Þeir sem vilja taka þátt í skemmt-
uninni þurfa að tilkynna það fyrir-
fram í skíðaskálanum eða í Veislu-
miðstöðinni. Rútur fara frá Hlemmi
kl. 19.00 á morgun og heim aftur á
miðnætti.
MULTI0FFSET FYRIR SAM-
HANGANDITÖLVUPAPPÍR
Prentarar! Takið eftir
Nú má fá Multi offset-vélar til
prentunar á samhangandi
tölvupappír. Henta fyrir mlnni
háttar upplög. Prenta í einum
eða tveimur litum. Þið, sem
eruð á leiðinni á Drupa-prent-
iðnaðarsýninguna, sjáið þær
og aðrar Multi-vélar í sýning-
ardeild Am International: 5 D
26 skála5.
Veltum nánari upplýsinear.
Otto B. Arnar
Umboðsverzlun
Bolholti 6, Reykjavík
símar(91)31631 & 31699
I .....
JtT RÖNNING &