Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRlL 1986
Indriði Jónsson á Toyota í innanbæjarakstrinum, 55,5 km voru
eknir innanbæjar, en 177,6 á þjóðvegum. Þessi bíll vann
1301—1600 cc-flokkinn.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rognvaldsson
Allir flmm bílamir í minnsta vélarflokknum eyddu minna en flmm litrum á hundraðið. Tveir voru
frá Suzuki og þrir frá Daihatsu. Keppni milli þessara bOtegunda var hnifjöfn.
Sparakstur BÍKR og Skeljungs:
Fimm með minni
en fimm lítra
Þorbergur Guðmundsson kemur sérstökum bensíntanki fyrir i
Suzuki-bfl sínum, sem eyddi minnstu bensíni í keppninni. I bak-
sýn mæla starfsmenn BÍKR bensínið á annan keppnisbfl.
Bensíneyðsla, lítrar á 100 km
vélar- villur heildar-
rúmtak cc innanbæjar utanbæjar eydshaukn. eydsla
eyðslu
Bílar
Gunnlaugur Rögnvaldsson
„Þetta var tvímælaiaust erfið-
asta sparaksturskeppni sem hald-
in hefur verið. Þetta sýndi mjög
raunhæfar eyðslutölur bílanna,
sem voru með í keppninni. Ég er
náttúrulega hæstánægður að
minn bfll náði minnstu eyðslunni,"
sagði Þorbergur Guðmundsson
ökumaður Suzuki Swift, en hann
ók bflnum sem eyddi minnsta
eldsneytinu í sparaksturskeppni
BÍKR og Skeljungs á laugardag-
inn. Var keppt í §órum flokkum,
eftir vélarstærð en bfll Þorbergs
eyddi minnstu yfir heildina; 4,31
lítrum á hundrað km.
Mesta spennan var í flokki bfla
með 0—1000 cc vélar, Daihatsu-
umboðið sendi þijá bfla í þann
flokk, en Suzuki tvo. Þessi umboð
hafa barist um sigur f þessum
flokki á undanfömum árum. Inn-
anbæjar óku keppnisbflamir sem
allir voru óbreyttir 55,55 km,
miklar krókaleiðir og voru öku-
menn m.a. skyldaðir að stöðva við
öll biðskyldumerki. Eftirlitsmenn
frá BÍKR voru í hveijum keppnis-
bíl af þeim sökum. Vegalengdin
utanbæjar var 177,6 km og var
m.a. ekinn Þingvallahringurinn.
„Það þurfti að halda miklum
meðalhraða, þetta var ekkert dól,
heldur eðlilegur umferðarhraði,"
sagði Þorbergur. „Fólk þarf því
ekki að efast um útkomuna. Það
var hnífjöfn keppni í minnsta
flokknum milli Suzuki og Dai-
hatsu og úrslitin réðust raun-
verulega á lokasprettinum. Okkur
tókst að meija sigur og er þetta
í fímmta skipti, sem Suzuki-bfll
nær minnstu eyðslu í sparaksturs-
keppni hérlendis," sagði Þorberg-
ur. Allir fímm bflamir í minnsta
flokknum eyddu undir fímm lítr-
um á hundraðið, Siguijón Ólafs-
son á Daihatsu Cuore varð annar
með 4,34 1/100 km, Úlfar Hin-
riksson á Suzuki þriðji með 4,40,
síðan Egill Jóhannsson og Jóhann
Jóhannsson báðir á Daihatsu
Cuore með 4,50 og 4,57. í næsta
flokk fyrir ofan voru bilar með
1001—1300 cc vélar, Toyota Ind-
riða Jónssonar kom best út með
4,70 lítra á hundraðið, Fiat Uno
Ingva Magnússonar var með 6,20
lítra eyðslu og Mazda Halldórs
Úlafarssonar 6,52 lítra. Síðan
kom Citroén Axel Ingjalds Ast-
valdssonar með 6,70 lítra og
Skoda 130 Kristmundar Rafns-
sonar með 7,01 lítra. í flokki bfla
með 1301—16600 cc véla var
Peugeot 205 Sigurþórs Margeirs-
sonar eyðslugrennstur, með 6,56
lítra, en Sigþór Guðmundsson á
Citroén BX var með 7,01 lítra. í
flokki 1601—2000 cc vann Guð-
brandur Elíasson á Chevrolet
Monza, bfllinn eyddi samtals 7,99
á hundraðið.
Flestir bflanna voru frá bílaum-
boðum, að undanskyldum Toyota,
Lada og Mazda-bílum, en þá bfla
sendi BÍKR í keppni, þar sem
umboðin tóku ekki þátt. A með-
fylgjandi töflu sést eyðsla bflanna,
innan- og utanbæjar, en heildar-
útkoman fæst ekki fyrr en refsing
fyrir brot á keppnisreglum hefur
verið reiknuð með. Var refsing
veitt ef keppendur stöðvuðu ekki
á biðskyldu eða héldu ekki til-
skyldum meðalhraða. Sumir
keppnisbílanna fóru illa út úr
þessu.
G.R.
Flokkur 0—1000 cc
1. Suzuki Swift 988
2. Daihatsu Cuore 847
3. Suzuki Swift 988
4. Daihatsu Cuore 847
5. Daihatsu Cuore 988
Flokkur
1001-1300 cc
1. Toyota Corolla 1295
2. FiatUno 1116
3. Mazda 323 1296
4. CitroénAxel 1129
5. Skoda 130 L 1297
6. Lada 1298
7. EscortLaser 1117
Flokkur
1301-1600 cc
1. Peugeot205 1360
2. Citroén BX 1360
Flokkur
1601-2000 cc
1. Chevrolet Monza 1796
4,82 4,12 2% 4,31
4,68 4,23 4,34
4,54 4,28 2% 4,40
4,54 4,49 4,50
4,86 4,48 4,57
6,41 5,56 2% 5,79
5,87 5,24 10% 6,26
7,83 6,11 6,52
7,49 6,41 2% 6,70
7,49 6,41 8% 7,01
7,83 6,72 2% 7,04
5,56 5,02 50% 7,77
7,34 5,53 10% 6,56
7,90 6,60 4% 7,01
9,36 6,94 10% 7,99
Hafsteinn Aðalsteinsson var á árum áður framarlega í rall-
keppnum hérlendis. í ár tekur hann upp ökumannshanskana á
„Líkari skrímsli en bíl“
- segir Hafsteinn Aðalsteinsson um far-
kost andstæðinga sinna í rallkeppni í Wales
nýjan leik af fullri alvöru. Hann ók þessum bíl í Belgiu í fyrra
og var það eiginlega undanfari þess sem hann gerir í ár.
Morgunblaðið/Martin Holmes
Meðal andstæðinga Hafsteins í Wales er Bretinn Dai Lcwellin á
þessum Mini Metro. Hann sigraði i irska rallinu í apríl. „Líkari
skrímsli en bíl,“ segir Hafsteinn um Metro-bílinn í viðtalinu.
„ÉG KEPPI nú aðallega þama til
að kynnast nýjum keppnisbíl, sem
ég kem síðan með til keppni á
íslandi. En auðvitað fer ég með
því hugarfari að ná sem lengst,
ætli 20,—25. sæti sé ekki raun-
hæfur möguleiki,“ sagði Haf-
steinn Aðalsteinsson í samtali við
Morgunblaðið. Dagana 3.-5.
maí keppir hann í alþjóðlegri rall-
keppni í Wales ásamt Birgi Viðari
Halldórssyni. Er það 900 km löng
rallkeppni, sem gefur stig til
Bretiandsmeistaratitils.
„Bíllinn sem ég keppi á er 260
hestafla Ford Escort RS og er
hann leigður frá Phil Collins Cars,
sem er þekkt leigufyrirtæki í
Bretlandi. Ég er búinn að skoða
hann og prófa lítillega, en keppnin
verður frumraun mín á bílnum,"
sagði Hafsteinn. Hann er þó ekki
ókunnugur ámóta bíl því árið
1982 sigraði hann tvívegis í
keppni hér á landi á samskonar
bfl og á tímabili varð hann oft í
einu af efstu sætunum í rall-
keppni.
í fyrra ók Hafsteinn Escort RS
frá Phil Collins í Belgíu en varð
fyrir óhappi og hætti keppni.
Hann hyggst keppa eftir Islands-
meistaratitlinum á nýja bílnum
og fær bflinn til íslands fljótlega
eftir keppnina í Wales. „Þetta er
mjög góður bíll á íslenskan mæli-
kvarða," segir Hafsteinn. „Hvort
vel gengur í íslandsmótinu bygg-
ist töluvert á heppni, þeir sem
komast áfallalaust gegnum tíma-
bilið munu standa vel að vígi að
leikslokum. Það er náttúrulega
minn draumur eins og annarra
að verða íslandsmeistari, en það
er ekki þar með sagt að það
takist. Það eru margir um hituna
og keppnin í ár verður grimmari
en nokkum tímann áður, þótt
marga góða ökumenn vanti."
Allir helstu ökumenn Bretlands
mæta í rallkeppnina í Wales, 121
er skráður auk tveggja fyrrum
heimsmeistara, Finnans Hannu
Mikkola á Audi Quattro, og Stig
Blomqvist á Ford RS 200. Auk
þss er tiltölulega nýr 400 hestafla
fjórhjóladrifínn Metro meðal
keppnisbíla, honum aka Bretamir
Jimmy McRae og Dai Lewellin,
sem hefur forystu í bresku meist-
arakeppninni. „Þetta em engir
smábílar. Ég sá fyrir nokkru
Metro-bíl á æfingu á skógarveg-
um í Bretlandi. Þetta er eins og
hávær skriðdreki, æðir um skóg-
ana á ógnarhraða. Er líkari
skrímsli en bfl,“ sagði Hafsteinn.
G.R.