Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL1986 Könnun á umfangi skattsvika: „Þessar niðurstöður koma ekki á óvart“ — segir Friðrik Andrésson varaformað- ur Meistarasambands byggingamanna NIÐURSTÖÐUR könnunar sem gerð var á vegum fjár- málaráðherra þar sem með- al annars er fjallað um umfang skattsvika benda til þess að mikið sé um nótulaus viðskipti í vissum atvinnu- greinum. Samkvæmt könn- uninni er mest um þetta í byggingagreinum og bíla- þjónustugreinum. „Við höfum reynt að beijast gegn þessari svörtu starfsemi og margoft ályktað um þessi mál á þingum okkar," sagði Friðrik Andrésson varaformaður Meist- arasambands byggingarmanna er Morgunblaðið spurði hann álits á niðurstöðum könnunarinnar. „Þessar niðurstöður koma ekki á óvart og við teljum að hér þurfi að verða breyting á. Við vitum að í þessari atvinnugrein er viss svört starfsemi á ferðinni. Hún er ef til vill mest stunduð í við- gerðaþjónustu, en minna í sam- bandi við nýbyggingar. Það er erfítt að hafa eftirlit með þessu því hér er um svo marga aðila að ræða. Ég held að til dæmis sé mikið um skatt- svikamál hjá þeim íjölda manna sem taka að sér húsaviðgerðir, en hafa engin réttindi til þess.“ „Því miður þrífst mikið af svokölluðum skúraviðskiptum í kringum bílaviðgerðir og það virðist vera erfítt að stöðva þetta,“ sagði Þórir Jensen for- maður Bílgreinasambands ís- lands. „Þetta hefur lengi verið vandamál vegna þess að þeir sem standa eðlilega að þessum við- skiptum tapa vinnu til þeirra sem stunda nótulaus viðskipti." Þórir sagði að ekki væri hægt að fullyrða neitt um þessar niður- stöður. Það væri ef til vill verið að ganga of langt ef persónuleg greiðasemi er tekin með í dæmið, það er að segja þegar gert er við bíla fyrir vini og kunningja án þess að það sé gefíð upp til skatts. Arnfríður ísaksdóttir formaður Hárgreiðslumeistarafélags Is- lands sagði að það væri ótrúlegt að nótulaus viðskipti færu fram á hárgreiðslustofum. „Fyrir all- mörgum árum voru hárgreiðslu- stofur skyldaðar til að hafa kassa með tvöfaldri rúllu. Viðskiptin fara því fram á sama hátt og í verslunum og því á ekki að vera hægt að stunda skattsvik. Ég hef aldrei heyrt um neitt slíkt, en auðvitað er aldrei hægt að full- yrða neitt um þetta," sagði Am- fríður ísaksdóttir. opnunin, sem er ættuð beint úr Power Vestur Norður Austur Suður Precision. Þeir græddu vel á henni í — — Pass 2 lauf spili 15. Austur gefur; A/V á hættu. Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu Pass Pass 2 spaðar 4 spaðar Pass Pass 2grönd 5 lauf Pass 5 grönd Pass 6grönd Norður Pass 7 grönd Allirpass Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson LANDSLIÐ íslands sem kemur til með að keppa á Norðurlandamótinu í júní nk. Frá vinstri: Sigurður, Þórarinn, Valgerður Kristjánsdóttir kvennalandsliðskona, sem þama er til að skrásetja spil og sagnir, Jón og Sigurður. Þórarinn Sigþórsson og Þorlákur Jóns- son Islandsmeistarar í tvímenningi ÞÓRARINN Sigþórsson og Þor- lákur Jónsson fóru með sigur af hólmi í íslandsmótinu í tvímenn- ingi, sem fram fór um síðustu helgi á Hótel Loftleiðum. Sigur þeirra félaga var nokkuð örugg- ur; þeir tóku forystuna snemma móts og héldu henni nær óslitið til enda. Vinningsskorin var þó ekki sérlega há í þetta sinn, eða 175 stig. I öðru sæti urðu Guð- laugur R. Jóhannsson og Orn Arnþórsson með 135 stig, en Karl Logason og Svavar Bjöms- son höfnuðu í þriðja sæti með 133 stig. Þorlákur og Þórarinn spila mjög flókið kerfi. Það er að mestu leyti byggt á Power Precision-kerfínu, sem Bandaríkjamennimir Alan Sontag og Peter Weichsel gerðu frægt fyrir nokkrum árum, en einstaka opnanir eru þó frábrugðnar í kerfí íslands- meistaranna. En þó ekki tveggja laufa ♦ ÁK83 V 732 ♦ ÁG64 ♦ ÁK Vestur ♦ DG109 ¥109 ♦ 10952 ♦ 972 Austur ♦ 7654 ¥ G865 ♦ KD8 ♦ 85 Suður ♦ 2 ¥ ÁKD4 ♦ 73 ♦ DG10643 Þórarinn hélt á spilum suðurs og vakti á tveimur laufum, sem sýnir að minnsta kosti sex lauf og venjulega opnun, 12—16 punkta. Sagnir þróuð- ust svo þannig: ÆVINTYRAHEIMUR THAILANDS: Allt sem þér hefur dottið í hug fyrir verð sem þér hefur aldrei dottið í hug. Vegna sérstakra samninga SAS og Flugleiða er þér nú gert kleift að kynnast ótrúlegum ævintýraheimi Thailands í heila 17 daga fyrir enn ótrúlegra verð; 52.249,- krónur per mann í tveggja manna herbergi. Og það er ekki eftir neinu að bíða; brottfarir eru alla þriðjudaga a.m.k. út maí. í september byrjar svo gaman- ið aftur. Aukavika fyrir kr. 3.698,- Gist er í 4 nætur í Bangkok og 10 nætur á óviðjafnanlegri Pattaya strönd- inni. Þar er dvalið á fyrsta flokks hóteli og aukavika kostar aðeins 3.698,- krónur. Það er frábært verð fyrir allar þær vellystingar sem í boði eru. Einnig er hægt að gista á lúxushóteli og verðið hækkar þá aðeins um litlar 5.994,- krónur. íburðurinn á þessum hótelum er engu líkur. Aukavika í Singapore fyrir 9.828,- krónur. Þú getur líka farið í sérferð til Singa- pore. Þar er gist á enn einu lúxushótel- inu og til að kóróna allt er þar boðið uppá 3ja daga skipsferð til Indónesíu og ógleymanlega siglingu með einka- snekkju. Allar nánari upplýsingar um þetta ein- staka ævintýri eru veittar á næstu ferða- skrifstofu og söluskrifstofum Flugleiða. FLUGLEIÐIR S4S Tveir tíglar Þorláks voru spumar- sögn, og tvö hjörtu Þórarins lofuðu fjórlit í öðrum hvorum hálitnum. Tveir spaðar spurðu hvor háliturinn það væri og tvö grönd sögðu frá hjarta. Stökk Þorláks í fjóra spaða spurði um ása og Þórarinn sýndi einn með fímm laufum. Þá komu fímm grönd, sem í þessari stöðu er spuming um gæði hjartalitarins. Svar Þórarins á sex gröndum sýnir að minnsta kosti tvo af þremur efstu. Þar með getur Þorlákur talið af nokkru öryggi upp í 12 slagi og séð óteljandi möguleika á þeim 13. Hann lyfti því í sjö grönd. Eins og við var að búast fékk Þórar- inn út spaðadrottningu. Ef hjartað fellur eru slagimir orðnir þrettán án fýrirhafnar, en þótt það falli ekki er Iiklegt að spilið vinnist á einfaldri eða tvöfaldri kastþröng. Þórarinn drap á spaðaás og tók strax spaðakóng. Síð- an ás og kóng í laufi og spilaði sig heim á hjarta til að renna laufunum. Áður en hann tók siðasta laufíð var staðan þessi: Vestur Norður ♦ 83 ¥2 ♦ ÁG ♦ - Austur ♦ DG ♦ - ¥10 ¥ G86 ♦ 109 ♦ KD ♦ - ♦ - Suður ♦ - ¥ KD4 ♦ 7 ♦ 3 I siðasta laufíð kastaði Þórarinn spaða úr blindum. Þrýstingurinn á austur var nú orðinn of mikill, hann var dæmdur til að henda frá öðmm rauða litnum og gefa þar með 13. slaginn. Það þarf ekki að taka það fram að þetta spil gaf þeim Þórami og Þorláki mjög góða skor. Það sem kom kannski einna mest á óvart á þessu íslandsmóti var að Jón Baldursson og Sigurður Sverris- son skyldu aldrei blanda sér alvarlega i toppbaráttuna. Það er sjaldgæft að þeir endi undir þriðja sæti í tvímenn- ingsmótum, en í þetta sinn fóru þeir illa af stað og náðu sér aldrei almenni- lega á strik eftir það. í lokin er hér listi jrfír 10 efstu pörin í mótinu: Þórarinn Sigþórsson — Þoriákur Jónsson Guðlaugur R. Jóhannsson — öm Amþórsson KarlLogason Svavar Bjömsson Jón Þorvarðarson — Þórir Sigursteinsson Ragnar Magnússon — Valgarð Blöndal Ingvar Hauksson — Sverrir Kristinsson Jón Baldursson — Sigurður Sverrisson Guðmundur Pétursson —Jacqui McGreal Rúnar Magnússon — Stefán Pálsson Stefán Guðjohnsen — Þórir Sigurðsson 176 136 133 106 83 82 69 68 68 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.