Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 15
15
getið, voru Kristinn Sigmundsson,
Viðar Gunnarsson og Garðar Cort-
es, ásamt kórmönnum er sungu
nokkur smærri hlutverk, en kórinn
var eins og áður mjög góður. Krist-
inn var góður í klaustursenunni og
Garðar „ofsafenginn" í Di quella
pira. Viðar Gunnarsson kom undir-
rituðum mjög á óvart og þama er
á ferðinni „þrumandi" bassi, sem á
ekki nema skrefið að taka til að
komast upp á það þrep, þar sem
þeir bestu standa. Eitt atriði, sem
ekki tilheyrir sýningunni beinlínis,
og það er framklappið, þar sem
áheyrendur em í aðalhlutverki.
Þegar einsöngvarar koma fram,
mega þeir ekki koma ofan í klapp
annarra, sem á undan era. Slíkt
tekur „orðið" af áheyrendum.
Annað atriði, sem vel er gert og
það er leikskráin, sem er bæði
efnismikil og greinargóð.
Sá ágæti hópur einsöngvara, sem
margsinnis hefur sannað getu sína
í að uppfæra óperar meistaranna
af miklum glæsibrag, býr við að-
stæður sem í raun gera starf þeirra
allt mjög erfitt og fjárhagslega
ótryggt, að ekki sé meira sagt.
Þama þarf um að bæta og skapa
þessum starfshópi viðunandi starfs-
skilyrði. Þyrfti fyrsta kastið ekki
meira en að stofna til svo sem tíu
stöðugilda fyrir söngvara. Fyrst um
sinn mætti vei nota Gamla bíó fyrir
flutning á óperam og með því að
binda ráðningu söngvara við ákveð-
in hlutverk, hveiju sinni, væri hægt
að kalla alla þá til, sem best væra
í stakk búnir fyrir hvert hlutverk.
að taka höndum saman á öðram
vettvangi.
Efnahagsleg ofstjórn
Leikmaður, sem ver nær öllum
sínum tíma í brauðstrit, getur að-
eins skoðað efnahagssamhengi
þessara máia úr fjarlægð. Því fer
lítið fyrir nákvæmum lýsingum á
röngum reikningskúnstum, eða
vondum hagfræðiforsendum, en
meira fyrir þeim tilfinningum, er
bijótast út við að sjá afrakstur
dagsverka sinna borinn á veisluborð
þeirra, er veðsett hafa land og þjóð
ium ókomin ár. Hárfín óvirðing og
skeytingarleysið, sem æðstu ráða-
og embættismenn þjóðarinnar sýna
fyrirvinnu sinni í gegnum störf í
sjóðum og stofnunum, er lúta að
sjávarútvegi, er ekki hægt að láta
afskiptalaus miklu lengur. Sjónar-
spil með Fiskveiðasjóð, útreikningar
þjóðhagsstofnunar og verðskráning
íslensku krónunnar era dæmi um
pólitiska ofstjóm af verstu gerð og
á ekkert erindi í alvöra umræðum
um réttláta efnahagsstefnu. Til-
gangur og markmið þessara stofn-
ana er annað og meira. Fólksflótti
er frá landsbyggðinni og úr sjávar-
útvegi.
Stöðug ásókn er hjá hinu opin-
bera, bönkum og öðram þjónustu-
aðilum í fjármuni frá sjávarútvegin-
um. Lélega nýtingu og litla fram-
leiðni, sem gjaman er talað um og
marga aðra óáran, sem atvinnuveg-
inn hijáir má nær eingöngu skrifa
á hina pólitísku ofstjóm. Með góðu
eða illu þarf að taka á þessum
málum.
Tvö áhersluatriði
Mig langar í lokin að drepa á tvö
atriði, er nýir forystumenn ættu að
skoða vel og leggja áherslu á að
breyta í næstu framtíð. Hið fyrra
er tilhögun gengisskráningar.
Hugmynd Verslunarráðs íslands
um að leggja niður ísl. krónuna og
taka upp gjaldmiðil og gengisskrán-
ingu frá annarri þjóð þarf að veita
fulla athygli og frekari úrvinnsiu.
Hið síðara snertir uppboðsmarkað
fyrir landaðan fisk, er ráði verði í
stað ákvarðana Verðlagssráðs sjáv-
arútvegsins. Núverandi fyrirkomu-
lag þessara tveggja þátta í þjóðar-
búskapnum veldur því að margra
dómi að sjávargull verður að kopar
í íslensku efnahagslífi og rekstur
sjávarútvegsfyrirtækja að óþörfum
hildarleik.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL1986
Enn er þó tóm
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Kristinn Reyr:
Gneistar til grips
Letur 1985
Kristinn Reyr hefur sent frá sér
margar ljóðabækur um dagana.
Hann hefur löngum verið í hópi
þeirra skálda sem freista þess að
brúa bilið milli hins gamla og nýja
í ljóðlistinni, yrkir jöfnum höndum
hefðbundið og óhefðbundið. Á sjötta
áratugnum nálgaðist hann þó form-
byltingarmenn í skáldskap með bók
eins og til að mynda Tumar við
torg (1954).
Mörg Ijóða Kristins Reyrs era vel
orðuð og lýsa þó nokkurri hug-
kvæmni. Nýjasta bók hans, Gneist-
ar til grips, er til marks um þetta.
í þessari bók kynnumst við fullmót-
uðu skáldi og manni sem er reynsl-
unni ríkari. Þessi maður er gagn-
rýninn og hefur margt á homum
sér í samtíðinni, en kann þó að
gera góðlátlegt grín að öllu saman.
Samt era merki um beiskju hjá
honum. Þannig stendur til dæmis í
Eyðublaði: „Hafi mér hugkvæmst
að yrkja/ hvergi komst það á blað/
forlögin útvöldu miklu færari
penna/ að framkvæma það.“
Yfirsýn er eins konar eftirmæli
aldarinnar:
í hillingaljóma
hófst þessi öld
og hátíðarandinn
fyrirheit gaf
um frelsi
ogfrið.
En minningar vitna
um myrka tíma
og miður er rætt
að vera
en vera búinn
aðvera
Kristinn Reyr
því hryðjuverk aldar
af himni féll
i herrans nafni
og geimkrabbar skulu
grúfa með tiltækt
gjömingablek.
Enn erþótóm
aðelskaþig heitar
af allrisálu
guðmammon vor
á grænum friðsælum
grandum.
Það er efasemdarmaður sem
talar í þessu ljóði og á fleiri stöðum
í Gneistum til grips. Ekki er Krist-
inn Reyr einn um slíkar efasemdir.
Það sem gildir er aftur á móti að
orða þær með þeim hætti að eftir
sé tekið. Þótt Kristinn Reyr sé
skorinorður og víða hnyttinn er þó
vafamál að orð hans nái til margra.
Boðskapurinn er sjaldan í nógu
listrænum búningi, orðinn nokkuð
slitinn og framsetningin líka.
Kristinn Reyr hefur ort vel, en
Ijóð hans era ákaflega misjöfn að
gæðum. Bókalisti hans er orðinn
eins langur eins og fyrr segir.
Gneistar til grips era á margan hátt
geðfellt verk. En Ijóðin era sjaldan
meira en laglega orðaður kveðskap-
ur. Gott dæmi er að finna í Bijóst-
mynd: „Hríðskjálfandi tek eg/
handfylli af þoku/ og fálma eftir
fangi/ af þessari líka þoku/ og
hnoða og móta/ úr hrímþokusátu/
og hafþokugalta/ bijóstmynd af
þér/ sem betur værir/ í áfanga
komin/ að ylja mér.“
Þessir bflar eru tilvalin lausn á flutn-
ingaþörf flestra fyrirtækja og ein-
staklinga.
MAZDA „E" sendibílarnir hafa nú þegar sannað ágæti sitt
við alls kyns aðstæður hérlendis. Þeir eru sérlega rúmgóð-
ir, þýðir og léttir í akstri með1200—1700 kg.burðarþoliog
fást í5 mismunandi útgáfum: Lokaðir sendibílar, sendibílar
með gluggum og sætum fyrir 6 manns, fólksflutningabílar
með sætum fyrir 9—12 manns, pallbílar með sætum fyrir
3 og pallbílar með tvöföldu húsi og sætum fyrir 6 manns.
Vélargerðir eru 2: 2.2L dieselvél eða 2.0L bensínvél.
Við eigum nú til afgreiðslu strax örfáa af þessum frábæru
bíium á mjög hagstæðu verði:
Lökaður bíll með bensínvél.....................Kr. 556.000
Bíll með gluggum, 6 sætum, dieselvél og
vökvastýri ..................................... " 667.000
Pallbíll með 3 sætum og bensínvél........ " 532.000
Pallbíll með tvöföldu húsi, 6 sætum og
dieselvél ...................................... " 666.000
gengisskr. 21.4.86
Sýningarbíll á staðnum. Opið laugardaga frá kl. 1—5.
BILABORG HF.
SMIÐSHÖFÐA 23 SÍMI 6812 99
Höfundur er framkvæmdastjóri
fiskvinnslu í Vogum.