Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986 57 Hamborgarhöfn er ein sú stærsta í heimi. Arnarflug 10 ára: Flýgnr nú í fyrsta sínn tíl Hamborgar Móttökumar á Hamborgarflugvelli voru hlýlegar þegar vél Arnar flugs Ienti þar i fyrsta sinn. Borgin býður upp á fjölda veitingastaða í fögru umhverfi. Hér er einn slíkur með ráðhúsið í baksýn. Á 10 ára afmæli sinu, 10. apríl sl., hóf Amarflug áætlunarflug til Hamborgar en i ár heldur Hamborgarflugvöllur, Fuhls- biittel, upp á 75 ára afmæli sitt. Langþráður draumur þeirra Arnarflugsmanna um Hamborg- arflug er svo til jafngamall fyrir- tækinu að þeirra sögn enda Hamborg staður, sem hefur margt uppá að bjóða fyrir ferða- manninn. Borg verslana og viðskipta Hamborg, sem telur nú rúmlega 1,6 milljónir íbúa, hefur frá alda öðli verið þekktust sem verslunar- og viðskiptaborg, allt frá tfmum Hansakaupmanna til dagsins í dag. Borgin er fagurlega staðsett við ána Elbu, 100 km inni í Iandi frá Norð- ursjónum. Það tekur skipin fimm til sex klukkustundir að sigla upp ána til Hamborgar og er höfnin ein af Qölfömustu höfnum Evrópu. Um 16.000 flutningaskip fara þar um á ári hverju með samtals um 50 milljón tonn af vamingi ýmiss konar. Nálægt 50.000 manns hafa atvinnu af höfninni beint og annar eins fjöldi óbeint. Vinsælasta verslunarhverfí Hamborgar stendur í miðborginni, breið og vel skipulögð göngugata, Mönckeberg-stræti. Við annan enda hennar má sjá ráðhúsið og við hinn aðaljámbrautarstöðina. Götupopp- arar, listamenn og aðrir skemmti- kraftar setja mikinn svip á mannlíf miðborgarinnar með söng, dansi og öðrum uppákomum. Þá má finna ijölda veitingastaða og kráa sem bjóða upp á fjölbreytni bæði í mat og drykk, ekki bara þýska heldur líka gríska, franska, japanska, ít- alska, indverska, suður-ameríska og víetnamska matargérð. Verðlag á fatnaði er e.t.v. ekki svo ólíkt því sem gengur og gerist hér á landi en fjölbreytnin mun margbreyti- legri, eftir því sem blaðamaður komst næst. Lestir í allar áttir Um jámbrautarstöðina við enda Mönckebergrstrætis fara daglega 810 lestir og þaðan liggja leiðir í allar hugsanlegar áttir. Þá fara yfir 300 lestir frá Hamborg til annarra borga á meginlandinu svo sem Kaupmannahafnar, Feneyja, Moskvu, Stokkhólms, Belgrad, Mflanó, Rómar, Ziirich, Genf, París- ar, Bmssel og Amsterdam. Hamborg - græna borgin Hamborg er meira en verslun og samgöngur. Hamborg er falleg. Víða um borgina má sjá slagorðin „Hamborg er græn borg“ og em þau orð engar ýkjur. Skóglendi, garðar og aðrir skipulega grónir blettir og útivistarsvæði em fleiri í Hamborg en gengur og gerist annars staðar. Hamborg á einnig Evrópumetið í brúarsmíði, en biýr þar í borg em samtals 2.300 talsins á meðan Berlín fylgir í kjölfarið með 1.000 brýr, Amsterdam 600 og Feneyjar aðeins 400. Lífsg'laða Hamborg Óhætt er að fullyrða að Hamborg sofi aldrei. Næturlíf borgarinnar hefst um leið og skyggja tekur og stendur þangað til birta fer af degi. Helsta skemmtihverfi borgarinnar kallast Reeperbahn og má þar finna allt frá saklausum pylsusölum til gleðihúsa, enda slík viðskipti lögleg í þessari gleðiborg. Islendingar þeir sem hyggja á Hamborgarferð í sumar hafa eflaust úr nógu að moða er þangað kemur, en fyrir utan verslunar- og næturlíf borgarinnar má nefna fjölda útirokk-hljómleika, sinfóníu- hljómleika, balletta, skemmtigarða, einnig kvikmyndir, mynd- og leik- list. Yfir 1,5 milljónir ferðamanna sóttu Hamborg heim árið 1983 og af þeim var um þriðjungur útlend- ingar. Sænskir ferðamenn komu flestir, 56.000. Þá komu 46.000 Bretar, 42.000 Bandaríkjamenn, 35.000 Danir, 31.000 Norðmenn og síðast en ekki síst 26.000 Japan- ir. Að sögn þeirra Arnarflugsmanna er ætlunin að fljúga til Hamborgar tvisvar í viku í sumar en líklega ekki nema einu sinni yfír vetrartím- ann til að byija með. Texti: Jóhanna Ingvarsdóttir TER YLENEB UXUR NÝKOMNAR Mittismál80— 120sm. Kr. 1.195. Flauelsbuxurkr. 745. Gallabuxur kr. 825. Skyrtur, nærföt o.fl. ódýrt. Andrés, Skólavörðustíg 22a, simi 18250. Sumaigjöf - hvenær sem erl Kóngar í ríki sínu, bráðskemmtileg bók, Ronja Ræningjadóttir, Blómin á þakinu og tólf ódýrir og skemmtilegir bókapakkar eru gjafir sem hressir krakkar kunna vel að meta. Sniðugar gjafir í sumargjöf, í sveitina, í sumar- bústaðinn eða tjaldferðalagið - hvenær sem er. Ódýrar gjafir sem fást í öllum bókabúðum. Barnabókapakki 1 Tilboðsverð 798,- Svei attan Einar Askell F|yttu þér Einar Askell att 9ott Einar Askell öorn eru líka fólk Leikvöllurinn okkar a*>ó'taPq8^ BjT*bÓkaPakk> 4 yilboðsverð 3Sq _ Barbabót 'af Mál og menning // " &
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.