Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 29.04.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1986 7 Norskur vísindamaður á ráðstefnu hér: Segir stofnblönd- un eyðileg’gja ratvísi laxa ÍSLENDINGAR ættu að vara sig á því að halda áfram stofnblöndun á laxi í íslcnskum veiðiám sem stunduð hefur verið í ríkum mæli á undanförnum árum í formi seiðasleppinga. Það er orðsending til okkar frá norska fiskifræðiprófessornum Hans Nordeng sem hélt fyrirlestur hér á landi um helgina á vegum Landssambands stang- veiðifélaga. Nordeng er höfundur „feromon-kenningarinnar" sem útskýrir furðulega ratvísi laxfiska og hann fullyrðir með rökum að stofnblöndun slævi og eyðileggi með tímanum ratvísi laxastofna sem gangi í erfðir í einstökum stofnum. Nordeng hefur stundað rann- sóknir á þessu fyrirbæri og öðrum ásamt Ásu konu sinni við ána Sal- angen í Norður-Noregi síðustu 15 árin. Hann segir lykilinn vera hormónið ferómon sem laxinn fram- leiðir í lifrinni og setur í umhverfi sitt með blóði og saur. Oft hefur verið spurt í gegn um árin hvemig laxinn rati frá hafinu í rétta á, meira að segja í sama hylinn eða strenginn sem hann sjálfur fæddist í. Einnig hvemig hann viti hvenær hann eigi að fara að ganga frá hafinu upp að landi og fram í ána. Skýringuna er að finna í umræddu efni, laxinn þefi sig beinlínis á heimaslóðimar. Það helst nefnilega í hendur, að fyrstu laxarnir em farnir að ganga í árnar um 15 dögum eftir að fyrstu gönguseiðin halda til sjávar. Seiðin lóna um hríð í þeim vog eða firði sem áin rennur í og „menga“ vatnið þannig af hinni „réttu" lykt. Þegar fyrstu seiðin koma á uppvaxtarmiðin, em þar fyrir laxar sem vita þá að tíminn er kominn. Nordeng tók fyrst eftir þessu er hann vann við rannsóknir á hegðun sjóbleikju í Salangen og er hann heimfærði rannsóknirnar upp á laxinn kom í ljós að þetta átti ekki síður við um hann. Hvemig laxinn viti hvenær hann er kominn í sinn fæðingarhyl svarar Nordeng á þá leið, að þar séu fyrir ættingjar laxins, kynþroska hængsíli sem ekki gengu til sjávar eins^ig obbinn af árganginum. Þessi hængsíli taka þátt í hrygningunni og bera sig digurlega. Stofnblöndun hefur þegar gert mikinn skaða í Noregi eftir því sem Nordeng segir, í Noregi séu 1190 fiskeldistöðvar sem framleiði seiði og fullvaxna laxa til neyslu í millj- óna tali og ár hvert bæði sleppi fiskar úr prísundinni og er sleppt í laxveiðiár til að örva göngur í þeim. Auk þess er mikil gróska í viðskipt- um með laxaseiði sem enginn veit um uppmnann á og talaði Nordeng um allt að 2 milljónir slíkra seiða á ári. Er talað um norsku „hörm- ungarsöguna" sem aðrar þjóðir ættu að læra af. í tölu Nordengs kom hins vegar fram, að bjartar horfí nú yfir þessum málum í Nor- egi, umhverfismálaráðuneytið hafi þessi mál til meðferðar og löggjöf hafi verið samin til að stemma stigu við óæskilegri starfsemi. „Aldrei áður hefur verið tekið tillit til eins eða neins í fiskræktarmálum og árekstrar milli stjórnvalda og fisk- ræktarmanna verið tíðir. Nú hefur hins vegar tekist að skapa nýtingar- stefnu sem byggist á vísindalegum bakhjarli," sagði Nordeng. Keflavík: Skemmtistaðurinn „Starlight“ verð- ur Glaumberg FYRIR nokkru var opnaður í Keflavik skemmtistaðurinn „Starlight" og er hann i eigu Ragnars Arnar Péturssonar og fyrirtækis hans, Veislu. Jón Eysteinsson bæjarfógeti í Keflavík gerði Ragnari, að hann breytti nafni skemmtistaðarins til samræmis við löggjöf um nöfn fyrirtækja eða staðnum yrði lokað ella. Fékk Ragnar frest til miðnættis i gærkvöldi til þess að breyta nafninu. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að allar likur væru á því, að hann kallaði staðinn Glaumberg. Morgunblaðið spurði Jón Ey- steinsson bæjarfógeta hvers vegna hann hefði farið þess á leit við Ragnar, að hann breytti nafninu. Jón sagði, að í breytingu frá 1982 á lögum um leyfisveitingu fyrir rekstri veitingahúsa væri gert að skilyrði, að „nafn á fyrirtæki og/eða atvinnustarfsemi félli að hljóðkerfi og beygingum í íslensku máli“. „Og/eða atvinnustarfsemi" hefði verið sett inn í lögin til þess að koma í veg fyrir, að menn rækju starfsemi undir framandlegu nafni í skjóli fyrirtækis með íslensku nafni eins og hér hefði verið gert, þar sem skemmtistaðurinn „Star- light“ hefur verið rekinn á vegum fyrirtækisins Veislu. „Þetta er í fyrsta skipti sem svona mál kemur upp í mínu um- dæmi,“ sagði Jón, „og ég ætlaði bara að stöðva þetta þar sem í til- vitnuðum lögum segir, að lögreglu- stjóra sé heimilt að afturkalla leyfi, sem hann hefur veitt, sé skilyrðum ekki fullnægt." „Að mati lögfræðings míns er ekkert vafamál, að skjóti ég málinu til sérsLukrar nefndar í ráðuneytinu, vinn ég það,“ sagði Ragnar Örn Pétursson. „Fyrirtæki mitt heitir Veisla, á því er enginn vafi. Það á svo að vera mitt mál hvort ég nefni einhvern sal, sem ég á, Bláa salinn, „Starlight" eða eitthvað annað. Þess eru allmörg dæmi eftir 1982, að veitingastaðir hafi fengið erlend nöfn í skjóli fyrirtækja undir ís- lensku nafni. Ég get nefnt til dæmis „American Style". Það er hins vegar önnur hlið á þessu máli. Almenningur hér í Keflavík virðist vera andvígur enska nafninu; heldur að þetta dragi Bandaríkjamennina á vellin- um að og þykir það heldur slæmt. Bæjarstjómin skoraði líka á mig að breyta þessu „ónefni", eins og hún kallaði það, og í framhaldi af þessum viðbrögðum hef ég ákveðið að skipta um nafn á staðnum og kalla hann að öllum líkindum Glaumberg," sagði Ragnar Örn Pétursson. Þess má geta, að nafnið Broad- way á Veitingahúsinu Álfabakka 8 kom til áður en áðumefndum lögum var breytt. Jónas Hvannberg, stofnandi verslunarinnar Hvannbergsbræður ásamt starfsfólki sínu, frá vinstri i efri röð: Guðmundur Norðfjörð skósmiður, Guðfinna Guðmundsdóttir, Þórður Guðmundsson, en hann er nýhættur störfum og vann í versluninni í um 60 ár, Valgeir Einarsson og Friðrik Welding skósmiður. Fremri röð: Sigtryggur Árnason, Jónas Hvannberg og Frímann Ólafsson. Verslunin Hvannbergsbræður 70 ára VERSLUNIN Hvannbergsbræður á 70 ára af- mæli i dag. Verslunin var stofnuð af bræðrunum Jónasi og Erlendi Hvannberg, og hóf starfsemi sina sem skóvinnustofa á Laugaveginum. Hvannbergsbræður fluttu í Eimskipafélagshúsið er það var byggt, en þaðan flutti verslunin á Lauga- veg 24 áður en hún fór í núverandi húsnæði á Laugavegi 71 árið 1982. Verslunin hefur alltaf verið í eigu sömu fjölskyldunnar, núverandi eigendur eru Gunnar Hvannberg, sonur Jónasar og Ebba Hvann- berg. Ebba Hvannberg, annar eigandinn, fyrir utan verslunina. AÐALFUNDUR VINNU- VEITENDASAMBANDS ÍSLANDS 1986 verður haldinn í dag þriðjudaginn 29. apríl í Súlnasal Hótel Sögu. Dagskrá: Kl. 11:00 Kl. 11:40 Kl. 12:15 Kl. 13:30 Kl. 14:00 KI. 16:00 Kl. 17:00 Fundarsetning. Ræða formanns, Gunnars J. Frið- rikssonar. Að ná árangri. Erindi: Magnús Gústafsson, for- stjóri. Hádegisverður aðalfundarfulltrúa og gesta. Skýrsla framkvæmdastjóra. Framleiðni og lífskjör. Erindi: Brynjólfur Bjarna- son, framkv.stj. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Valur Valsson, bankastjóri og Elías Gunnarsson, verkfræðingur. Almennar umræður. Framhald aðalfundarstarfa. Fundarslit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.