Morgunblaðið - 29.04.1986, Side 59

Morgunblaðið - 29.04.1986, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL1986 59 Krakkar búa sig undir kleinusöluna. Lúðraveitin í Stykk- ishólmi selur bæjar- búum heitar kleinur Stykkishólmi. LÚÐRASVEIT Stykkishólms, nú skipuð þróttmiklum ungmennum og ágætum stjórnanda, Daða Þór Einarssyni, hefir æft vel í vetur og hyggst nú halda utan og heim- sækja frændur og vini. Það stendur mikið til. Undirbúningur af fullum krafti og félagar lúðra- sveitarinnar hafa verið að safna fé til ferðarinnar. í dag var herferð um bæinn með kleinusölu. Fengu þeir lánað eldhús nýja grunnskólans okkar og fjöldi vina og velunnara koma þar saman að hnoða deig og steikja og var vissulega gaman að horfa á kapp og dugnað innan um bros og ánægju. Það var hnoðað og steikt og síðan sett í plastpoka sem svo félagar fóru með í skrúðgöngu um bæinn, bönkuðu upp á og buðu mönnum heitar kleinur. Var þessari nýjung vel tekið, því ekki minnist ég þess að kleinur hafi hér áður fyrr verið seldar í pokum á víða- vangi en eins og áður segir gefur gott málefni góðan byr og menn leggja margt á sig fyrir það. Svo er það líka ánægjulegt að kynna land og þjóð með góðum lúðraleik og einnig ferðast um. Er ákveðið að heimsækja þrjá vinabæi Stykkis- hólms, þ.e. Kolding í Danmörku, Örrebro í Svíþjóð og Drammen í Noregi. Fleiri munu fara héðan en lúðrasveitin því aðstandendur félag- anna munu hugsa sér að nota sér ferðina. Það er búið að ákveða hvemig ferðin verður, hve marga tónleika á að halda og hvað gera skuli á hvetjum degi og á ferðin að standa í hálfan mánuð. Farar- stjóri verður Gunnar Svanlaugsson yfirkennari og má búast við góðri og skemmtilegri ferð. Það er hug- myndin að fara í byijun júní ef allt fer eftir eins og ætlað er og koma heim um 17. júní. — Ami Frá kleinubakstrinum. Stjórnendur fyrirtækja - tölvudeilda - rekstrarráðgjafar SKYLDA OGÁBYRGD STJÚRNENDA FYRIRTÆKJA Síðastliðin 2-3 ár hefur orðið mjög ör þróun í þá átt að stjórnendur hafi meiri afskipti af nýtingu upplýsingatækninnar. Jafnframt því er farið að leggja áherslu á að í stefnumótun fyrirtækja verði tekið mið af framtíðar- nýtingu tækninnar. Flestir sem um þessi mál fjalla álíta að hæfileiki stjórn- anda til að samhæfa upplýsingatæknina stefnumótun fyrirtækis komi til með að ráða úrslitum um framgang fyrirtækja næsta áratug. Markmið: Námskeiðið leitast við að skapa stjórnendum þann grunn sem til þarf til að geta farið að stjórna þróun upplýsingatækninnar og samhæfa notkun hennar stefnumótun fyrirtækisins. Efni: 1. Möguleikar upplýsingatækninnar. 2. Fyrirtækið, þarfir þess og stefnumótun. 3. Stjórnendur, verkefni þeirra og ábyrgð. 4. Starfsfólk, menntunarþörf þess og áhrif á þróunina. 5. Upplýsingadeildin, skipulag hennar og starfsaðferðir. Auk þessa mun sérstaklega vera tekið fyrir hugtakið Strategic Information Systems (SIS), sem notað hefur verið sem heiti á nýju viðhorfi til nýtingar upplýsingatækninnar. Þátttakendur: Námskeiðið miðast við það að þátttakendur séu stjórnend- ur, rekstrarráðgjafar eða stjórnendur tölvudeilda. Uppbygging: Námskeiðið verður byggt upp áfyrirlestrum, verkefnum og hópumræðum. Leiðbeinandi: Guðjón Guðmundsson rekstrarráð- gjafi hjá Rekstrarráðgjöf og stundakennari í við- skiptadeild H. í. Hann lauk prófi í viðskiptafræði frá H. í. 1977 starfaði við framkvæmdastjórn til 1982 og lauk Cand. Merc. prófi, með séráherslu á ráðgjöf um upplýsingakerfi sem sérsviö frá Verslunarháskólan- um í Kaupmannahöfn árið 1984. Timi: 13.-14. maí kl. 13.00-19.00. Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.