Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
7
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
Að lokinni verðlaunaafhendingu tekur Sigurbjörn Leist til
kostanna með annarri hendi en hampar sigurlaununum í hinni.
Hvítasunnumót Fáks:
Leistur frá Keldudal á
nýju Islandsmeti í skeiði
VEKRINGURINN Leistur frá Keldudal kom heldur
á óvart þegar hann bætti núgildandi íslandsmet í
250 metra skeiði um eitt sekúndubrot á Hvítasunnu-
móti Fáks um helgina. Ekki þó svo að skilja að
Leistur hafi ekki þótt líklegur til að selja met á
þessu keppnistímabili heldur er ekki almennt búist
við slíkum afrekum á fyrstu kappreiðum keppnis-
tímabilsins. Tími Leists var 21,4 sek. en núverandi
methafi er Villingur frá Möðruvöllum en hann skeið-
aði í fyrra á 21,5 sek. en Leistur jafnaði það met
reyndar deginum eftir.
Til þess að þetta teljist gilt
met þarf stjóm Landssambands
hestamannafélaga að staðfesta
árangurinn en þess má geta að
vindmæling var gerð strax að
loknum spretti og reyndist vind-
urinn vera 2,8 vindstig, en má
vera mest 3 vindstig.
Leistur gat sér fyrst frægð á
kappreiðum 1983 er hann setti
íslandsmet í 150 metra skeiði,
13,8 sek., og stendur það met enn
í dag. Síðan hefur hann verið í
fremstu röð kappreiðavekringa
og ekki ósennilegt að hann eigi
eftir að bæta þennan árangur þar
sem hann er aðeins 9 vetrai Sjá bls. 66 og 67. Glæstir
gamall sem þykir ekki hár aldur gæðingar og góðir tím-
á þessum vettvangi. Ekki var ar.
Morgunblaðið/HG
Leistur einn að verki því Sigur-
bjöm Bárðarson var knapi en
hann er nú að heíja sitt 20.
keppnistímabil á kappreiðum.
Ef þetta met hlýtur staðfest-
ingu sem telja verður líklegt mun
þetta einnig teljast heimsmet því
þessi íþrótt er stunduð víða um
Evrópu á íslénskum hestum. Besti
tími sem náðst hefur erlendis af
erlendum knöpum er rúmri sek-
úndu lakari tími en þessi árangur
Leists. Reyndar er mjög fátítt að
hestar skeiði á tíma undir 23,0
sekúndum ytra.
Hrafnshreiður í herflugrél
Öftast nær verpa hrafnar fjarri mannabyggð og á óaðgengilegum
stöðum, en undantekningar eru til á öllu. Það sannar hrafninn á
Sólheimasandi. Hann er líklega eini hrafninn á landinu og þó víðar
væri leitað, sem gerir sér hreiður í flugvél. Á Sólheimasandi stendur
gömul herflugvél og hefur krummi gert sér hreiður í flugstjórnar-
klefa hennar við víðar útgöngudyr. Hvort þessi hreiðurstaður á eftir
að hafa áhrif á flughæfni unganna, sem á myndinni teygja ginið á
móti myndavélinni, skal ósagt látið, en líklega verða þeir fleygir
innan tiðar.
Peysur í mörgum litum, stærðir 2—14. Verð frá kr. 290,-
Buxur, flestar stærðir. Verð frá kr. 395,-
Strigaskór nr. 25—36. Verð frá kr. 299,-
Stígvél nr. 30—33. Verð frá kr. 290,-
Mittisblússur á unglinga. Verð frá kr. 290,-
Nærfatnaður. Verð frá kr. 65,-
Sokkar. Verð frá kr. 25,-
Vonim að taka upp
nýjar sendingar
Stórar klukkupijónspeysur, tískulitir, kr. 795—990,-
Herrabuxur, stórar stærðir, kr. 490—995,-
Gallabuxur í nr. 30—46, kr. 995,-
Mikið úrval af kvenskóm.
Lakkskór m/háum og lágum hæl kr. 395,-
Strigaskór, margir litir, stærðir nr. 35—45, kr. 890,-
íþróttaskór, háir og lágir, leður, stærðir 40—44, kr. 990,-
Fyrirþærsem eru duglegarað sauma, fataefni —gluggatjalda-
efni. Tískulitir. Gott verð.
ENNFREMUR
Ungbarnagallar kr. 285,- Barnabuxur kr. 298,- Drengjaskyrtur frá kr.
145,- Jogging- og ullarpeysur kr. 250. Vatteraðir mittisjakkar kr.
2.400,- Stuttermabolir, stærðir S—M—L frá kr. 195—535,- Herranær-
föt, stærðir S—M, kr. 195,- Sumarjakkar í tískulitunum, stærðir
S—M—L, kr. 990,- Dragtir kr. 950,- Kuldaúlpur kr. 1.990,- Barnajogg-
inggallar nr. 6—10 kr. 1.190,- Herraskyrtur, mikið úrval, kr. 490,-
Herrasokkar frá kr. 85,- Bikini kr. 240,- Handklæði frá kr. 145—395,-
Sængurverasett frá kr. 840,- Hespulopi 100 gr kr. 20,- Hljómplötur,
verð frá kr. 49—299,- Áteknar kassettur kr. 199.- Þvottalögur sótt-
hreinsandi á kr. ÍO,- Þvottabalar frá kr. 319—348,-
Opnunartími: Mánud.—fimmtudag.
Föstud.
Laugard.
Greiðslukortaþjónusta
10-18
10—19
10—16