Morgunblaðið - 21.05.1986, Síða 17

Morgunblaðið - 21.05.1986, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKÚDAGUR 21.MÁÍ 1986 17 „Strax“ slær í g-eg-n í Kína — segir í skeyti frá AP fréttastofunni Árni Sigfússon ávarpar hinn fjölmenna fund i Jónshúsi í Kaupmannahöfn. „Mikíll stuðningur við Sjálf stæðisf lokkinn“ — segir Árni Sigfússon um fundi með námsmönnum erlendis HLJÓMSVEITIN Strax, öðru nafni Stuðmenn, sem er þessa dagana í tónleikaferð um Kina, hefur haldið fjölda tónleika þar í landi, ávallt fyrir fullu húsi. „Strax“ hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda i Kina og hefur hljómsveitin, þurft að halda auka- hljómleika þar sem færri hafa komist að en viljað hafa. Fólk á öllum aldri hefur sótt tónleikana en „Strax“ er ein fyrsta erlenda rokkhljómsveitin sem fær svo góð- ar viðtökur frá yfirvöldum, t.d. sýndi sjónvarpið sl. laugardag tiu mínútna upptöku frá hljómleikum „Strax“ i Shanghai i fréttatima. óperuhöllinni voru vegalengdir land- anna á milli ekki svo ýkja langar í hugum manna. Tónleikar sjö-menn- inganna samanstóðu af sterkum hljóðfæraleik, góðri sviðsframkomu og miklum röddum og nutu áheyr- endur rokks, popptónlistar og ís- lenskrar tónlistar alls í senn en þó með austrænum blæbrigðum. „ „Strax" hóf feril sinn fyrir tíu árum. Hljómsveitinni var boðið til Kína á vegum vináttusamtaka Kín- verja við önnur lönd. Hljóðfæraleik- aramir komu á sviðið með hljómborð, þijá gítara, trommusett og fluttu þrumandi tónlist. Söngkonan vinsæla Ragga og söngvarinn Aggi birtust „VIÐ LÖGÐUM áherslu á sterkan flokk við stjórn í stað fimm sundur- leitra smáflokka," sagði Arni Sigfússon, sem skipar sjöunda sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins til borgarsljórnar, í samtali við Morgunblaðið um fundi þá, sem hann og Friðrik Sophusson efndu til með íslenskum námsmönnum á Norðurlöndunum sl. tvær vikur. Að sögn Áma gekk ferðin vel og vom umræður á fundinum mjög málefnalegar. Fyrsti fundurinn var haldinn í Óðinsvé og sá síðasti í Osló en alls héldu þeir Friðrik og Árni sex fundi. Árni sagði, að yfir tvöhundmð manns hefðu sótt fundina í heild og væri það langmesta fundarsókn á fundum stjórnmálaflokkanna með námsmönnum erlendis nú fyrir sveitarstjómarkosningar. Fjöl- mennasti fundurinn hefði verið haldinn í Jónshúsi í Kaupmanna- höfn en þar hefðu yfir fímmtíu manns mætt. Árni sagði, að efni fundanna hefði verið nokkuð breytilegt, bæði hefði verið rætt um borgarmál en einnig hefðu málefni Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna mikið verið til umræðu. Skiptar skoðanir hefðu verið um lánasjóðinn en flestir hefðu þó talið mestu máli skipta að sjóðnum væri skapað meira öryggi. Einnig hefði verið nauðsyn- legt að leiðrétta ýmislegt, sem hefði mátt misskilja hjá menntamálaráð- herra. „Af viðræðum við fólk fann ég mikinn stuðning við Sjálfstæðis- flokkinn. Námsmenn skilja það mjög vel, að með faglegum vinnu- brögðum og góðum undirbúningi er hægt að fá miklu áorkað og þess vegna á Sjálfstæðisflokkurinn stuðning margra úr þeirra röðum," sagði Árni að lokum. Stuðmenn, sem nefna sig Strax í Kína. Dagblaðið Hangzhou Moming Post segir m.a. eftir fyrstu tónleika „Strax" sem þeir félagar kalla „ís- land-Kína": „Þau komu frá landi íss, en færðu okkur hlýja vináttu. Þær hugmjmdir sem Kínveijar gera sér um ísland í fljótu bragði eru að landið er langt í burtu, svo til óþekkt þeim og kalt. En á meðan „Strax“ hélt sína fyrstu tónleika í Peking- Framleiðnisjóður landbúnaðarins: Veittar 10 til 15 milljónir kr. til mjólkurframleiðslu Landbúnaðarráðherra hefur staðfest samþykkt stjórnar Framleiðnisjóðs landbúnaðarins um fjárhagslegan stuðning við mjólkurframleiðendur. Stuðn- ingurinn er annars vegar fólginn í greiðslu 10% af grundvallar- verði mjólkur umfram fullvirðis- rétt, en innan búmarks, eins og fram hefur komið i Morgun- blaðinu og hins vegar í verð- ábyrgð vegna aukins fullvirðis- réttar á þremur svæðum sem orðið hafa illa úti vegna niður- skurðar á fé vegna riðuveiki. Mjólkurframleiðendur á mjólkur- samlagssvæðum samlaganna á Patreksfirði, Norðfirði og Djúpa- vogi fá með þessari samþykkt Framleiðnisjóðs viðbótarmjólkur- kvóta upp á um 307 þúsund lítra. í frétt frá Framleiðnisjóði segir að bændur á þessum svæðum séu í vanda staddir vegna niðurskurðar- ins og að þeir hafi verið hvattir til að auka mjólkurframleiðsluna tíma- bundið og verið undanþegnir verð- skerðingu, en síðan farið illa út úr skiptingu fullvirðisréttar vegna þess að búmark þeirra hafi verið í miklu ósamræmi við mjólkurfram- leiðsluna. Þá segir að þessi ráðstöf- un gildi aðeins fyrir yfirstandandi framleiðsluár en tryggi ekki á neinn hátt fullvirðisrétt á næstu árum. Gert er ráð fyrir að þessi sérstaka verðábyrgð kosti Framleiðnisjóð um 7,7 milljónir kr. Viðbótargreiðsla Framleiðnisjóðs vegna umframmjólkurinnar er áætluð 2,50 krónur á hvern innlagð- an lítra og kemur hún til viðbótar 3,75 kr. sem gert er ráð fyrir að mjólkursamlögin greiði. Þannig fá bændur samtals 6,25 krónur fyrir hvern lítra umfram fullvirðisrétt, en þurfa að greiða flutningskostnað að samlagi og sjóðagjöld, þannig að þeir fá ef til vill um 5 krónur útborgaðar. Gert er ráð fyrir að framleiðslan umfram fullvirðisrétt verði 1-3 milljónir lítra. Verði það mun þessi ákvörðun kosta Fram- leiðnisjóð 2,5 til 7,5 milljónir kr. Framleiðnisjóður rökstyður þessa ákvörðun sína með því að vísa til þess óhagræðis sem bændur hafa orðið fyrir vegna þess hve seint reglugerð um skiptingu mjólkur- framleiðslunnar kom. Báðar þessar samþykktir eru gerðar á grundvelli fyrirheits landbúnaðarráðherra um að hann beiti sér fyrir því að útvega fé til að koma til móts við útgjalda- auka sjóðsins vegna þeirra. fljótlega, syngjandi og dansandi auk þess sem þau brugðu á leik á gaman- saman hátt fyrir troðfullan áheyr- endasalinn. Flutt voru 25 lög og hámarki náði stemmningin þegar „Strax“ flutti lagið „Kína" sem samið var sérstaklega í tilefni fararinnar auk kínverska lagsins „Great Wall“ sem sungið var á kínversku. Liberation Moming Post segir m.a.: Islenska hljómsvetin Strax gerði yfir 1.500 Shanghai-áheyrend- um kleift að njóta léttrar tónlistar, jazz- og rokktónlistar frá N-Evrópu. Meðlimir hljómsveitarinnar hafa að bera miklar raddir og hreyfingar allar á meðan á tónleikunum stóð voru afar skemmtilegar, snöggar og litríkar. Jakob Magnússon lék kafla á hljómborð sitt er hann sjálfur nefndi mynd af íslensku landslagi og Ásgeir trommuleikari fékk góðar viðtökur fyrirtrommusóló sinn. Þau sungu um ást, náttúru og fegurð lífsins og túlkuðu með dynj- andi tónlist. Söngvaramir, Ragga og Aggi, voru flörmikil á sviðinu og stóðu sig með prýði þrátt fyrir ókunnugt umhverfi og ókunnuga áheyrendur. Aðeins mátti sjá óöryggi þegar þau sungu kínverska textann - enda ekki að undra þó þau hafi verið lítið eitt hrædd um að gera mistök í meðför textans. „Viðurkenni að þetta er viss undansláttur frá s1jórnuninni“ — segir Jóhannes Torfason formaður Framleiðnisjóðs „ÞAÐ verður að viðurkennast að þetta er viss undansláttur frá reglugerð um stjórnun mjólkurframleiðslunnar, en rök- in fyrir þessu eru annars vegar ótti manna við að ekki takist að hafa næga mjólk á dagvöru- markaðnum í ágústmánuði og hins vegar að koma til móts við háværar raddir bænda um skaðabætur vegna þess hversu mjólkurreglugerðin kom seint," sagði Jóhannes Torfason, for- maður stjórnar Framleiðnisjóðs landbúnaðarins um samþykkt stjórnar sjóðsins um greiðslu á 10% verði mjólkur umfram út- hlutaðan mjólkurkvóta. — Hefiir þú trú á að þessi greiðsla dugi til að fá bændur til að leggja mjólkina inn í samlögin? „Já, ég held það. Það verður að hafa í huga að mjólk sem framleidd er á sumrin er mjög ódýr í fram- leiðslu, litlu þarf að kosta til öðru en beitinni. Menn eru búnir að fá fullt verð útborgað fyrir alla aðra framleiðslu og því ætti það að vera betra fyrir þá að þiggja þetta frekar en að hella mjólkinni niður. Ég get ekki séð að aðrir kostir, svo sem heimaframleiðsla á afurðum eða nautakjötsframleiðsla úr mjólkinni, séu vænlegri kostir." — Getur þessi greiðsla þá ekki orðið framleiðsluhvetjandi og orðið til að birgðir aukist? „Á því á ekki að vera mikil hætta því 15% greiðsla mjólkur- samlaganna er áætlað útflutnings- verð þeirra vinnsluvara sem til falla vegna umframmjólkur og 10% viðbótin í rauninni uppbót á það verð til bænda. Annars ætti frekar að spyrja Mjólkursamsöluna í Reykjavík og Framleiðsluráð að þessu, því þeir lögðu mikla áherslu á þetta til að tryggja nægjanlegt framboð dagneysluvara á mark- aðnurn í allt sumar. Sjálfur hef ég vissar efasemdir um að þetta vandamál sé jafn mikið og af er látið því margir bændur munu ekki framleiða upp í sinn framleiðslurétt og auðsætt að mikil mjólk ínun berast frá þeim allan ágústmánuð. Það getur líka vel komið til greina að flytja mjólk á milli landshluta til að leysa tímabundin vandamál á markaðnum." — Hvemig rökstyður stjóm sjóðsins þessar greiðslur. Er það ekki aðalhlutverk hans að sinna atvinnuuppbyggingu í stað sam- dráttar í hinum hefðbundnu bú- greinum? „Sjóðurinn hefur heimild til að leggja peninga í flárhagslega end- urskipulagningu á búrekstri og teljum við að þetta geti fallið undir það hlutverk. Því er hins vegar ekki að leyna að þama er farið á tæpasta vaðið. Mikið er leitað til sjóðsins með ýmis mál og hefur alltaf verið erfitt að draga mörkin. Þetta var þó ákveðið sem neyðar- lausn á vanda sem upp er kominn, en hún verður ekki endurtekin, enda verður að leysa vandamál framleiðslustjómunarinnar við setningu reglugerðar fyrir næsta verðlagsár, enda em þessar að- gerðir byggðar á fyrirheiti land- búnaðarráðherra um viðbótarfé til sjóðsins þegar á þessu ári.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.