Morgunblaðið - 21.05.1986, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAI1986
19
Lestin brunar ...
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
AUSTURBÆJARBÍÓ:
FLÓTTALESTIN -
RUNAWAYTRAIN ★ ★ ★>/2
Leikstjóri Andrei Konchalov-
sky. Framleiðendur Golan,
Globus. Handrit Djordje
Milicevic, Paul Zindel, Edward
Bunker, byggt á kvikmynda-
handriti e. Akira Kurosawa.
Kvikmyndataka Alan Hume.
Klipping Henry Richardson.
Tónlist Trevor Jones. Aðal-
hlutverk Jon Voight, Eric Rob-
erts, Rebecca DeMornay, Kyle
T. Heffner, John P. Ryan,
Kenneth McMillan. Bandarísk.
Cannon 1985.111 mín.
Runaway Train er knúin
áfram af tröllauknum, samur-
aiskum fítonskrafti sem meistari
Kurosawa mætti telja sig full-
sæmdan af. Reyndar er myndin
að mestum hluta byggð á kvik-
myndahandriti e. Kurosawa, um
tvo afbrotamenn sem stijúka úr
fangelsi einhversstaðar í freðmýr-
um Alaska. Sá eldri, Voight, er
forhertur tugthúslimur með tvær,
mislukkaðar stroktilraunir að
baki. Nú á að duga eða drepast.
Sá yngri, skítseyðið Roberts, lítur
með aðdáun upp til hins ófor-
betranlega illmennis, sem sönnu
úrhraki sæmir.
Eina von þeirra til að sleppa
til byggða er að felast í járnbraut
á suðurleið, en brautarstöð er
nærri fangelsinu. Eftir ævintýra-
lega undankomu tekst þeim að
felast um borð í einni lestinni en
þá vill svo kaldhæðnislega til að
stjómandi hennar fellur frá og
lestin brunar stjómlaust eftir
snævi þaktri auðninni. Fangelsis-
stjórinn kemst á spor þeirra og
upphefst hatrammur eltingarleik-
ur.
Það er liðinn ár og dagur síðan
sýnd hefur verið jafn óhugnanlega
og hrollköld spennumynd. Engu
Iíkara en maður sé að fylgjast
með fordæmdum í helvíti. Um-
hverfið, persónurnar, hugsunar-
hátturinn og ekki síst hin svarta
dísiiófreskja sem æðir öskrandi
og óstöðvandi með mannhundana
innanborðs um frostkalda auðn-
ina, allt hjálpar þetta til að gera
myndina að ógnvekjandi reynslu.
Svo er að sjá sem „frelsið" sem
fangamir leita eftir, sé ekkert
frekar að finna utan múranna.
Þar ræður stjómleysið og þeir eru
sem af tröllum teknir.
Konchalovsky á bersýnilega
ýmislegt uppí erminni, hér kemur
Jon Voiglit hefur ekki verið í
aðra tið betri en í Flóttalestinni,
nema ef vera skyldi Midnight
Cowboy.
hann með mynd gjörólíka hinni
rómantísku og ljóðrænu Maria’s
Lovers, sem var þrungin mann-
legum tilfínningum. Hér minnir
stíll hans eilítið á Kurosawa, dísil-
skrímslið brýst áfram, óstöðvandi
og ógnvekjandi líkt og samurainn,
og höfuðpaurinn Voight, sver sig
óneitanlega í ætt við þá. Yfir
vötnunum svífur austrænn dular-
óður um fordæmdar sálir sem
sigla hraðbyri til heljar. Rússinn
magnar upp þau gráköldu áhrif
sem ríkja í myndinni, jafnt í
hrottalega raunsæislegum fang-
elsisatriðum sem í fangbrögðum
mannanna við lestaróvættinn og
umhverfið þegar út er komið.
Konchalovsky nýtur aðstoðar
frábærra listamanna. Kvik-
myndatökumanns sem svo sann-
arlega kann að gera sér mat úr
myndrænu • efninu. Klippara sem
á ríkan þátt í óhugnanlegri spenn-
unni og undirstrikar þá ískyggi-
legu veraldarsýn sem ætíð blasir
við augum í Flóttalestinni. Og
þá er tónlistin heldur ekki lítill
hluthafi í heildaráhrifunum. Leik-
ur Jon Voights er kynngimagnað-
ur, hann hefur ekki verið betri
allar götur aftur til Midnight
Cowboy. Með einni grettu máir
hann af sér öll grátkerlingarhlut-
verkin sem hafa þjakað hann á
undanfömum áratug. Maðurinn
skapar fágætan hundingja í kvik-
myndasögunni, úrþvætti sem
lætur ekkert stöðva sig til að ná
settu marki. Það er sem hvíli á
honum eilíf útskúfun, Abab skip-
stjóri kemur upp í hugann. Rob-
erts leikur smáskítinn af gamal-
kunnri (Star 80, The Pope of
Greewich Village) innlifun og
John P. Rayan skapar eftirminni-
lega illvígan og óárennilegan
fangelsisstjóra. Og Konchalovsky
skilur mann að lokum hálf-lamað-
an eftir, þegar á enda er runnið
hrottaleg og æsispennandi ferða-
lag um ísilagða velli hinna útskúf-
uðu, þar sem ekkert gott grær
eða þrífst.
Morðin hennar M.M. Kaye
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
M.M. Kaye: Death in Kashmir
Útg. Penguin 1984 og
M.M. Kaye: Death in Zanzibar
Útg. St. Martins Press 1984
Sú fyrrnefnda bók hér er ný af
nálinni, aftur á móti er Dauðinn í
Zanzibar uppskrifuð að nokkru, að
því er höfundur segir, og var meðal
fyrstu bóka höfundarins og hét þá
Skuggahús. Síðan M.M. Kaye upp-
götvaði og ekki síður útgefendur
hennar, hvað titill sem byijar annað
hvort á „dauði“ eða „rnorð" gengur
vel í lesendur hefur dauðinn á mjög
svo hræðilegan og óeðlilegan hátt
stungið sér niður í hinum ýmsu
heimshornum í túlkun M.M. Kaye.
Ymsar bækur hennar eru kunnar
og nokkurra hefur verið getið í
þessum dálkum, svo sem Death in
Cyprus og Death in Kenya. M.M.
Kaye hefur á síðustu árum einatt
verið líkt við Agöthu Christie og
sögur þeirra eru ekki með öllu ólík-
ar, þótt „nútímalegar” aðferðir við
að fyrirkoma fólki hafi verið teknar
í notkun í bókum Kaye og hún er
sömuleiðis töluvert djarfari í lýsing-
um á samskiptum kynjanna, þótt
það sé svo snyrtilegt, að enginn
getur hneykslast.
M.M. Kaye á það einnig sameig-
inlegt með Agöthu, að venjulega
er einhver ákveðinn hópur saman-
kominn á einum stað. Þessi hópur
hefur ekki safnast saman fyrir til-
viljun, heldur vegna þrautskipu-
lagðra áforma einhverra glæpa-
manna annars vegar og hins vegar
vegna góðu náunganna og leynilög-
reglumanna sem bregða sér í önnur
gervi og eru að reyna að hafa upp
á nefndum ódæðismönnum. Sá
hængur er á, að allir eru í svo góð-
um gervum, að það veit enginn
hver hver er og þess vegna verður
spennandi þegar til aðgerða fer að
draga hvort réttir menn myrða nú
rétta eða öfugt.
„Dauðinn í Zanzibar" er sýnu
skemmtilegri bók að mínum dómi
og spennandi frá fyrstu blaðsíðum.
Ung brezk stúlka er á leiðinni að
hitta móður sína sem býr í Zanzibar
með nýjum eiginmanni sínum sem
er frægur rithöfundur. Stúlkan
verður fyrir dularfullri áreitni á
hótelinu í London, og vegabréfinu
hennar er stolið og það er leitað í
föggum hennar. Hún hittir á hótel-
inu gest sem reynist vera útgefandi
rithöfundarins og hann er að
drekkja sorgum sínum vegna svika
unnustu sinnar og ákveður snarlega
að útbúa stúlkuna sem rítara sinn,
svo að hún komist á leiðarenda.
Síðan er lagt upp í ferðina. Blaða-
maður, elskulegur og vænn er í
förinni, svo og nokkrir ættingjar
og vinir. Einkaritari rithöfundarins
á að taka á móti þeim á flugvellin-
um, en tefst því hann var hjá tann-
lækni (afdrifaríkt það). Og svo er
stöðugt verið að leita eftir lífi ungu
stúlkunnar og ekki einleikið. Hún
hlýtur að hafa eitthvað í fórum sín-
um, sem er svona eftirsóknarvert
ellegar búa yfir einhverri vitneskju,
sem gæti orðið hættuleg. En auðvit-
að hefur hún eins og sönnum sak-
leysingja sæmir ekki græna glóru
um, hvað það gæti verið.
Þau komast á leiðarenda, en þá
hefur einn verið gerður höfðinu
styttri og svo fer að saxast á liðið.
Það má engu muna í lokin, en allt
fer þó „vel“ og bókin er bráð-
skemmtileg aflestrar, fyrir utan að
lýsingar á eynni Zanzibar eru í
meira lagi fýsilegar og vel gerðar.
Dauðinn í Kashmir er í sjálfu sér
veigameiri bók sem slík. Sem saka-
málasaga fer hún þó afskaplega
hægt af stað og það er ekki auð-
hlaupið að því að skilja „plottið"
fyrr en seint og um síðir.
Þar er stúlka einnig aðalpersónan
eins og raunar í öllum þeim bókum
eftir M.M. Kaye sem ég hef lesið.
Hún heitir Sarah Parrish og fer að
gamni sínu á skíði í Kashmir. Þetta
er rétt um það leyti.
Bretar eru að fara frá Indlandi.
Og það er spumingin: getur verið
að það sé starfandi einhvers konar
„frelsishreyfing“ í Kashmir eða að
minnsta kosti lítur út fyrir að ein-
hveijir aðilar ætli að tryggja sér
yfirráð í Kashmir. Gæti verið að
það væru nágrannamir í norðri?
Það er alveg lífsnauðsynlegt að
bijóta upp þessi samtök en því er
nú verr að alls konar slyngir aðilar
hafa reynt að komast að því sanna,
en áður en þeir hafa komið frá sér
vitneskjunni eru þeir drepnir -
þangað til Charles kemur á vett-
vang og tekur til óspilltra málanna.
Sarah hefur þá blandast inn í málið
vegna samskipta sinna við stúlkuna
Jane sem reyndist vera njósnari og
var kálað þegar hún var í skíðaferð-
inni.
Þegar á líður bókina verður hún
meira spennandi og flækjumar ekki
eins óskiljanlegar og hún er einnig
fróðleg frásaga um þennan hluta
Indlands á síðustu mánuðum
brezkra yfirráða.
ER BÍLLINN
f LAGI
Original japanskir
varahlutir í flesta
japanska bíla.
BÍLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 M
EINKAUMBOÐ FYRIR
DEXION Á ÍSLANDI
DEXION
Fyrir vörugeymslur,
verslanlr,
iðnfyrirtæki og
heimili
HILLUR, SKÁPAR,
SKÚFFUR, REKKAR,
BAKKAR, BORÐ
LANDSSMIÐJAN HF.
SÍM191-20680
V^terkurog
haglcvæmur
auglýsingamiðill!
Vildi færa
framboðs-
dagskrána
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá Áma
Björnssyni útvarpsráðsmanni:
„Vegna fréttar í laugardagsblaði
Morgunblaðsins af fundi útvarps-
ráðs daginn áður vil ég taka fram,
að ég lagði til að framboðsfundur
í sjónvarpi á annan í hvítasunnu
yrði færður til þannig að hann yrði
á milli klukkan 18 og 20. Þessi
tillaga hlaut ekki stuðning annarra
útvarpsráðsmanna."
handverkfærí
atvinnumannsin
Níðsterk og endingarmikil
verkfæri eru undirstaða
atvinnumannsins
Hazet-verkfæri til allra ver
□sQasfeöno QdGo Ármúla 34 Símar: 34060-:
34066