Morgunblaðið - 21.05.1986, Side 22

Morgunblaðið - 21.05.1986, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 Tekst að auka dilkakjöts- neyslu í Bandaiíkj uniim? Átak fjárbænda gefur góðar vonir eftirlvar Guðmundsson New York: Amerískt dilkakjöt hefir átt erf- itt uppdráttar á undanförnum árum. Neyslan hefir farið minnk- andi ár frá ári. Sú var þó tíðin, að lambakjöt var vinsæll matur í Ameríku, þótt aldrei næði það hylli nauta- og svinakjöts. A ár- unum um og eftir 1940 komst dilkakjötsneyslan í 7,3 pund að maðaltali á hvern einstakling árlega. En hrapaði niður í 4,9 pund 1963 og hefir ekki náð sér síðan. 1979-80 var neyslan 1,5 pund. Til samanburðar má geta þess, að þegar nautakjötsneyslan var mest fyrir tveimur árum komst hún upp í 77 pund á mann að jafnaði. Fiskneyslan í Banda- rikjunum er nú 12—13 pund. En nú er talið gott útlit fyrir, að aukning sé í vændum á dilka- kjötsmarkaðnum vegna ráðstafana Qárbænda, sem hafa hafið sókn til aukinnar neyslu lambakjöts. Átak- ið, sem unnið er að, er tvíþætt, annarsvegar er unnið að því að framleiða betri og betur útlítandi matvöru og hinsvegar er hafín auglýsinga og upplýsingaherferð af miklum móð meðal almennings. Minnkandi neysla lambakjöts í Bandaríkjunum stafar ekki ein- göngu af því að fólk hefír leitað annað til matfanga, heldur og vegna erfiðleika fjárbænda sökum veðurfars í helstu fíárræktarhéruð- um landsins. Þurrkar í Texas, sem er fjárflesta ríkið í Bandaríkjunum; hríðarveður um sauðburðinn í Wyoming, Colorado og Suður- Dakota í fyrravor. En það er fyrst og fremst í Vestur- og Miðríkjunum, sem fjárbúskapur þrífst að nokkru ráði. Þá hafa amerískir Qárbændur átt við samkeppni að stríða frá Nýja Sjálandi og Astralíu, sem síauka lambakjötsinnflutning sinn til Bandaríkjanna. T.d. jókst innflutn- ingur á lambakjöti frá þessum þjóð- um um 46 prósent á fyrstu 11 mánuðum 1985. Tið viðbótar var hágengi dollars þess valdandi að amerísk ull seldist ekki, þar sem margar þjóðir keyptu ódýrari ull annarsstaðar og framleiddu úr henni vörur, sem voru ódýrari en ullarvörur framleiddar í USA. Árið 1984 var slátrað 6.549 milljón dilkum í Bandaríkjunum, en 1985 dróst dilkastlátrunin saman um 10%. I Bandaríkjunum eru nú alls taldir 116.000 fjárbændur. Nýjar slátrunaraðferð- ir og aðrar endurbætur Fyrir rúmlega ári ákváðu am- erískir fjárbændur, að annað hvort væri að duga eða drepast, ef fjár- búskapur ætti ekki að leggjast úr af með öllu. Þeir völdu að duga og gera þær ráðstafanir sem þyrfti til viðreisnar fjárbúskap í landinu. Ný sláturhús hafa verið reist og nýjar slátrunaraðferðir teknar í notkun. Forsíða bæklingsins sem minnst er á í greininni. Aðalbreytingin í slátruninni sjálfri er sú, að í stað þess að hengja skrokkinn á afturlöppunum þegar gærunni er flett af, þá er skrokknum snúið við og gærunni er flett að framan og aftur úr. Talið er að þessi aðferð veiji verð- mestu bita skrokksins frá hnjaski og auk þessi þurfí ekki að hnífskera gæruna eins mikið og við gömlu aðferðina, en þegar gæran var skorin vildi það oft skemma skinnið og draga úr verðmæti þess. Ný sjálfvirk tæki til að fletta gærunni hafa verið fengin frá Nýja Sjálandi og þykir það hafa gefist vel og auðveldað gæruflettinguna til muna. Þá hafa og nýjar aðferðir verið teknar upp við skrokkskurðinn sjálfan. Fleiri nýjungar við slátrun eru taldar til bóta og spamaðar. Tölvutækni er og að sjálfsögðu notuð við greiningu skrokkanna og þungavigt. En vigtargreining skrokkanna er þýðingarmikil þar sem skrokkarnir eru seldir í fimm mismunandi þyngdarflokkum, frá 20 kg í 35 kg. Amerískum dilkum er venjulega slátrað þegar þeir eru 5—6 mánaða gamlir. Gemlingar eru að sjálfsögðu í sérflokki. Dilkakjöt af lömbum, sem öll eru á náttúrufóðri, grasi og korni er eina kjötið, sem kemst í opinberlega viðurkenndan úrvals- kjötflokk (Choice). Magnrt, létt og ljúffengt Samtök amerískra fjárbænda, Ameríska Dilka-ráðið hefur hafíð átak til að kynna lambakjöt og hvetja til neyslu þess. Kjörorðið er: „Magurt, létt og ljúffengt". Þetta er vitanlega í samræmi við tískuna í mataræði hér vestra, allt sem borðað er þarf nú að vera „létt“, jafnvel bjór er „Lite“ nú á dögum, eða léttur. Ráðið hefír gefíð út myndskreytt- an bækling þar sem nýja skurðinum er lýst í orðum og litmyndum. Þar eru einnig uppskriftir og leiðbein- ingar um matargerð. Nýi bitaskurðurinn er talinn vera frumlegur og til þess gerður að nýta kjötið sem best. Gera það um leið handhægara til matargerðar og auðvelda að það sé framborið á sem smekklegastan hátt þegar á diskinn er komið. í stuttu máli sagt, nýi bitaskurðurinn er hannaður í þeim tilgangi, að það náist sem flestir úrvalsbitar úr skrokknum. T.d. er fuliyrt að frambartar og hryggbitar verði betur fallnir en áður til fram- leiðslu í veitingahúsum. í bæklingn- um er fjöldi bita nefndur með nöfn- um, sem minna á hin gömlu, en önnur virðast ný af nálinni og hafa ekki, að því er best verður séð, verið birt á matarskrám eða í matreiðslubókum fyrr. Næringarf ræði Greinilegar upplýsingar um næringargildi dilkakjöts eru birtar. T.d. fáum við að vita, að í þremur únsum af dilkakjöti eru 138 hitaein- ingar. Einn dilkakjötsréttur veitir 40% af daglegu eggjahvítuefni, sem menn þurfa til að þeir þrífíst vel. Þeir, sem eru haldnir skorti B 12 fjörefni, geta fengið 79% af því úr lambakjötsmáltíð. í „kaupbæti" eru svo í dilkakjötinu ýmsir málmar og sölt, sem manninum er talið nauð- synlegt. Síðan er fjölda sérmáltíða lýst og hvemig þær skuli matreiddar. Menn eru varaðir við að sjóða eða steikja dilkakjöt of mikið, en það er talin nokkuð algeng villa. ÞEGAR RIGNIR A PRESTINN Þessi fregn um tilraunir amerískra fjárbænda var skrifuð í þeirri trú, að það sé mikið rétt í gamla máltækinu, sem segir, að „þegar rignir á prestinn þá drýpur á djáknann". Því takist amerískum fjár- bændum að endurvekja til muna áhuga almennings í Bandaríkjunum á dilkakjöti gæti svo farið að fleiri nytu góðs af en þeir sjálfír, því markaðurinn er takmarkalaus ef hann opnast. Það er að segja, ef við nennum að sinna slíku tækifæri og gerum það einu sinni eða í fyrsta skipti á réttan hátt. Sólheimar í Grímsnesi: Fyrsta skóflustungan tek- in að nýjum visteiningum Lionsklúbbsins Ægis í Reykjavík, heimilinu óskað heilla með bygg- sem um áraraðir hefur veitt heimil- ingaframkvæmdimar og því bárust inu ómetanlegan stuðning. Var gjafir og stuðningsyfírlýsingar. Siglufjörður: Mikið að gera í fiskvinnslunni MÁNUDAGINN 12. maí tók Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra fyrstu skóflustungu að bygTgingu tveggja nýrra vistein- inga á Sólheimum í Grímsnesi. Húsin eru um 190 fermetrar að flatarmáli hvort, teiknuð af arki- tektunum Áma Friðrikssyni og Páli Gunnlaugssyni. í hvoru húsi er rúm- góð vistarvera fyrir 6 vistmenn, auk lítillar starfsmannaíbúðar. Húsin munu leysa af hólmi eldra húsnæði sem ekki stenst lengur þær kröfur sem gerðar eru til meðferðarhús- næðis fyrir vangefna. Það er nýstofnaður Styrktarsjóð- ur Sólheima sem stendur að bygg- ingu húsanna, en hlutverk sjóðsins er að styðja starfsemi Sólheima og stuðla að uppbyggingu heimilisins. Fjöldi manns var viðstaddur athöfnina sem fór fram í mildu vorveðri. Meðal þeirra voru fulltrúar Foreldra- og vinafélags Sólheima, Hjálparstofnunar kirkjunnar, hreppsnefndar Grímsneshrepps og Siglufirði. ÞAÐ hefur verið mikil atvinna hér við höfnina undanfama daga. Hákon landaði á föstudag 27 tonnum af rækju og Skjöldur 17 tonnum. Sæljónið kom með lOtonnígær. Sveinborg kom inn í gærmorgun með 80-90 tonn af físki og Stálvík er væntanleg með 100—110 tonn. Hér er unnið í öllum fískvinnslu- stöðvum, bæði í rækju og öðru, og fólkið sér yfirleitt ekki fram úr verkefnunum. Hér fór fram skíðamót öldunga í gær og keppni hófst í.-2. deild íslandsmótsins í knattspymu. KS tók á móti Völsungum frá Húsavík. Veður er mjög gott, 8 stiga hiti, og hefur ekki verið betra vikum saman. — Matthías Nýr veitingastaður opnaður1 Hvammstanga. NÝTT veitingahús er tekið til starfa í Víðigerði í Vestur- Húnavatnssýslu. Tvenn hjón úr Reykjavík, þau Valur Kristinn Jónsson, Jóna Lóa Sigþórsdóttir, Dagbjartur Már Jónsson og Jómnn Jóhannesdóttir keyptu seint á árinu 1985 húsnæði og rekstur Halldórs Jóhannessonar sem hefur búið þar. í febrúar sl. hófust þau handa með gjörbreytingu á húsakynnum. Nú í maíbyijun opnuðu þau veit- ingastað undir nafninu Veitinga- Viðigerði skálinn Víðigerði. Þar er matsalur fyrir um 50 manns, 8 gistiherbergi fyrir 16 manns, ferðamannaversl- un, bensínsala og bifreiðaverkstæði. Þann 10. maí buðu hinir nýju eigendur sveitungum sínum í veislu og var hún vel sótt. Matreiðslumaður er ráðinn Sig- mundur Jónsson og hefur hann m.a. unnið í Þýskalandi. Segist hann munu leggja áherslu á heimil- islegan mat og velgjörning. Óskum við Húnvetningar aðstandendum Veitingaskálans alls hins besta. Karl Úr sal hins nýja veitingastaðar i Víðigerði. Fjölmargir gestir sóttu veislu sem boðið var til er veitingastaðurinn opnaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.